Morgunblaðið - 26.11.1974, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 26.11.1974, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1974 LOFTLEIOIR STAKSTEINAR I BILALEIGA CAR RENTAL TT 21190 21188 LOFTLEIÐIR Fa jj itii. x /./;#f, i \ 'AIAJIt" 22-0-22* RAUDARÁRSTÍG 31 (g BÍLALEIGAN 21EYSIR CARRENTAL 24460 28810 piorvieen Útvarp og stereo kasettutæki Hópferöabílar Til leigu í lengri og skemmri ferðir 8 — 50 farþega bílar. KJARTAN INGIMARSSON Sími 86155 og 32716. Annast allar* 1 raflagnir og viSgerðir í hús og skij> Úr og klukkur hjá fagmanninum. HILMAR FOSS Lánsfjármögnun opinberra framkvæmda tJtgáfa og sala happdrættis- skuldabréfa til að f jármagna og flýta meiriháttar verkáföngum í vegagerð landsmanna hefur hlotið nokkra gagnrýni. Því er einkum haldið fram, að sala slíkra skuldabréfa á almennum peningamarkaði dragi úr spari- fjárstreymi til lánastofnana og sé þeim því fjötur um fót f lánafyrirgreiðslu til atvinnu- vega. Þá er og á það bent, að verðtryggt lánsfé sé dýrt og endanlega þurfi að greiða láns- féð og kostnað við það af tekju- stofnum ríkissjóðs, þó sfðar verði. Þessi sjónarmið eiga vissulega rétt á sér, svo langt sem þau ná, og þurfa að koma inn f myndina, er málið er skoðað i heild. Sparnaður og eyðsla Vegagerð er eitt helzta áhugamál þjóðfélagsþegnanna. Hringvegur um landið, Djúp- vegur á Vestfjörðum og nú síðast Norðurvegur eru allt þýðingarmiklir áfangar í vega- gerð, sem þessi fjármögnun flýtti eða getur flýtt um all- mörg ár. Áhugi fólks á þessum til- teknu framkvæmdum sem og verðtrygging skuldabréfanna hefur leitt af sér, að fólk leggur fram stórfé í skuldabréfakaup, sem ella hefði farið í beina eyðslu. Skuldabréf þessi eru notuð til gjafa við allskonar tækifæri, og hafa þannig virkjað fjármagn, sem ella hefði runnið til annarra fánýt- ari kaupa. Reynslan hefur og leitt í ljós, að fólk dregur mjög úr margháttaðri og á stundum gjaldeyrisfrekari eyðslu vegna þess, að hér gefst því tækifæri til að ávaxta aflafé á hag- kvæman hátt um leið og það Ijáir framkvæmdum lið, sem það hefur persónulegan áhuga á og bæði beinan og óbeinan ávinning af. Þessi lánsfjár- öflun eykur því sparnað og bindur fjármagn, sem ella hefði bætzt við hina óæskilegu eyðslu þjóðarinnar. Að flýta framkvæmdum Slíkt lánsfé til framkvæmda er dýrt — um það eru ekki skiptar skoðanir. En því fylgir jafnframt hagkvæmni, sem vert er að veita athygli. Með hliðsjón af þeirri verðlags- þróun, sem verið hefur hér undanfarin ár, má öllum Ijóst verða, að það skiptir ekki svo litlu máli, kostnaðarlega séð, hvort tekst að flýta vegafram- kvæmdum um nokkur ár eða ekki. Frá þvi sfðasta vega- áætlun var gerð, árið 1972, hefur kostnaður við vegagerð vaxið um 100%. Vonir standa að vfsu til að verðbólguvöxtur- inn verði hægari á næstu miss- erum en verið hefur. Engu að sfður er ljóst, að þeir áfangar í vegagerð, sem happdrættis- lánin hafa fjármagnað, myndu kosta þjóðina drjúgum meira á næstu árum, ef óunnin væru, en raun hefur orðið á. Kostnaður við vegahald, snjó- ruðning og viðhald á bifreiða- eign landsmanna minnkar og stórum eftir því sem varanleg vegagerð segir meir til sín í samgöngum landsmanna. Önnur happdrætti Það eru að vísu takmörk fyrir því, hve langt er hægt að ganga í fjármögnun af því tagi, sem happdrætti eru. Hætt er þó við að enginn vildi vera án þeirra áfanga, sem happdrætti Há- skólans, SlBS og DAS hafa fært þjóðinni. Og slík frjáls fjár- mögnun af hálfu þjóðfélags- þegnanna er á margan hátt æskilegri og viðfelldnari leið en bein skattheimta ríkisvalds- ins, sem fólk veit ekki fyrir- fram, hvernig ráðstafað verður. Gagnrýni á þessi mál er að sjálfsögðu bæði eðlileg og æski- leg. En sú hlið hennar, sem er ógeðfelldust, kemur fram i þvi viðhorfi, að ekki megi binda slíka fjármögnun við ákveðnar framkvæmdir, að stemma þurfi stigu við valfrelsi fólks um slika ráðstöfun fjármuna sinna. Þar gægist fram gamla þröngsýnin og vanmatið á dóm- greind almennings og ofmatið á algerri rikisforsjá. Fjöldaleit að krabbameini á næsta leiti?- Tveir stórmerkir nýir áfangar í baráttunni BREZKIR vísindamenn í Manchester hafa fundið upp fljótvirka blóðrannsókn til að kanna möguleika á krabba- meini i mannslíkamanum og gefur þessi nýja aðferð von um auðveldari krabbameinsleit í stórum stíl, fyrst hjá verkafólki í iðngreinum, þar sem talin er mikil hætta á krabbameini og síðar hjá öllum almenningi. Þessi nýja aðferð er af sumum talin einhver merkasta upp- götvunin i baráttunni gegn krabbameini, þar sem tiltölu- lega auðvelt er að lækna krabbamein á frumstigi. Vísindamenn og sér- fræðingar í atvinnusjúk- dómum hafa nýlokiðráðstefnuí Genf, sem haldin var á vegum alþjóðasamtaka iónverkafólks í efnaiðnaði. Markmið ráðstefn- unnar var að ræða aðferðir til að minnka hina miklu krabba- meinshættu, sem er samfara starfi í vissum iðngreinum. Það hafði mikil áhrif á störf ráð- stefnunnar að um það leyti beindist athygli manna í heim- inum mjög að krabbameini, í kjöifar uppskurðanna á Betty Ford og Happy Rockefeller í Bandaríkjunum, forseta- og varaforsetafrúm Bandaríkj- anna. Það sem hvað mesta at- hygli vakti á ráðstefnunni var hin nýja aðferð brezku vísinda- mannanna. Nákvæmni hinnar nýju að- ferðar, sem fundin var upp á Christiestjúkrahúsinu og Holt- geislastofnuninni í Manchester, er talin mjög mikil og árangur- inn fram til þessa mjög upp- örvandi. Þá hafa sérfræðingar við sjúkráhús í Dublin á Irlandi einnig fundið nýjar leiðir til að auka ónæmisviðbrögð líkamans gegn krabbameini. Líklegt er, að þeim sem fyrst- ir njóta góðs af hinni nýju aðferð, verði verkamenn í verk- smiðjum i plastefnaiðn- aðinum, þar sem fram til þessa, hefur ekki tekizt með tækni- breytingum að minnka krabba- meinshættuna. Skv. niðurstöðum rannsókn- ar, sem gerð var á starfsfólki i Eftir Thomas Land plastefnaverksmiðju i Ken- tucky i Bandaríkjunum er hætt- an á dauða af völdum krabba- meins 50% hærri þar en hjá almenningi. Þessu starfsfólki er 11 sinnum hættara við að deyja úr krabbameini í lifur, og gall- blöðru og 4 sinnum hættara við að deyja úr krabbameini í heila en starfsfólki i öðrum iðngrein- um. Tölfræðilegar upplýsingar, sem fram komu á ráðstefnunni i Genf benda til að sama eigi við annars staðar i heiminum. Blóðrannsóknin fyrrnefnda getur enn ekki sagt um hvar krabbameinið er í líkamanum, ef hún gefur krabbamein til kynna, en það eitt að hún sýnir að krabbamein sé á ferðinni gerir hana þegar ómetanlega. Prófessor Laszlo Lagtha yfir- maður Peterson-rannsókna- stofnunarinnar í Manchester, sem stjórnar áframhaldandi til- raunum með blóðrannsóknina segir: „Ef sjúklingur er með ber í brjósti, einhver merki um taugasjúkdóm eða truflun i hægðum getur hin nýja blóð- rannsóknaraðferð sagt læknum hvort um afbrigðilegan frum- vöxt er að ræða. Aðferðina má einnig nota til fjöldarannsókna á starfshópum. Aðferðin er i því fólgin að rækta sérstaka tegund hvítra blóðkorna (Lymphocytra) á tvenna vegu. Önnur ræktunin sýnir við- brögð við eðlilegum hvítum blóðkornum, en ekki þeim kornum, sem komist hafa í snertingu við illkynjað æxli. Hin prufan, sem tekin er úr eggjahvítuefni úr æxli úr manni sýnir engin viðbrögð gegn eðlilegum hvítum blóð- kornum, en sýnir viðbrögð gegn blóðkornum úr krabbameins- sjúklingi." Allir þeir krabbameins- sjúklingar, sem hin nýja aðferð hefur verið notuð á, hafa fengið staðfestingu á sjúkdómnum með þessari aðferð. Um 150 krabbameinssjúklingar og sjúklingar haldnir öðrum og óskyldum sjúkdómum hafa gengið í gegnum þessa aðferð og hefur hún ekki brugðist í eitt einasta skipti. Aðrar blóð- rannsóknaraðferðir, sem not- aðar hafa verið í þessu skyni, hafa stundum gefið rangar niðurstöður, sem gerir þær óhæfar til fjöldarannsókna. „Þó að rannsóknarstarf okkar í sambandi viðþessa aðferð hafi fram til þessa ekki gefið rangar niðurstöður. eigum við enn eftir að framkvæma tilraunir í sambandi við fjölda annarra sjúkdóma, til að skera úr um óbrigðulleika hennar,“ segir prófessor Lagtha. Vísindamenn hafa nú hafið rannsóknir á því hvers vegna þessi aðferð virki og á meðan er rannsóknum og tilraunum með aðferðina haldið áfram af kappi. Á næstu sex mánuðum verður tilraunum haldið áfram á sjúklingum með krabbamein og aðra sjúk dóma svo og heilbrigðum sjálf- boðaliðum. Næsta skref, sem ekki er síður mikilvægt, er að kanna möguleika á því að fullkomna aðferðina þannig að hún geti sagt til um hvar i líkama sjúklingsins krabbameinið er. Hér beina vísindamenn rann- sóknum sínum að því hvort likaminn gefi frá sér mismun- andi varnarefni gegn mismun- andi æxlum, eftir því hvar þau eru staðsett, og reynist svo vera og unnt verður að að- greina þessi efni, ætti að vera mögulegt með frekari tilraun- um að segja til um hvar æxlið er í likamanum. Hin nýja tækni til að auka ónæmisviðbrögð líkamans gegn krabbameini var fundin upp af prófessor Robert Thornes við Konunglega skurðlæknaháskól- ann í Dublin og byggist á því að tveimur hvötum er dælt i blóð- rásina. Hvatar þessi eyða eggja- hvítuefnum á yfirborði æxla- frumanna og gera þannig hvítu blóðkornunum kleift að eyði- leggja sjálfar krabbameins- frumurnar. lögg. skjalaþýð. og dómt. Hafnarstrætí 1 1 — simi 14824 (Freyjugötu 37 — sími 1 21 05) Ég þakka öllum þeim er heiðruðu mig og glöddu, með heimsóknum, gjöfum og kveðj- um á sjötugsafmæli minu 16. nóvember siðastliðinn. Guð blessi ykkur öll. Snorri Pálsson, múrari. H, U TBOÐ S AMNINGAR | Tilboðaöflun — samningagerð. Sóleyjargötu 17 — sími 13583. Heimsókn nemenda VI að Bifröst — Leiðrétting — Hinn 19. nóv sl. fjallar Hörður Pálsson um áfengis- mál í grein í Mbl. og fer lofsamlegum orðum um nýj- ar reglur, sem settar voru í haust í Samvinnuskólanum á Bifröst og sem kveða á um bann við allri áfengisneyslu á skólasetrinu. Því miður kemur íram í greininni villandi frásögn af heimsókn Verslunarskólans að Bifröst nú í haust, sem ég tel mér skylt að leiðrétta. Heimsóknin hófst með knattspyrnukeppni á milli skólanna og að því loknu sátu gestirnir kaffiboð Sam- vinnuskólanema. Fór þetta hið besta fram. Því næst hófst keppni í bridge á milli skólanna. Er keppnin var hafin urðu kepp- endur Samvinnuskólans varir við að einn eða tveir nem- endur Verslunarskólans gerðu sig líklega til þess að taka upp áfengi. Keppendur Samvinnuskólans sættu sig ekki við slíkt brot á skólaregl- um og settu þá kosti, að annaðhvort yrði áfengið sett aftur niður í tösku eða þeir hættu keppni. Völdu nem- endur Verslunarskólans fyrri kostinn og hélt keppnin síðan áfram. Til tals hafði komið, að nemendur Verslunarskólans yrðu á kvöldvöku á Bifröst en a.m.k. hálfum mánuði fyrir heimsóknina var ákveðið að svo yrði ekki. Er því um að ræða missögn í áðurnefndri grein um þetta atriði. Óhætt er að segja, að nem- endur Verslunarskólans hafi í heild komið vel og prúð- mannlega fram hér á Bifröst þótt einn eða tveir svartir sauðir hafi leynst í þessum stóra hópi. Haukur Ingibergsson skólastjóri Bifröst. TmXWr*KWEaESI3B3ZmSS3S. VBEsna&safs&í&n

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.