Morgunblaðið - 02.11.1974, Page 36
ftt0rgmtl>M>ifr
nucivsmcnR
^22480
JW«rgtml>Inl>il>
nucivsmcRR
^v-«2248U
LAUGARDAGUR, 2. NÓVEMBER 1974
Glæsibæjardeilan:
Setið klukkustundum
saman yfir samningum
STÁLU ÆÐARDÚN
FYRIR140 ÞÚS.
FULLTRUAR deiluaðila í
Glæsibæjarmálinu sátu í
allan gærdag á fundi og
enn, er Mbl. fór í prentun í
gærkvöldi. Sveinn Snorra-
son, hæstaréttarlögmaður,
sagði í fyrrinótt í viðtali við
Mbl., að gert hefði ve?ið
vopnahlé og að menn
ætluðu að nota föstudag til
þess að þrautreyna sátta-
Kjartan
leiðina. Var búizt við, að til
úrslita drægi í þessu deilu-
máli um helgina og kemur
þá í ljós, hvort Sláturfélag
Suðurlands tekur við
rekstri matvöruverzlun-
arinnar í Glæsibæ eða ekki.
Guðmundur Ingvi Sigurðsson,
hæstaréttarlögmaður, sem er full-
trúi dánarbús Sigurliða Kristjáns-
sonar, sagði í viðtali við Mbl. í
gær: „Við höfum kvöldið fyrir
okkur og nóttina og munum reyna
til þrautar að ná samkomulagi
alveg fram til hádegis á morgun,
laugardag. Við erum enn að og
værum það ekki, ef talið væri
vonlaust aá samkomulag næðist.“
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. hafði í gær, var talið líklegt,
að vörutalning gæti farið fram í
dag. Deilan snýst um það, hvort
Valdimar Þórðarson hafi getað
undirritað samning við Slátur-
félagið, en í öllum viðskiptum
Silla og Valda á meðan Sigurliði
var á lífi virtu þeir undirskrift
hvor annars á þann hátt að undir-
skrift annars var bindandi fyrir
báða. Við fráfall Sigurliða hefur
hér orðið breyting á og vilja
stjórnendur dánarbús Sigurliða
ekki viðurkenna þessa reglu.
Fjölmargir samningar eru til með
undirskrift annars, en aðeins
mun vitað um eitt skipti, þar sem
báðir rituðu nafn sitt.
1 FYRRINÓTT var brotizt inn f
Dúnhreinsunarstöð SÍS á Kirkju-
sandi f Reykjavfk. Þar var stolið 6
kflóum af fullhreinsuðum æðar-
Frumvarp
um eflingu
Lánasjóðs
sveitarfélaga
LAGT hefur verið fram á Alþingi
frumvarp til laga um breytingu á
lögum um Lánasjóð sveitarfélaga,
sem gerir ráð fyrir verulegri
eflingu sjóðsins. Lánasjóðurinn
tók til starfa á árinu 1967 og
hefur haft, lögum samkvæmt,
fasta tekjuliði frá Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga og ríkissjóði. Þessir
tekjupóstar voru óafturkræfir og
námu samtals á yfirstandandi ári
23 m.kr. Hefur framlag þetta
hækkað um ein 18% á þeim átta
árum, sem sjóðurinn hefur
starfað, var 19,5 m.kr. árið 1967,
svo lánageta sjóðsins hefur í raun
hraðminnkað miðað við þá verð-
lagsþróun sem orðið hefur á
þessum árum.
Frumvarp það til laga, sem nú
hefur verið lagt fram, gerir ráð
fyrir þvi, að hin árlegu, óaftur-
kræfu framlög til sjóðsins verði í
ákveðnum hlutföllum við tekjur
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga:
framlag Jöfnunarsjóðs verði
árlega 5% af brúttótekjum þessa
sjóðs og framlag rfkissjóðs, sem
verður ákveðið í fjárlögum
hverju sinni, miðist við 2M% af
brúttótekjum Jöfnunarsjóðs.
Miðað við áætlaðar tekjur Jöfn-
unarsjóðs á yfirstandandi ári
ættu framlög til Lánasjóðsins,
miðað við lagafrumvarpið, að
verða samtals 71 m.kr. (í stað
23,0).
Lánasjóðurinn hefur til ráðstöf-
unar, auk þessara beinu fram-
laga, endurgreiðslur eldri lána,
vaxtatekjur og lán, er hann tekur
til framláns. Á árinu 1974 tók|
Lánasjóður sveitarfélaga í þessu
augnamiði 105 m.kr. lán hjá
Framkvæmdasjóði og 15 m.kr. frá
Bjargráðasjóði. Heildarlán sjóðs-i
ins til sveitarfélaga það ár námu
tæpum 170 m.kr. Áætlaðar lán-
tökur sjóðsins i ár eru 113 m.kr.
og áætluð lán til sveitarfélaga 178
m.kr.
dún. Hvert kiló er selt á 22—25
þúsund krónur, að sögn ’rann-
sóknarlögreglunnar, svo nærri
lætur, að verðmæti þess, sem stol-
ið var, sé nálægt 140 þúsund krón-
ur.
Talið er, að þeir, sem verknað-
inn unnu, hafi farið inn um
glugga. Héldu þeir inn í dún-
hreinsunarherbergið, þar sem
dúninn var að finna. Var hann
pakkaður í 2 hvíta plastpoka, og
voru þeir allstórir að ummáli.
Auk þess var stolið 5 kflóum af
kaffi i kaffistofu starfsfólksins.
Ekki var snert við öðru í fyrirtæk-
inu. Rannsóknarlögreglan hefur
mál þetta til meðferðar.
Jónas hætt-
ur sem ráð-
herraritari
NtJ um mánaðamótin lét
Jónas Jónsson af störfum
sem aðstoðarmaður Halldórs
E. Sigurðssonar ráðherra, en
þvf starfi hefur hann gegnt
um þriggja ára skeið. Hefur
Jónas tekið við fyrra starfi
sem ráðunautur Búnaðar-
félags Islands. Jónas
starfaði f landhúnaðarráðu-
neytinu, en eftir að Halldór
E. Sigurðsson lét af störfum
fjármálaráðherra, þótti ekki
ástæða til þess, að hann
hefði lengur aðstoðarmann
við landbúnaðarmálin.
Landhelgis-
viðræður í skoð-
un hjá ríkis-
stjórninni
SAMKVÆMT upplýsingum Geirs
Hallgrímssonar, forsætisráð-
herra, munu niðurstöður ,Við-
ræðna embættismanna íslend-
inga og Vestur-Þjóóverja vegna
landhelgismálsins vera í sérstakri
skoðun ríkisstjórnarinnar og að
henni lokinni verða nióurstöðurn-
ar kynntar í utanrikismálanefnd
Alþingis og meðal þingflokkanna
í næstu viku.
Aðspurður sagðist Geir Hall-
grimsson ekki geta gefið frekari
úpplýsingar um málið.
Jóhannsson
varaformaður
Alþýðuflokks?
Liklegast þykir, þessa stund-
ina a.m.k., að Kjartan Jóhanns-
son, verkfræðingur, einn af
bæjarfulltrúum Alþýðuflokks-
ins í Hafnarfirði verði kjörinn
varaformaður Alþýðuflokksins
á flokksþinginu, sem haldið
verður um miójan mánuðinn.
Eins og kunnugt er mun Gylfi
Þ. Gíslason ekki gefa kost á sér
til endurkjörs, sem flokksfor-
maður en gerir í þess stað til-
lögu um, að Benedikt Gröndal,
núverandi varaformaður verði
kjörinn formaður. Ekki liggur
ljóst fyrir, hver tekur við rit-
arastarfinu af Eggert G. Þor-
steinssyni, en áhugi mun vera á
því að það verði kona.
Persónufrádráttur hjóna
hækkar í rúma hálfa milljón
ÁKVEÐIÐ hefur verið að skatt-
vfsitala fyrir gjaldárið 1974
hækki um 45%. Morgunblaðið
reiknaði í gær út hvernig
helztu frádráttarliðir til skatts
hækkuðu af þessum sökum og
hækkar persónufrádráttur fyr-
ir einhleyping úr 238 þúsund
krónum í 345.100 krónur. Fyrir
hjón hækkar frádrátturinn úr
355 þúsund krónum í 514.750
krónur og frádráttur fyrir
hvert barn hækkar úr 50 þús-
und krónum í 72.500 krónur.
Aukafrádráttur einstæðs for-
eldris hækkar úr 96 þúsund
krónum í 139.200 krónur og frá
dráttur einstæðs foreldris fyrir
hvert barn hækkar úr 11 þús-
und krónum í 15.950 krónur.
Frádráttur nýgiftra vegna
heimilisstofnunar hækkar úr
84.700 krónum f 122.815 krónur
og hámarksfrádráttur ársins
vegna greiðslna í lifeyrissjóði
hækkar úr 38.500 krónum í
55.825 krónur. Heimilaður frá-
dráttur vegna iðgjalds af lífs-
ábyrgð hækkar úr 23 þúsund
krónum f 33.350 krónur.
Frádráttur sjómanna vegna
hlífðarfatnaðar, sem verið hef-
ur 1.500 krónur á mánuði
hækkar i 2.175 krónur á mán-
uði og sérstakur frádráttur sjó-
manna, sem verið hafa á sjó
lengur en 6 mánuði gjaldárs-
ins, hækkar úr 9.500 krónum á
mánuði f 13.775 krónur á mán-
uði.
Skattstigin breytist einnig f
samræmi við skattvfsitöluna.
Fyrsta þrepið, fyrstu 100 þús-
und krónurnar, sém féllu 1 20%
skatt, hækka og verður upp-
hæðin 145 þúsund krónur.
Næsta þrep, sem er á bilinu 100
til 200 þúsund krónur, verður
nú 145 þúsund til 290 þúsund
krónur og greiðist af þvf bili
30% skattur. Allar tekjur, sem
eru umfram 290 þúsund krónur
fara í 40% skatt.
Skattafsláttur fyrir einstakl-
inga, sem var 11 þúsund krón-
ur, hækkar f 15.950 krónur.
Fyrir hjón hækkar skattafslátt-
ur úr 18.500 krónum f 26.825
krónur og skattafsláttur fyrir
hvert barn hækkar úr 3.300
krónum í 4.785 krónur. Auka-
skattafsláttur fyrir einstætt
foreldri hækkar úr 6.500 krón-
um f 9.425 krónur og fyrir
hvert barn einstæðs foreldris
hækkar skattafsláttur þess úr
600 krónum f 870
Skattafsláttur fyrir aldraða
og öryrkja hækkar samsvar-
andi um 45%.