Morgunblaðið - 08.12.1974, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.12.1974, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1974 . GLIT HP. SKERJ SKAMMDEGINU ° ' • " Mikilprýði utandyra viö hátíöleg tækifæri svo sem jól, afmæli. skírnir, bruðkaup fermingar o.fl. o Tilvaliö á tröppur, í garöa, viö hliö og þar sem fólk vill hafa hlýlega birtu. Vilja fleiri friðlýst svæði Stykkishólmi 25. 11. 1974 AÐALFUNDUR Utvegsmanna- félags Snæfellsness var haldinn f Röst Hellissandi um mánaða- mótin okt—nóv. s.l. Voru á þeim fundi rædd mál útvegsins á Snæ- fellsnesi svo og horfur f þeim. A fundinum voru samþykktar ýmsar tillögur m.a. f friðunar- málum, en þeim hlýtur í framtfð- inni að verða mestur gaumur gef- inn af fiskveiðiþjóð eins og ts- lendingar eru. Aðalfundurinn skorar á stjórn L.t.U. að hún beiti sér fyrir því við sjávarútvegsráðuneytið og Hafrannsóknastofnun íslands, að á þeirri vertíð, sem nú fer í hönd, verði aukin friðlýst svæði um- hverfis landið til hrygningar svo sem gjört hefir verið við innan- verðan Breiðafjörð. Þá vill Ut- vegsmannafélagið ítreka fyrri samþykktir sínar um að friðlýst verði svæði í Faxaflóa innan línu sem hugsast dregin frá Þormóðs- skeri í Hellnanes. Þá skoraði aðal- fundurinn á stjórn L.t.U. að beita sér fyrir þvi, að orlofslögunum verði breytt þannig, að orlofsfé megi greiða beint til launþega, eða að greiðslufyrirkomulag verði á annan hátt en nú tíðkast, enda hafi það reynzt illa. Þá var lýst yfir stuðningi við stjórnarvöld landsins um að færa út landhelgi íslands í 200 mílur. Vmsar aðrar ályktanir voru gerðar. Stjórn félagsins skipa nú Guð- mundur Runólfsson, Grundar- firði, Víglundur Jónsson, Ölafs- vík, Hörður Sigurvinsson, Ölafs- vík, Sævar Friðþjófsson, Rifi, og Arni Helgason, Stykkishólmi. Fréttaritari Annað bindi Vísna- safnsins er komið út NÝLEGA hefur bókaútgáfan Ið- unn sent frá sér annað bindi Vísnasafnsins, en fyrsta bindi þess kom út í fyrra og hlaut það góðar undirtektir, að ákveðið hefur verið að halda útgáfunni áfram. Visunum í báðum bindum Vísnasafnsins hefur Sigurður Jónsson frá Haukagili safnað, en hann hefur safnað lausavísum um langt skeið af mikilli elju, og er safn hans orðið firnamikið að vöxtum. A árunum 1959—1970 flutti Sigurður vísnaþætti í út- varp og auðgaðist safn Sigurðar þá að margri aðsendri vísu. Vísurnar í þessum bókum eru að langmestu leyti teknar upp úr þessum útvarpsþáttum. í þessu öðru bindi Vísnasafns- ins eru yfir 700 vísur eftir nokkuð á þriðja hundrað höfunda. Foreldravandamálið, ný skáld- saga eftir Þorstein Antonsson KOMIN er út ný skáldsaga eftir Þorstein Antonsson, sem nefnist Foreldravandamálið. Er þetta þriðja skáldsaga höfundar. Um söguna segir m.a. i fréttatil- kynningu frá útgáfunni, sem er Iðunn: „Foreldravandamálið er saga ungs manns, sem uppgötvar með óþægilegum hætti sannleikann um uppruna sinn — og sjálfan sig. Sögumaðurinn Teitur er ný- stúdent af efnuðu fólki kominn, framtíðin virðist blasa við honum. En flókin keðja atburða sviptir upploginni öryggishulunni af lífi hans. Leið hans til sannleikans er torsótt og liggur um refilstigu lífslygi og spillingar. Þetta er bók, sem kryfur sálar- ástand nútímaunglingsins og sið- ferðilega rotnun eldri kynslóðar- innar af dirfsku og vægðarleysi.“ Vilja sljórnmálasamband við Albaníu Á FUNDI, sem Menningartengsl Albaníu og íslands héldu í tilefni 30 ára afmælis albanska alþýðu- lýðveldisins, var samþykkt eftir- farandi áskorun til ríkisstjórnar Islands: „Fundur á vegum Menningar- tengsla Albaníu og íslands, hald- inn 30. 11. 74 skorar á ríkis- stjórn Islands að taka þegar í stað upp stjórnmálasamband við Al- þýðulýðveldið Albaníu. Alþýðulýðveldið Albanía er eitt af minnstu ríkjum Evrópu og hið eina sem Island hefur ekki stjórn- málasamskipti við. Að auki hefur það sýnt sig, að Albanía hefur verið rikja ötulast við að styðja baráttu þjóða og smærri ríkja gegn hvers kyns erlendri ásælni. Engin rök mæla gegn því, að is- land og Albanía hafi eðlileg milli- ríkjasamskipti.“ Ný nefnd Samgönguráðuneytið hefur skipað nefnd til þess að athuga og gera tillögur um úrbætur á vanda þeirra aðila, sem stunda veitinga- og gistihúsarekstur að vetrarlagi JRorgnnblabUt nUGIVSinGRR «^-■»22480 utan mestu þéttbýlissvæða landsins. Skal nefndin m.a. taka til athugunar rekstarafkomu og rekstrarfjárþörf þessara þjón- ustuaðila yfir vetrarmánuðina, ásamt leit að leiðum til bættrar afkomu, enn fremur tillögur um aðstoó hins opinbera, ef þess er þörf, og samræmingu slíkrar að- stoðar. 1 nefndinni eru Páll Pétursson, alþingismaður, sem jafnframt er formaður hannar; Kjartan Lárus- son, viðskiptafræðingur; Lárus Ottesen, framkvæmdastjóri; Sig- tryggur Albertsson, hótelstjóri og Tómas Sveinsson,' viðskiptafræð- ingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.