Morgunblaðið - 01.11.1974, Page 23

Morgunblaðið - 01.11.1974, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1974 23 Einn hinna stóru William Heinesen: MÓÐ- IR SJÖSTJARNA. 173 bls. □ Þýð.: Clfur Hjörvar. □ Helgafell. 1974. Nýlega rakst ég á þá umsögn um William Heinesen í uppsláttar- riti að hann hefði tekið þann kost- inn að skrifa á dönsku sakir þess hve fáir væru lesendur í Færeyj- um, en samt engu að síður haldið sér við færeysk efni. Við hvora tveggja staðhæfinguna hefði mátt setja fyrirvara. Heinesen telur sig sjálfur danskan rithöfund allt eins og færeyskan, enda ólst hann upp við dönsku sem móðurmál jafnhliða færeyskunni. Og um Móður sjöstjörnu má að minnsta kosti segja að hún er ekki sérlega „færeysk“, heldur miklu fremur skandínavískt skáldverk eða jafn- vel evrópskt. Þetta er ekki saga sem gerist í tilteknu landslagi, ekki saga um staðbundna lífsbar- áttu, heldur almenn mannlifssaga þar sem þungur niður blóðs í æð- um söguhetjanna yfirgnæfir þann úthafsöldunið sem maður hélt kannski að léki eins konar undir- spil i færeyskri sögu. Móðir sjö- stjarna er svo lítið færeysk að maður gæti allt eins talið sér trú um að hún gerðist í einhverjum smábæ við Eyjahaf t.d. Hitt er svo annað mál að örlög fámennrar og afskekktrar þjóðar eins og Færey- ingar vissulega hljóta að teljast greinast með ýmsu móti óbeint í þeim vanda sem söguhetjurnar eiga við að glíma, og sögufólkið er ekki frjálsara í umhverfi sínu en Færeyingar hafa verið sem þjóð fram undir þetta. Þetta er saga um erfið og stopul samskipti manna, um skeið lífs og um skeið dauða; saga um mannlegan blóð- hita og breyskleika annars vegar, en djöfullega sjálfsafneitun hins vegar. Það eru fyrst og fremst kven- persónur sem spinna örlagaþræði sögunnar: í fyrsta lagi ráðskona, trúuð og ströng; í öðru lagi ung stúlka, svo mjög hlaðin lífsorku að hún sprengir af sér þá fjötra sem á hana eru lagðir og má að lokum sannreyna orð ráðskon- unnar — að laun syndarinnar eru dauðinn; í þriðja lagi læknisfrú, útlend, menntuð og hamslaus, þolir ekki fábreytni umhverfisins og hverfur á braut (eins og raun- ar fleiri kvenpersónur sögunnar). Færeyskt þjóðlíf er auðvitað runnið Heinesen í merg og bein, en útkjálkaskáld er hann ekki. Hann hefur drjúgum numið af skáldsagnahöfundum samtímans, allt frá Hamsun til jafnaldra sinna. Hinn óbeini, frjálsi stíll hans minnir á Hamsun og fleiri. Og á slæpingja rekst maður i þess- ari sögu sem er eins og klipptur út úr umrenningasafni Hamsuns. En kannski er það aðeins tilvílj- un. Héinesen hefur firnasterk tök á skáldsöguforminu, þarf ekki að stæla, á meira en svo sjálfur að hann þurfi að taka frá öörum. Og svo má minnast þess að Færeyjar eru snöggtum meiri Skandínavía en ísland. Maður finnur það strax á bakkanum í Þórshöfn. Móðir sjöstjarna er spennandi saga framan af, seinni hlutinn sem er eiginlega önnur saga dett- ur dálitið niður. En að hvaða leyti er hún þá skemmtileg? Æsiefni? Að visu. Magnaður og myndríkur still vegur þó þyngra á metunum. Heinesen rennir mörgum stoðum undir verk sitt, það er margslung- ið í einfaldleik sínum, og líkinga- safnið er heilt úthaf. Það sem Heinesen treystist ekki til eða vill ekki segja beint, það segir hann óbeint, en samt svo klárt og Steinar Sigurjónsson: Djúpið □ Til Ragnars tónlist f efri árin Q Helgafell — Reykjavík 1974 Steinar Sigurjónsson er enginn nýgræðingur í hópi íslenzkra rit- höfunda, enda orðinn maður hálf- fimmtugur. Siðustu tvo áratugi hefur hann sent frá sér margar skáldsögur og auk þess ljóðakver, sem hann gaf út undir dulnefninu Bugði Beygluson. Hann virðist hafa litið á sig sem eins konar aðskotadýr í íslenzkum ljóðheim- um, en mér hefur aftur og aftur orðið það fyrir að gripa ofan í ljóðakverið. þótzt kynnast þar mun látlausara og þó einkum hreinlátara skáldi en í sögunum. Þó er siður en svo, að ég telji Steinar Sigurjónsson kunnáttu- litið og ómerkilegt sagnaskáld. En hjá honum hefur gætt allt að þvi sorakenndrar tilhneigingar til þess að dríta i sitt eigið hreiður, gera persónur sínar stundum ekki aðeins allt að því hrollvekjandi Bðkmenntir eftir ERLEND JÓNSSON kröftuglega að skilst. Sem sagt; galdur verksins felst í stílnum ef það orð er skilið í víðtækri merk- ing. Þetta: að halda á ótal þráðum í einu og tengja þá alla saman — þannig verður til skáldverk eins og Móðir sjöstjarna, raunsætt og ævintýralegt í senn; ótrúlegt, en þó svo raunverulegt að manni finnst það hefði getað gerst i ver- unni. raunverulegar, heldur beinlínis velta þeim upp úr aur og saur — og einnig, auk ýmiss konar gönu- hlaupa og sérvizku í málfari, svo sem þess, að rita ávallt „ans“ í stað eins og skyrpa, þegar lesand- ann minnst varir, einhverjum óþverra á annars samfellda og litrika málfarslega tjáningu. Þessa hefur hann svo goldið það grimmilega hjá bæði lærðum og leikum, að vegur hans og gengi er víðs fjarri þvi að vera í skynsam- legu samræmi við gáfur hans og gildi sem skálds. Og það er nú síður en svo, að nokkur von sé til, að hin nýja bók hans, Djúpið, muni bæta þarna úr skák. Hún mun hvorki geta talizt skáldsaga, ljóðaflokkur né leikrit, svo að nefnd séu þau einu form, sem hér eru yfirleitt talin hæfa til sköpunar ritverkum er geti haft bókmenntalegt gildi. Hún hefur fyrst og fremst að flytja heimspekilegan, táknrænan heilaspuna um uppruna og þróun alls lífs og þá einkum mannlífsins og það, sem i bókinni gerist fer fram niðri í hafdjúpunum, þar sem rikja „frumtröll", skrimsli og „Hugurinn að láni — Kammertónleikar W. A. Mozart Kegelstatt- trfóið, K-498 □ Herbert H. Ágústssoit Sálmar á atómöld □ Carl Nielsen, Serenata Invano □ A. CasellaSerenata. Stofnun Kammersveitar Reykjavíkur er lofsvert fram- tak og vonandi tekst þessum félagsskap að halda velli. Fram- tið hans byggist að miklu leyti á því hvernig tekst til um val og flutning tónverka en þó ekki síður, hvort músikunnendur eru raunverulegir músik- unnendur. Kegelstatt-trióið eftir Mozart er yndisleg tónsmið og, eins og öll tónlist Mozarts, fínlega ofin og reynir mjög á nákvæmni flytjenda í tóntaki, blæbrigðum og hryn. Flutningur verksins var að mestu hnökralaus, en heldur bragðdaufur. Það vantaði skarpari andstæður blæbrigða og að staldra við á þýðingarmiklum stöðum. Tón- list Mozarts og Sálmar á atóm- öld eru skýrt dæmi um það 200 ára tilfinningadjúp, sem aðskil- ur manneskjur 18. og 20. aldar- innar. Laggerð, blæbrigði og hrynur lýsa andstæðum hljóð- heimum, andstæðum, sem eru einkenni nútimans, þar sem togast á villt og óhamin nýsköp- un og varðveizla hefðbundinn- ar friðsældar. 1 þessu umróti leita manneskjurnar að Guði, í eigin hugskoti, á ströndinni, i minningú ástvina og biðja um fyrirgefningu. Tónlist Herberts H. Ágústssonar er víða mjög falleg, en heldur of mikið hugs- uð fyrir hljóðfæri. Söngurinn, sem var frábærlega vel fluttur af Ruth L. Magnússon, hefði Tónlist eftir JÓN ÁSGEIRSSON mátt vera meira ráðandi. Upp- lestur Matthíasar Johannessen á ljóðum sínum og vandáður flutningur gaf þessu ágæta verki eftirminnilegan svip. Serenöturnar eftir Carl Nielsen og Casella eru báðar skemmti- leg og vel unnin verk. Flutning- ur þeirra var í heild mjög góður og þá vaknar sú spurning, hvort útvarp og sjónvarp eigi ekki í ríkara mæli en áður að fela ísl. tónlistarmönnum flutning erlendra verka og með þvi móti styðja við bak þeirra manna, sem trúa á framtíð tónlistar í landinu. Islensk þýðing þessarar sögu hefur verið talsvert vandaverk, þar sem textinn byggist víða upp á myndríkum líkingum, auk þess sem alls konar gæluyrði og hálf- kveðnar vísur koma þar fyrir í ríkum máli. Ég nefni sem dæmi þann kaflann þar sem ung móðir heldur hrókaræður yfir barni sínu, ómálga, kallar það furðu- nöfnum og líkir því þannig við flest það sem í hugann kemur þá og þá stundina. Eg minni einnig á hugmyndir sama barns þegar það tekur sjálft að skynja umheiminn og veit ekki svo gerla hvað nefna skal hlutina, lifandi né dauða, þar blandast saman barnaskapur og lífspeki, römm hjátrú og seið- mögnuð goðsaga, eigin ráðvillt skynjun í bland við dulúðuga inn- ræting frá' öðrum. Stílfærðar náttúrulýsingar notar Heinesen líka oft til að kalla fram tiltekin áhrif. Ulfur Hjörvar skilar þessu að minni hyggju allvel, kannski ágætlega. Stöku orð er þó tæpast til að fella sig við, t.d. ætti að vera óþarft að nota orðið vættur þráfaldlega í karlkyni. Prentvill- urnar eru líka allt of margar I svona skemmtilegri bók. William Heinesen William Heinesen er einn hinna stóru, um það er engum blöðum að fletta. Ljúflega hefðum við unnt honum Nóbelsverðlauna fyrir þetta árið, að minnsta kosti fremur en þeim tveim sænsku rit- höfundum sem þau hlutu, í og með fyrir að vera góð skáld að vísu, en mest þó fyrir að vera svíar. fær lampa það ósar” ýmiss konar furðulegar ófreskjur, sem svamla þar um í gróskuríkum þönglaskógum eða leynast í hol- um og hellum. Höfundur lætur svo ýmis hljóðfæri, svo sem hné- fiðlu, kontrabassa, slaghörpu, bumbur og lúðra túlka áhrif þessa Bókmenntir eftir GUÐMUND G. HAGALÍN undirheimaliðs gagnvart honum, þar eð hann virðist líta svo á, að i tónlistinni felist hin viðtækasta og djúptækasta tjáning mannlegs frumeðlis í allri þess ógn, and- styggð og töfrum. Auðsætt er, að þarna gætir áhrifa úr ýmsum áttum. Höfundur hefur horft á kvikmyndir, sem orðið hafa til á seinustu áratugum við rannsóknir hafdjúpanna. Hann hef ur og lesið nýtízk rit, sem fela í sér vanga- veltur yfir dulardómum rúms og tima, og meira og minna hæpnar athuganir á upprúna lifsins og á mannlegu eðli. Viðfangsefni hans er svo margslungið, svo víðtækt og órætt, að það er engan veginn vonlegt, að hann hafi náð nokkr- um listrænum eða hugmynda- legum árangri i meðferð þess og þá sizt í því formi, sem hann hefur valið sér. Hann segir raunar furðumargt vel og stund- um viturlega, en bókin er full af þverstæðum, meiningarlausum endurtekningum, furðulega við- bjóðslegum lýsingum og gersam- lega samhengislausum heila- spuna og þvættingi. Höfundur segir framarlega í bókinni: „Hugurinn fær lampa að láni. Það ósar: Já, satt og orðið. En til þess að gefa nokkra hugmynd um hugsanaferil höfundarins, stíl hans og málfar, leyfi ég mér að birta niðurlag bókarinnar og það, sem helzt mætti kalla niðurstöð- urnar af allri djúpkönnun skálds- ins, og þykist ég þá ekki velja af verri endanum: „Auðvitað er lífið þannig; það hlaut að fara á þennan hátt.. . Tilveran var jafnan að bíða inn- blásturs, okkur datt það ekki í hug fyrr en samningurinn við stritið drapst; og nú er okinu lyft af okkur hjartans börn. Sónatan flæðir um hugi okkar. Við döns- um í stað þess að tóra og dagarnir taka málstað okkar. Þeir halda stritinu föstu svo þaó finni ekki annað strit eða eitthvert strit komi til að barna það. Þetta er dagur, ef mér tekst á annað borð að skilja dag, sem er á þennan hátt, því honum er varla lifað. Hann er bara ímynd. Og er það ekki nóg? Alveg nóg! alveg nóg! segið þið blessuð börn. Skáld, að dagurinn verði úngur og standi sig vel. Skál, aðdagurinn verði hljómur frá bumbu i firð. Skál fyrir bumbu t firð sem sóntan sér um fyrir okkur. Og þvær og kembir kvern dag. Sem ávallt er nýr. Skál fyrir frumtröllunum. Skál fyrir hrolldómströllabassa undirdjúpanna. Þönglarnir svigna hægt í sónöt- unni og við mikilli lotningu. Ýfrið er það nóg. Yfrið er allt nóg. Og allt er allt. Þess vegna ekkert eða allt, þvi alls er þörf og einskis vant. Því tónlistin er laus við verkið og sónatan rólar ans jójó út í kjölfarið sem er horfið i kvert sinn sem hún kemur þángað. Eða vindskæri. Eða kjölfarsleg heimspekiduld Eða hippuð spámannahár- feimni. Eða tríóluvindhæðarkverfing. Eða ævintýravindfjúkshár. Eða jóðhlutlæg hlutkverva. Eða hryggdýrslegar hrygg- lengjurifjamollkveðjur. Allt. Þá það Maður hefur nú lent í öðru eins Dú vott jú dú.“ Kannski væri rétt, að tónlistar- gagnrýnandi Morgunblaðsins gerði bókinni nokkur skil, svo að öllu réttlæti væri fullnægt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.