Morgunblaðið - 01.11.1974, Side 24

Morgunblaðið - 01.11.1974, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÖVEMBER 1974 Blinduðu fangana og rugluðu með hrópum Haag, 31. okt. AP MEÐ aðstoð og ráðum geðlækna tókst hollenzkum lögreglumönn- um og sjóliðum f nótt að ráða niðurlögum fanganna fjögurra og bjarga gfslunum fimmtán, sem verið höfðu innilokaðir f fangelsiskapellunni f Scheven ingen frá þvf sl. laugardag. Með þvf að fleygja inn um glugga í kapellunni magnesium handsprengjum til að blinda þá, Niðurskurður hernaðar- útgjalda undirbúinn í Bretlandi London, 31. okt. NTB UTANRÍKISRÁÐHERRA Bret- lands, James Caflaghan, sagði f neðri málstofu brezka þingsins f gær, að vænta mætti verulegs nið- urskurðar á útgjöldum til land- varna — en áður en til þess kæmi, mundi stjórnin ræða málið við bandalagsrfki sfn f NATO: Gallaghan sagði, að endurskoð- un þeirri sem stjórnin hefði ákveðið að láta fara fram á her- máíum Breta, væri ekki ennþá lokið, en vænta mætti einhverrar álitsgerðar þar að lútandi i næsta mánuði. Hann sagði það ætlun stjórnarinnar að laga landvarnir Bretlands að efnahagslegri getu þjóðarinnar og af því leiddi nauð- syn sparnaðar og niðurskurðar á ýmsum sviðum. Gallaghan sagði, að Bretar myndu halda áfram aðild sinni að NATO, en lagði á það áherzlu, að Bandaríkjamenn yrðu að standa við skuldbinding- ar sínar gagnvart bandalaginu. Hvorki Bretar né Bandaríkja- menn væru betur komnir með því að taka upp stefnu efnahagslegr- ar- og hernaðarlegrar einangrun- ar. — Miðaustur- lönd Framhald af bls. 1 liti. Halda samtökin því fram að félagar í þeim séu á „morðlista“ hjá Frelsishreyfingunni, og séu þeir undir lögregluvernd. Ekki var enn ljóst í dag hvort þeir Arafat og Hussein myndu hittast einir í Amman, höfuðborg Jórdaníu eða hvort Anwar Sadat, Egyptalandsforseti og Hafez Assad Sýrlandsforseti yrðu einn- ig með í viðræðunum. Nú hefur hins vegar komið upp klofningur innan palestínsku skæruliðahreyfingarinnar varð- andi fund Arafats og Husseins. Telja fjögur róttæk skæru- liðasamtök að samkomulagið í Rabat um fundinn hafi verið mikil mistök. Ráðast samtökin harkalega á þessa ákvörðun og segja hana svik við lokatakmark Frelsishreyfingarinnar, sem sé að frelsa þau landsvæði sem töldust til Palestínu fyrir árið 1947 og steypa jórdönsku ríkisstjórninni. Hins vegar sagði Arafat á áður- nefndum blaðamannafundi, að lokatakmark hreyfingarinnar væri lýðræðisríki sem næði yfir alla Palestfnu „þar sem kristnir, Gyðingar og Múhameðstrúar- menn geta búið saman í sátt og samlyndi.“ Rabatfundurinn hefði „án nokkurs vafa leyst mörg vandamál milli okkar (Husseins), — en ekki öll vandamál." Þegar hreyfingin hefði stofnað sjálf- stæða stjórn á vestri bakka árinnar Jórdan yrði „sérstakt samband milli Palestínu og Jórdaníu.“ Kairóblaðið A1 Ahram sagði í dag, að stjórn Egyptalands hefði skipað „hernaðarráði" landsins að „búa þjóðina enn einu sinni undir möguleika á nýju stríði í Miðausturlöndum." sem inni voru, meðan dyrnar voru opnaðar með logsuðu tæki og hafa frammi nógu mikinn háváða, tókst að rugla fangana fjóra svo f ríminu, að þeir voru sigraðir, áður en þeir vissu og án þess þeir kæmu nokkrum vörnum við. Þeir höfðu að vopnum tvær skamm- byssur og nokkra kasthnífa. Eng- inn hlaut af þessu skaða og að sögn lögreglunnar voru gíslarnir fimmtán ótrúlega vel á sig komnir eftir fangavistina. Einn fanganna var skæruliði úr samtökum Palestínu Araba, Adn- an Ahmad Nuri, sem afplánaði fimm ára fangelsisdóm fyrir hlut- deild f flugvélarráni. Tveir fang- anna voru hollenzkir og sá þriðji alsfrskur og höfðu allir þrír verið dæmdir fyrir vopnuð rán. Dómsmálaráðherra Hollands, Andries Van Agt, sagði á blaða- mannafundi f morgun, að aldrei hefði komið til greina af stjórnar- innar hálfu að verða við kröfum fanganna um flugvél til að flytja þá burt og að félagi Nuris við flugvélarránið á sínum tíma, sami houssin Tamimah, fengi að fara með þeim. Ekki vildi ráð- herrann skýra frá aðförinni að föngunum í smáatriðum; sagði, að ef til vill þyrfti að beita sams konar aðferðum aftur síðar meir. — Aðalmálið Framhald af bls. 2 landi og Jóhannes Ingibergsson, byggingafræðingur á Akranesi, ræðir um húsnæðisáætlanir og bygginga- og skipulagsmál sem þætti í byggðaþróun; svo og mun Njörður Tryggvason verkfræð- ingur á Akranesi flytja hug- leiðingar um orkumál á Vestur- landi og Jóhannes Ingibergsson, byggingafræðingur á Akranesi, ræðir um heilbrigðisþjónustu. Milli erinda verða stuttar fyrir- spurnir og umræður að loknum öllum framsöguerindunum. Á laugardag verða nefnda- fundir árdegis en eftir hádegi skila nefndir áliti og þá fara fram umræður og afgreiósla mála. Fundinum lýkur með kosningu stjórnar, endurskoðenda og fræðsluráðs fyrir Vesturlands- kjördæmi. — Port Vale Framhald af bls. 2 snúið svo að þá varð að tengja aftur á milli skipanna. Var aftur byrjað að toga um kl. 9 i fyrra- kvöld og losnaði skipið af sandrif- inu um miðnæturbil. Var Port Vale síðan dreginn til Seyðis- fjarðar. Guðmundur sagði að eng- inn leki hefði verið kominn að togaranum, en nokkur sjór í hon- um, þar eð leiðsla hafði brotnað og sjór vætlað þ'ar inn. Guðmundur Kjærnested og aðr- ir skipherrar Landhelgisgæzlunn- ar áttu oft í höggi við Port Vale meðan á þorskastríðinu síðara stóð og kvað Guðmundur hann hafa verið helzta ,,hraðbát“ brezka togaraflotans hér við land. Taldi hann góðan ganghraða skipsins raunar helztu ástæðuna fyrir því að ráðist var í björgun þess, því að sem kunnugt er þá er Port Vale síðutogari og nokkuð kominn til ára sinna. — Mótaðgerðir Framhald af bls. 1 bandarísk stjórnvöld hyggjast grípa til er að gera opínberum bandarískum embættismönnum skylt að nota flugvélar banda- rískra félaga á ferðalögum er- lendis, svo og að vöruflutningar frá útlöndum skuli verða með bandarískum vélum, segir I NTB- fréttinni. Hagrup segir það eðlilegt í framhaldi af þessu, að Evrópu- lönd grípi til samsvarandi að- gerða, ef Bandaríkin breyta ekki afstöðu sinni. — Glæsibæjar- samningurinn Framhald af bls. 40 úttekt á vörum og vörubirgðum verzlunarinnar. Jón H. Bergs, forstjóri Slátur- félags Suðurlands, sagði I viðtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að hann vissi ekki annað en að Sláturfélagið yfirtæki rekstur verzlunarinnar á miðnætti. Hann kvað samningnum, sem gerður var við Valdimar Þórðarson, ekki hafa verið rift og hefði Slátur- félagið m.a. boðizt til þess að yfir- taka einnig allt starfsfólk verzlun- arinnar, sem kysi að vinna þar áfram. Hins vegar sagði Jón að ekki myndi reyna á samning SS við fyrirtækið Silla og Valda, fyrr en 1. nóvember, „en í dag er 31. október", sagði Jón H. Bergs. Hann sagðist hins vegar ekki geta svarað því, hvort Sláturfélagið hefði fengið lyklavöld að verzlun- inni, en kvað hugsanlegt, að mat- vörubúðin í Glæsibæ yrði lokuð á morgun (föstudag), þar sem Sláturfélagið yrði að framkvæma ýmsar breytingar á henni. Sveinn Snorrason, hæstaréttar- lögmaður, sem hefur fullt umboð ekkju Sigurliða Kristjánssonar til ráðstöfunar á öllum hennar eign- um kvað Sláturfélag Suðurlands ekki hafa gert samninga um yfir- töku verzlunarinnar enn og samn- ingaleið hefði ekki verið lokað af hálf u fyrirtækisins Silla og Valda, „en ef þeir ætla að standa á vilja- yfirlýsingu Valdimars til Jóns Bergs, þá geta þeir lagt gildi hennar fyrir dómstóla. Ef þeir ekki gera það og ætla að taka rétt sinn með valdi, þá mun ég frekar gera grein fyrir máli mínu. En ég vona að til þess komi ekki,“ sagði Sveinn Snorrason. Sveinn var þá spurður að því, hvort til slíks gæti komið fyrr en eftir klukkan 12 á miðnætti og kvað hann það varla. Hann sagð- ist ekki vita það, þar eð hann hefði ekki verið hafður með í ráð- um. Ennfremur sagðist hann ekki vita, hvort Sláturfélagið hefði fengið lyklavöld að verzluninni, en um það sagðist hann þó hafa grun. Sveinn sagði sér ekki kunn- ugt um efni „viljayfirlýsingarinn- ar“, þar eð hann hefði aldrei séð hana. Um vörutalningu, sem hugsanlega hefði þurft að fara fram í nótt til þess að verzlunin gæti verið opin á morgun — sagði Sveinn: „Það verður auðvitað ekki talið, nema báðir aðilar sam- þykki.“ Þegar Sveinn Snorrason var spurður að því, hvort Silla og Valda-menn myndu verja verzl- unina fyrir sláturfélagsmönnum, svaraði hann aðeins; „Það verður reynslan að sýna.“ Morgunblaðið reyndi í gær að ná tali af Valdimar Þórðarsyni til þess að spyrjast fyrir um viðhorf hans i máli þessu, en það tókst ekki. Blaðamaður Morgunblaðsins var f gærkvöldi staddur f Glæsibæ. Þarvar þá margt starfs- fólk verzlunarinnar fyrir. Þorkell Valdimarsson var þar og ætlaði inn i herbergi það, sem starfs- fólkið hafðist við í. Þegar Þorkell opnaði dyr herbergisins, var honum hrint frá og hurðinni skellt aftur. Kom einnig til orða- hnippinga milli Þorkels og þessa manns, sem ýtti honum út úr her- berginu. Sýnir þetta hversu heitt mönnum var í hamsi i Glæsibæ í gærkvöldi. Þá hafði Morgunblaðið fregnir af þvi i gærkvöldi, að lögfræðing- ur Sláturfélagsins, Benedikt Blöndal, hefði átt fund með lög- fræðingum annarra aðila málsins og átti þar að reyna samninga- leiðina, en talið var fremur ólík- Iegt að það myndi takast. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar, var hún i gærkvöldi viðbúin því að til tíðinda drægi við Glæsibæ. Varðstjóri lögregl- unnar sagði þó að lögreglan myndi aðeins skipta sér af málum ef til handalögmála kæmi, en hún myndi forðast að skipta sér af þannig að unnt yrði að segja að hún drægi taum einhvers aðila í- deilumáli þessu. — Spánn Framhald af bls. 17 sementsverksmiðju í Terragona og nokkrum skólum á Norðvestur- Spáni. Verkföll eru sem kunnugt er bönnuð með lögum á Spáni. Þá stóðu húsmæður fyrir mót- mælaaðgerðum sums staðar vegna verðhækkana á ýmsum matvælum. Er talið að fjármála- ráðherraskiptin kunni að kú- venda efnahagsstefnu stjórn- arinnar, sem nú berst við 20% verðbólgu. — Fáum árum Framhald af bls. 4 á þjóðfélagið er hins vegar lítil sem engin í blöðum". Öll stjórnarand- staða er óæskileg, enda stuðlar hún ekki að framförum og uppbyggingu, segja heimamenn. — Við þurfum að hætta að hugsa um okkur sem meðlimi ættbálks, en llta á okkur þess I stað sem Nígerlu- menn fyrst og fremst. Fyrr er ekki hægt að hafa frjálsar kosningar. Ef við kysum I dag, yrðu flokkarnir jafnmargir og ættbálkarnir og óeiningin blossaði upp að nýju. Tlm- inn vinnur með okkur. Sjáðu hvað hefur gerzt hér I Bíafra — sagði Sunday, er ég spurði hann um þetta. Já, það var gott að koma til Bíafra og sjá hve hratt neyð getur breytzt i velsæld. Það er sér I lagi uppörvandi þegar ferðalangurinn kemur frá landi sem Ethioplu, þar sem hungur- vandamálin virðast engan enda taka. En kannski er þess einhver von. — Heiðraðir Framhald af bls. 39 sonar og Teits Þórðarsonar. Sagði hann að þeir væru framúrskarandi knattspymumenn, ekki einungis með félögum sínum, heldur væru þeir báðir fastir menn I islenzka landsliðinu, sem hefði sýnt eftir- minnilegan árangur i landsleikjum sumarsins og vakið verulega athygli á iþróttum á íslandi með frammi- stöðu sinni. Sigurður Jónsson, formaður HS(, óskaði íþróttamönnunum til ham- ingju með viðurkenningar þær er þeim hafði hlotnast. Sagði síðan að vert væri að óska islenzkum knatt- spyrnumönnum sérstaklega til ham- ingju með þann árangur sem þeir hefðu náð að undanförnu og þeim undraverðu framförum sem þeir hefðu sýnt. Við forystumenn hand- knattleiksmála höfum alltaf haldið því fram, að íslenzkir handknatt- leiksmenn hafi staðið sig bezt á al- þjóðlegan mælikvarða, en nú höfum við fengið samkeppni frá knatt- spyrnumönnum, og er það vel, sagði Sigurður. Ræddi hann siðan nokkuð um hlutverk blaðanna til eflingar íþróttunum. — Blaðamenn eru stundum kröfuharðir, þegar fs- lendingar eru að keppa við atvinnu- menn stórþjóðanna, sagði Sigurður, — en þeir eiga lika að vera það. Við eigum ekki að setja markið lágt, heldur gera miklar kröfur bæði til íþróttamannanna og sjálfra okkar. — Minning Hjálmtýr Framhald af bls. 31 Reykjavík um stund, vann þá meðal annars við Tímann og Nýja dagblaðið er var gefið út á þeim árum, en hann vildi kynnast fleiru en hann sá og vann að hér. Hann réðst þá til náms í Verzlunarskóla í Svíþjóð og var í Stokkhólmi 1938 og 39 bæði við bóklegt nám og verknám. Eftir það kom hann heim og var upp frá því hér í Reykjavík. Hann varð brátt mjög starfandi hér. Árið 1942 stofnaði hann verzlun- ina Nonna á Vesturgötu og rak hana fram á sumarið 1974. Var þetta fyrst og fremst verzlun með fatnaðarvörur, en hafði þó fleira í takinu en þær. Orð fór jafnan af því að vöruverð væri lægra í þess- ari verzlun en öðrum samskonar. Systur hans ráku saumastofu, aðallega með barnafatnað, af miklum dugnaði og fyrirhyggju og studdu systkinin öll þannig hvert annað i starfinu. En Hjámtý var ekki nægilegt að hafa þessa starfsemi eina á hendi. Hann stofnaði á þessum tfma með fleir- um félag, sem annaðist um mörg ár byggingar íbúðarhúsa hér í höfuðborginni. Það reisti allmörg íbúðarhús og var sú starfsemi rekin af dugnaði og forsjá eins og annað sem Hjámtýr beitti sér fyrir. Hjálmtýr hafði mikinn áhuga á þjóðmálum og lét þar til sin taka. Þar innti hann af hendi mikið starf af fórnfýsi og árvekni. Hann var um þau hinn sívakandi maður og vissi mikil skil á einkennilega mörgu á því sviði. Hann gerði sér glögga grein fyrir því þjóðfélags- ástandi sem við höfum búið við og búum enn við. Honum var jafnan ljóst hvert stefndi og stefnir, og ekki myrkur í máli við hvern sem var að eiga, en þó ætíð tilbúinn að taka rökum viðmælanda sinna. Hann gerði sér far um að brjóta mál til mergjar og ákveðinn í því að lúta þvi er sannara reyndist. Margskonar störf hafði hann með höndum og var fær til enn fjöl- breytilegri verkefna. Mér hefir oft fundist, að hann hefði sómt sér vel i störfum fyrir samvinnu- félögin í landinu og að það hefði verið þeim mikill ávinningur að hafa hann í þjónustu sinni. I forystustarfi hjá kaupfélagi mundi hann hafa notið fjölþættra hæfileika sinna vel og innt af hendi margþætt starf og mikil- vægt fyrir þá sem að því hefðu staðið og notið þess. Atvikin höguðu þessu á annan hátt og því ekki lengur ástæða til að velta vöngum yfir liðnum hlut. Hjálmtýr var mikill listunnandi og var heimili hans eins og lista- verkasafn, þar sem líta mátti hin fegurstu og bezt gerðu málverk hinna færustu íslenzkra lista- manna ásamt mörgum öðrum list- munum. Mörgum listamönnum var hann sérstök hjálparhella bæði fjárhagslega og á annan hátt, svo sem við sýningu og sölu listaverkanna. Hjálmtýr var mikill bókamaður og átti mikið og gott bókasafn. Þar eru hinar merkustu bækur, bæði frá fyrri tímum og síðari og allar í hinu bezta ástandi. Hann las jafnan mikið er timi gafst til og ekki síður nú seinni árin, er þolið var minna til átaka en áður var. I hita áhugans varð Hjálmtý oft gripið til pennans, og var þá stundum stungið á kýlum. Bera þess vitni hinar fjölmörgu blaða- greinar hans, að visu stundum undir dulnefni. Voru þá tekin til meðferðar hin fjölþættustu þjóð- félagsmál og má þá ekki sizt minnast ýmiskonar greina hans um bókmenntaleg efni. Eitt helzta einkenni Hjálmtýs var greiðvikni hans og hjálpsemi, sem miklu fleiri nutu en á vitorði varalmennt.Það vita kunnugir þó vel og oft var þvi viðbrugðið hvað hann var þá fljótur að bregða við og fundvis á úrræði, öðrum frem- ur. Nú að leiðarlokum, er sá hópur fjölmennur, sem minnist Hjálmtýs Péturssonar, með söknuði og þakklátum huga fyrir störf hans, hjálpsemi i annarra garð, órofa tryggð til vina sinna og endurminningarnar um þenn- an mann, sem lifði eftir kjörorð- inu „Fátt mannlegt er mér óvið- komandi". Hjálmtýr var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var þýzk og er dóttir þeirra Helga gift Gunnlaugi Claessen, fulltrúa í fjármálaráðu- neytinu. Seinni kona Hjálmtýs er Þórunn Þórðardóttir, útvegs- bónda, Ólafssonar í Odda I Ögur- sveit. Börn af seinna hjónabandi eru tvö: Kristin og Pétur, bæði á bernskualdri. Auk þeirra er kjör- sonur uppkominn, Bjarni, tekinn til fósturs af Hjálmtý og systrum hans. Ekki duidist vinum Hjálmtýs að hann taldi það sitt mesta gæfu- spor þegar hann kvæntist Þór- unni Þórðardóttur, enda var sambúð þeirra með ágætum, ekki sízt er mest á reyndi í veikindum hans. En harmur er nú ekki að henni einni kveðinni og börnum þeirra. Mikill er missirinn — einnig fyrir systur hans þrjár, sem eftir lifa, svo náin voru þau systkinatengsl. Ég og margir vinir Hjálmtýs Péturssonar þökkum honum nú liðna samveru og samstarf og vottum eftirlifandi konu hans, börnum þeirra og systrunum þremur dýpstu sambúð og biðjum þeim Guðs blessunar, nú þegar svo mikils er misst. Jón lvarsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.