Morgunblaðið - 05.12.1974, Page 13

Morgunblaðið - 05.12.1974, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1974 13 Björt eru bernskuárin NECCHI SJÁLFVIRKAR SAUMAVÉLAR Heimsþekkt gæðavara — íslenzkur leiðarvísir Verð 27.700.— Útsölustaðir víða um land. FALKINN Suðurlandsbraut 8 . Reykjavík Sími 8 46 70 Endurútgáfa á bók Stefáns Jónssonar KOMIN er út hjá Isafold bókin „Björt eru bernskuárin" eftir Stefán Jónsson. Þetta er endurút- gáfa, en bókin hefur lengi verió ófáanleg. Þessi nýja útgáfa er 162 blaósíður, prýdd teikningum Hilmars Helgasonar. Einar Bragi sá um útgáfuna. Björt eru bernskuárin er sjötta bindið í heildarútgáfu Isafoldar á barna- og unglingabókum Stefáns Jónssonar. Áður eru útkomnar skáldsögurnar Vinir vorsins, Skóladagar og bækurnar þrjár um Hjalta: Sagan hans Hjalta litla, Mamma skilur allt og Hjalti kemur heim. Björt eru bernskuárin kom fyrst út árið 1948 og var fyrsta smásagnasafn Stefáns fyrir unga lesendur, en áður hafði hann gefið út þrjú sagnasöfn og var því þaulþjálfaður smásagnahöf- undur. 1 bókinni eru þessar átta sögur: Lauga og ég sjálfur, Pési, Knattspyrnumenn, Kusi, Vinur minn Jói og appelsínurnar. Or- sakir og afleiðingar, Myrkfælni, Litli-Brúnn og Bjössi. Hjalti kemur heim í nýrri útgáfu jólin nálgast t v ♦ Varist eftirlíkingar ^d; Dekor HANDUNNIÐ HRAUNKERAMIK ER TILVALIN JÖLAGJÖF LU GLIT HF HJALTI kemur heim, þriðji og siðasti hlutinn af Sögunni um Hjalta litla eftir Stefán Jónsson er komin út i annarri útgáfu hjá Isafoldarprentsmiðju. Fyrst kom hún út 1951. Sagan er beint framhaid af ann- arri bókinni um hann Hjalta litla, Mamma skilur allt, en Hjaltasög- urnar eru fyrir löngu búnar að vinna sér sess í íslenzkum bók- menntum og vinna hyili barna og fullorðinna. Söguna Hjalti kemur heim hefur Gísli Halldórsson leik- ari lesið í útvarp i vetur við mikl- ar vinsældir. Hún fjallar um af- brýðisemi Hjalta i garð stjúpa sins, finnst hann hafa tekið móð- ur hans frá honum. Sagan gerist í sveitinni, þar sem fjölskyldan er áfram í Hraunprýði, en stjúpinn og móðir Hjalta taka síðan i ábúð jörðina Svartagil og þar færist Hjalti nær stjúpa sínum. Einar Bragi sá um útgáfuna, en í bókinni eru 11 teikningar, sem listamaðurinn Orost Vereiski hef- ur gert fyrir þessa útgáfu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.