Morgunblaðið - 05.12.1974, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1974
I ÍÞfSIÍTIAfREITIH MORGONBLAflSIKS
Þýzka knattspyrnan
Staðan ! v-þýzku 1. deildar
keppninni ! knattspyrnu er nú sú.
a8 Hertha, Berlín, hefur forystu að
loknum 15 umferðum og er með
21 stig. Röð annarra liða er þessi:
Hamburger SV 20 stig. Eintracht
Frankfurt 18 stig, Bochum 18
stig, MSV Duisburg 17 stig.
Borussia Mönchengladbach 17
stig, Schalke 04 1 7 stig, FC Köln
17 stig, Fortuna Dússeldorf 15
stig, Kaiserlautern 14 stig, Rot
Weiss Essen 14 stig, Bayern
Múnchen 14 stig. Werder Bremen
9 stig, VFB Stuttgart 8 stig,
Tennis Borussia 5 stig og Wupper-
taler SV er með 4 stig.
Júgóslavar
sigursælir
á sig 6 stig vegna „goal tending",
en þaó er þegar varnarmaður ver
knöttinn fyrir ofan körfuhring
þegar hann er á leió niður. Stig
KR í leiknum voru því aðeins 28,
sem skoruð voru á venjulegan
hátt.
Karl West heiðraður
SKANDINAVlSKA meistaramót-
inu í borðtennis lauk um síðustu
helgi, en það fór fram í Karls-
hamm í Svíþjóð. Er þarna um að
ræða opið borðtennismót og
keppti í þvi margt af bezta borð-
tennisfóiki heims.
Sigurvegari í einliðaleik karla
varð Dragutin Surbek frá Júgó-
slavíu, en hann sigraði landa sinn
Anton Stipanicic í úrslitaleik
21—12, 21—14 og 21 —18.
í einliðaleik kvenna mættust i
útslitum kinversku stúlkurnar
Huang Hse-Ping og Chang Li.
Sigraði sú fyrrnefnda 22—20,
21—8, 14—21 og 22—20.
1 tvíliðaleik karla sigruðu þeir
Stellan Bengtsson og Kjell
Johannsson frá Svíþjóð þá
er 2,14 metrar. Leikmennirnir
eru eftirtaldir:
metr.
Nr. 14: T. Wolf 1,91
Nr. 8: H. Leskowa 1,93
Nr. 5: F. Miklas 1,94
Nr. 13: G. Pawelka 1,96
Nr. 6: E. Wirdener 1,97
Nr. 7: P. Bilik 1,98
Nr. 10: E. Tecka 2,02
Nr. 9: R. Hutthaler 2,03
Nr. 11: T. Mirioneaux 2,12
Nr. 4: R. Taylor 2,14
Má geta þess til gamans, að
hávaxnasti leikmaður KR-liðsins
er Kristinn Stefánsson. Er hann
1,99 metrar, og nær því ekki
meðalhæð leikmanna austurriska
liðsins, enda var það þannig i
leiknum i Austurríki, að KR-
ingarnir fengu hreinlega ekki að
komast nálægt körfu Austurríkis-
mannanna — allar sóknir þeirra
voru stöóvaðar i fæðingu. Af þeim
34 stigum, sem KR skoraði í leikn-
um, fengu Austurríkismennirnir
Lið UBSC stefnir nú ákveðið aó
sigri í Evrópubikarkeppninni og
ætti að eiga á því góða möguleika.
Liðið komst í fjögurra liða úrslit i
fyrra, en síðan þá hefur það
fengið Bandaríkjamennina til liðs
við sig. Má til dæmis um getu
þessa liðs nefna, að það lék s.l.
haust við franska körfuknatt-
leikslandsliðið og sigraði það auð-
veldlega, og eru Frakkarnir þó
hátt skrifaðir i evrópskum körfu-
knattleik.
Þetta er í þriðja sinn, sem
körfuknattleikslið KR tekur þátt i
Evrópubikarkeppninni í körfu-
knattleik. 1 fyrsta skiptið léku
þeir gegn Simmentahl frá Italíu
og töpuðu með miklum mun í
báðum leikjunum, enda komst
Simmenthal það ár i úrslit keppn-
innar. 1 hitt skiptið lék KR gegn
Alvik frá Sviþjóð og slógu
Svíarnir KR út, þótt ekki væri
munurinn mikill.
Leikurinn i kvöld hefst kl.
20.15.
RÖTARIKLUBBUR Kópavogs
hefur tekið upp þá nýbreytni i
starfi sínu að heiðra þann íþrótta-
mann í Kópavogi, sem fram úr
hefur skarað á árinu og eru
honum veitt verðlaun sem
„íþróttamanni Kópavogs". Sá
fyrsti, sem hlotnaðist þessi
heiður, var Karl West Fredriksen
frjálsíþróttamaður, og tók hann
við veglegum verðlaunum frá
klúbbnum s.l. þriðjudag. Karl
West er í röð fremstu frjáls-
iþróttamanna landsins og sýndi
miklar framfarir á síðasta
keppnistimabili. Náði hann t.d.
bezta árangri ársins í hástökki,
stökk 2,01 metra, átti þriðja bezta
afrekið í tugþraut: 6739 stig, og
þriðja bezta afrekið i stangar-
stökki: 4,20 metra, auk þess sem
hann var á skrá yfir 10 beztu í
langstökki, 100 metra hlaupi og
110 metra grindahlaupi.
I ávarpi sem Gisli Arason, for-
maður rótaríklúbbsins flutti er
verðlaun klúbbsins voru afhent,
gat hann þess að á umdæmisþingi
Rótarihreyfingarinnar, sem
haldið var á Akureyri s.l. sumar,
hefði verið samþykkt að
klúbbarnir á lslandi reyndu, hver
með sínum hætti að örva æsku
landsins til heilbrigðrar tóm-
stundaiðju og jafnframt að leggja
eitthvað af mörkum í því sam-
bandi. Hefði þessi samþykkt orðið
til þess að klúbburinn í Kópavogi
hefði ákveðið að «tanda fyrir vali
á íþróttamanni ársins þar i bæ, og
væri stefnt að því að gera þetta að
árlegum viðburði. Þrír aðilar
voru fengnir til þess að sjá um
tilnefningu fyrir klúbbinn: Gutt-
ormur Ölafsson, íþróttafulltrúi
Kópavogs, Guðmundur Þórðar-
son, kunnur íþróttamaður í Kópa-
vogi, og Páll Bjarnason, forystu-
maóur i íþróttahreyfingunni.
Karl West Fredriksen er
fæddur 1952 og hóf keppni i
frjálsum íþróttum fyrir Breióa-
blik árið 1969. Vakti hann
snemma athygli ekki aðeins fyrir
getu sina, heldur og prúð-
mennsku og drengilega fram-
komu á keppnisvellinum. Er hann
þvi mjög vel að þessum verðlaun-
um rótarimanna kominn.
1 KVÖLD fer fram í Laugardals-
höllinni seinni leikur KR og aust-
urríska liðsins UBSC í Evrópu-
bikarkeppninni í körfuknattleik.
Sem kunnugt er tapaði KR fyrri
leiknum, sem fram fór í Austur-
ríki með 34 stigum gegn 132, og
er þar um að ræða einn versta
skell, sem íslenzkt íþróttakapplið
hefur fengið í keppni fyrr og síð-
ar, og var þarna um að ræða nýtt
met í Evrópubikarkeppni f körfu-
knattleik. Aldrei áður hafði
munað svo mörgum stigum f leik
milli liða, sem þar hafa keppt.
KR-ingarnir eru á einu máli
um, að austurríska liðið sé skipað
eintómum snillingum í körfu-
knattleik, enda er þarna um al-
gjöra atvinnumenn að ræða, og
tveir leikmanna leiðsins eru
reyndar Bandaríkjamenn, sem
flutzt hafa til Austurríkis til þess
að leika þar körfuknattleik, en
þarlendis hefur lið UBSC algjöra
yfirburði. Hefur það leikið þar 5
leiki það sem af er þessu keppnis-
tímabili og skorað 544 stig í þeim,
en fengið á sig 314 stig. Meðaltals-
skor í leikjum liðsins er því 109
gegn 63.
Hingað til lands koma 10 leik-
menn og er meðalhæð þeirra 2,00
metrar. Lægsti maðurinn i liðinu
er 1,91 metri, en sá stærsti,
Bandaríkjamaðurinn R. Taylor,
Stanislav Gomozkov og Sarkis
Sarkhojan frá Sovétrikjunum
21—16, 21—16 og 21—19.
Sigurvegarar i tvíliðaleik
kvenna urðu Hu Yu-Lan og Ke
Hsian-Ai frá Kína en þær mættu
Elmira Antonia og Zoya Rudnovu
frá Sovétríkjunum í úrslitaleik,
sem fór 21—12, 14—21, 21—15 og
21—13.
1 tvenndarkeppni sigruðu
Anton Stipanicic og Erzebet Pala-
tinus frá Júgóslavíu landa sina
Dragutin Surbek og Erzebet Korp
í úrslitaleik: 21—19, 21—13 og
12—14.
Tékkneski þjálfarinn hjá UBSC gefur hér leikmönnum sínum fyrirmæli og ekki er annað að sjá en að
hann eigi athygli leikmannanna.
— segja KR-ingar um lið UBSC, sem
þeir leika við í Höllinni í kvöld
Boye Stenskjær skorar eitt af mörkum Arhus-liðsins f leiknum við
Sittardia
Dregið um helgina
DANSKA liðið Arhus KFUM átti
ekki í erfiðleikum með hollenzka
liðið Sittardia í seinni leik lið-
anna f 16-liða úrslitakeppni
Evrópubikarkeppninnar í hand-
knattleik, sem fram fór í Arósum
um helgina. Urðu úrslit leiksins
18—9 fyrir Arósaliðið, en það
vann einnig fyrri leikinn, sem
fram fór í Hollandi.
Þá lék Gummersbach við
fransk.i liðið UC Paric mi sl.
helgi. Fór leikurinn íram i
Diisseldorf og sigraði Gummers-
back með 25 mörkum gegn 20, án
þess að leggja mikið að sér.
Gummersbach ann einnig fyrri
leikinn, 23—20.
LcAlán-iiUa uisiUakeppnniin < i
nú lokið og þau átla lið, sem eftir
standa, eru eftirtalin: FH, Is-
landi; Árhus KFUM, Danmörku;
Gummersbach, V-Þýzkalandi;
ASK Vorwárts Frankfurt,
A-Þýzkalandi; TJ Skoda Pilsen,
Tékkóslóvakíu; Lokamotiv,
Búlgaríu; Spartacus Budapest,
Ungverjalandi og Steaua
Bukarest, Rúmeniu. Verðurdreg-
ið um það um næstu helgi hvernig
liðin eiga að leika saman í undan-
úrslitunum.
1 viðtölum, sem birtust við for-
ystumenn Arhus KFUM i dönsku
blöðunum að loknum leik liðs
þeirra við Sittardia, kom fram, að
þeir óska sér þess helzt að fá
Gummersbach í næstu umferð, en
segja jafnframt, að fái þeir FH
megi teljast nokkuð öruggt, að
þeir komist í fjögurra liða keppn-
ina. Ástæðan fyrir þvi, að Danirn-
ir vilja helzt fá Gummersbach, er
sú, að félagið hefur farið ákaflega
illa út úr þátttöku sinni í Evrópu-
bikarkeppninni fjárhagslega.
Alg jörir snillingar