Morgunblaðið - 02.11.1974, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÖVEMBER 1974
Sjálfstæðis
félögin:
Spilakeppni
um Urvalsferð
SPILAKVÖLD Sjálfstæðisflokks-
félaganna verður n.k. miðvlku-
dagskvöld f Súlnasal Hótel Sögu.
Hefst það kl. 20.30.
Ellert Schram, alþingismaður,
flytur reðu og Ómar Ragnarsson
skemmtir.
Þetta er annað af þriggja
kvölda spilakeppni um heildar-
verðlaun, sem eru utanlandsferð
með tlrvali. Einnig verða veitt
góð kvöldverðlaun.
— Kissinger
Framhald af bls. 1
hann hefur Jafnvel boðað að olfu-
verð hækki enn.
Haft er eftir góðum heimildum
f Islamabad, að Kissinger hafi
tjáð Zulfikar Ali Bhutto, for-
sætisráðherra Pakistans, að
Bandarfkjastjðrn muni ekki að
svo stöddu aflétta banni á vopna-
flutningi til landanna á Indlands-
skaga. Pakistanstjórn. er f mun
að fá bandarfsk vopn til mótvægis
við sovézk vopn, sem Indyerjar
hafa fengiö undanfarin ár. Ekki
var minnzt á vopnamálið í opin-
berri tilkynningu ráðherranna.
Hins vegar var þess getið að
Bandaríkjastjórn mundi selja
Pakistan 100.000 lestir að ódýru
hveiti, en þangað þarf að flytja
inn um eina milljón lesta á þessu
ári.
— Nixon
Framhald af bls. 1
tfma en var ekki nema tæpar tfu
mínútur inni á gjörgæzludeild-
inni hjá Nixon.
Að heimsókninni lokinni hélt
Ford áfram kosningaferðalaginu
um Kaliforníu. Hann hefur
sfðustu dagana haldið margar
ræður til stuðnings frambjóð-
endum repúblikana og nú síðast
fundið sér nýtt vfgorð, sem jafn-
vel er sagt geta hæft suma repú-
blikana. „Fleygiö út eyðsluseggj-
unum,“ er vígorð forsetans, „hvar
sem þá er að finna.“ Hann sagði
meöal annars í Los Angeles í gær-
kveldi: „Ef þið eruö óánægð með
stjórn fjármála landsins sl.
tuttugu ár; ef ykkur finnst kom-
inn tfmi til að breyta tll, þá
minnist þess næsta þriðjudag
hverjir eru mestu eyðslusegg-
írnir I þjóöfélaginu — og fleygið
þeim út...“ og hann bætti við ...
„ef einhverjir þeirra eru repú-
blikanar, veröur að hafa það...“
— Vopnuð
lögregla
Framhald af bls. 15
Payne sagði, að hermenn og
skriðdrekar hefðu verið hafðir
tii taks á flugvellinum nokkr-
um sinnum fyrr á árinu vegna
gruns um hættu frá skærulið-
um og þetta hefði ekki verið
æfing eins og lögreglan hefur
hingað til lýst þessum viðbún-
aði.
Hann sagði, að þegar Sima
Timana, sá sem tók gíslana í
Haag á dögunum, rændi VC-10
flugvél British Airways f marz
á leið frá Beirút til London,
hefði hann ætlað að neyða
flugstjórann til að fljúga til
London. 1 staðinn lenti flug-
vélin á Schipol-flugvelli í
Amsterdam og þar var kveikt f
henni.
— Frakklands-
forseti
Framhald af bis. 1
reglum og venjum kalda strfðsins
— það færði þjóðir heims skref
aftur á bak og eitraði andrúms-
loftiö þeirra f milli með tilheyr-
andi skaða fyrir viðleitni þjóða
til bættra samskipta. Sovézk blöð
hafa áður rætt ýtarlega um oliu-
kreppuna og afleiöingar hennar
fyrir iðnaðarþjóðir Vesturlanda.
Hafa þau jafnan þá skýringu til-
tæka að öll þessi vandamál og
afstaða iðnaðarrfkjanna til Araba
séu afleiðingar af stuðningi
Bandarfkjanna við ísrael. Ekki er
talið ósennilegt, að viðleitni
franska forsetans, Valerys
Giscards d’Estaings beri nokkurn
árangur. Utanríkisráðherra Bret-
lands, James Callaghan, gerði
þær að umtalsefni f neðri mái-
stofu brezka þingsins f dag og
sagði, að stjdrn sfn mundi íhuga
þær gaumgæfilega, — og hún
væri reiðubúin að taka þátt f
undirbúningi ráðstefnu eins og
Giscard d’Estaing hugsaði sér, —
en sá undirþúninguryrði aðvera
ýtarlegur mjög. Þá hvatti leiðtogi
Kuwait, Sabah Salem E1 Sabah,
fursti, til þess i dag, að iönaðar-
ríkin og olfuframleiðslurfkin sett-
ust saman á rökstóla og tækju á
verðbólguvandanum f heiminum
af fullri alvöru. Hann vísaði jafn-
framt á bug staðhæfingum um að
lækkun olfuverðs ein gæti læknaö
þann vanda.
Haft er fyrir satt, að sendimenn
franska forsetans eigi að vinna
hugmyndum hans stuðning svo
skjótt, ef mögulegt er, að hægt
verði að halda undirbúningsfund
ráðstefnunnar þegar f lok þessa
mánaðar — með það í huga að
ráðstefnan geti hafizt þegar I
byrjun næsta árs. Er talið, að for-
setinn hugsi helzt að þátttöku-
rfkin verði Saudi-Arabía, Iran,
Venezuela og Alsfr, sem fulltrúar
olfuframleiðslurfkjanna, Banda-
rfkin, Japan og EBE sem heild,
verði fulltrúar iðnaðarrfkjanna
og Brazilfa, Indland og Zaire
verði fulltrúar vanþróuöu rfkj-
anna.
Meðal ýmissa stjórna Vestur-
landa er sú skoóun rfkjandi, að
Giscard d’Estaing sé með þessu að
reyna aö grafa undan tllrunum
Bandarfkjanna og fleiri þjóða að
koma á olfusamvinnu sfn f milli,
komi til kreppu — þ.e. rfkjanna,
sem f upphafi nefnast „ellefu-
rfkja hópurinn” en sfðan „tólf
ríkja hópurinn”, þegar búizt var
við aðild Norðmanna þar að. I gær
höfnuðu Norðmenn hinsvegar
fullri þátttöku f þessu samstarfi.
— Frumvarp
Framhaid af bls. 2
Nefndarkostnaóur þeirra ráðu-
neyta, sem ekki hefur verið upp
talinn er allmiklu minni, en þar
ber þó hæst kostnað landbúnaðar-
ráðuneytisins, sem samtals er
rúmlega 4,1 milljón króna, þá for-
sætisráðuneytisins, félagsmála-
ráðuneytisins og vióskiptaráóu-
neytisins, sem öll eru hvert um
sig með kostnaó á fjórðu milljón
króna.
— Golf
Framhald af bls. 35
Chile 494
Kolombfa 494
Portó Rfkó 495
Bermuda 496
S-Kórea 497
Jamaica 498
Panama 500
Noregur 501
Ecuador 503
Dóminikanska lýðveldið 507
Bahamaeyjar 509
E1 Salvador 570
Island 578
------—----------
— Ber ÍA
Framhald af bls. 34
fyrr en málalok eru komin f því
máli.
Þess má að lokum geta, að
Akurnesingar munu hafa mikinn
hug á því að fá Kirby til starfa hjá
sér aftur næsta sumar, enda var
samvinna hans og leikmanna
Akranesliðsins með eindæmum
góð í sumar, og árangur liðsins
eftir þvf. Mun beóió eftir lokum
máls Kirbys við Watford, áður en
endanlega verður gengið frá því
hvort af þvf veróur að hann komi
til Akurnesinga að nýju.
— Matthías
Bjarnason
Framhald af bls. 23
isins. Á Islandi eru þessi mál skipt
Menntunarmál sumra heilbrgðisstétta
eru undir umsjá menntamálaráöuneyt-
isins, en annarra undir umsjá heil-
brigðismálaráðuneytisins og ber þarað
nefna menntun Ijósmæðra, sjúkraliða,
röntgentækna, lyfjatækna og þroska-
þjálfa. Fyrir tveimur árum hafði ráðu-
neytið forgöngu um að koma á fót
sérstöku námskeiði fyrir Ijósmæður,
sem hefðu hug á að verða hjúkrunar-
konur og er fyrsti hópurinn af þessu
tagi að útskrifast nú á þessu hausti.
Raunar var þetta námskeið fyrsti
vfsir að hinum nýja Hjúkrunar-
skóla I framtlðinni hefur ráðu-
neytið hug é þvl að reyna að
sameina meira en nú er menntunar-
mál heilbrigðisstétta, t.d. með þvl að
koma menntunarmálum sjúkraliða,
sem nú fara fram á himum einstöku
sjúkrahúsum I samræmdara horf með
þvl að koma á sérstökum skóla fyrir
sjúkraliða, þar sem hið bóklega nám
færi fram sameiginlega, en að sjálf-
sögðu verður verklega námið að fara
fram á sjúkahúsum eins og nú er. I
þessu skyni er nú verið að reyna að
afla leiguhúsnæðis til þess á vegum
ráðuneytisins.
Ég ætla nú ekkí að hafa þessi orð
fleiri um heilbrigðismálin að sinni, þó
að ég hefði gjarnan viljað ræða meira
við ykkur um þau mál, en þetta er það
viðamikill málaflokkur, að okkur mundi
varla endast kvöldið til að ræða Itar-
lega um Isennan málaflokk einan. Ég
ætla þá að koma að sjávarútvegsmál-
unum og stikla þar aðoins á þvl allra
stærsta
(Framhald sfðar)
Spjallað
Framhald af bls. 15
segja af sér vegna ofanígjafar
Wilsons.
Þingmenn úr Verkamanna-
f lokknum efndu I dag til mótmæla
aðgerða við landvarnaráóuneytiö
og afhentu bréf þar sem skorað
var á Roy Mason að aflýsa öllum
sameininlegum heræfingum
Breta og Suður-Afríkumanna og
segja upp samningum um afnot
flotastöðvarinnar f Simonstown.
— Yfirmaður
Framhald af bls. 1
meintar pyntingar. Fór hann þá
frá starfi um hríð og þegar hann
tók aftur við embætti sögðu níu
yfirmenn f lögreglunni af sér.
Villar er annar lögregluforingi
Argentínu, sem myrtur er f starfi,
hinn var Ramon Falcon, er var
drepinn árið 1910 með því að
anarkfsti varpaði sprengju að
vagni hans.
Villar er hins vegar fyrsti veru-
lega hátt setti embættismaóur
Argentfnu, sem drepinn er frá því
herforingjastjórnin lét af völdum
25. maí 1973. Ganga morð hægri
og vinstri manna á vfxl frá degi til
dags. Sfðast í gær fannst einn af
forystumönnum vinstri manna,
Carlos Llerena Rosa, myrtur í
skemmtigarði f Buenos Aires og
er talið vfst, að öfgasveitir hægri
afla hafi verið þar að verki.
~ Minning Bjarni
Framhald af bls. 27
eins og öllum er ljóst, sem hafa
búið við þær aðstæóur að hafa
ekki rafmagn. Sfðasta framtakiö,
sem Bjarni vann að til umbóta á
jörðinni, lauk hann á s.l. ári, en
það var mikll hagagirðing, sem
gerði honum mögulegt að hagnýta
áburóarflugvél til þess að auka
beitarþol jarðarinnar. Bjarna
auðnaðist að sjá undraverðan
árangur slfkrar áburðardreifing-
ar nú á þessu sumri, og þykir mér
það hafa verið verðugt lokaverk
þessa ótrauða umbótamanns.
Bjarni Kolbeinsson unni sinni
sveit og lagði sig fram um að bæta
aðstöðu sveitunga sinna með
félagslegu framtaki á mörgum
sviðum. Þannig man ég að Bjarni
tók virkan þátt f störfum ung-
menntafélagsins fram á fimm
tugasaldur. En aðal félagsmála
störf sín vann hann að sjálfsögðu
á sviði búnaðarmála. Bjarni
mun hafa verið formaður bún-
aðarfélagsins f sinni sveit um
fjörutfu ára skeið og formaður
nautgriparæktarfélagsins í rúm
þrjátfu ár. Þessi félög urðu bæði
að öflugum starfseiningum undir
handleiðslu Bjarna Kolbeinsson-
ar. Hann var óþreytandi að brjóta
nýjar brautir f félagsmálum og
bændurnir treystu forsjálni hans
og hyggindum og fylgdu honum
því ótrauðir. Svo nokkuð sé nefnt
um félagsleg átök f þessum félög-
um má minna á kaup hjóla-
dráttarvélar f sveitina laust fyrir
1930, sem vann f umferðavinnu á
svo lágu gjaldi að slíkt var nær
óþekkt. Afleiðingin var sú að þá
þegar hófst mikil útfærsla túna
og sléttun gömlu túnanna f þess-
ari slægjurýru sveit og um leið
skapaðist grundvöllur fyrir nú-
tfma heyvinnuvélar. En búnaðar-
félagiö var í mörg ár í erfiöri
skuldavilpu og þegar fjárhagur
bænda rýmkaðist áratug sfðar, þá
greiddu bændur sveitarinnar að
frumkvæði bjarna, þessar skuldir
á einu bretti, enda voru þær hé-
gómi fyrir bændur, sem þá voru
komnir f öflugan ræktunarbú-
skap.
1 nautgriparæktarfélaginu var
Bjarni óþreytandi að afla velætt-
aðra kynbótanauta og að bæta
skýrsluhald um afurðagetu kúa-
stofnsins. Man ég eftir því, að ég
heyrði Bjarna segja það á fundi f
búnaðarfélagi Gnúpverja, að sér
fyndist, að hann hefði ekki getað
búið við kýr án þess að taka þátt f
starfi nautgriparæktarfélagsins
og án þess árangurs sem af þvf
starfi leiddi. Svo mikilvægt var
starf félagsins að mati Bjarna, og
ég veit, að hann mælti þar af
kunnugleika og skarpskyggni, að
þar sem þetta starf var unniö af
alúð og framsýni, þá fylgdi því
aukinn búmegun, sem var undir-
staða margháttaðra framkvæmda
og umbóta á hverju býli.
Eg, sem þessar línur rita, heim-
sótti Bjarna á afmæli hans fyrir
nokkrum árum og þakkaði honum
þá störf hans á sviði búnaðarmála
með fáum orðum. Hann svaraði
þessu af mestu hógværð og gerði
ekki mikið úr sfnu framlagi en
bætti svo við, að hann hefði á
unga aldri fengið hjálpargögn,
sem honum hefðu oft dugað vel.
Annað hefði verið það, að hann
hefði séð og kynnst nokkuð
ræktunarbúskap Norðmanna og
hitt, að á Hvftárbakka hefði hann
lært að skrifa og reikna.
1 þessum orðum koma glöggt
fram skarpskyggni Bjarna Kol-
beinssonar. Við Noregsdvöl hans
skerptust áhugamál hans og trúin
á framfarir f landbúnaði, en á
Hvftárbakkaskólanum lærði hann
undirstöðuna að þvf hagfræðilega
mati, sem bóndinn þarf jafnan að
hafa nærtækt í bústörfum og f
viðskiptum.
Ég vil svo að leiðarlokum þakka
Bjarna fyrir öll hans störf, bæði í
Stóru-Mástungu, á hans farsæla
búi og góða heimili, og f félags-
málum landbúnaðarins.
Eg votta börnum hans, heimilis-
fólki og öllum aðstandendum
samúð mfna við fráfall þessa
trygga og umhyggjusama föður og
húsbónda.
Hjalti Gestsson
— 75 ára
Framhald af bls. 8
strauma fóru að koma í Ijós og
leggja lff margra ágætra Islend-
inga f rúst eina, hafi það ekki átt
svo lftinn þátt f því hvaða stefnu
Hf Asmundar tók eftir að hann
kom heim til Islands.
A tslandi hóf hann brátt að
starfa fyrir Hvftasunnuhreyfing-
una og hefur hann starfað óslitið
að málum þeirrar hreyfingar sfð-
an, lengst af við Ffladelfíu f
Reykjavfk eða allt frá árinu 1945,
en þá fluttist hann frá Vest-
mannaeyjum ásamt konu sinni
Þórhildi Jóhannesdóttur.
I starfi Asmundar hefur það
komið sér vel hve hann er vel
máli farinn, ritfær og hagmæltur,
eftir hann liggja fjölmargar þýð-
ingar úr erlendum málum, og svo
segja mér fróðari menn, að snilld-
arbragð sé á öllum þeim verkum
og málfar gott.
Þegar litið er yfir lífsstarf As-
mundar ber starf kennimannsins
þar hæst. En lff hans spannar yfir
mörg önnur svið, eitt það mikil-
vægasta er starf hans við að rétta
þeim styrka hönd kærleikans,
sem beðið hafa tjón á sálu sinni
vegna ofdrykkju og annarra sjúk-
leika og hjálpa þeim að rétta við
og finna að nýju gleöi sfna og
gæfu. Þetta starf er erfitt og verð-
ur að vinnast með þolinmæði og
fyrir handleiðslu Jesú Krists ef
það á að bera árangur. Þessu hafa
ekki allir trúað og þessvegna hef-
ur það ekki alltaf farið hátt og
ekki verið metið sem skyldi,
fyrr en nú á sfðustu mánuðum
með tilkomu Hlaðgerðarkots.
Það starf, sem unnið hef-
ur verið þar, þann stutta
tíma, sem staðið hefur,
er nú þegar farið að bera
góðan árangur og hefur hlotið við-
urkenningu margra mætra
manna. Og þá er að minnast þess,
að sá veldur miklu, sem upphaf-
inu veldur, en það tel ég að verið
hafi heiðurshjónin Þórhildur Jó-
hannesdóttir og Asmundur
Eirfksson með starfi þvf, sem þau
inntu af hendi á heimili sfnu að
Hverfisgötu 44 um fjölda ára. Þar
var löngum opíð hús fyrir þá, sem
hvergi áttu höfði sfnu að halla og
voru einnig á annan hátt f þörf
fyrir aðhlynningu bæði andlega
og lfkamlega.
Starf Asmundar og konu hans
hefur borió rfkulegan ávöxt og
framsýni Asmundar varð til þess
að ráðist var í kirkjubyggingu að
Hátúni 2 þar sem nú eru höfuð-
stöðvar hvftasunnumanna hér á
landi. Bygging þessa veglega
húss, sem hófst árið 1957 og vfgt
var 1969, er sem minnisvarði um
starf þeirra hjóna. Þórhildur og
Asmundur hafa búið í hamingju-
sömu hjónabandi alla tíð, þau
voru gefin saman á Akureyri
1930.
Nauðungaruppboð
Annað og siðasta uppboð é lóðunum númer 7, 7A og 8 úr landi
hlutafélagsins Norðurbakka 1 Norðurkotslandi I Grlmsnesi éður auglýst
I Lögbirtingablaði 4., 13. og 18. september og Morgunblaðinu 26.
október 1 974 fer fram é eignunum sjálfum fimmtudaginn 7. nóvember
kl. 13.
Uppboðið fer fram til lúkningar skuldum auk vaxta og kostnaðar
samkvæmt 6 verðskuldabréfum, sem hvert er að höfuðstól kr. 1 50
þúsund.
Sýslumaður Árnessýslu.
öllum þeim, sem glöddu okkur með kveðjum og
gjöfum á 70 ára og 75 ára afmælum okkar,
færum við innilegustu þakkir.
Guðfinna Pálsdóttir
Magnús Gamalíelsson,
ólafsfirði.