Morgunblaðið - 26.11.1974, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. NÖVEMBER 1974
5
1 Kenwood Chef
HEKLA hf.
Laugavegi 170-172.
Sími 21240 og 11687.
Gömul saga
Einu sinni var maður, sem gaf konunni
sinni hrærivél. Það var venjuleg hrærivél.
Alla tíð síðan hrærði konan skyr þrisvar
í viku og kökudeig fyrir jólin og páskana.
Það var það eina, sem hrærivélin kunni.
Eða var það kannski konan, sem kunni
ekki á hrærivélina?
Enginn hefur nokkru sinni fundið svar
við þeirri spurningu.
N/saga
Hjón nokkur keyptu sér hrærivél í fyrra,
það var Kenwood Chef. Vélin hrærði skyr
og deig, þeytti rjóma við hátíðleg tækifæri
og hnoðaði deig í brauð, þegar vel lá á
konunni. Hjónin höfðu heyrt að svona vél
gæti gert allt mögulegt og fóru að athuga
málið. Það reyndist rétt. Smám saman
fengu hjónin sér ýmis hjálpartæki með
vélinni sinni. Og nú er svo komið að þau
láta hana skræla kartöflur og rófur, rífa
og sneiða gulrætur, rófur, agúrkur, lauka,
hvítkál og epli, hakka kjöt og fisk, pressa
ávaxtasafa úr appelsínum, greipaldinum
og sítrónum og mala kaffibaunir. Seinna
ætla þau að fá sér myljara og dósahníf og
kannski fleira. Maturinn á heimilinu er
orðinn bæði betri og fjölbreyttari en áður
var. Hann er líka ódýrari því hráefnið nýtist
til hlítar, krakkarnir borða meira en áður
af grænmeti og ávöxtum. Þeim finnst svo
sniðugt að sjá hvað þessi undravél getur
gert. En það ótrúlegasta er samt, að svona
vél með stálskál, þeytara, hnoðara og
hrærara kostar ekki nema kr. 24.275._
Þetta er sagan um Kenwood Chef.
„Fagrar
heyrði ég
raddirnar”
Endurútgáfa á úrvali
þjóðkvæða og stefja
FAGRAR heyrði ég raddiruar,
úrval íslenzkra þjóðkvæða og
stefja, I útgáfu Einars Öl. Sveins-
sonar, er komið út í nýrri útgáfu á
vegum Máls og menningar. Er
hér um að ræða nær óbreytta
endurprentun frumútgáfunnar,
sem verið hefur ófáanleg um
langt árabil.
Bókin skiptist í ýmsa efnis-
flokka, þ. á m. Dansstef og viðlög,
Sagnadansa, Mankvæði og dans-
þulur, o.fl. Einum kafla hefur
verið aukið við frá fyrri útgáfu og
nefnist hann Tryggðamál.
1 forspjalli sínu segir útgefandi
m.a.: „Tærari skáldskap en sumar
vísurnar í þessari bók er ekki að
finna á islenzku", og eftirfarandi
umsögn er á kápusíðu bókarinn-
ar: „Mun líka mála sannast, að
þetta úrval islenzkra þjóðkvæða
sé gert af fágætri smekkvísi og
vandvirkni og leiði mjög vel í ljós
fjölbreytni hins nafnlausa al-
þýðukveðskapar, sem geymzt hef-
ur með þjóðinni."
Bókina prýða nokkrar myndir
eftir Gunnlaug Scheving. Hún er
um 290 bls. að stærð. Prentsmiðj-
an Hólar h.f. prentaði, en Repró
sf. og Leiftur h.f. sáu um endur-
prentun.
GUTTIA FERÐINNI
í ÁTTUNDA SINN
4 ljóðakver Stefáns Jónssonar í endurútgáfu
Aðalfundur Nordmannslaget
Aðalfundur Normannslaget var
haldinn í Norræna húsinu 30.
október sl. Formaðurinn frú Else
Aas var endurkjörinn samhljóða
en ásamt henni eru i stjórn frú
Torunn Sigurðsson varaformaður
frú Ellen Erlingsson ritari Arne
Jacobsen gjaldkeri, Þorsteinn
Ingi Kragh meðstjórnandi og
varamenn frú Else Mia Sigurðs-
son og Terje Möjnicken.
I skýrslu ritara fyrir sl. ár, sem
var 40 ára afmælisár, kom fram,
að ýmisfegt hefur verið gert i
tilefni afmælisins, auk venjulegs
félagsstarfs og má þar nefna nám-
skeið í norsku, sem haldið var
fyrir almenning og annaðist
norski lektorinn við Háskóla Is-
lands, frk. Ingeborg Donali,
kennsluna. Undirtektir voru mjög
góðar og er í bígerð að halda
annað námskeið eftir áramótin.
Þá voru einnig haldin nokkur
norsk kvikmyndakvöld i sam-
vinnu við Norræna húsið.
Vetrarfagnaður félagsins
verður haldinn 6. desember nk. j
átthagasal Hótel Sögu, með bingó,
spili og dans.
ISAFOLD hefur nýlega sent frá
sér þrjú söngljóðahefti eftir
Stefán Jónsson, Söguna af Gutta,
Hjónin á Hofi og Það er gaman að
syngja. Ennfremur er komin út
bókin Þrjú ævintýri, sem Stefán
endursagði í bundnu máli úr
norsku.
Fáar barnabækur hafa verið
jafnoft út gefnar og Sagan af
Gutta, en þetta er 8. útgáfa bókar-
innar, jafnframt því sem hún hef-
ur tvisvar verið prentuð í safnrit-
inu Segðu það börnum. I bókinni
eru auk Guttavísna hin klassisku
barnaljóð um Ola skans, rausnar-
kerlinguna Rönku og hjónin við
Tjörnina, Aravísur o.fl. Bókin
hefur verið ófáanleg um fjölda
ára, en vinsældir Gutta og félaga
hafa sízt rénað meðal íslenzkra
barna, þótt aldarþriðjungur sé nú
liðinn frá þvi að þeir komu fyrst á
prent.
Það er gaman að syngja kemur
nú út í 5. útgáfu, en þar er m.a.
ljóðið um stíiinn, sem endaði
aldrei, um Stjána og Dísu og ýmsa
fleiri barnavini.
Hjónin á Hofi koma einnig út í
5. sinn, og meðal ljóðanna í þeirri
bók má nefna Kidda á Ösi, Systa
min og Labbakútur.
Öllum kverunum fylgja mynd-
skreytingar Tryggva Magnússon-
ar, nema hvað Þórdís Tryggva-
dóttir hefur myndskreytt Aravís-
ur.
Þrjú ævintýri koma nú út í ann-
að sinn, en hún hefur að geyma
þrjú skemmtileg ævintýrakvæði,
einnig með myndskreytingum eft-
ir Tryggva Magnússon.
Einar Bragi rithöfundur hefur
séð um útgáfu þessara bóka á
vegum Isafoldarprentsmiðju.
Stefán Jónsson.