Morgunblaðið - 01.11.1974, Side 7
£ ... , , . ........ 11. ..... ...... . ■ ... ,,, , ■ . . .............. . ...
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1974
7
listasp
rang
Eftir
Arna Johnsen
Imyndið ykkur hvað
hægt er að gera
úr gömlum myndum
Litiar myndir gerðar að stórum tistaverkum
Þeim mun eldri sem Ijósmyndir
eru, þeim mun merkilegri verða
þær oft. Ný mynd getur verið for-
vitnileg, þvf augnablik hvers tlma
getur verið spennandi, en gömul
mynd hleður stanzlaust utan á sig
sögu, því sem hægt er að tengja
henni úr tímans rás allt frá þvl hún
var tekin. Það er llka eins og
gamlar myndir verði alltaf heill-
andi og sumar geta verið hrein-
ustu listaverk. Á þeim tfma, sem
málverk listmálara eru svo dýr, að
fólk almennt getur ekki keypt
slfkt, þótt vildi, þá er vert að gæta
að þvf, að möguleikar Ijósmyndar-
innar eru býsna miklir og það er
hægt að gera stækkanir af örlitl-
um myndum upp í marga fermetra
ef vill, án þess að kostnaðurinn
verði nokkrum ofviða, sem áhuga
hefur.
Sigurgeir bjargmaður frá Suður-
garði. Eftir þessari mynd var stóra
myndin gerð.
Flestar Ijósmyndastofur geta
unnið slfkar stækkanir. Við litum
inn hjá einni, sem að undanförnu
hefur gert mikið af slfkum
stækkunum, unnið þær f svart-
hvftt, brún-hvftt eða hvaða lit sem
fólk vill. Þeir Guðmundur
Ingólfsson og Sigurgeir Sigur-
jónsson Ijósmyndarar reka Ijós-
myndafyrirtækið ímynd við
Hverfisgötu 18, en fmynd hefur
starfað f 2 ár. Þeir félagar taka þar
allar almennar Ijósmyndir nema
mannamyndir og á þessu ári hafa
þeir stækkað um 500 fermetra af
myndum, aðallega fyrir Þróunar-
sýninguna og sýninguna List i 11
aldir. Við röbbuðum stuttlega við
þá Guðmund og Sigurgeir um
gamlar myndir og stækkunar-
möguleika á þeim:
Sigurgeir: Sem skreyting eru
þessar myndir oft afskaplega
skemmtilegar, sérstaklega gamlar
myndir, sem hafa heillandi svip.
Þannig kemst gömul mynd Ifka f
varanlegt form.
Guðmundur: Fólk á ef til vill
sérstæðar myndir af fyrsta bfln-
um, af fólki, úr fjölskylduferða-
lagi, eða hverju sem er. mögu-
leikarnir eru svo óteljandi. Ef
svona sérstæðar myndir eru
stækkaðar mikið og unnar f brún-
an tón eða helztu litum, þá getur
myndin orðið feikilega skemmti-
leg.
Sigurgeir: Það hefurekki brugð-
izt þegar við höfum stækkað slíkar
myndir talsvert mikið, að fólk
hefur orðið undrandi á þvf hvað
myndin verður skemmtilegri með
stækkun og oft hreinasta lista-
verk, sem getur prýtt hvar sem er
f fbúðum.
Blm: Þarf fólk að hafa filmur
eða myndír?
Sigurgeir: Það er bæði hægt að
stækka eftir Ijósmyndum, litlum'
og stórum og að sjálfsögðu einnig
eftir filmum og þess ber að geta,
að þótt gamlar myndir virðist oft
illa farnar þá má laga þær geysi-
lega með þeirri tækni, sem orðin
er f Ijósmyndaiðninni. Við höfum
Ifka orðið varir við það, að það er
vaxandi áhugi hjá fólki á þvf að
skreyta hfbýli sfn bæði með mál-
verkum og stórum Ijósmyndum,
sem oft geta einnig verið persónu-
le^ir.
Guðmundur efst til vinstri ásamt Sigurgeir hægra megin og Valdisi, sem
vinnur hjá þeim, i miðjunni. Allt i kring um þau eru mikið stækkaðar
Ijósmyndir eins og sést á samanburðinum við þau Myndin af veiðimanninum
vinstra megin við Valdísi (Sigurgeir frá Suðurgarði I Eyjum) var stækkuð eftir
litlu Ijósmyndinni, sem er annarsstaðar hér á siðunni í eðlilegri stærð, en
myndin var tekin upp úr 1 930
Blm: Hvaða Ijósmyndun sinnið
þið mest?
Sigurgeir: Við tökum allskonar-
auglýsingamyndir fyrir
pakkningar, sýningarbæklinga,
blöð og annað, sem kemur upp.
Guðmundur: Annars er það
undarlegt, við auglýsum okkur
sem auglýsinga- og iðnaðarljós-
myndara, en það kemur varla
fyrir, að menn f iðnaði láti Ijós-
mynda fyrir sig. Kannski hefur
þeim ekki dottið það F hug.
Blm: Er ekki oft erfitt að vinna
ýmiskonar auglýsingamyndir?
Sigurgeir: Það getur verið það.
Eitt sinn vorum við t.d. búnir að
fara f gegn um 400 kg af nýrri ýsu
áður en við fundum nógu fallega
og laglega ýsu til að mynda. Við
fengum aflann úr Sandgerði og
það voru allskonar aukagestir með
eins og skötuselur, keilur og fleiri
vænir fiskar. Annars er það ýmist
að við flytjum það efni sem við
ætlum að vinna úr, f vinnustofu
okkar eða við förum á staðinn þar
sem myndefnið er. Möguleikarnir
eru allt þarna á milli og þess
vegna tökum við að okkur hvað
sem er.
Blm: Lætur fólk stækka ein-
hverja sérstaka tegund af gömlum
myndum?
Guðmundur: Nei, þetta er ákaf-
lega breytilegt. Fólk dettur ef til
vill niður á gamla mynd hjá sér,
sem þvf þykir vænt um, og við
stækkunina verður slfk mynd allt
annað en Iftil, venjuleg Ijósmynd.
hún verður sérstætt listaverk eftir
þvf hvemig hún er unnin i
stækkuninni.
Gömul mynd, sem upplagt er að stækka mikið
Gamli stillinn heillar marga
i
Verksmiðjuútsala.
Buxur, úlpur, peysur, húfur. Opið
frá kl. 10—6.
Anna Bergmann,
Dalshrauni 1, Hafnarfirði.
Yamaha gitar
og teisco magnari til sölu. Vel með
farið. Uppl. í slma 34708, milli kl.
5—8. •
Hænsnabændur.
Óska eftir að kaupa notuð
hænsnabúr og skápafóstrur. Þeir
sem hefðu áhuga leggi tilboð á
afgr. Mbl. fyrir 10. nóv. merkt:
„Hænsnarækt — 4458".
Landrover diesel
árg. ’66 til sölu. Billinn liturvel út.
Uppl. I sima 95-1 149 á kvöldin.
Volvo Grand Luxe
Til sölu Volvo Grand Luxe árg.
'73, ekinn 22 þús. km. Fallegur
bill. Skipti á ódýrari bil möguleg.
Uppl. i sima 28530 frá kl.
13 — 1 9.
Innri-Njarðvík
Til sölu eldra einbýlishús, 4 herb.
og eldhús. Laust strax.
Fasteignasalan
Hafnargötu 2 7,
Keflaviksimi 1420.
Geymsla
upphituð um 12 fm óskast. Upp-
lýsingar i sima 1 6577.
Athugið
Þurfið þið að láta mála? — Hring-
ið þá i sima 73927.
Óska eftir kötlum
14 og 20 fm með brennurum,
stillitækjum og spiralgeymum.
Einnig vantar katla 2Vi—4 fm,
ekki eldri en 6 ára. Uppl. i sima
21703 kl. 9 —10 f.h. og 4—5
e.h. næstu daga.
Trésmiður
úti á landi óskar eftir verkefni á
Reykjavíkursvæðinu. Vanur verk-
stæðissmiður. Þeir sem hafið
áhuga sendið tilboð til Mbl. merkt:
innivinna 4459 eða hringi í sima
97-2423.
JVC CD-fl BTi
afmótari
er þýðing á tækniorðinu „demodulator" en
afmótari er nauðsynlegur ásamt sértilgerðum
4-Rása tónhaus við afspilun á plötum fram-
leiddum í CD-4 4 rása kerfinu, sem er hið eina
hreina 4 rása kerfi.
Hingað til hefur afmótarinn verið sér stykki sem
þurft hefur að kaupa við 4 rása magnara, og er
ekkert smávegis dýr.
Hinn nýi 4VR-5426X útvarpsmagnari frá JVC
hefur afmótarann innbyggðan auk þess hefur
hann deilir (decoder) fyrir SQ og QS kerfin.
Svo og er innbyggt BTL kerfi, sem gerir það að
verkum að ef hann er notaður sem stereo-
magnari, tvöfaldast krafturinn þ.e.a.s. 4 VR-
5426X er 4x17 sínuswött og/eða 2x34 sínus-
wött í stereo.
Faco
Hlíómdeild
Laugavegi 89. láoo