Morgunblaðið - 05.12.1974, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1974
5
r
Útsölustaðir:
Bjarni Halldórsson
Seyðisfirði,
Þórshamar,
Stykkishólmi,
Tónabúðin,
Akureyri
Hjólið,
ísafirði,
Verzl. Þórhöllu Sigurðardóttur,
Þórshöfn.
Útsölustaðir:
Eyjabær,
Vestmannaeyjum,
Eplið,
Akranesi,
Verzl. Elíasar Guðnasonar,
Eskifirði,
Vikurbær,
Keflavik
Magnús Magnússon h.f.,
Selfossi.
í þessu setti eru eftirtalin tæki: SA-500A magnari með fjölda
möguleika og er vel byggður með tilliti til endingar, PL-10
plötuspilari, einfaldur í smíðum en sérlega sterkbyggður spilari og
tveir 20 watta CS — R100 hátalarar, sem hafa fengið góða
dóma hljómtækjanotenda, sem meðal annars hafa sagt um þá að
þeir séu meðal þeirra beztu í sínum flokki.
VERÐIÐ Á FRAMANGREINDU SETTI
ER AÐEINS KR. 66.900.-.
Einar Bragi.
Ný bók eftir Einar Braga
KOMIN er út bókin „Þá var öldin
önnur,“ 2. bindi eftir Einar Braga
og segir I undirfyrirsögn að f bók-
inni sé fjallað um „Darraðardans-
inn í Suðursveit og fleiri þætti“.
Á bókarkápu segir: „Þetta er
bók, sem eggjar menn til að ferð-
ast ekki blindandi um landið, en
hyggja að sporum kynslóðanna ut
an við akveginn. Fyrir ókunnug-
um lýkur hún upp heimi, sem
verður ekki séður gegnum bílrúð-
urnar. Fyrir Skaftfellinga lýkur
hún upp heimi, sem verður ekki
séður gegnum bilrúðurnar. Fyrir
Skaftfellinga er lestur þessarar
bókar eins og að koma i fjöru og
hitta fyrir hundruð forfeðra
sinna nýkomna af hafi eftir langa
útivist á tímans sjó.“
Kápumynd gerði Hörður
Agústsson, Isafoldarprentsmiðja
gefur út og þar var bókin einnig
sett, prentuð og bundin. Hún er
275 bls. að stærð.
MS MS MS
SEW sn SN m
MS svj MY Aðals AUGL Vg/y TEIK NDAIVI træti 6 simi M5 ÝSINGA- NIISTOFA ÓTA 25810 •
Skáldsaga
og ljóðabók
eftir Ingimar
Erlend Sigurðsson
KOMNAR eru út tvær bækur eft-
ir Ingimar Erlend Sigurðsson,
skáldsagan „Undirheimur“ og
ljóðabókin „Fiskar á fjalliAður
hafa komið út eftir Ingimar
Erlend þrjár skáldsögur og tvær
ljóðabækur.
Fremst í skáldsögunni „Undir-
heimar“ stendur að hún sé bönn-
uð fólki yfir fertugt. Þá er þar
eftirfarandi tileinkunn: „Minn-
ingu Sigriðar Freyjii Sigurðar-
dóttur helga ég þessa bók og sjálf
lagði hún til kaflann um Kon-
ungsrikið." — Sagan er 173 bls.
Fremst í Ijóðabókinni „Fiskar á
fjalli“ er tilvitnun í Völuspá, „—
flýgur örn yfir, sá er á fjalli fiska
veiðir". Ljóðin í bókinni eru milli
60 og 70 og flest stutt. — Bókin er
111 bls.
Bókaútgáfan Letur s/f gefur
bækurnar út.
Argarður - Nýtt félagsheim-
ili í Lýtingsstaðahreppi
Mælifelli 2. des.
HINN 1. desember var vígt
félagsheimilið Argarður í Lýt-
ingsstaðahreppi f Skagafirði. Er
það reist f landi Steinsstaða f
Tungusveit, hið næsta Steins-
staðalaug, en þar var hafin sund-
kennsla um og uppúr 1820. Á
þessum sama stað er Steinsstaða-
skóli og gróðurhúsahverfi f
grenndinni, en jarðhiti mikill.
Argarður hefur verið 9 ár f smíð-
um.
Verktaki er Guðmundur Márus-
son byggingarmeistari, en yfir-
smiður Reynir Pálsson. Múrverk
önnuðust Sveinn Þröstur Gunn-
arsson, Jóhann Jóhannsson o.fl.
Pípulagnir gerði Jóhann Jóhann-
esson, en um raflagnir sá Olafur
Pálsson. Húsið er 512 fermetrar
en 2300 rúmmetrar. Auk salarins,
sem jafnframt er íþróttasalur
Steinsstaðaskóla, er fundarher-
bergi, bókasafnsstofa, sem ber
nafn Sveins Pálssonar læknis, en
hann var fæddur á Steinsstöðum,
rúmgott anddyri, sem nefnt er
Hreiðarskáli, eftir Kráku-Hreið-
ari landnámsmanni, eldhús og
búningsklefar vegna íþrótta-
kennslu, sundlaugar og leiksviðs.
Á vígsluhátiðinni voru um 200
manns, en kvenfélag sveitarinnar
sá um matarveizlu og Friðrik
Ingólfsson var veizlustjóri. Fyrr-
verandi oddviti, Björn Egilsson,
og núverandi oddviti, Marínó Sig-
urðsson, héldu ræður um bygg-
ingarsögu hússins. Undirritaður
flutti hátíðar- og vígsluræður, en
nafnið Árgarður er hugmynd
hans. Alls bárust um 100 nöfn i
samkeppni, sem efnt var til. For-
menn félaga og nokkrir gestir
ávörpuðu samkomuna, og margar
heillaóskir og gjafir bárust.
Kvennakvartett söng og ung-
mennafélagar fluttu frumsaminn
leikþátt. Mikill almennur söngur
var i hófinu, undir stjórn Björns
PIOIXIEER
SX-300 hljómgóður
útvarpsmagnari,
PL-10
plötuspilari
og tveir
CS-R100
hátalarar.
VERÐ KR.
75.900.—
PIOIMEER
C-4500 sambyggt
tæki með
plötuspilara
og magnara
og tveir
CS-R100
hátalarar.
VERÐ KR.
69.800.—
Ölassonar og Heiðmars Jónsson-
ar, vísnalestur mikill, en hagyrð-
ingar margir í hreppnum. Eftir
borðhaldið var dans stiginn fram
eftir nóttu við undirleik hljóm-
sveitar Péturs Víglundssonar. 1
dag er svo samkoma fyrir börn og
unglinga með ýmsum skemmti-
atriðum og veitingum.
Heildarkostnaður við húsið er
um 18 milljónir króna. Húsvörður
hefur ekki verið ráðinn, en for-
maður húsnefndar er Guðrún Ás-
geirsdóttir. Mikil ánægja ríkir í
sveitinni með hið nýja og fallega
félagsheimili.
Sfra Agúst.