Morgunblaðið - 05.12.1974, Síða 21

Morgunblaðið - 05.12.1974, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1974 21 Vika hermdar- verkanna • Á EINNI viku komust þrjár meiriháttar hermdarverkaaðgerðir í heims- fréttirnar. 1 tsrael, 19. nóvember, héldu fjórir arabískir hermdarverkamenn 75 gfslum klukkustundum saman í íbúðabyggingu einni í borginni Beit Shean. t Birmingham í Bretlandi myrtu hermdarverkamenn trska lýðveldishersins 19 saklausa kráargesti með sprengjum 21. nóvember. Og f Dubai við Persaflóa rændu arabfskir hermdarverkamenn brezkri farþegaþotu með 41 manni innan- borðs 22. nóvember og flugu henni til Túnis þar sem þeir myrtu einn farþeganna áður en þeir gáfust upp. Hér á síðunni birtum við myndir frá þessum þremur uggvænlegu atburðum, og rekjum f stuttu máli aðdraganda og eftirleik þeirra. 0 Tvö llk I rústum bjórkránna í Birmingham. Bretland — kráar- morðin íBirmingham 0 SPRENGJUR hermdarverka- manna trska lýðveldishersins sprungu í tveimur þéttsetnum bjórkrám I miðborg Birmingham að kvöldi 21. nóvember með þeim afleiðingum, að 19 manns biðu bana og 150 særðust. Krafturinn var svo gífurlegur, að kráargestir þeyttust út á götu og húsin féllu saman. Þetta var hápunktur hermdarverkaaðgerða Irska lýð- veldishersins á Bretlandi, og um leið kveikja þess, að brezk stjórn- völd haf a sagt IRA strfð á hendur. Hryðjuverkin þetta kvöld komu i kjölfar þess, að lík James McDaid var flutt frá Bretlandi til írlands, en McDaid þessi var IRA- maður, sem fórst er hann var að koma fyrir sprengju í Coventry, nágrannaborg Birmingham. Er talið hugsanlegt, að sprenging- arnar i Birmingham hafi verið hefnd IRA fyrir það, að brezka lögreglan bannaði IRA að fylgja kistu McDaids til flugvélarinnar, sem flytja átti hann til Irlands. Viðbrögð brezkra stjórnvalda voru snögg. Strax daginn eftir skýrði Roy Jenkins, innanrikis- ráðherra, þingmönnum í Neðri málstofunni frá því, að eftir helg- ina yrðu sett neyðarlög til þess að ráðast gegn starfsemi hermdar- verkasamtakanna. Með þeim yrði lögreglunni gert kleift að halda mönnum lengur en áður án þess að lögð verði fram kæra á hendur þeim, útlendingaeftirliti heimilað að koma í veg fyrir, að írar komi inn í landið o.fl. Var þessum ráð- stöfunum almennt vel tekið af þingmönnum. Sprengjurnar í Birmingham fylltu mælinn. Dubai-ránið á 0 Æfareiður Israeli hendir Ifki eins af skæruliðunum út um glugga fbúðabyggingarinnar f Beit Shean. ísrael — umsátnð 1 Beit Shean brezku farþegavélinni 0 FJÓRIR vopnaðir skæruliðar ruddu sér leið yfir flugvöllinn f Dubai við Persaflóa aðfararnótt 22. nóvember með dúndrandi skothrfð, sem m.a. særði eina flugfreyju, og yfirtóku brezka farþegaflugvél frá British Air- ways með 41 manni innanborðs. Hótuðu skæruliðarnir að sprengja vélina f loft upp ef áhöfnin léti ekki af kröfum þeirra. Var vélinni flogið til Túnis. Þegar þar var lent hótuðu skæruliðarnir að myrða einn gfsl aðra hverja klukkustund nema 13 félögum þeirra, sem voru í fang- elsi í Kairó, yrði sleppt. sleppt eftir 84 klukkustundir. Gáfust skæruliðarnir þá upp eftir að Túnisstjórn hafði lofað að veita þeim hæli, og framselja þá ekki Frelsishreyfingu Palestínu, PLO, sem harðlega gagnrýndi flugvélarránið, ásamt flestum Arabarikjunum, né helduröðrum aðilum. 0 Æstur múgurinn brennir Ifk hermdarverkamannanna f jögurra. Setti Túnisstjórn ræningjana fjóra, sem kváðust vera liðsmenn öfgafenginnar skæruliðahreyf- ingar, „Flokks píslarvottsins Abu Mahmoud", i gæzlu, en sleppti hinum Palestínumönnunum sjö. Hefur hælisveiting Túnisstjórnar verið harðlega gagnrýnd af öðr- um Arabarikjum, og m.a. ihuguðu vestur-þýzk stjórnvöld kröfugerð á hendur henni þess efnis, að morðingjar Kehls yrðu fram- seldir. Lfk Kehls bankastjóra borið af flugvellinum í Túnis, eftir að skæruliðarnir höfðu hent þvf út úr vélinni. 0 ARABlSKU skæruliðarnir fjórir lögðu undir sig fbúðabygg- ingu f borginni Beit Shean nálægt landamærum Jórdanfu f dagrenn- ingu 19. nóvember. Héldu þeir 75 manns f gfslingu f húsinu f þeim tilgangi að neyða Israela til að láta lausa 13 skæruliða og grfsk- kaþólska biskupinn Hilarion Cap- ucci, meintan vopnasmyglara. Hersveitir og lögreglulið voru þegar send til hússins, og var sleginn hringur um svæðið. Áður en lsraelar lögðu til atlögu þrem- ur klukkustundum seinna höfðu heyrzt sprengingar og skothvellir innan úr húsinu er fólkið reyndi að flýja út um glugga. Er her- sveitirnar gerðu árás á húsið létust tvær húsmæður og einn maður, a.m.k. önnur konan af völdum skæruliðanna. Voru skæruliðarnir skotnir til bana. En þar með var þeirra hlut- skipti ekki ráðið. Æfareiður múg- urinn henti líkum þeirra út um glugga hússins og kveikti síðan i þeim. Marxísku Palestinuskæruliða- samtökin, Lýðræðislega þjóðfylk- ingin, lýstu því yfir, að skærulið- 0 Blóðhefnd. arnir fjórir hefðu verið liðsmenn sínir. Samtök þessi eru í andstöðu við Yasser Arafat, leiðtoga Frelsishreyfingar Palestínu, en engu að síður sagði Yitzhak Rab- in, forsætisráðherra Israels, að þessi hermdarverk hefðu gert Israelsmenn enn staðráðnari i að hefja aldrei samningaviðræóur við Frelsishreyfinguna. Werner Kehl — enn eitt fórnar- lamb hermdarverkaöldunnar f heiminum. Var einn gíslanna skotinn til bana til þess að ýta á eftir kröf- unum. Var það vestur-þýzkur bankastjóri, Werner Kehl að nafni. Tókst skæruliðum að fá þvi framgengt að sjö Palestinumenn voru leystir úr haldi, og fluttir um borð í vélina. Var gíslunum þá

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.