Morgunblaðið - 01.11.1974, Síða 28

Morgunblaðið - 01.11.1974, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÖVEMBER 1974 Einar og Elísabet ásamt börnum sfnum. Þau eru, f efri röð talið frá vinstri, Pétur Guðni, Jón Friðgeir, Guðmundur Páll, Jónatan, Hjalti og Guðfinnur. í neðri röð Hildur og Halldóra. Framhald af bls. 11 Hamri. Hann sagði, að ekkert vit væri í öðru en hafa frystivélar f húsinu. Ég bar þetta upp á fundi f hlutafélaginu og var tillagan sam- þykkt. Því var frystivél sett upp f húsinu, ein sú fyrsta á landinu, og var það mikið gæfuspor að mínum dómi. 1940 var frystihúsið stækkað, byggðir nýir frystiklefar, vinnslu- og tækjasalir. Hefur það verið i stöóugri uppbyggingu síðan og er nú orðið eitt hið stærsta á land- inu. Það flutti út fyrir yfir 300 milljónir króna á sfðasta ári og var eitt af framleiðsluhæstu frystihúsum landsins. Það tekur við öllum fiski af bátunum og auk þess tekur það nú rækju til vinnslu af 11 bátum. Þá hefur verið unninn hörpudískur í frysti- húsinu, en við vorum braut- ryðjendur f veiðum og vinnslu á hörpudisk um og upp úr 1970.“ Einar Guðfinnsson h/f „Fyrirtæki mitt var gert að hlutafélagi fyrir nokkrum árum, og annast það nú rekstur ýmissa fyrirtækja, eins og vikið verður að síðar. Þá rekur það fiskimjöls- verksmiðju og hefur gert á 4. ára- tug. Fyrst var það Iftil verk- smiðja, en 1963 var tekin í notkun ný og fullkomin síldar- og fiski- mjölsverksmiðja i nýju húsi, sem getur brætt um 200 lestir á sólar- hring. Hún vinnur úr öllum fisk- úrgangi á staðnum og auk þess karfabein og annan feitfisk úr nærliggjandi byggðarlögum, enda eina verksmiðjan við Djúp sem það getur. Undanfarnar loðnu- vertíðir hefur verksmiðjan tekið við loðnu til bræðslu. Þá má geta þess, að Einar Guðfinnsson hf hefur smávegis verkað saltfisk, skreið og harðfisk hin sfðustu ár.“ Verzlunin „Þegar ég keypti eignirnar f Bolungarvík 1924 eignaðist ég verzlunarhús. Ég leigði það 3 fyrstu árin, og var leigan 50 krón- ur á mánuði. Árið 1927 fór ég sjálfur að verzla. I þá daga fór maður ekki í búðina nema þegar fólk kom til að verzl'a og var það oft að afloknum vinnudegi. Það var ekki verið að fást um slfkt í þá daga. 1933 keypti ég eignir Péturs Oddssonar eins og áður er getið, og færði ég þá aðalverzlunina þangað og varð þá miklu rýmra um hana en áður hafði verið. En brátt kom að þvf, að það varð af lítið og réðumst við þá í að byggja nýtt verzlunarhús 1954, og var það samtals 300 fermetrar að grunnfleti með skrifstofum á efri hæð. Árið 1972 var tekin í notkun ný matvörubúð, kjörbúð, og þar er jafnframt kjötvinnsla og brauðgerð. Núna í vor var vefnaðarvörudeild fyrirtækisins opnuð f nýju húsnæði, og þar er einnig skódeild og fleira. Þessar verzlanir eru á jarðhæð í nýrri byggingu, sem er þrjár hæðir. Er verzlunarhúsnæðið í allt nálægt 1000 fermetrar að grunnfleti rúm- gott og byggt eftir ströngustu kröfum. Þetta eru alhliða verzlan- ir með allar mögulegar vörur, matvörur, vefnaðarvörur, bús- áhöld, byggingarvörur og fl. og fl. í kjallara eru rafmagns- og neta- verkstæði. Fyrirtækið hefur séð um slátrun á sauðfé á hverju hausti um árabil og einnig annazt sölu á landbúnaðarafurðum. Þá hefur það umboð fyrir ýmsa aðila, t.d. Olíufélagið Skeljung. Einnig annaðist það um árabil vöru- flutninga á sjó milli Reykjavfkur og Vestfjarða." Þetta málverk eftir Erlu Sig- urðardóttur hangir á skrif- stofu Einars. Myndin hefur áð- ur birzt f Mbl, en rétt þykir að birta hana aftur, þvf að hún sýnir vel ýmsa þætti 1 lffi Ein- ars. Efst til vinstri er fyrsta verzlunin, þar fyrir neðan fbúðarhúsið, þar sem flest börnin fæddust og neðst verzl- unar- og frystihúsið. Einnig sést vfkin, höfnin, konur f fisk- vinnu, fiskstaflar, bátar á sigl- ingu og uppsettir bátar. <Jr hinni nýju og fullkomnu kjötvinnslu verzlunarinnar. Fjölskyldan „Það verður ekki skilið svo við frásögn af fyrirtækinu að ekki sé minnzt á fjölskyldu mina, sem að sjálfsögðu er þvf mikið tengd. Eins og komið hefur fram, gékk ég að eiga Elísabetu Hjaltadóttur frá Bolungarvík haustið 1919, og eru því liðin rétt 55 ár frá giftingu okkar. Elísabet er fædd f Bolungarvík 11. aprfl 1900, dóttir Hjalta Jónssonar sjómanns og Hildar Elíasdóttur. Við giftum okkur í Tjaldtungu, en áttum okk- ar fyrsta heimili í Hnífsdal, en síðan alla tíð hér f Bolungarvik. Ég tel mig gæfumann að hafa eignast Elísabetu fyrir konu, hún hefur stutt mig með ráðum og dáð í umsvifum mfnum. Við höfum átt barnaláni að fagna, eignuðumst 8 börn sem uppkomust. 6 syni og 2 dætur. Þau eru í aldursröð Guð- finnur, Halldóra, Hjalti, Hildur, Jónatan, Guðmundur Páll, Jón Friðgeir og Pétur Guðni. Þrír sona minna hafa unnið við fyrir- tækin frá barnæsku, og hafa nú tekið við stjórn þeirra. Guðfinnur sér m.a. um útgerðina og er fram- kvæmdastjóri frystihússins. Jóna- tan sér m.a um verzlunina og fisk- mjölsverksmiðjuna og Guð- mundur Páll er m.a. yfirverk- Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan. stjóri f frystihúsinu. Sjálfur hef ég dregið mig að mestu í hlé, en ég kem þó dag hvern á skrifstof- una og fylgist með öllu. Þá get ég fylgzt með bátunum f kíki út um skrifstofugluggann heima. Fyrir- tæki mitt var gert að hlutafélagi fyrir nokkrum árum og heitir nú Einar Guðfinnsson hf. Það sér um rekstur eftirtalinna fyrirtækja: íshúsfélag Bolungarvikur hf, Baldurs hf, Völusteins hf og Rastar hf. Hjá þvf vinna 2—300 manns, sem verður að teljast stórt á okkar mælikvarða hér i Bolungarvík. Eins og stendur vantar fólk til vinnu, bæði á sjó og landi.“ Lokaorð „Við hjónin höfum verið gæfu- manneskjur. Við höfum verið heilsugóð allt fram á síðustu ár, og reynt að styðja hvort annað f önn dagsins. Við eignuðumst góð börn, tengdabörn og barnabörn. Okkur hefur farnazt vel í flestum okkar athöfnum og við erum sátt við lífið og tilveruna. Ég þakka samferðafólki störfin og bið Iandsmönnum blessunar guðs.“ — SS. '

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.