Morgunblaðið - 05.12.1974, Side 15

Morgunblaðið - 05.12.1974, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1974 15 Nýja dagheimilio. L.josm. naraldur Már Sigurðsson. Nýtt dagheimili á Seyðisfirði Seyðisfirði 3. des. NYTT dagheimili var formlega opnað á Seyðisfirði sunnudaginn 1. des. s.l. Kvenféiag Seyðis- fjarðar hefur haft forgöngu um byggingu heimilisins, en félags- konur hafa á undanförnum árum rekið dagheimili í barnaskólanum yfir sumarið, og við ófullkomnar aðstæður á öðrum tímum ársins. Hefur það lengi verið markmið þeirra, að nýtt dagheimili yrði reist. Nú er tekinn í notkun hluti af fyrirhugaðri byggingu. Tekur heimilið nú 50—60 börn, og er það þegar fullskipað. Reynir Vil- hjálmsson arkitekt teiknaði húsið. —Sveinn. Frú Alvís úr Eyjum LEIKFÉLAG Vestmannaeyja bregður sér i sýningarferðalag upp til fastalandsins nú um helg- ina með sakamála- og gamanleik- ritið Frú Alvís, en það hefur sýnt það verk í Eyjum að undanförnu við góðar undirtektir. Fyrsta sýning Leikfélags Vest- mannaeyja að þessu sinni á meginlandinu verður í Vík í Mýr- dal föstudagskvöldið 6. des. kl. 21, önnur sýning verður i Selfossbiói kl. 21 á laugardagskvöld og þriðja sýningin verður i Félagsheim- ilinu á Seltjarnarnesi á sunnu- dagskvöld kl. 21. Höfundur gamanleikritsins í’rú Alvis er brezki leikritahöfundur- inn Jack Poppelwell, en leikstjóri er Ragnhildur Steingrimsdóttir. Á myndinni eru Unnur Guð- jónsdóttir og Þorvaldur Halldórs- son í hlutverkum sínum. Ljós- mynd Mbl. Sigurgeir í Eyjum. Bjart er um Breiðafjörð Bók eftir Sigurð Sveinbjörnsson BJART er um Breiðafjörð nefnist bók eftir Sigurð Sveinbjörnsson frá Bjarneyjum. Þótt þetta sé fyrsta bók höfundar, er hann enginn viðvan- ingur á ritvellinum. Hann hefur t.d. ritað mjög mikið t Dýraverndarann og fleiri rit. Sigurður er mikill dýra- vinur og náttúruskoðari at liti og sál. Þá hollu lifsnautn hefur hann haft tækifæri til að þroska og glæða með sér á langri ævi, í sambúð við fugla og ferfætt dýr I hinum auðuga dýra- garði, sem Breiðafjörður hefur verið og verður vonandi enn um sinn. Bjart er um Breiðafjörð er 187 blaðsíður að stærð. Bókin ergefin út af Leiftri h.f. og er sett og prentuð þar. SKJUMJUR SVEINBJÖRNSSON FRA 8JARNEYJUM Mótmælum mótmælt SJÓMANNASAMBANDI Islands barst þann 25. nóvember s.l. skeyti frá Sambandi flutninga- verkamanna í V-Þýzkalandi. I skeytinu er mótmælt töku togar- ans Arcturus. Sjómannasam- bandið sendi svarskeyti út, þar sem sagt er nákvæmlega frá töku- togarans, og að hann hafi verið innan fslenzkrar fiskveiðilög- sögu. Skeytin fara hér á eftir, fyrst það v-þýzka: „Kæru starfsfélagar. Framkvæmdastjórn Sambands flutningaverkamanna (Ö.T.V.) lýsir því yfir, að hún lítur atburði þá, sem nú hafa orðið á íslands- miðum, hinum alvarlegustu aug- um, þar sem togarinn Arcturus frá Bremen hefir orðið fyrir skot- árás af hálfu íslenzks varðskips og síðan verið tekinn með valdi. Við viljum því fara þess á leit, að þið beitið áhrifum ykkur á ís- lenzku rikisstjórnina þannig að framvegis komi ekki til þess, að gerð verði skotárás á fiskiskip og þau tekin með vopnavaldi. Sú staðreynd, að ekki hafa enn náðst samningar milli ríkisstjórna Islands og Sambandslýðveldisins Þýzkalands varðandi fiskveiði- réttindi innan 50 mílna markanna má ekki leiða til þess, að lífi og limum sjómanna á fiskiskipum sé stofnað í hættu sökum valdbeit- ingar. Við treystum á stuðning ykkar og samstöðu." Karl Heinz Hoffmann varaforseti Ö.T.V. Framhald á bls. 25. ■ búðimar ■Bl ■ / fyrsta skipti hér á landi - ydar eigin litmyndir á sjálft jólakortiö HANS PETERSENhf Bankastrœti - Glæsibœ SÍMI 20313 SÍMI 82590

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.