Morgunblaðið - 05.12.1974, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1974
39
r
Agæt frammistaða
hjá Sigfúsi og Ágústi
IR-INGARNIR Sigfús Jónsson og
Agúst Asgeirsson stóðu sig meö
mikilli prýði f boðhlaupi, sem
fram fór í Leeds um fyrri helgi,
en þar kepptu þeir fyrir skóla
sinn f Durham. Varð sveit skólans
f þriðja sæti f hlaupinu.
Boðhlaupið í Leeds var þannig,
að hver keppandi hljóp 3 mílur,
en sex menn voru í sveit. 1 viðtali
við Morgunblaðið sagði Ágúst, að
leiðin hefði verið mjög breytileg,
hlaupið hefði verið upp og niður
holt og hæðir, annaðhvort á
steyptum gangstígum eða í aur-
leðju.
— Þegar við komum til Leeds
fréttum við, að lið Birmingham-
háskólans yrði með i keppninni,
en það hefur verið algjörlega ein-
rátt í öllum skólakeppnum í Bret-
landi og fá félagslið eiga mögu-
leika í keppni við það. Hefur lið
Birminghamskólans á að skipa
brezkum meisturum í víðavangs-
hlaupum, svo og landsliðsmönn-
um. En þrátt fyrir að við værum
án okkar bezta manns, sem var
meiddur, vorum við ákveðnir að
keppa að sigri í hlaupinu.
Ágúst sagðist hafa hlaupið
fyrsta sprettinn, en það væri
venja að setja tiltölulega góðan
hlaupara í hann, vegna slagsmála
um góðar stöður. — Heldur var
fyrsta mílan skrykkjótt hjá mér,
þar sem ég féll við í startinu, og
lokaðist inni aftarlega, er við urð-
um að fara inn á þröngan skógar-
stíg, sagði Ágúst. Um miðbik
hlaupsins var hann i 14. sæti, en
þegar komið var út á breiða götu
losnaði um hann og fór Ágúst
síðan fram úr hverjum hlaupar-
anum af öðrum, og varð annar til
þess að skipta.
— Fyrir okkur skiptu Birming-
ham-mennirnir mestu máli, og
var því um að gera að vera sem
lengst á undan þeim. Mér tókst að
vinna minn mann með 22 sek. Sá
var þó ekki af verri endanum, þar
sem hann keppti fyrir Bretlands
hönd á Evrópumeistaramóti ungl-
inga í Duisburg í 5000 metra,
hlaupi, og hljóp á 8:29 mín. i 3000
metra hlaupi innanhúss nýlega,
sagði Agúst.
Sigfús Jónsson hljóp svo annan
sprett fyrir Durhamskólann og
stóð sig mjög vel. Skapaði hann
skólanum ekki einungis aukið for-
skot á Birmingham-sveitina, held-
ur fékk hann einnig bezta tíma af
Durham-mönnum og var ofarlega
á blaði yfir þá sem beztan tíma
fengu í hlaupinu.
Ágúst sagði, að þegar komið var
Framhald á bls. 22
Félagarnir: Ásgeir Ásgeirsson t.v. og Sigfús Jónsson t.h. stóðu sig
mjög vel í víðavangshlaupinu f Leeds.
Flokkaglíma
Flokkaglíma Reykjavíkur fer
fram í íþróttahúsi Melaskólans
15. desember n.k. Þátttökutil-
kynningar þurfa að hafa borizt
Hjálmi Sigurðssyni fyrir kl.
20.00 þriðjudaginn 10. des., og
er þátttökugjald kr. 200,00 fyrir
fullorðna og kr. 100.00 fyrir
yngri flokka.
Spánska
knattspyrnan
Að loknum 10 umferðum í
spænsku 1. deildar keppninni í
knattspyrnu hefur Real Madrid
þar forystu og er með 17 stig.
Barcelona er í öðru sæti með 14
stig en síðan koma Espanol og
Granada með 13 stig.
Hollenzka
knattspyrnan
Eftir 12 umferðir i 1. deildar
keppninni í Hollandi hefur
PSV Einohoven þar forystu og
er með 22 stig. Feyenoord er í
öðru sæti með 20 stig og Ajax er
í þriðja sæti með 19 stig.
Belgíska
knattspyrnan
Liði Ásgeirs Sigurvinssonar,
Standard Liege, hefur vegnað
vel í belgísku 1. deildar keppn-
inni í knattspyrnu að undan-
förnu. Á laugardaginn sigraði
liðið Montiginies með tveimur
mörkum gegn engu, og hefur
það þar með hlotið 18 stig úr 16
leikjum og er i sjötta sæti i
deildinni. Röð liðanna í 1.
deildar keppninni i Belgíu var
annars þessi að loknum 16 um-
ferðum:
Racing White 25 stig, Ander-
lecht 21 stig, Club Brtigge 21
stig, Beerschot 20 stig,
Antwerpen 19 stig, Standard
Liege 18 stig, Cercle Briigge 18
stig, Lierse 17 stig, Mechelen 17
stig, Charleroi 17 stig, Beveren
15 stig, Ostende 15 stig, Loker-
en 15 stig, Montiginies 15 stig,
Berchem 14 stig, Liege FC 12
stig, Beringen 12 stig,
Waregem 11 stig, Winterslag 8
stig og Diest 8 stig. *-
Puttemans
sigraði
Belgíumaðurinn Emiel Putte-
mans sigraði í 8 km víðavangs-
hlaupi sem fram fór í Vanves
um siðustu helgi. Hljóp hann á
23,56 mín. Annar i hlaupinu
varð Englendingurinn Dave
Bedford, sem hljóp á 24,10 min.
Tyrkland
sigraði
Tyrkland sigraði Sviss með
tveimur mörkum gegn einu í
landsleik i knattspyrnu sem
fram fór um síðustu helgi og
var liður i Evrópubikarkeppni
landsliða. Staðan i riðlinum eft-
ir leik þennan er þessi:
Irland 2 110 4—1 3
Tyrkland 2 110 3—2 3
Sviss 10 0 1 1—2 0
Sovétrikin 10 0 1 0—3 0
Holström
kjörinn
Niels Chr. Holström var kjör-
inn knattspyrnumaóur ársins í
Danmörku, en það er dagblaóið
Aktuelt sem gengst fyrir
kosningu þessari og er það
ákveðin nefnd sem hefur kjör-
gengi. Holström sem er leik-
maður með KB og varð mark-
hæsti leikmaður 1. deildar
keppninnar i Danmörku hlaut
19 atkvæði í kosningunum, All-
an Simonsen hlaut 16 atkvæði,
Flemming Mortensen 5 og aðrir
knattspyrnumenn færri at-
kvæði.
Unglingasamkoma UBK
Hin árlega unglingasamkoma
UMF Breiðabliks f Kópavogi
verður haldin í Bfósal Félags-
heimilisins, laugardaginn 7.
desember og hefst kl. 14.00.
Að venju verða þeir íþrótta-
menn heiðraðir, sem skarað
hafa fram úr í sinni iþrótta-
grein á árinu.
íslandsmeisturum Breiða-
bliks í knattspyrnu i 3., 4., og 5.
aldursflokki verða veitt verð-
laun og þeir heiðraðir á fleiri
vegu. Islandsmeisturum félags-
ins i Minni-bolta verða veitt
verðlaun.
Þá verður valinn knatt-
spyrnumaður ársins í 3., 4., og
5. flokki pilta og i kvennaflokki
og þeir sæmdir verðlaunum.
Einnig verða veitt verðlaun 1
innanhúsknattspyrnumóti skól-
anna í Kópavogi, sem fram fór
á síðastliðnu vori.
A dagskránni verða einnig
stutt ávörp og að lokum verða
sýndar f jörugar teiknimyndir.
Þess er vænst, að sem flestir
Kópavogsbúar komi á þessa
samkomu, til að heiðra hina
ungu afreksmenn bæjarins og
kynnast því þróttmikla æsku-
lýðsstarfi, sem fram fer á veg-
um Breiðabliks.
(Frétt frá UBK)
TERELYNE BUXUR
6ALLABUm
SKYRTUR
HAUELSBUXUR
HERRAKULDAJAKKAR
ZTfUQíi JfUQimt
LEÐURdAKKAR