Morgunblaðið - 08.12.1974, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.12.1974, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1974 11 Ódýrar, skemmtilegar og f róðlegar bækur FAÐIR MINN An Faðir minn — Læknirinn Bjarni Jensson — Skúli Árnason — Sígurður Magnússon — Guðmundur Hannesson — Ólafur Finsen — Ólafur Thorlacius — Ingólfur Gíslason — Þórður Sveinsson — Matthías Einarsson — Ólafur Ó. Lárusson — Guðmundur Thoroddsen — Helgi Tómasson — Har- aldur Jónsson — Gisli Pálsson. — Lesið þessa skemmti- legu læknabók Þeir urðu margir þjóðsagnapersónur þegar í lifanda lífi, þessir læknar. RAGNHEIÐUR BRYN j ó L F S D óTT I R | FRA MIÐILSSAMBANOI GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR Ragnheiður Brynjólfsdóttir II. bindi Frá miðilssambandi Guðrúnar Sigurðardóttur frá Akureyri Bókin um Ragnheiði Brynjólfsdóttur varð metsólubók síðasta árs þrátt fyrir óvenjulegt og ósmekklegt níð ákveðins ritdómara. Síðara bindið er að allra dómi enn skemmtilegra en hið fyrra og sala þess stefnir beint á tindinn. — Hefur þú eignast slðara bindið af Ragnheiði? Ef ekki, þá frestaðu ekki að kaupa þessa óvenjulegu bók, hún gæti hæglega selst upp fyrir jólin. Jakobína Sigurðardóttir: Lifandi vatnið Skáldsagan, sem mun verða talin skáldsaga ársins 1974. Gnæfandi tindur á skáldskaparferli höfundarins, bók, sem enginn unnandi íslenzks skáldskapar getur látið fram hjá sér fara ólesna. — Svona er hægt að skrifa ef maður kann til þess. J.AKOBlNA SIGURDARDOTTIR X.XX'JtJMDX VATIVIÐ — ■VALGEíR SIGURf)SSON Valgeir Sigurðsson: Ef liðsinnt ég gæti Fimmtán viðtöl við landskunna menn og aðra minna þekkta. „Stundum leitaði ég eftir æviatriðum manna og lýsingu á horfinni tið. . . Sumir ræddu um tómstunda vinnu sína og hugðarefni, aðrir töluðu um vandamál og viðfangsefni liðandi stundar. Hér er jafnvel sagt frá vísindalegri starfsemi", segir hofundurinn í formála. — Þessi bók eykur víðsýni og skilning, hún er stórfróðleg og skemmtileg. Elínborg Lárusdóttir: Leit mín að framlífi Fjölþættar frásagnir af dulrænni reynslu höfundarins, sýnum hennar og dulheyrn. Hér segir einnig frá óvenju- legri reynslu hennar á sérstæðum miðilsfundum, fágætri trúarvissu og staðfastri sannfæringu um fagurt framlíf að jarðvist lokinni Þetta er fögur bók og einlæg frásögn mikillar trúkonu Ragnar Ásgeirsson: LEITMIN Afl. FRAMLIH ELÍNBORG LARUSDOTTIR Skrudda I—III fentöba Nú er lokabindið af Skruddu komið, fjölbreytt að efni og skemmtilegt. Skrudda geymir sögur, sagnir og kveðskap úr öllum sýslum landsins, skráðar á fögru máli, þv! Ragnar var smekkmaður á íslenzkt mál, sjófróður og skemmtilegur sögumaður. í þessu bindi er bókarauki: bernskuminningar Ragnars vestan af Mýrum, sýnishorn af Ijóðabréfum hans og lausavísum og ritgerð um Ragnar eftir Guðmund Jósafatsson frá Brandsstöðum. auk ftar- legrar nafnaskrár yfir öll bindin. Úlfar Þormóðsson: Ákæran. Sóknarnefndin gegn séra Páli „Ákæran getur minnt á Kristnihald undir Jökli: biskup f Reykjavfk, prestur f þorpi úti á landi. Frásagnaraðferðin er hins vegar nær Gunnari og Kjartani Vésteins Lúðvfks- sonar..." — Erlendur Jónsson f Morgunblaðinu. — Þessi bók vekur umtal og kann jafnvel að hneyksla suma. Eruð þér á bandi prestsins eða sóknarnefndarinnar? Sigvaldi Hjálmarsson. ÚLFAR ÞORMÓDSSON ÁKÆRAN SÓKNARNEFNDIN GEGN , SÉRA / PÁU Oscar Ciausen: Sögn og saga III I þessu lokabindi þessa sagnaflokks segir m.a. frá hestum höfundarins, en hann var mikill hestamaður og hestaunn- andi og hafði samband við marga með sömu áhugamál. Auk þess eru hér ýmsir aðrir fróðlegir og skemmtilegir þættir víðsvegar að af landinu. — Bók hestamanna og þeirra, sem þjóðlegum fróðleik unna - Osear Ckmsen ! flíllttll MMI » \ «iun st uimfm fni lanfl andMaHnaiuw. IMíUmií og icvintýniU* rrtedm'. ian undia- hcinw, furflur og UvndanUraa. SKUGGSJÁ Tunglskin í trjánum Enginn íslendingur þekkir Indland og Indverja eins og Sigvaldi, sem hefur ferðast um landið þvert og endilangt, rölt um þorp og byggðir, rætt við krakka og karla, helga menn og vitringa, hlýtt á skarkala stórborgarlífsins og gefið sig þögninni á vald með hinum þöglu. Þetta er heillandi ferðabók, sem opnar sýn inn í töfrandi undra- heim. IINGÖLFUR JÓNSSON FRÁ PRtSTSB AKK A Ingólfur Jónsson frá Prestsbakka: Þjóðlegar sagnir Hér kveður við nýjan tón í sagnasöfnun, margar sögurnar eru sérstæðar og óvenjulegar og sumar meinfyndnar. Höfundur hefur vfða leitað fanga, mest þó meðal alþýðu- fólks, en helztu sögumenn hans eru Steinunn Guðmunds- dóttir á Stóru-Hvalsá f Hrútafirði, Ingibjörg Guðmunds- dóttir á Efri-Brunná í Dalasýslu og Jón Guðlaugsson á Vopnafirði. Peter Freuchen: Æskuár mín á Grænlandi Ný og vönduð þýðing Andrésar Kristjánssonar fyrrum ritstjóra. Þessar Grænlandsminningar Freuchens eru meðal skemmtilegustu ferðaminninga, sem skráðar hafa verið. Þeir, sem ekki hafa kynnst frásagnarsnilld hans og sérstæðri og djarfri kfmnigáfu og eiga þessa bók ólesna, eru öfundsverðir, þvf bókin er f einu orði sagt: óviðjafnan- leg. Jón Gíslason: Úr farvegi aldanna II Hér er sagt frá fyrirhleðslunni miklu á Brúnastaðaflötum og koma þar margir merkir og stórhuga menn við sögu, en hæst ber nafn Gisla búfræðings Gíslasonar frá Bitru, sem gerði áætlun um verkið og stjórnaði því. Sagt er frá byggingu Þjórsárbrúarinnar, gagnmerkum áfanga i sam- göngumálum þjóðarinnar. þáttur er um loðnusilunginn í Ulfsvatni og annar um kálfinn í Gegnishólum og eru þeir báðir sérstæðir og furðulegir. Loks er frásögn af spá- dómsgáfu fugla og eggjasofnun l6» 6ÍSLASQN # TJR BTA-R'VBJG-I •A.Tl.ID.AJtSrKr.A. AST OC 'i- '.>LV ATTARBOND Theresa Charles: Ást og ættarbönd Roberta var orðin liðlega tvítug þegar Maynie sagði henni soguna af ógnum Kelpiesloch og þvi, hvernig hún rændi henni sem ungu barni og hratt barnavagm hennar út i vatnið. Hún var að hefna sin á gamla jarlinum og konunni, sem hafði náð eiginmanni hennar frá henni. En yrði sögu Robertu trúað, þegar hún kom sem væntan- legur erfingi, eða gat hún átt von á að verða næsta fórnarlamb vatnsins? — Æsispennandi ástarsaga. FARSÆLDAR RÍKIÐOG IVIANNGI LI)IS STEFNAN Kristjan Frióriksson Krístján Friðriksson: Farsældarríkið og manngildisstefnan Karl Kristjánsson fyrrum alþingismaður segir um bókina: „Tillögur hans eru grundvallaðar á þeirri llfsskoðun, að hver maður hafi skyldur að ynna eftir því, sem hann hefur getu til frá skapara sfnum, en eigi jafnframt heimtingu á að njóta réttlætis, mildi og mannhelgi. Bókin er höfundi til mikils sóma. Manndómlegt framlag mikils Iffsáhuga- manns. ." — Þetta er bók fyrir áhugamenn um félagsmál og pólitfk. Þeir verða e.t.v. ekki sammála Kristjáni, en þeir verða að lesa bókina. Barbara Cartland: Týndir töfrar í skóginum hjá sveitarsetri sínu hittir Alton lávarður unga konu. Hún er fögur og leyndardómsfull og neitarað skýra f rá hver hún er. En þegar hún trúir honum fyrir þvf að hún sé skyggn, biður hann hana að Ifta inn f framtfðina fyrir sig. Hún segir honum að kona muni leggja fyrir hann snöru, að hann eigi að leita að persónu, sem hann finni ekki og að framundan sé myrkur og blóð, — mikið blóð. . . — Saga full af leyndardómum og spennu. Gfirrland Tuixáir löfrar ísiendinga sögur með nútíma stafsetningu Nú eru allar íslendinga sögur og þættir komnar út í 8 bindum á því máli, sem við ritum og tölum í dag. Er þetta eina heildarútgáfa sagnanna á nútímamáli og geta því allir íslendingar, jafnt ungir sem aldnir, notið sagnanna til fulls ...ritháttur skiptir í raun og veru máli — það fer ekki hjá þvi að hinn gamli, samræmdi ritháttur var fráhrind- andi að ýmsu leyti, ekki sizt ungu fólki", segir Árni Bergmann i ritdómi. 'íSI-MNZKAR FORNSOUUR Skuggsjá — Bókabúð Olivers Steins —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.