Morgunblaðið - 05.12.1974, Síða 26

Morgunblaðið - 05.12.1974, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1974 Líffræðistofnun Háskólans tekin til starfa LIFFRÆÐISTOFNUN Háskólans hefur nýlega tekið til starfa sem formleg stofnun innan verkfræði- og raunvísindadeildar, en reglu- gerð um stofnunina var staðfest hinn 18. júní síðastliðinn. Llf- fræðistofnun hefur hins vegar starfað I reynd undanfarin ár, þó skort hafi formlegan grundvöll. Hlutverk stofnunarinnar er fyrst og fremst að annast grund- vallarrannsóknir í dýrafræði, grasafræði, vistfræði og erfða- og sameindaliffræði. Þá er gert ráð fyrir, að hún sinni ýmsum verk- efnum, sem henni eru falin til úrlausnar, og fáist auk þess við hver önnur verkefni, sem stuðlað geta að eflingu rannsóknarstarf- semi og kennslu i líffræðilegum greinum. Starfsmenn stofnunarinnar eru þeir háskólakennarar, sem stunda rannsóknir í ofannefndum greinum. Auk þess starfa fyrst um sinn við stofnunina þeir fastir kennarar verkfræði- og raunvís- indadeildar, sem sinna rannsókn- um i lífeðlisfræði og örverufræði, en gert er ráð fyrir að þeir muni starfa við aórar háskólastofnanir síðar meir. Auk fastra háskóla- kennara vinna við stofnunina sér- fræðingar, sem ráðnir eru tii þess að sinna tímabundnum verk- efnum, svo og aðstoðar- og skrif- stofufólk, auk þeirra stúdenta, sem vinna að rannsóknarverk- efnum sem falla undir svið stofn- unarinnar. Alls starfa nú við stofnunina 5 háskólakennarar, 2 stúdentar, 6 aðstoðarmenn og rit- ari. Starfslið stofnunarinnar eykst yfir sumarmánuðina, sem er aðalrannsóknartími kennara, og unnu við stofnunina síðastliðið sumar um 25 manns. Af verkefnum, sem unnið hefur verið að á yfirstandandi ári á vegum Líffræðistofnunarinnar eru þessi helzt: Rannsóknir á kynblöndun silfurmáfs og hvítmáfs. Vistfræði- legar rannsóknir á fjörumarflóm. Athuganir á stærð, breytingum og hreyfingum ýmissa fugla og sela- stofna. Rannsóknir á burstaorma- fánu íslands. Rannsóknir á beit innlendra grasbíta. Könnun á ís- lenzkum votlendum. Rannsóknir á erfðum proteinmyndunar í bakteríum. Rannsóknir á hor- mónastjórn seltubúskaps lax- fiska. Rannsóknir á stjórnun blóð- rásar hjá fiskum. Könnun á dýra- og plöntusvifi í Þingvallavatni. Rannsóknir á áhrifum ísomera vínsýru á vöxt bakteríunnar Salmonella typhimurium. Ennfremur hefur á árinu 1974 verið unnið að eftirtöldum rann- sóknum, sem stofrtunin hefur tekið að sér að framkvæma fyrir ýmsa aðila: Líffræðilegar rannsóknir á Þjórsárverum (Orkustofnun). Vistfræðilegar rannsóknir á Laxárvogi, Brynjudalsvogi, Botnsvogi, Borgarfirði, Hrauns- firði, Alftafirði, Önundarfirði og ósum Eyjafjarðarár (Vegagerð ríkisins). Könnun á umferð fugla á Keflavíkurflugvelli (Flug- vallarstjórinn á Keflavíkurflug- velli). Vistfræðilegar rannsóknir á Breiðafirði (Þörungavinnslan h/f). Könnun og kortlagning líf- ríkis við Leiruvog (Náttúru- verndarnefnd Reykjavíkur). Fjárveiting til líffræðirann- sókna á vegum Háskóla Islands hefur verið nokkuð skorin við nögl undanfarin ár. Kennsla í líf- fræðigreinum hófst við Háskól- ann á árinu 1968, en engin fjár- Birta og ylur í skammdeginu. Vetur er sú árstíð, sem bezt hentar til að mála innanhúss. Færið birtu og yl í húsið, með samstemmdum litum og litatónum. VITRETEX Munið nafnið VITRETEX, það er mikilvægt, því: Endingin vex með VITRETEX. Framleiðandi á Islandi: Slippfélagið íReykjavíkhf Málningarverksmiðjan Dugguvogi — Símar 33433 og 33414 veiting til rannsókna fékkst fyrr en á fjárlögum fyrir árið 1972 og var þvi kennurum framan af gert mjög erfitt um vik að sinna rann- sóknarskyldu sinni. Á fjárlögum 1974 voru veittar til stofnunar- innar um 1,8 milljónir króna, en kostnaður við þær rannsóknir, sem Líffræðistofnunin hefur tekið að sér fyrir aðrar stofnanir mun væntanlega nema um 4 milljónum króna á þessu ári og greiða viðkomandi stofnanir þann kostnað. Nokkrar tekjur hefur stofnunin haft af þessum verk- efnum í formi greiðslu fyrir út- selda vinnu kennara, sem við stofnunina starfa. Þá hafa ein- stakir starfsmenn hlotið nokkra styrki, bæði innlenda og erlenda, til rannsóknarstarfsemi. I fjár- lagafrumvarpi fyrir árið 1975 er gert ráð fyrir nokkurri hækkun á fjárveitingu til Líffræðistofn- unarinnar, og standa því vonir til þess, að starfsmenn stofnunar- innar geti einbeitt sér í ríkara mæli að grundvallarrannsóknum á næsta ári en nú er. Stofnunin er nú til húsa í leigu- húsnæði Háskólans að Grensás- vegi 12, en auk þess hefur fengizt talsverð aðstaða við Tilraunastöð- ina á Keldum. Tæplega munu fleiri háskólakennarar geta fengið rannsóknaraðstöðu að Grensásvegi 12 en nú er, og er fyrirsjáanlegt að leita þurfi eftir aðstöðu annars staðar fyrir þá starfsmenn, sem væntanlega munu koma til starfa við stofnun- ina á næsta ári. Forstöðumaður Líffræðistofn- unar Háskólans er dr. Agnar Ing- ólfsson. Sfgurður Þorvaldsson og Erlendur Hansen I hinni nýju verzlun. Ný verzlun á Sauðárkróki FYRIR skömmu var opnuð ný verzlun á Sauðárkróki, Tfzku- verzlunin Sparta hf. Er hún til húsa að Skagfirðingabraut 45. Verður þar á boðstólum það nýj- asta f táningaklæðnaði, ásamt fatnaði fyrir fólk á öllum aldri. Þetta er eina sérverzlun sinnar tegundar á staðnum, og er von forsvarsmanna fyrirtækisins, að í framtíðinni geti viðskiptavinir verzlunarinnar gert þar hagkvæm innkaup á fatnaði fyrir fjölskyld- una á einum stað. Aðaleigendur fyrirtækisins eru Erlendur Hansen, Stefán Árna- son og Sigurður Þorvaldsson. Verzlunarstjóri í hinni nýju verzlun er Sigurður Þorvaldsson. — Jón. r Arsrit Vestmannaeyja 1974: Blik komið út ÚT ER kominn 31. árgangur af Bliki, ársriti Vestmannaeyja 1974, gefnu út af Þorsteini Þ. Víglundssyni fyrrverandi skóla- stjóra Gagnfræðaskólans í Vest- mannaeyjum og sparisjóðsstjóra í Eyjum. Með einstakri elju hefur Þorsteinn gefið út þetta fróðlega rit um ævir og atvik í Vestmanna- eyjum fyrr og síðar. Um 30 rit- gerðir, greinar og erindi eru í Bliki 1974 auk f jölmargra mynda, sem prýða ritið. Flestar greinarnar eru skrifaðar af Þor- steini Þ. Viglundssyni, en einnig ritar Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra grein í Blik, en þar er um að ræða skemmtilegt bréf, sem hann skrifaði Þorsteini um gamla tíð í Mjóafirði þaðan sem þeir eru báðir. Tvær litmynd- ir frá Eyjabyggð fyrir gos prýða forsíðu Bliks, en ritið er til sölu hjá Bókaverzlun Eymundsson, Isafold og hjá útgefanda i sfma 53431. Þorsteinn Þ. Vfglundsson Ægisútgáfan: Skáldsögur, Gull- fosssaga og drauma ráðningabók ÚT ERU komnar hjá Ægisútgáf- unni 5 nýjar bækur. Stolt landans heitir ein þeirra og fjallar um ferð með Gullfossi til Miðjarðar- hafslanda vorið 1953. Höfundur er Páll Hallbjörnsson rithöf- undur. Gestapo heitir ein bókin, eftir hinn kunna höfund Sven Hazel. Hazel er sérfræðingur í styrjald- Vatn Alfreðs Flóka komið út Út er kominn 4. og síðasti platt- inn í myndaflokki Alfreðs Flóka: Eldur, jörð, vatn og loft. Plattarn- ir eru unnir hjá Gler og postulln h.f., en þetta er þriðja platta- serían sem Flóki gefur út. Alfreð Flóki hefur um skeið verið I Uan- mörku þar sem hann hélt sýning- ar á verkum sýnum og vakti mikla athygli og hlaut lof gagn- rýnenda, en nú er listamaðurinn kominn aftur heim til Islands. arárunum 1939—1945 og í þessari bók tekur hann fyrir hina al- ræmdu leynilögreglu Gestapó. Meðal kunnra bóka Hazel eru Hersveit hinna fordæmdu, Dauð- inn á skriðbeltum, Stríðsfélagar og í Fremstu víglinu, en að sögn Guðmundar Jakobssonar for- stjóra Ægisútgáfunnar er hér um ósvikinn Sven Hazel að ræða. Fárviðri í Norðursjó, S.O.S., heitir ein af bókum Ægisútgáf- unnar. Segir þar frá vikulöngu fárviðri og mannskaðaveðri i Norðursjó þar sem örlög fjölda skipa og manna urðu afdrifarík. Á valdi ástarinnar heitir ein nýútkomna bókin eftir hina vin- sælu Denice Robins. Segir þar frá hamingjusömu hjónabandi, en ekki reyndist allt sem sýndist eftir að eiginmaðurinn fórst. Eiginkonan tekur að sér barn, sem hann átti með ungri stúlku, og margs konar leikfléttur koma upp og mörg ljón eru á veginum. Stóra draumaráðningabókin er ein af Ægisútgáfubókunum. „Ekki kemur mér það aó óvörum, að draumur minn rætist,“ sagði Gunnar á Hlíðarenda, er hann dreymdi fyrir sfnu skapadægri. „Mikið er til að hyggja ef allt skal eftir ganga,“ sagði Guðrún Ósvífursdóttir, er Gestur hinn spaki hafði ráðið draum hennar. Þannig mætti lengi vitna í gamlar og nýjar bókmenntir og víst er, að marga hefur dreymt fyrir stórum og smáum atburðum. Þessi bók á að vera draumspökum nokkur stoð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.