Morgunblaðið - 26.11.1974, Síða 33

Morgunblaðið - 26.11.1974, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. NÖVEMBER 1974 33 hvor með sinni sveit eða saman sem spilafélagar og á ég þar um margar góðar endurminningar fyrr og síðar. Mér er nú efst í huga sá mikli áhugi hans fyrir allri keppni og félagsstarfssemi og minnist nú hve innilega hann gladdist yfir velgengni okkar knattspyrnumanna s.l. sumar. Hann hefur frá upphafi eða all- an þann tíma er ég hef verið með i Bridgefélaginu sýnt þeim félags- skap mikinn áhuga og m.a. verið formaður þess um tíma. Minnist ég margra keppnisferða er við höfum saman farið og haft bæði ánægju og góð kynni við aðra á öðrum stöðum, er við heimsóttum. Þær voru ófáar stundirnar er ég hef átt á heimili hans bæði við spilamennsku og sem gestur þeirra hjóna. Alltaf var sama gestrisnin og maður hafði á tilfinningunni að þau bæði vildu sýna og láta mann finna að hjá þeim væri maður velkominn og hjá vinum. Það er svo margs að minnast sem ekki er hægt að koma að i stuttri kveðjugrein um jafn góðan dreng og við nú kveðjum hinstu kveðju. Hjá Verkalýðsfélagi Akraness höfum við tekið upp hjá okkur að fara i nokkur skipti i leikhús sam- an með hópferð og orlofsferðir höfum við einnig farið og skipu- lagt hér innanlands fjögur s.l. ár og á liðnu sumri hringferð kring- um Island eftir að nýi hringveg- urinn var opnaður. 1 þessar ferðir margar fór Valdimar og var þar hrókur alls fagnaðar, si og æ kastandi fram vísum og í hringferðinni orti hann hvað mest. Allan túrinn eða í tíu daga sem hann tók lét hann einhverja vísu fara ef tilefni gafst, sem var æði oft. Við héldum fyrir skömmu mynda- og skemmtikvöld og höfð- um prentað þær flestar upp og lásum þar ásamt öðru er þar fór fram. Þar ræddum við um væntanlega ferð á Vestfirði næsta sumar sem hann hlakkaði mikið til að fara. Ég man hvað hann sagði við mundum sjá og skoða og allt er sagt var um þá væntanlegu ferð. Þrátt fyrir það að hann er nú allur þessi vinur minn veit ég að svo framt þessi ferð verði farin, þá dvelur hugur okkar er með honum höfum verið og komum til með að fara hana með honum og við munum áreiðanlega minnast hans þar með söknuði i huga allra er hann þekktu og kynntust og í þeirri ferð verða. Þegar ég nú með þessum fáu kveðjuorðum minnist Valdimars þá vil ég þakka honum allar ánægju- stundirnar er ég og aðrir vinir hans hafa með honum átt, söknuð- ur okkar og missir verður seint bættur, en við kveðjum hann með harm i hjörtum okkar allra og vitum með vissu að sú fallega setning, kemur upp í hugann og staðfestir okkur, að þeir sem guðirnir elska deyja ungir. Það er hið óumflýjanlega lögmál lifsins, sem við fáum ekki breytt eða neinu um þokað. Sem betur fer bar ég gæfu til að geyma margt á segulbandi er við höfum saman sagt og er mér nú nokkur huggunisöknuði mínum. Eiginkona hans Salóme Guðjónsdóttir hefur reynst hon- um styrk stoð í lífi hans og var það honum mikil gæfa að kynnast henni og vil ég hér og nú þakka henni alveg sérstaklega alla vin- áttu mér auðsýnda fyrr og nú, um leið og ég, eiginkona mín og aðrir vinir vottum henni, börnum, barnabörnum og öðrum aðstand- endum innilegar samúðarkveðj- ur. Megi minningin um góðan dreng geymast og veita huggun í sárum söknuði þeirra um jafn- mikinn heiðursmann og dreng er Valdimar Sigurjónsson var alla sína lífstíð. Belssuð sé minning hans. Skúli Þórðarson, Akranesi. WM Herrahúsió Aðalstræti4, Herrabúðin við bækjar PANTIÐ JÓLAKORTIN TÍMANLEGA unin Í sturstrœti 6 Si inu 2*955 ÞflR ER EITTHURfl FVRIR flllfl gomiu fötin? Færó þú stundum þessa tilfinningu, þegar þú kemur innan um fólk, aö þú hafir eitthvaó til aö skammast þín fyrir? Skálmarnar ættu aö vera víöari, uppslögin breiöari, vasarnir ööruvísi í laginu, þú sért einhvern veginn ekki í takt vió tímann? Jú, þaó fylgir því öryggiskennd aó klæöast eftir nýjustu tízku. Kóróna fötin veita þér þetta öryggi. Sérkennarar álykta um þagnarskyldu og trúnað hygli á þagnarskyldu og virðingu gagnvart trúnaðarmálum. Fund- urinn hvetur alla, sem vitneskju fá um fólk og einkamál þess i starfi sínu að íhuga hversu mikil- væg þagnarskyldan er. Fundurinn bendir á það, sem meginreglu, að ávallt skal miða allar upplýsingar við það, að hvaða notum þær megi verða, og allt umtal þar framyfir er ótima- bært og óþarft. Jafnframt hvetur fundurinn forráðamenn stofnana að gera all- ar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að stuðla að því, að þagnar- skyldan sé virt og að trúnaðarmál fái rétta meðferð og ihuga hvað þeir geti gert til að glæða skilning starfsfólks á þessum vanda. Jafn- framt því sem þeir aðgæti, hvaða aðhald þeir geti veitt starfsfólki." 1 stjórn F.l.S. eru nú Einar Hólm Ólafsson, Karl Jónsson, Ragna Freyja Karlsdóttir, Sylvía Guðmundsdóttir og Þorsteinn Ólafsson." mnRCFRLDRR mÖGULEIKR VÐRR „DAUÐAGILDRAN” Ný bök eftir Alistair MacLean Bókaútgáfan Iðunn hefur sent frá sér nýja þýdda skáldsögu eftir Alistair Maclean. Nefnist hún ,J>auðagildran“. Á kápusiðu segir m.a. um efni sögunnar: „Á einni stærstu kappakstursbraut Evrópu gerast dularfullir atburðir. Johnny Harlow heimsmeistarinn í kapp- akstri virðist enn einu sinni vald- ur að ástæðulausum dauða keppi- nautar sins á kappakstursbraut- inni. Ung stúlka er hálflimlest og eiginkona auðjöfurs hverfur á óútskýranlegan hátt. — I skjóli þessara atburða leynist úthugsað samsæri miskunnarlausra glæpa- manna, sem einskis svifast til að ná markmiði sínu. Eitt rangt skref og hinn óvarkári verður að gjalda með lífi sinu. Og svo fer um marga áður en hinn æsispenn- andi kappakstur nær óhugnan- legu hámarki í frönsku ölpun- um.“ Andrés Kristjánsson þýddi bók- ina, sem er 192 bls. að stærð. Alistair MacLean ÞANN 14. september síðastliðinn hélt félag fslenzkra sérkennara aðalfund sinn á Kristalsal Hótel Loftleiða. Auk venjulegra aðalfundar- starfa voru rædd grunnskólalögin nýju. Andri ísaksson prófessor hóf umræður, en jafnframt var á fundinum Indriði Þorláksson, deildarstjóri frá grunnskóla- nefndinni. Eftirfarandi ályktun um þagn- arskyldu og trúnaðarmál var ein- róma samþykkt: „Aðalfundur F.I.S. vill vekja at- Athugið: að öll starfssemi rafvélaverksmiðju Jötuns er flutt frá Hringbraut 1 1 9 að Höfðabakka 9, sími 85585. Húsnæði óskast Danskur sérfræðingur, sem starfar hér á landi á vegum Sameinuðu þjóðanna, óskar að taka á leigu eins fljótt og hægt er einbýlishús búið húsgögnum eða 3—4 herbergja íbúð. íbúð í fjölbýlishúsi kemur ekki til greina. í heimili eru miðaldra hjón með lítinn hund. Vinsamlegast snúið yðru til Iðnþróunarnefndar s. 16299 og 16377.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.