Morgunblaðið - 05.12.1974, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1974
Laufey Gísladótt-
ir - Minningarorð
Fædd 9. 12. 1914
Dáin 25. 11. 1974.
1 dag minnist eg Laufeyjar
Gísladóttur húsfreyju Skipasundi
47, hér í borg. Uppeldi sitt hlaut
Laufey á Breiðavaði Fljótsdals-
héraði, á heimili bróður míns,
Þórhalls Jónassonar sem þar var
tekinn við búi. Einu sinni er eg
kom heim var þangað komið dálít-
ið, fallegt stúlkubarn á öðru ári.
Þetta var Laufey, hálfsystir hús-
freyjunnar, Sigurborgar Gísla-
dóttur og Ragnhildar Gísladóttur,
sem þar dvaldi á heimilinu.
Þessi litla stúlka var fyrsta
barnið á þessu nýja heimili og
gerði sitt til að létta fólkinu til-
veruna. Man ég hve faðir minn,
Jónas Eiríksson, sepi var mjög
barngóður hafði mikla ánægju af
þessari litu stúlku. Er Laufey
var sjö ára missti Þórhallur konu
sína frá tveimur börnum og fóst-
urdótturinni. Tók þá Ragnhildur
við stjórn heimilisins og reyndist
börnunum öllum, sem hin besta
móðir.
Gísli faðir Laufeyjar var af
merku fólki kominn úr Meðal-
landi i Skaftafellssýslu, en fluttist
austur á Fljótsdalshérað. Hann
v'ar eftirminnilegur maður, sterk-
ur og fastur fyrir.
Gisli dvaldi síðustu árin hjá
tengdasyni sinum og dó þar sama
ár og dóttirin. Móðir Laufeyjar er
Anna Steinunn Árnadóttir, ættuð
af héraði, nú til heimilis í Nes-
kaupsstað.
Eina alsystur átti Laufey, Lín-
eik Gisladóttur ljósmóður, en fóst-
ursystkin hennar eru Guðlaug
Þórhallsdóttir, húsfreyja á
Breiðavaði, og Borgþór Þórhalls-
son, lögreglumaður í Reykjavík.
Ég kynntist Laufeyju ekki fyrr
en á ísafirði, er hún var þangað
komin ásamt eiginmanni sinum,
Jóni Guðmundssyni rafvirkja-
meistara. Honum giftist hún 4.
april 1936. Jón starfaði víða að
uppsetningu rafstöðva og var nú
fenginn til að ljúka við rafstöð
Isfirðinga i Engidal, inn af Skut-
ulsfirði, og varð þar síðan stöðvar-
stjóri.
í þeim fagra dal stofnuðu þau
Laufey og Jón heimili sitt á árum
fjárkreppu og erfiðleika. Lítið var
það í fyrstu, en óx fljótlega að
vináttu isfirðinga og góðum hug.
Margir gerðusérferðinní dalinn
til þeirra hjóna að lita undrið,
sem leysti lsfirðinga frá kostnaði
og bjástri viðléleganolíuhreyfil
og hálfgert myrkur. Oft var því
ærið gestkvæmt á litla heimilinu i
dalnum, þar sem tekið var á móti
öllum með Ijúfmennsku og hlýju.
Laufey óx með hverjum vanda
húsmóðurinnar bæði meðan efni
voru minni og eins er heimilið
varð stærra að húsakosti og öðr-
um búnaði.
Þegar örðugleikum var að
mestu lokið í raforkumálum ís-
firðinga, lá leið þeirra hjóna til
Reykjavíkur að nýjum verkefn-
um.
Brátt fluttust Laufey og Jón í
eigið húsnæði, en grun hafði ég
um að Laufey saknaði dalsins
góða og vinanna í vestri, þó erfitt
væri þar i fyrstu. Hlutverk Lauf-
eyjar varð nú enn meira en fyrr,
er börnin voru orðin sjö. Brátt
kom að því að tengdabörn og
barnabörn bættust í fjölskylduna,
sem Laufey helgaði krafta sína og
vafði ást og umhyggju.
Börn og tengdabörn Jóns og
Laufeyjar eru Harpa, gift Vil-
hjálmi Hjartarsyni, Guðrún, gift
James Ferrier í London, Elsa, gift
Baldvin Hermannssyni, Björg,
gift Geir Árnasyni, Helga, gift
Guðjóni Bernharðssyni, Líneik,
gift Halldóri Ölafssyni og Guð-
mundur kvæntur Helgu Þórðar-
dóttur. Barnabörnin eru orðin
alls fjórtán. Allt er þetta hið
mannvænlegasta fólk.
Laufey var lífsvitur kona, eins
og hún átti ætt til. Skóli hennar
var lifið sjálft, sem agar oss, en
veitir þeim einum þroska, sem við
kunna að taka. Þessi skóli hefur
reynst mörgum Islenskum hús-
mæðrum gæfusamur. Laufey var
ein þeirra.
t
Faðir okkar
JÓN SIGTRYGGSSON
fyrrv. dómvörður
andaðist 3 desember í
Borgarspitalanum
Ingibjörg P. Jónsdóttir
Sigurlaug Jónsdóttir
Sigrún Jónsdóttir
t
Alúðarþakkir flytjum við öllum
þeim er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför
HARALDAR
SÆMUNDSSONAR
frá Kletti.
Jóhanna Jóhannsdóttir og
börn,
Soffía Ólafsdóttir.
Fyrir nokkrum árum veiktist
Laufey af alvarlegu hálsmeini.
Sjúk vann hún skyldustörf sin á
mannmörgu og gestrisnu heimili
þar til sjúkdómurinn yfirbugaði
hana. Loks kom kallið sem allir
verða að gegna. Mánudaginn 25.
nóv. sl. lést hún á Landspítalan-
um eftir langvarandi veikindi.
Þar er nú skarð fyrir skildi hjá
eftirlifandi eiginmanni og fjöl-
skyldu hans. Móðir, tendamóðir
og amma, er nú horfin af þessum
vettvangi lifsins. Jarðlífið er að-
eins hlekkur í langri lifskeðju og
líkamsdauðinn i rauninni fæðing
Fædd 23. október 1892
Dáin 28. nóvember 1974
i dag verður til moldar borin
Katrin Guðmundsdóttir Þórufelli
14, Reykjavík. Katrín var fædd að
Nýlendu í Austur-Eyjafjöllum,
dóttir hjónanna önnu Jónsdóttur
og Guðmundar Vigfússonar. Syst-
kini hennar voru Guðbjörg, Björn
og Jóhann sem nú eru látin og
Ragnhildur og Kristín sem búsett-
ar eru í Reykjavík. Foreldrar
hennar fluttust síðar að Gíslakoti
í sömu sveit og ólst hún upp hjá
þum. Þótti hún með glæsilegri
kvenkostum í sinni sveit.
Árið 1915 giftist hún Þórði
Stefánssyni, miklum dugnaðar- og
atorkumanni. Bjuggu þau fyrstu
árin að Berjaneskoti en fluttust
síðan til Vestmannaeyja, þar sem
þau bjuggu til ársins 1939.
Þeim hjónunum varð tólf barna
auðið og er mér sagt að það hafi
verið fríður hópur og heimilis-
bragur allur með rausn og
myndarskap. Þau urðu þó fyrir
þeirri þungbæru sorg að missa
sex börn sin, eitt dó í barnæsku
en hin fimm með stuttu millibili í
blóma lifsins og skildi þessi harm-
ur sín mörk eftir.
Eftirlifandi börn þeirra hjóna
eru öll búsett í Reykjavík, en þau
eru Þórður, Rut gift Óla
Valdimarssyni, Björn, Þóra, Ásta
gift Theodór Georgssyni og Birna
gift Helga G. Ingimundarsyni.
Katrín var alla tíð vinnusöm og
myndarleg viðþaustörf sem hún
tók sér fyrir hendur, en hin síðari
ár átti hún oft við mikla vanheilsu
að stríða, sem hún þó bar með
æðruleysi, enda var henni iífs-
gleði og lífslöngun í brjóst borin.
Á þessum árum naut hún aðstoð-
ar og styrks barna sinna i hví-
vetna og má i því sambandi sér-
staklega minnast elsta sonar
hennar, Þórðar, sem bjó henni
heimili siðustu æviárin og annað-
ist hana af kostgæfni.
Okkur hjónunum og börnum
okkar er ljúft að minnast ánægju-
legra samverustunda er við áttum
með henni nokkur sumur og
persónulega vil ég þakka tengda-
móður minni allt gott sem hún
gerði mér og fjölskyldu minni alla
tíð. Blessuð sé minning hennar.
Helgi G. Ingimundarson.
Margir munu vera mér sam-
mála um það, að Eyjafjallasveit sé
eitt fegursta hérað landsins. Hin
sérkennilegu hamrabelti blasa
við með giljum og fögrum fossum,
en efst gnæfir tígulegur jökull-
inn. Margt dugnaðar og atorku-
fólk hefur sveit þessi alið, bæði
karla og konur, og í dag kveðjum
við eina slíka konu, Katrínu
Guðmundsdóttur. Þótt búast megi
við kallinu hvenær sem er, þegar
meira en átta áratugir eru að
baki, tekur það nokkurn tíma að
sætta sig við, að dauðinn hefur
barið að dyrum.
Katrín andaðist þ. 28. nóvember
s.l., hér í Reykjavik eftir stutta
legu. Hún var fædd 23. október
1892 á Nýlendu, Austur-Eyjafjöll
um. Foreldrar hennar voru
Guðmundur Vigfússon og kona
hans Anna Jónsdóttir, er lengst af
bjuggu í Gíslakoti i sömu sveit.
Þau Anna og Guðmundur eignuð-
ust sex börn og eru nú tvö þeirra
á lífi, systurnar Kristín og Ragn-
hildur. Arið 1915 giftist Katrin
Þórði Stefánssyni útgerðarmanni,
sem einnig er ættaður undan
til nýrrar tilveru. Þó verðum vér
snortin ef góður vinur flytur úr
jarðlíkamanum. Vér verðum
harmi lostin, þegar góð eiginkona
og ástrík móðir er allt í einu horf-
in jarðbundnum augum vorum.
Því verður nú fjölda vina og
vandamanna hugsað til fjölskyld-
unnar í Skipasundi 47 og barn-
anna mörgu systra og fóstursystk
ina. Þeir heiðra nú minningu
Laufeyjar sem I dag er til moldar
borin og þakka henni samfylgd-
ina hér i þessu lífi.
Reykjavik, 5. des. 1974
Friðrik Jónasson.
Eyjaf jöllum og eignuðust þau tólf
börn, en sex þeirra eru nú látin.
Lengst af bjuggu þau Katrín og
Þórður i Vestmannaeyjum, en þar
var hann formaður og útgerðar-
maður um áratugaskeið. Oft var
vinnudagur húsmæðranna á hin-
um stóru sjómannaheimilum í
Vestmannaeyjum bæði langur og
strangur. Fjöldi sjómanna dvaldi
á heimili útgerðarmannsins yfir
vertíðina og munu oft hafa verið
meira en tuttugu manns á heimili
þeirra hjóna. Er erfitt að gera sér
í hugarlund hvílíka starfsorku og
þrek hefur þurft til þess að ann-
ast svo stórt heimili með jafn
miklum ágætum og Katrin gerði,
enda voru þau hjón mjög samhent
um allt, er laut að heimilinu.
Katrín var óvenjulega vel gerð
kona og gædd miklum sálarstyrk.
Sem betur fer munu vera fáar
núlifandi konur, er hafa borið
þann þunga kross að missa sex
börn, þar af fimm ýmist á
unglingsaldri, eða uppkomin og
finnst mér næstum ofurmannlegt
að reyna slíkt mótlæti án þess að
brotna, en Katrinu var gefinn
styrkur til þess að standast þessa
miklu raun.
Árið 1939 fluttist Katrín til
Reykjavikur og átti þar heima sið-
an. Síðustu árin bjó hún hjá elsta
syni sinum, Þórði, og átti hún þar
þægilegt ævikvöld í skjóli þessa
sonar hennar, sem reyndist henni
eins vel og hugsast getur.
Að lokum kveð ég tengdamóður
mína með þakklæti fyrir allt, sem
hún hefur veitt mér og minni
fjölskyldu á liðnum árum og bið
henni Guðs blessunar.
Theodór S. Georgsson.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu línubili.
t
Maðurinn minn,
SVEINBJÖRN ÖGMUNDSSON.
veggfóðrari og dúklagningamaður.
Austurbrún 6,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 7 12. kl. 1 3:30.
Fyrir hönd ættingja,
Þorbjörg Jónsdóttir.
t
Útför
AXELS KJARTANS SIGURÐSSONAR,
Kleppsvegi 28,
er lézt af slysförum 28. þ m. fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn
6. des kl 10 30 f .h
Jóhanna Magnúsdóttir, Sigurður Kristmundsson,
og systkini hins látna.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
KARL GUÐMUNDSSON, forstjóri,
Fífuhvammsvegi 27. Kópavogi.
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju föstudagínn 6. desember kl. 3 e.h
Fyrir hönd aðstandenda,
Arndls Jónsdóttir,
Aðalheiður Karlsdóttir, Helga Karlsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 6. desember kl. 2.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hinnar
látnu er bent á líknarstofnanir
Ólafur Beinteinsson, Sigurveig Hjaltested,
Sigríður Beinteinsdóttir, Ásgeir Valur Einarsson,
Guðrún Beinteinsdóttir, Hafliði Magnússon,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t Þökkum auðsýnda samúð við fráfaíl eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
VALDIMARS SIGURJÓNSSONAR.
slmavarðar,
Krókatúni 16, Akranesi.
Salóme Guðjónsdóttir,
Eiríkur Valdimarsson, Sigrlður Ellasdóttir,
Amfríður Valdimarsdóttir, Ólafur Árnason,
Magnúslna Valdimarsdóttir, Kristinn M. Stefánsson,
Sigurjóna Valdimarsdóttir, Kristjón Sigurðsson,
Arnór V. Valdimarsson, Stella Benediktsdóttir,
Páll G. Valdimarsson, Rannveig Sveinbjörnsdóttir,
Sigurborg Valdimarsdóttir. og barnabörn. Guðjón Valdimarsson,
Katrín Guðmundsdótt
ir — Minningarorð