Morgunblaðið - 26.11.1974, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 26.11.1974, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1974 19 Glæsilegt afrek FH-inga: Eru í átta liða úrslitum Evrópubikarkeppninnar 8. síður Þriðjudagur, 26. nóv. 1974 Viðar Sfmonarson f baráttu við leikmenn St. Otmar Viðar hélt strax heimleiðis eftir leikinn f Sviss og var mættur f tæka tfð til þess að stjórna Haukunum f leik þeirra gegn Val í Iþróttahúsinu f Hafnarfirði á sunnudagskvöldið. Atti góð stjórn hans á liðinu ekki Iftinn þátt f Haukasigri. — Eg tel að úrslit þessa leiks hafi ekki aðeins verið sigur fyrir FH, heldur og fyrir fslenzkan handknattleik f heild, sagði Birg- ir Björnsson, þjálfari FH-líðsins, f viðtali við Morgunblaðið eftir að FH-ingar höfðu gert jafntefli við St. Otmar, svissnesku meistarana f handknattleik, f seinni leik lið- anna f sextán liða úrslitum Evrópubikarkeppninnar f hand- knattleik, 23—23. Þessi úrslit tryggðu FH-ingum sæti f átta-liða úrslitunum, þar sem þeir höfðu unnið fyrri leik liðanna 19—14. Er þessi árangur FH-inganna nú þegar orðinn stórglæsilegur og mun vekja víða athygli, og er hann staðfesting á því að enn er handknattleiksfþróttin á Islandi á borð við það bezta vfðast hvar erlendis. Og þvf má heldur ekki gleyma að engan veginn er vfst að þar með láti FH-ingar staðar numið f þessari keppni. Verði þeir sæmilega heppnir með mót- herja f átta-liða úrslitunum eiga þeir góða möguleika á að komast í undanúrslitin — fyrstir allra fslcnzkra liða. Leikur FH og St. Otmar fór fram fyrir troðfullu húsi áhorf- enda i Hereshau, útborg St. Gall- en, á laugardaginn. Hús þetta er nýtt og glæsilegt, en áhorfenda- svæðinu hins vegar þannig fyrir komið að áhorfendurnir eru bók- staflega alveg við völlinn, allt um kring. Var gifurleg stemmning í húsinu meðan leikurinn fór fram, enda hafði verið mikið um hann fjallað í blöóum í Sviss, sem töldu að St. Otmar ætti að eiga mögu- leika á að vinna upp forskot FH úr heimaleiknum. Meðal áhorf- enda voru nokkrir Norðmenn og Sviar sem létu mikið til sín heyra á meðan á leiknum stóð — FHing- um til stuðnings, og einnig voru í húsinu nokkrir íslendingar sem lagt höfðu langa leið að baki til þess að sjá þennan leik, og ætluðu, sumir hverjir að elta FH-inga til Göppingen á sunnu- daginn, til þess að fylgjast með þeim þar. — Þetta var dæmigerður Evrópubikarleikur, sagði Birgir Björnsson. — Það var gífurleg spenna frá upphafi til enda, leik- menn voru greinilega slappir á taugum til að byrja með, og tölu- vert bar á mistökum hjá báðum liðum. Þegar á heildina er litið held ég þó að ekki verði annað sagt en að þetta hafi verið góður leikur. Að visu spilltu dómararn- ir, sem voru frá Austurríki, leikn- um nokkuð með ýmsum furðuleg- heitum. Gangur leiksins var i stuttu máli sá, að Svisslendingarnir skoruðu fyrsta mark leiksins á 3. mínútu, en Gils Stefánsson jafnaði síðan fyrir FH og Þórar- inn Ragnarsson færði FH forystu 2:1 með vítakasti. Siðan kom kafli í leiknum, þar sem FH-ingarnir voru heldur mistækir í sóknarleik sínum, og Svisslendingarnir náðu þriggja marka forystu 5:3, er 12 mínútur voru liðnar af fyrri hálf- leik. Þar með var komin upp hættuleg staða i leiknum fyrir FH. St. Otmarliðið er þekkt sem stemmningslið. Nái það yfirhönd- inni virðist oft sem allt heppnist hjá liðinu og leikmennirnir tvíeflast. En frábær barátta FH- liðsins á þessum kafla leiksins kom í veg fyrir að Sviss- lendingarnir næðu að sigla fram úr. Að visu munaði tvivegis aftur þremur mörkum er staðan var 6:3 og 7:4, en eftir það fór meira jafnvægi að gæta i leik FHing- anna og þeir unnu upp muninn og jöfnuðu á 9:9. Staðan í hálfleik var 11:10 fyrir Svisslendingana. Strax í byrjun seinni hálfleiks jafnaði Viðar fyrir FH 11:11, og Kristján kom FH-ingum yfir skömmu seinna með fallegu marki. Eftir þetta munaði aldrei Myndirnar hér á sfðunni eru úr fyrri leik FH og St. Otmar f Laugardalshöllinni. Þann leik unnu FH-ingar 19:14. Þessi mynd var tekin er Árni Guöjónsson var að skora f þeim leik, eftir Ifnusendingu frá Geir Hallsteinssyni. Arni kom mjög vel frá leiknum f Sviss og fiskaði þar dýrmæt vftaköst. meira en einu marki i leiknum, þrátt fyrir miklar sviptingar. Var nokkrum FH-ingum vísað af velli í hálfleiknum til kælingar, og var Birgir Finnbogason, markvörður meðal þeirra, en hann braut af sér er hann var að stöðva eitt hraðaupphlaup Svisslending- anna. Þá misnotaði Viðar vítakast í hálfleiknum, og í næstu sókn á eftir varði Birgir vítakast. Þegar tæp minúta var til leiks- loka var staðan 23:22 fyrir St. Otmar, en Viðar Símonarson átti lokaorðið í þessum skemmtilega leik og jafnaði fyrir FH, þegar aðeins nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum. Var að vonum mikill fögnuður meðal Islending- anna í iþróttahöllinni að leikslok- um. Glæsilegt afrek hjá FHingun- um að vera komnir í átta-liða úr- slitin i jafn erfiðri keppni og þessi er. Er þetta raunar ekki i fyrsta skiptið sem FH-ingar ná svo glæsilegum árangri. Mörk FH í leiknum skoruðu: Þórarinn Ragnarsson 6, Viðar Símonarson 6, Gunnar Einarsson 3, Geir Hallsteinsson 2, Jón Gest- ur Viggósson 2, Gils Stefánsson 1, Árni Guðjónsson 1, Kristján Stefánsson 1, Örn Sigurðsson 1. Birgir BjÖrnsson sagði að FH- ingar hefðu breytt leikaðferð sinni i þessum leik frá hinum fyrri, á þann hátt, að þeir tóku hættulegasta leikmann St. Otmar úr umferð. — Þetta gaf góða raun, en opnaði hins vegar nokk- uð fyrir hina leikmenn liðsins, sagði Birgir. — Við breyttum einnig sóknarleiknum hjá okkur með tilliti til þess, að við þóttumst vissir um að þeir tækju Geir Hall- steinsson úr umferð, svo sem raunin varð lika á. Við reyndum því að auka linuspilið hjá okkur, og var Jón Gestur settur inn á línuna, auk þeirra Árna og Gils og kom þetta ágætlega út hjá okkur. Ég tel, að FH-ingar hafi ekki i vetur náð að leika jafn góðan og ógnandi sóknarleik en þeir gerðu að þessu sinni. Það kom svo hins vegar fram í vörninni að leikmenn liðsins voru þreyttir, bæði eftir erfiða leiki að undanförnu og eins mjög erfiða ferð til Sviss. Þá vantaði stundum nauðsynlega snerpu til þess að stöðva Svisslendingana. Hins veg- ar var markvarzlan hjá okkur ágæt. Hjalti var í markinu lengst af og varði vel. Hið sama má segja um Birgi. Birgir Björnsson vildi ekki mik- ið fjalla um frammistöðu ein- stakra leikmanna FH-liðsins. Sagði að allir leikmenn þess væru hróss verðir fyrir leikinn. Þó bæri ekki að neita því, að þeir leik- menn liðsins sem jafnan ber hvað minnst á, eins og t.d. Jón Gestur og Árni, hefðu komið á óvart i þessum leik og staðið sig mjög vel. — Þeir voru mjög ógnandi, og fiskuðu fjölda vitakasta, auk þess sem þeir skoruðu sjálfir mikilvæg mörk, sagði Birgir. Enn er ekki vitað hvaða lið það eru sem komast í átta liða úrslit- in, en sennilega verða FH-ingar, Aarhus KFUM frá Danmörku og Gummersbach frá V-Þýzkalandi einu Vestur-Evrópuliðin sem komast nú áfram. Birgir Björns- son var fljótur til svars, er hann var að þvi spurður, hvert væri óskalið FH í átta liða úrslitunum. — Aarhus KFUM. Ekki aðeins að við eigum mesta möguleika á að komast í undanúrslitin ef við mætum þeim, heldur myndi vera mestur áhugi á leik milli þeirra og okkar heima á Islandi. Þrátt fyrir mjög góða aðsókn að heima- leikjum okkar er kostnaðurinn við keppni sem þessa svo gifurleg- ur, að það er rétt að við stöndum sléttir, sagði Birgir Björnsson. — stjl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.