Morgunblaðið - 13.10.1974, Síða 28

Morgunblaðið - 13.10.1974, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. OKT0BER 1974 fólk — fólk — fólk — fólk r k___:_________________________________________________________' ____________I______________________:___i Rætt við Margréti Hansen í Hveragerði an tíma til aö nema á morgn- ana, segir hún. Tildrög þess aö hún fór að vinna á þessum stað, voru þau, að hún hefur verið ákaflega slæm af liðagigt. En síðan hún fór að ganga til vinnu daglega, um hálftíma gang hvora leið, og fara í sundlaugina á Heilsuhæl- inu daglega, finnst henni hún vera eins og önnur manneskja. — Ég geng alltaf á milli heimilis og vinnu og mæti næstum aldrei neinum, segir hún. Allir aka í bíl. En hreyf- ingin er mjög nauðsynleg. Það sé ég vel hér. Hingað kemur margt illa farið fólk. Margir fá góðan bata, en það eru fjöl- margir, sem byrja alltof seint að hugsa um að halda líkaman- um i hreyfingu og þjálfun. Margrét segist líka sjá það hve hollt fæði skipti miklu máli fyrir heílsuna. — Þvi miður lifi ég ekki alveg eftir kenningum náttúrulækningamanna. Mér er alveg sama þó ég fái ekki kjöt, en kaffis gét ég ekki verið án, segir hún. Eftir að 'heimilið fór að léttast hjá Margréti, fór hana að langa til að nema líka. En það er ekki auðvelt fyrir þá, sem eiga heima úti á lands- byggðinni. Börnin hennar hafa þurft að vera að heiman á vetr- um í skólum, ein teipan í Hamrahlíðarskóla og drengur í Menntaskólanum á Laugar- vatni. Sjálf innritaðist hún í Safnar KONA heitir Margrét Hansen. Hún safnar gleraugum. Ekki fyrir sjálfa sig þó. Heldur handa fólki f Afrfku, sem ekki hefur tækifæri til að eignast nauðsynleg gleraugu á sama hátt og tslendingar. Margrét vinnur við síma og upplýsingar á Heilsuhæli Náttúrulækninga- félags tslands og þar hefur henni orðið vel ágengt með söfnun gamalla gleraugna, þvf þar koma margir og fara, og ýmsir hafa sent henni nokkur pör, þegar þeir komu heim. Sagan um það hvernig og hvers vegna Margrét tók að safna gleraugum, hófst með þvf að hún las grein f dönsku blaði, þar sem sagt var frá tveimur öldnum gleraugnasölum á Norðurlöndum, Hugo Ahlquist og Frederik Thyme, og konu þess fyrrnefnda, sem höfðu á ferðalagi f Afrfkurfkinu Gambfu komist að því að þar var enginn augnlæknir eða gleraugnagerðarmaður, en fjöl- margir af hinum 350 þúsund íbúum landsins þörfnuðust sár- lega gleraugna. Frederik Thyme og Anna Margrethe kona hans kynntust því af raun, að lftið þýðir fyrir auðugar þjóðir að safna fé og reisa skóla fyrir þetta fólk, ef börn og full- orðnir geta ekki séð á bókina. Og þar sem þau vissu, að þúsundir manna á Norður- löndum eiga gleraugu, sem þeir ekki nota lengur og Ahlquist hefur kunnáttu til að slfpa þau til og laga að sjón viðkomandi eða velja rétt gleraugu handa þeim, tóku þau upp á því, með Ieyfi yfirvalda, að ferðast f sendiferðabíl um Gambfu og gefa fólki gleraugu f stað þess að vera skemmti- ferðafólk á eftirlaunum. En vinur þeirra, Frederik Thyme, sem einnig er optiker og hætt- ur störfum, tók að sér að safna heima þúsundum gleraugna, lesa þau f sundur og merkja eftir notagildi og senda suður eftir. Báðir hafa þessir eftir- launamenn þannig nýtt þekk- ingu sína til að skoða augun í öllum skólabörnum f Gambfu og reynt að útvega þeim notuð gleraugu, og ferðast um skóla og sléttur og dreift gleraugum. gler- augum handa Afríkubúum Þegar Margrét hafði lesið þessa grein, fór hún að hugsa um það, að ef hún hefði sjálf ekki fengið gleraugu, þá hefði hún aldrei getað Iesið. Hún kveðst sjálf hafa verið orðin 11 eða 12 ára gömul, þegar hún eignaðist sín fyrstu gleraugu og hafði þá t.d. aldrei séð fuglana. Hún varð alltaf að sitja fremst í skólastofunni til að sjá á töfl- una og fleira angraði hana vegna slæmrar sjónar. Af sex börnum hennar nota 5 gleraugu og alltaf er verið að skipta um gleraugu, svo talsvert er orðið til af gömlum gleraugum á heimilinu. — Ég nota sterk gler augu, en einn sonur minn þarf helmingi sterkari, segir Mar- grét. — Ég veit ekki hvernig hann hefði átt að vera í skóla gleraugnalaus. Að minnsta kosti verður alltaf að ná í önnur alveg í snarheitum, ef gleraug- un hans brotna. Mér varð hugs- að til þessa fólks I Afríkurík- inu. Hvað það hlyti að vera hræðilegt að sjá aldrei og eiga ekki kost á að fá gleraugu. Margrét sendi Morgunblað inu greinina og sagt var frá í blaðinu í ágústmánuði sl. En hún lét ekki þar við sitja, held- ur tók hún að safna gleraugum sjáif og er nú komin með 40—50 stykki af ýmsum gerð- um. Þau ætlarhúnaðfara með út til Danmerkur, þegar komið er nokkurt magn. En hún er gift dönskum manni og þau fara árlega í frí til Danmerkur. Þannig getur hún bætt safninu frá íslandi f safn gleraugnasal- anna og séð til þess að gleraug- un komist á áfangastað og séu valin við hæfi af fagfólki. — Eftir að greinin birtist f Morgunblaðinu, fór ég að hugsa um að hér á Heilsuhælinu dveldust svo margir og alltaf að koma nýtt fólk, svo ég fékk leyfi forstjórans til að safna gleraugum hér segir hún. Ég klippti út greinina og lagði hana fram, svo fólkið gæti séð hvað um er að ræða. Þessari málaleitan hefur verið ákaflega vel tekið og fólk sent mér gler- augu hingað eftir að það fer. Ég tek að sjálfsögðu við öll- um þeim gleraugum, sem mér berast, og er þakklát fyrir. Til dæmis safnaði kona í Laugar- dalnum saman gleraugum þar og sendi, og önnur f Reykjavík. Margrét er við kynningu ákaflega hæglát kona og ekki hávær í tali, en hún lætur sér sýnilega ekki nægja að hugsa um hlutina og segja sem svo: — Voðalegt er að hugsa til þess! eða: — Einhver verður að gera eitthvað í málinu! Hún tekur til hendi. Auk þess sem hún heldur heimili, þá vinnur hún síðdegis á Heilsuhælinu og er að auki við nám í 5. bekk f Gagnfræðaskólanum í Hvera gerði. — Núna, þegar krakk- arnir eru í burtu í skólum, nema sá yngsti, þá hefi ég ágæt- Margrét Hansen með fullan kassa af gleraugum, sem hún hefur safnað. öldungadeild Hamrahlíðar- skóla f fyrra og ók með manni úr Hveragerði, sem líka var þar við nám. En hann hætti um áramótin og þá var of erfitt að komast á milli. Hún hefði orðið að fara með áætlunarbílnum kl. 4.50 og ekki fengið ferð heim fyrr en kl. 11.30. Því varð hún að hætta. Þá og jafnframt þegar hún fór til Englands til að afla sér kunnáttu f ensku, komst hún að raun um að fullorðnir hafa ekki sömu aðstöðu og unglingar til að afla sér menntunar. Þegar hún hóf nám f Hamrahlíðar- skóla reyndi hún að fá dreifbýl- isstyrk til náms eins og börnin, en það gekk ekki. I fyrra fór Margrét til Englands f 2 mánuði um sumar- ið til að nema ensku. Hún hafði séð auglýst tilboð um vinnu og enskunám um leið. Hún sótti um það, en þegar til átti að taka, þá gat hún ekki fengið að vinna f Englandi, af því hún er fullorðin. Þetta gildir aðeins fyrir unglinga. Ferðin varð þvf mun dýrari en áætlað var, en Margrét lét það ekki á sig fá, heldur safnaði til fararinnar og sló sér víxil til að komast. — Og það borgaði sig sannarlega, segir hún. Mér fannst ég hafa meira gagn af enskunámi f þessa tvo mánuði en á tveimur árum í skóla heima. — Það gerir ekkert til þó maður þurfi að borga sitt nám, segir Margrét ennfremur. Ég geri þetta að gamni mfnu. Og ég veit að eftir 3 ár verða krakk- arnir allir farnir að heiman og þá hefi ég ekkert viðfangsefni annað en að búa til mat handa okkur hjónunum. Þvf vil ég búa mig undir annað verkefni í líf- inu, sem þá getur tekið við sam- hliða heimilishaldinu. Það er gaman að kynnast svo lifandi fólki og áhugasömu sem Margrét Hansen er. Vonandi fær hún mörg gleraugu send, svo sjálfboðaliðarnir, gler- augnasalarnir gömlu, hafi úr sem mestu að velja, þegar þeir úthluta gleraugum í Gambfu — E.Pá. Jeppa-og fólksbfla- kerrur Gísli Jónsson & Co hf., Sundaborg, Klettagarðar 11, sími 86644.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.