Morgunblaðið - 05.12.1974, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 05.12.1974, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1974 25 Mótmæla bráða- birgðalögunum FUNDUR I Sjómannafélagi Eyja- fjarðar, haldinn á Akureyri 24. nóvember 1974, mótmælir haró- lega kjaraskerðingarákvæðum bráðabirgðalaga ríkisstjórnarinn- ar, sem gefin voru út i september sl. og nú eru fyrir Alþingi til staðfestingar. Er með lögum þessum ómak- lega ráðist á samningsbundin kjör sjómanna, og það i enn ríkari mæli en á kjör nokkurra annarra launþega, þar sem teknar eru með lögunum mörg hundruð milljónir króna af samningsbundnum hlut sjómanna (miðað við eitt ár) og færðar f sjóði útgerðarmanna, og Verðlagsráði sjávarútvegsins jafnframt settar skorður um að fiskverð megi ekki hækka meira en um 11%, hvað sem öðru verð- lagi líður. Karlakórinn Vísir 50 ára Siglufirði, 2. desember KARLAKÓRINN Vfsir hélt upp á 50 ára afmæli sitt á laugardags- kvöld með blysför frá þeim stað, sem hann söng í fyrsta skipti fyrir 50 árum. Einnig söng hann nokkur lög á staðnum við góðar undirtektir. Þessir hafa verið söngstjórar kórsins: Halldór Hávarðarson, Tryggvi Kristinsson, Þormóður Eyjólfsson, Haukur Guðlaugsson, Páll Erlendsson og Geirharður Valtýsson, sem nú er söngstjóri. Heiðursfélagar voru kjörnir Sig- urjón Sæmundsson, Bjarki Árna- son, Sigurður Gunnlaugsson og Egill Stefánsson. Hátíðin fór mjög virðulega og skemmtilega fram, og fjöldi heillaóskaskeyta barst. — Matthías. Askorun vegna Kjarvalsmynda Á ALMENNUM félagsfundi Félags íslenzkra myndlistar- manna var samþykkt tillaga frá Olöfu Pálsdóttur um að skora á menntamálaráðherra að hlutast til um það, að veggmyndir Kjar- vals I vinnustofunni við Austur- stræti, verði varðveittar þar á staðnum að viðgerð lokinni. — Mótmæli Framhald af bis. 15 Sjómannasambandið sendi síðan Ö.T.V. eftirfarandi skeyti: Karl Heinz Hoffmann varaforseti Ö.T.V. Stuttgart. „Kæru starfsbræóur. Við staðfestum móttöku sím- skeytis ykkar frá 25. þ.m., og viljum í þvi sambandi taka fram eftirfarandi: 1. Við mótmælum því, sem komið hefir m.a. fram í þýzkum fjölmiðlum, að gerð hafi verið skotárás á togarann Arcturus frá Bremen. Islenzka varðskipið var einungis að gegna venjulegum eftirlitsstörfum er það stöðvaði togarann með því að skjóta aðvör- unarskotum i átt til hans, fimm lausum skotum og einu föstu skoti fyrir framan hann. Þetta er viðurkennd leið (standard praksis) við töku togara bæði ís- lenzkra og erlendra. 2. Fiskveiðar eru mikilvægasti atvinnuvegur okkar Islendinga og okkur lífsnauósyn. Þvi hlutum við að grípa til þess ráðs að færa íslenzka fiskveiðilögsögu út i 50 sjómílur, sem fjöldi þjóða hefir nú viðurkennt. 3. Við treystum því, að samband ykkar vinni að því, að einnig Vestur-Þýzkaland viðurkenni 50 mílna mörkin og förum fram á stuðning ykkar og samstöðu i því efni.“ Jón Sigurðsson formaður Sjómannasambands Islands. Málverkahappdrætti Ósótt vinningsnúmer í málverkahappdrætti sem var á skemmtun okkar Hótel Sögu 1. des. sl. eru þessi: 331, 948, 1 193, 1555, 1588, 1655, 1742, 2138, 3522, 3613, 3702, 4145, 41 73. Vinningshafa ber að framvísa sínu vinnings- númeri. Upplýsingar í síma 1 5941. Fjáröflunarnefnd Styrktarfélags vangefinna. SKOÐIÐ HIMIH GLIESILEGII HHPPDRJETTISBÍL SJÁLFSBJnRGHR í LIEKJnRGÖTU 1 1 1 r A F F lÁ f f A D ALLTAF FJOLQAK m Á VARA © HLUTIR Við bjóðum yður fljóta og örugga viðgerðaþjónustu, framkvæmda af fag- mönnum með fullkomn- ustu tækjum og Volks- wagen varahlutum sem tryggir yður betri endingu og viðheldur verðgildi Volkswagen bílsins yðar. HEKLAhf Laugaveg. 170—172 — Sim. 21240 Pólarúlpur Litir: Grænt, blátt og brúnt Fullorðinsstærðir: S-M-L-L. Verð kr. 4.990 — Barnastærðir: nr. verð. kr. likamshæð i cm 8 2.950,— 124—127 10 3.300,— 128 — 134 12 3.550 — 135 — 141 14 3.800,— 142 — 150 16 3.990.— ' 151—161 18 4.300,— 1 62 — 172 Sendum gegn póstkröfu um allt land. Pöntunum veitt móttaka í símum 30975 og 30980. b SKEIFUNN115 ISIMI 86566

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.