Morgunblaðið - 08.12.1974, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1974
11
Ódýrar, skemmtilegar og f róðlegar bækur
FAÐIR MINN
An
Faðir minn — Læknirinn
Bjarni Jensson — Skúli Árnason — Sígurður
Magnússon — Guðmundur Hannesson — Ólafur Finsen
— Ólafur Thorlacius — Ingólfur Gíslason — Þórður
Sveinsson — Matthías Einarsson — Ólafur Ó. Lárusson
— Guðmundur Thoroddsen — Helgi Tómasson — Har-
aldur Jónsson — Gisli Pálsson. — Lesið þessa skemmti-
legu læknabók Þeir urðu margir þjóðsagnapersónur
þegar í lifanda lífi, þessir læknar.
RAGNHEIÐUR
BRYN j ó L F S D óTT I R |
FRA MIÐILSSAMBANOI
GUÐRÚNAR
SIGURÐARDÓTTUR
Ragnheiður
Brynjólfsdóttir II. bindi
Frá miðilssambandi
Guðrúnar Sigurðardóttur frá Akureyri
Bókin um Ragnheiði Brynjólfsdóttur varð metsólubók
síðasta árs þrátt fyrir óvenjulegt og ósmekklegt níð
ákveðins ritdómara. Síðara bindið er að allra dómi enn
skemmtilegra en hið fyrra og sala þess stefnir beint á
tindinn. — Hefur þú eignast slðara bindið af Ragnheiði?
Ef ekki, þá frestaðu ekki að kaupa þessa óvenjulegu bók,
hún gæti hæglega selst upp fyrir jólin.
Jakobína Sigurðardóttir:
Lifandi vatnið
Skáldsagan, sem mun verða talin skáldsaga ársins 1974.
Gnæfandi tindur á skáldskaparferli höfundarins, bók,
sem enginn unnandi íslenzks skáldskapar getur látið fram
hjá sér fara ólesna. — Svona er hægt að skrifa ef maður
kann til þess.
J.AKOBlNA
SIGURDARDOTTIR
X.XX'JtJMDX
VATIVIÐ —
■VALGEíR SIGURf)SSON
Valgeir Sigurðsson:
Ef liðsinnt ég gæti
Fimmtán viðtöl við landskunna menn og aðra minna
þekkta. „Stundum leitaði ég eftir æviatriðum manna og
lýsingu á horfinni tið. . . Sumir ræddu um tómstunda
vinnu sína og hugðarefni, aðrir töluðu um vandamál og
viðfangsefni liðandi stundar. Hér er jafnvel sagt frá
vísindalegri starfsemi", segir hofundurinn í formála. —
Þessi bók eykur víðsýni og skilning, hún er stórfróðleg og
skemmtileg.
Elínborg Lárusdóttir:
Leit mín að framlífi
Fjölþættar frásagnir af dulrænni reynslu höfundarins,
sýnum hennar og dulheyrn. Hér segir einnig frá óvenju-
legri reynslu hennar á sérstæðum miðilsfundum, fágætri
trúarvissu og staðfastri sannfæringu um fagurt framlíf að
jarðvist lokinni Þetta er fögur bók og einlæg frásögn
mikillar trúkonu
Ragnar Ásgeirsson:
LEITMIN
Afl.
FRAMLIH
ELÍNBORG
LARUSDOTTIR
Skrudda I—III
fentöba
Nú er lokabindið af Skruddu komið, fjölbreytt að efni og
skemmtilegt. Skrudda geymir sögur, sagnir og kveðskap
úr öllum sýslum landsins, skráðar á fögru máli, þv!
Ragnar var smekkmaður á íslenzkt mál, sjófróður og
skemmtilegur sögumaður. í þessu bindi er bókarauki:
bernskuminningar Ragnars vestan af Mýrum, sýnishorn
af Ijóðabréfum hans og lausavísum og ritgerð um Ragnar
eftir Guðmund Jósafatsson frá Brandsstöðum. auk ftar-
legrar nafnaskrár yfir öll bindin.
Úlfar Þormóðsson:
Ákæran. Sóknarnefndin
gegn séra Páli
„Ákæran getur minnt á Kristnihald undir Jökli: biskup f
Reykjavfk, prestur f þorpi úti á landi. Frásagnaraðferðin
er hins vegar nær Gunnari og Kjartani Vésteins Lúðvfks-
sonar..." — Erlendur Jónsson f Morgunblaðinu. —
Þessi bók vekur umtal og kann jafnvel að hneyksla suma.
Eruð þér á bandi prestsins eða sóknarnefndarinnar?
Sigvaldi Hjálmarsson.
ÚLFAR
ÞORMÓDSSON
ÁKÆRAN
SÓKNARNEFNDIN
GEGN
, SÉRA
/ PÁU
Oscar Ciausen:
Sögn og saga III
I þessu lokabindi þessa sagnaflokks segir m.a. frá hestum
höfundarins, en hann var mikill hestamaður og hestaunn-
andi og hafði samband við marga með sömu áhugamál.
Auk þess eru hér ýmsir aðrir fróðlegir og skemmtilegir
þættir víðsvegar að af landinu. — Bók hestamanna og
þeirra, sem þjóðlegum fróðleik unna
- Osear Ckmsen
! flíllttll MMI »
\ «iun st uimfm
fni lanfl andMaHnaiuw. IMíUmií
og icvintýniU* rrtedm'. ian undia-
hcinw, furflur og UvndanUraa.
SKUGGSJÁ
Tunglskin í trjánum
Enginn íslendingur þekkir Indland og Indverja eins og
Sigvaldi, sem hefur ferðast um landið þvert og endilangt,
rölt um þorp og byggðir, rætt við krakka og karla, helga
menn og vitringa, hlýtt á skarkala stórborgarlífsins og
gefið sig þögninni á vald með hinum þöglu. Þetta er
heillandi ferðabók, sem opnar sýn inn í töfrandi undra-
heim.
IINGÖLFUR JÓNSSON
FRÁ PRtSTSB AKK A
Ingólfur Jónsson frá Prestsbakka:
Þjóðlegar sagnir
Hér kveður við nýjan tón í sagnasöfnun, margar sögurnar
eru sérstæðar og óvenjulegar og sumar meinfyndnar.
Höfundur hefur vfða leitað fanga, mest þó meðal alþýðu-
fólks, en helztu sögumenn hans eru Steinunn Guðmunds-
dóttir á Stóru-Hvalsá f Hrútafirði, Ingibjörg Guðmunds-
dóttir á Efri-Brunná í Dalasýslu og Jón Guðlaugsson á
Vopnafirði.
Peter Freuchen:
Æskuár mín á Grænlandi
Ný og vönduð þýðing Andrésar Kristjánssonar fyrrum
ritstjóra. Þessar Grænlandsminningar Freuchens eru
meðal skemmtilegustu ferðaminninga, sem skráðar hafa
verið. Þeir, sem ekki hafa kynnst frásagnarsnilld hans og
sérstæðri og djarfri kfmnigáfu og eiga þessa bók ólesna,
eru öfundsverðir, þvf bókin er f einu orði sagt: óviðjafnan-
leg.
Jón Gíslason:
Úr farvegi aldanna II
Hér er sagt frá fyrirhleðslunni miklu á Brúnastaðaflötum
og koma þar margir merkir og stórhuga menn við sögu,
en hæst ber nafn Gisla búfræðings Gíslasonar frá Bitru,
sem gerði áætlun um verkið og stjórnaði því. Sagt er frá
byggingu Þjórsárbrúarinnar, gagnmerkum áfanga i sam-
göngumálum þjóðarinnar. þáttur er um loðnusilunginn í
Ulfsvatni og annar um kálfinn í Gegnishólum og eru þeir
báðir sérstæðir og furðulegir. Loks er frásögn af spá-
dómsgáfu fugla og eggjasofnun
l6» 6ÍSLASQN # TJR
BTA-R'VBJG-I
•A.Tl.ID.AJtSrKr.A.
AST OC 'i- '.>LV
ATTARBOND
Theresa Charles:
Ást og ættarbönd
Roberta var orðin liðlega tvítug þegar Maynie sagði
henni soguna af ógnum Kelpiesloch og þvi, hvernig hún
rændi henni sem ungu barni og hratt barnavagm hennar
út i vatnið. Hún var að hefna sin á gamla jarlinum og
konunni, sem hafði náð eiginmanni hennar frá henni. En
yrði sögu Robertu trúað, þegar hún kom sem væntan-
legur erfingi, eða gat hún átt von á að verða næsta
fórnarlamb vatnsins? — Æsispennandi ástarsaga.
FARSÆLDAR
RÍKIÐOG
IVIANNGI LI)IS
STEFNAN
Kristjan Frióriksson
Krístján Friðriksson:
Farsældarríkið og
manngildisstefnan
Karl Kristjánsson fyrrum alþingismaður segir um bókina:
„Tillögur hans eru grundvallaðar á þeirri llfsskoðun, að
hver maður hafi skyldur að ynna eftir því, sem hann hefur
getu til frá skapara sfnum, en eigi jafnframt heimtingu á
að njóta réttlætis, mildi og mannhelgi. Bókin er höfundi
til mikils sóma. Manndómlegt framlag mikils Iffsáhuga-
manns. ." — Þetta er bók fyrir áhugamenn um félagsmál
og pólitfk. Þeir verða e.t.v. ekki sammála Kristjáni, en
þeir verða að lesa bókina.
Barbara Cartland:
Týndir töfrar
í skóginum hjá sveitarsetri sínu hittir Alton lávarður unga
konu. Hún er fögur og leyndardómsfull og neitarað skýra
f rá hver hún er. En þegar hún trúir honum fyrir þvf að hún
sé skyggn, biður hann hana að Ifta inn f framtfðina fyrir
sig. Hún segir honum að kona muni leggja fyrir hann
snöru, að hann eigi að leita að persónu, sem hann finni
ekki og að framundan sé myrkur og blóð, — mikið
blóð. . . — Saga full af leyndardómum og spennu.
Gfirrland
Tuixáir
löfrar
ísiendinga sögur
með nútíma stafsetningu
Nú eru allar íslendinga sögur og þættir komnar út í 8
bindum á því máli, sem við ritum og tölum í dag. Er þetta
eina heildarútgáfa sagnanna á nútímamáli og geta því
allir íslendingar, jafnt ungir sem aldnir, notið sagnanna
til fulls
...ritháttur skiptir í raun og veru máli — það fer ekki
hjá þvi að hinn gamli, samræmdi ritháttur var fráhrind-
andi að ýmsu leyti, ekki sizt ungu fólki", segir Árni
Bergmann i ritdómi.
'íSI-MNZKAR FORNSOUUR
Skuggsjá — Bókabúð Olivers Steins —