Morgunblaðið - 08.12.1974, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 08.12.1974, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1974 13 LÖND OG LANDKÖNNUN Frumherjar í landaleit Höfundar: Felix og Anthea Barker. Þýðandi: Steindór Steindórsson frá Hlöðum. fslensk umsjón: Örnólfur Thorlacius og Hákon Tryggvason. Þetta er fyrsta bókin í stórum bókaflokki, sem fjallar um könnunarsögu einstakra heimshluta. Fyrsta bókin lýsir landkönnun fornþjóðanna við Miðjarðarhaf, þar á meðal fyrstu siglingu kringum Afríku. Bókin er fagurlega skreytt fjölda litmynda. Frumherjar í landaleit öm&örtygor Guðlaugur Guðmundsson, höfundur Reynistaðarbræðra Enginn má undan líta MORÐMÁLIN i HÚNAÞINGI — sagnfræðilegt skáld- rit, sem varpar nýju Ijósi á aðdraganda þeirra og afleiðingar. Höfundur leiðir lesendur sína af mikilli fimi og mannlegri innsýn inn í atburðarásina, svo þeir finna hjartslátt fólksins og tíðarandann, og hann kollvarpar þjóðsögunni um örlög fang- anna sem fluttir voru til Kaupmannahafnar. Blærinn í laufi eftir Einar frá Hergilsey. Fyrsta bók Einars frá Hergilsey, „Meðan jörð- in grær“ varð í 15.—16. sæti frumsamdra og endurprentaðra íslenskra bóka ársins 1972, sem mest voru keyptar í almenningsbókasöfn. Sviptibyljir mannlegra ástríðna og hin sterka taug átthaga- og æskuástar er undiralda hins nýja og rammíslenska skáldverks. Allir eru ógiftir í verinu eftir Snjólaugu Bragadóttur frá Skáldalæk. Þetta er þriðja bók hinnar ungu skáldkonu. Hinar tvær „Næturstaður" og „Ráðskona ósk- ast í sveit“ vöktu strax verðskuldaða athygli og þessi gefur þeim ekkert eftir. Hún lýsir á raunsæjan, en þó rómantískan hátt, frystihúsa- og verbúðalífinu og gæti skeð í hvaða verstöð sem er. Ðr. Jónas Krifrtjánflson, forstöðunia«tur ÁmasafnB fyijfir höfnndi »ir hlaði Skýrt ogskorinort HelgiáHrafnkelsstööum ræöir n«t. nm meun og' málefni Skýrt og skorinort Helgi á Hrafnkelsstöðum ræðir umbúðalaust um menn og málefni. Dr. Jónas Kristjánsson, forstöðumaður Árnasafns fylgir höfundi úr hlaði. Þeir munu fáir íslendingar, sem ekki hafa heyrt getið Hrafnkelsstaðabóndans. Hann vekur hvar- vetna athygli og á fræði hans er hlustað, innanlands sem utan. Það leiðist engum lest- urinn, sem hefur bók Helga í höndunum. Helgi segir ætíð umbúðalaust sína meiningu, hvort sem hann ræðir menn eða málefni. Þrautgóðirá raunastund börgunar- og sjóslysasaga íslands, sjötta bindi, eftir Loft Guðmundsson. Bókin hefst á hinu sögufræga brúðarráni séra Odds V. Gíslasonar og er fjörlega skrifuð bók um þrjá mannlega og framsýna forystumenn, sem hófu merki björgunar- og slysavarna á íslandi, þá séra Odd V. Gíslason, Sigurð Sig- urðsson frá Arnarholti og Jón E. Bergsveins- son erindreka SVFÍ. LofturGuðinundsson í á raunastund k-þy ■ éj S y;vvi: J Þórður Halldórsson frá Dagverðará: Náttúran er söm við sig undir Jökli Loftur Guðmundsscn færði í letur. Ragnar Kjartansson myndskreytti. Það er aðeins til einn Þórður frá Dagverðará og það sannast í annarri bók refaskyttunnar, listmálarans, skáldsins og sagnaþulsins, að bæði hann og náttúran undir Jökli eru söm við sig. Þórður er ekki einhamur i lýsingum sínum á mönnum og mannlegri náttúru, né þeirri yfirnáttúrulegu, og bók sem þessi verður aldrei aftur skrifuð. 6 undirjökli Herbert Sundemo: Biblíuhandbókin þín Þýðandi séra Magnús Guðjónsson. Formála ritar biskup íslands, dr. theol Sigurbjörn Einarsson. Bibliuhandbókin þín skýrir í máli og myndum mikilvæg heiti og hugtök í Heilagri ritningu. Bókin er helguð minningu séra Hallgríms Pét- urssonar í tilefni af 300. ártíð hans. Bókin er ætlað að leiðbeina hverjum þeim, sem vill fræðast um Biblíuna, það sögusvið sem um- lykur hana, þann boðskap sem hún flytur. s? 1 3 5 cta s 6 s © Gersemar guöanna ERICH VON DANIKEN Gersemar guðanna Nýjar sannanir fyrir því ósannanlega eftir Erich von Dániken. Dagur Þorleifsson þýddi. Þriðja bók Erich von Dániken flytur eins og fyrri bækur þessa djarfa fornleifafræðings og söguskýranda, nýjar sannanir fyrir því ósann- anlega og hann fer hvergi troðnar slóðir, eng- inn sem lesið hefur þessar bækur lítur verald- arsöguna sömu augum og áður. Kenningar Dánikens og dr. Helga Pjeturs koma að mörgu leyti heim og saman. Návígi á norðurhjara Fjórða bók Colins Forbes. Þýðandi: Björn Jónsson. Návígi á norðurhjara er ein magnaðasta ævin- týraskáldsaga sem borin hefur verið á borð kröfuharðra lesenda á síðustu árum. Sagan skeður mestmegnis í Grænlandsísnum. Hramm- ur kalda stríðsins kemur af stað blóðugum átökum þar norður frá, en bakgrunnur átak- anna er skákeinvígið á íslandi. A GÓÐ BÓK ER GÓÐ GJÖF | Vir Örn og Örlygur, Vesturgötu 42, Sími: 25722 Vf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.