Morgunblaðið - 01.11.1974, Qupperneq 1
214. tbl. 61. árg.
MORGUNBLAÐIÐ 1. NÓVEMBER 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Líðan Nixons
enn alvarleg
Long Beach, 31. október
Reuter — NTB
LlÐAN Richard Nixons, fyrrum
Bandaríkjaforseta, var enn al-
varleg í kvöld, þrátt fyrir að
líkamsstarfsemin væri f aðal-
atriðum komin f samt lag. Nixon
missir talsvert af blóði, og kann
enn að hafa innvortis blæðingar,
að þvf er læknar hans sögðu.
Hann er samt sagður vera með
fuliri meðvitund, hafa áhuga á
þvf sem gerist f kringum hann og
vera samvinnuþýður.
Tilkynningin um heilsufars-
ástand Nixons var gefin út af
einkalækni hans, John Lungren,
og skurðlækni þeim, sem fram-
kvæmdi aðgerðina á forsetanum
fyrrverandi, Eldon Hickman.
Læknarnir sögðu að enn væri
hugsanlegt að heilsu Nixons hrak-
aði aftur, og hann yrði áfram
undir nákvæmu lækniseftirliti.
Þeir skýrðu frá því að blóðþrýst-
ingur hans og púls væri orðinn
eðlilegur. Nixon hefði fengið um
það bil hálfan lítra af blóði til
þess að vega upp á móti blóðmiss-
inum. Aður hafði hann fengið
einn og hálfan lítra af blóði.
Talsmaður sjúkrahússins í
Long Beach sagði að Pat Nixon og
dæturnar Julie og Tricia væru til
staðar í sjúkrahúsinu og færu inn
á neyðarstofuna til Nixons í stutt-
ar heimsóknir á klukkutíma
fresti.
Þetta er hið nýja og glæsilega verzl-
unar- og skrifstofuhús sem Einar Guð-
finnsson hf. hefur reist í Bolungarvík.
í dag eru 50 ár síðan hinn landskunni
athafnamaður Einar Guðfinnsson
stofnaði fyrirtæki sitt í Bolungarvík.
Af því tilefni hefur Mbl. átt samtal við
Einar og birtist það ásamt fjölda
mynda á bls. 10, 11 og 28. Ljósm. Mbl.
SS.
Mótaðgerðir evrópskra
flugfélaga gegn USA?
EVRÓPSK flugfélög hafa komið
sér saman um að hefja gagnað-
gerðir gegn ákvörðun Banda-
rfkjastjórnar um að reyna að
styrkja samkeppnisaðstöðu
bandarískra flugfélaga, að því er
NTB-fréttastofan hefur eftir
Knut Hagrup, forstjóra SAS, f
gær. Muni SAS innan tfðar senda
rfkisstjórnum Norðurlanda bréf
þar sem farið er fram á viðræður
um vandamál þau sem skapast af
völdum þessarar ákvörðunar. Séu
evrópsk flugfélög sammála um að
ræða málið við rfkisstjórnir hvers
fyrir sig, og kref jast mótaðgerða.
□ örn Johnson, forstjóri Flug-
leiða h.f., sagði f samtali við
Morgunblaðið f gær, að hann
hefði frétt að flugfélögin hygðust
mótmæla þessu, en hann byggist
ekki við neinum gagnaðgerðum.
Alla vega hefði þetta mál ekki
komið til kasta Flugleiðamanna,
og hann gerði ekki ráð fyrir nein-
um aðgerðum af þeirra hálfu.
Meðal þeirra aðgeröa sem
Framhald á bls. 24.
Leyniþjónustan
með í byltingar-
tilraun fasista?
Róm, 31. október — Reuter
VITO Miceli, hershöfðingi og
fyrrverandi yfirmaður ftölsku
leyniþjónustunnar, hefur verið
handtekinn fyrir þátttöku f póli-
tfsku samsæri, að þvf er ftölsk
lögregluyfirvöld skýrðu frá f
kvöld. Miceli sem var yfirmaður
leyniþjónustunnar frá október
19”’0 þar til f júlf s.l. hafði áður
f< igið viðvörun um að rannsókn
færi fram á hugsanlegum þætti
hans f byltingartilraun fasista
undir forystu Valerio Borghese
prins aðfararnótt 8. desember
1970. Borghese, sem oft gekk
undir nafninu „svarti prinsinn"
var áður fyrr aðstoðarmaður
Mussolinis einræðisherra.
Miceli, sem er 58 ára að aldri,
var formlega varaður við því í
síðustu viku að hann ætti yfir
höfði sér ákæru um að hafa þagað
yfir upplýsingum um byltingartil-
raunina. Borghese prins flúði
land til Spánar eftir að tilraunin
misheppnaðist, en hún rann út í
sandinn er 50 nýfasistar höfðu
komizt inn í innanríkisráðu-
neytið. Segir f jölskylda Borghese
að hann hafi látizt á Spáni.
Miceli á einnig yfir höfði sér
ákæru um að hafa verið beinlínis
bendlaður við samsærið.
Fundur Arafats og Husseins
veldur klofningi innan PLO
Beirut, Tel Aviv, Rabat.
Sameinuðu þjóðunum,
New York, 31. október
AP— Reuter—NTB.
% fSRAELSKIR fallbyssubátar
gerðu f dag feikilegar sprengju-
árásir á næststærstu flóttamanna-
búðir Palestfnumanna f Lfbanon,
og mögnuðu þar með þriggja
vikna langa herferð gegn skæru-
liðum f suðurhluta landsins.
Fimm manns fórust f árásunum
og 20 særðust, flest þeirra börn,
konur og gamalmenni, að þvf er
Reuter segir í frétt frá búðunum.
Heimildir innan hersins f Israel
hermdu hins vegar að Palestfnu-
skæruliðar ráðgera nú vfðtæka
baráttu og aðgerðir til að fylgja
eftir þeim stuðningi sem Frelsis-
hreyfing Palestfnu (PLO) hlaut
hjá Arabaleiðtogunum á fundin-
um f Rabat.
• Arafat, leiðtogi Frelsishreyf-
ingarinnar, sagði á blaðamanna-
fundi í Rabat f gær, að hann
myndi hitta Hussein Jórdanfu-
konung innan 10 daga, þar sem
þeir reyniaðjafna ágreiningsmál
sfn, en sem kunnugt er staðfesti
Rabat-fundurinn að Frelsishreyf-
ingin sé eini rétti fulltrúi pale-
stfnsku þjóðarinnar. Beirut-blað-
ið A1 Nahar segir f dag, að Rabat-
Drykkjuskapur að verða þjóðarmeinsemd á Grænlandi?
8 manns hafa drukkið sig
í hel í um 2000manna bœ
Julianehaab, 31. október.
Frá fréttaritara Morgun-
blaðsins Henrik Lund:
Lögreglustjórinn f Narssaq
hefur nú skýrt frá þvf að átta
manns hafi látizt f bænum það
sem af er þessu ári af völdum
óhóflegrar áfengisneyzlu. I
Narssaq búa aðeins um 2000
manns, og veldur þetta meiri-
há'.tar áhyggjum á staðnum.
Það cr nú orðin alkunn stað-
reynd, bæði á Grænlandi og
erlendis að misnotkun áfengis
er gífurlegt vandamál f
landinu. Fjöldi óhugnanlegra
dæma eru frá undanförnum
vikum sem sýna að áfengi er að
verða hættuleg meinsemd f
grænlenzku þjóðfélagí. Nýj-
ustu dæmin eru tveir harmleik-
ir sem gerðust fyrir helgina f
Narssaq, sem reyndar er vina-
bær Akureyrar.
Tvær ungar konur létust
aðfaranótt laugardags f
Narssaq af völdum áfengiseitr-
unar. Önnur var 23 ára, en hin
aðeins 15 ára. Þær bjuggu f
sama húsi, en drukku hvor f
sfnu lagi f fbúðum sínum. Sú 23
ára dó árla kvölds eftir að hafa
drukkið brennsluspfritus, en sú
15 ára um nóttina af of mikilli
neyzlu brennivfns og romms.
Sem fyrr segir búa aðeins um
2000 manns f Narassaq, en þar
eru hins vegar fjögur veitinga-
hús. Ef börn og unglingar eru
dregnir frá bendir þannig allt
til að rekstur þessara staða
byggist á um það bil 650
manns. Lögreglustjórinn f
bænum hefur lýst áhyggjum
sfnum vegna þeirra félagslegu
og siðferðislegu afleiðinga sem
af þessu hljótast.
fundurinn hafi samþykkt leyni-
lega að Hussein leyfi Palestfnu-
skæruliðum að starfa f Jórdanfu á
ný. Yitzhak Rabin, forsætisráð-
herra tsraels sagði hins vegar að
Israel vildi ekki ræða um frið við
PLO þótt Hussein væri fulltrúi
þeirra.
• Samtök Arabaleiðtoga fóru
þess formlega á leit við Kurt
Waldheim, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, í dag, að
fresta umræðum allsherjarþings-
ins um Palestfnumálið frá 7.
nóvember til 13. nóvember. Er
gert ráð fyrir að við þessu verði
orðið. Hefur Frelsishreyfingunni
verið boðin þátttaka f umræðun-
um, og búizt við að Arafat muni
sjálfur mæta til leiks. Engin
ástæða var gefin fyrir þessari ósk,
en talið er að hreyfingin vilji
betri undirbúning, — ekki sfzt
vegna væntanlegs fundar við
Hussein. Hins vegar gerðist það f
New York f dag, að fjölmenn
mannréttindasamtök Gyðinga
kröfðust dómsúrskurðar um að
fulltrúum Palestfnuskæruliða
yrði bannað að koma til Banda-
rfkjanna.
I kærunni segir, að hreyfingin
sé „sek um morð, villimennsku
og grimmd" og falli þvi undir
ákvæði i lögum sem banni slikum
aðilum að komast inn i landið.
Hefur Mark Costantino dómari
kvatt Iögfræðilega fulltrúa Henry
Kissingers utanrikisráðherra,
William Saxbesr dómsmálaráð-
herra og William Simons fjár-
málaráðherra til að mæta fyrir
réttinum á morgun til að sýna
fram á ástæður fyrir því að kröfu
samtakanna beri að vísa frá og
fulltrúum Frelsishreyfingarinnar
hleypt inn i landið.
1 kröfu samtakanna er farið
fram á, að verði fulltrúunum ekki
meinað að koma inn í landið,
verði settar hömlur á ferðafrelsi
þeirra og þeir hafðir undir eftir-
Framhald á bls. 24.