Morgunblaðið - 22.01.1975, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANUAR 1975
Arni Brynjólfsson:
Rafverkframkvæmdir
r
í
Neskaupstað
ÓLAFUR Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað óskar eftir nánari
rökstuðningi á frétt, sem Morgun-
blaðið birti laugardaginn 18. þ.m.
varðandi rafverkframkvæmdir í
Neskaupstað.
Þann rökstuðning skal Ólafur
Gunnarsson fá.
Það sem um ræðir er ekki ein-
göngu spurningin um það hve
mörgum eða hvort hægt er að
bæta við rafvirkjum í Neskaup-
stað, aðalatriðið er hvort ráða eigi
fyrirtæki úr Reykjavík til Neskaup-
staðar til þess að annast fram-
kvæmdir þar eða að rafverktaka-
fyrirtæki i Neskaupstað annist þar
rafverk og ráði til sín rafvirkja
þegar þörf krefur.
Í því tilfelli sem hér um ræðir
hefur Ólafur Gunnarsson, að eigin
sögn, ráðið framleiðslu-
samvinnufélagið Rafafl frá
Reykjavik til að taka að sér raf-
verk i Neskaupstað undir forystu
varaþingmanns Alþýðubandalags-
ins, en þetta fyrirtæki, fjórir
menn, klauf sig á siðasta ári út úr
framleiðslusamvinnufélaginu
Samvirki.
Vera má, að hér sé aðeins um
tilviljun að ræða, að þetta fyrir-
tæki skyldi vera valið, þvi nú eru í
Reykjavik um eða yfir 100 raf-
verktakafyrirtæki af ýmsum
stærðum sem til greina gátu kom-
ið. Afskipti Landssambands
islenzkra rafverktaka af þessu
máli byggjast á þvi. að i samband-
inu eru 7 rafverktakafélög i öllum
landsfjórðungum þar á meðal eitt
á Austurlandi. Hlutverk sam-
bandsins er að aðstoða sambands-
félögin og einstaklinga innan
þeirra varðandi flest það er starf-
semi þeirra við kemur og ekki sizt
þegar upp koma vandamál er
skapast af fámenni i hinum
dreifðu byggðum landsins.
Þeirri stefnu hefur ávallt verið
fylgt af forystumönnum L.Í.R.. að
heimamenn sitji sem mest að
þeirri vinnu sem til fellur, hvort
sem um litil eða stór verk er að
ræða, þar eð slík tilhögun er for-
senda þess, að hægt sé að byggja
upp og reka rafverktakafyrirtæki á
fámennum stöðum, en tilvera
slikra þjónustufyrirtækja er nauð-
synleg, ekki sízt vegna vaxandi
athafnalifs og tilkomu stórvirkra
atvinnutækja, sem þurfa á slikri
þjónustu að halda.
Utanaðkomandi aðilar hafa
aldrei sótzt eftir daglegri þjónustu
úti á landi, hvorki fyrir fyrirtæki
né einstaklinga, þau störf fá
heimamenn yfirleitt að annast án
utanaðkomandi afskipta, enda
viða erfitt að reka slíka starfsemi
vegna fámennis og fábreytts
athafnalifs.
Auk þess geta rafverktakafyrir-
tæki á landsbyggðinni ekki tekið
að sér verk i þéttbýlinu, t.d. i
Reykjavik. til uppfyllingar þegar
minna er að gera.
Komi aftur á móti stærri verk til
sögunnar, sem vinna þarf á tiltölu-
lega skömmum tima t.d. nýtt
frystihús eða verksmiðja. vaknar
áhugi utanaðkomandi aðila og
jafnvel þeir heimamenn sem ráða
framkvæmdum á staðnum, eru oft
svo ákafir að fá verkin fram-
kvæmd. að þeir gleyma sameigin-
legum hagsmunum byggðarlags-
ins og fá utanaðkomandi fyrirtæki
til að annast ýmsa þætti fram-
kvæmdanna.
Sé þessi háttur á hafður kemur
aðkomufyrirtækið með menn og
framkvæmir verkið eða a.m.k.
þann meginhluta þess. sem hægt
er að Ijúka i einum áfanga. Heima
menn fá þegar bezt lætur að vinna
með i verkinu, en verða svo að
ganga frá þvi sem ógert er þegar
hinir fara og auðvitað þurfa þeir
að tryggja áframhaldandi þjón-
ustu, sem aðkomufyrirtækið kærir
sig ekki um og hefur e.t.v. afsök-
un vegna fjarlægðar.
Það þarf ekki mikla spekinga til
að sjá hvaða áhrif þetta hefur á
heimamenn og starfsemi þeirra, til
þess þarf engin byggðastefnu-
sjónarmið.
Þessi tilhögun hefur auðmýkj-
andi áhrif á heimamenn. vegna
þess vantrausts, sem þeim er sýnt
þegar þeim er ekki trúað fyrir að
standa fyrir meiriháttar verkfram-
kvæmdum, sem þeir þó eru flest-
um færari að annast vegna þekk-
ingar á staðháttum, auk þess sem
þeir verða færari að þjóna fyrir-
tækinu eftir að hafa byggt það
upp. Fái þeir ekki þessi verk,
missa þeir einnig af kærkomnu
tækifæri til að byggja upp fyrir-
tæki sin, sem stór verkframkvæmd
hlýtur að stuðla að.
Sé heimamönnum aftur á móti
fatin verkframkvæmdin og þeir
mannfáir, ráða þeir til sín menn,
fyrst úr nærsveitum og siðan
lengra að ef með þarf. Sá háttur er
hafður á þar sem ráðamenn hafa
haft skilning á þvi að öllum. sem á
svæðinu búa, er fengur að verk-
framkvæmdum sem staðarfyrir-
tæki njóta, en skaði að þvi að
utanaðkomandi aðilar hremmi það
álitlegasta sem á fjörur fámennra
staða rekur.
Sem samlikingu má taka fiski-
mjölsverksmiðju, sem héldi starf-
semi sinni gangandi með þvi að
bræða fiskúrgang sem til félli á
staðnum, en þegar aflahrota
kæmi, t.d. loðna, væri henni land-
að annars staðar.
Þegar staðfestar fregnir bárust
af þvi, að starfsmenn Rafafls voru
komnir til Neskaupstaðar og að
vera þeirra á staðnum hafði þau
áhrif, að rafverktakar á staðnum
komu sínum mönnum ekki að,
þótt þá skorti verkefni, var tilefni
til að L.Í.R. blandaði sér i málið og
kannaði, hvort ekki mætti ráða á
þessu bót.
Tilefnislaust virtist að fá fyrir-
tæki úr Reykjavik til að annast
rafverk á Neskaupstað þar sem á
staðnum eru þrjú rafverktakafyrir-
tæki. sem auðveldlega geta séð
um þau verkefni sem framundan
eru, sérstaklega þegar þau eiga
þess kost að ráða til sin rafvirkja
ef með þarf, jafnvel á Austurlandi,
þótt það hafi ekki enn verið fylli-
lega kannað.
Þegar svona var komið átti
undirritaður samtal við Ólaf
Gunnarsson, framkvæmdastjóra,
þar eð talið var að um mistök hlyti
að vera að ræða, einkum vegna
þess að verkframkvæmdir eru i
höndum sértakrar nefndar heima-
manna á Neskaupstað, en ekki
aðila i Reykjavik, sem e.t.v.
treystu ekki fyrirtækjum á staðn-
um til framkvæmda.
Ólafur kvaðst hafa ráðið Rafafl
til verksins i fullu samráði við
heimamenn og virtist honum
koma það mjög á óvart, að við
þetta væri eitthvað að athuga, en
lofaði þó að kanna málið nánar, án
þess þó að um það væri rætt, að
undirritaður hefði samband við
hann síðar. Á þvi átti ekki að vera
þörf, þvi að óreyndu var ekki
ástæða til að ætla, að Ólafur vildi
ekki heimamönnum vel og veg
þeirra sem mestan.
Auðvitað sagði Ólafur það ekki
satt, að hann hefði haft samráð
við heimamenn um ráðningu
Reykjavikurfyrirtækisins. á því
hefur fengizt staðfesting, enda
hefðu heimamenn þá gert honum
grein fyrir högum sinum og bent
honum á, að þessar framkvæmdir
gætu þeir annazt sjálfir án utanað-
komandi fyrirtækja. enda höfðu
þeim borizt fyrirspurnir frá raf-
virkjum sem óskuðu að ráðast til
þeirra i vinnu, en þeir orðið að
afþakka.
Staðreyndin er þvi sú, að Ólafur
Gunnarsson og þeir sem með hon-
um ráða. hafa af einhverjum
ástæðum látið sér annara um raf-
verktakafyrirtæki sunnan úr
Reykjavik, en fyrirtæki þeirra raf-
verktaka sem heimilisfastir eru i
Neskaupstað.
Þetta er mergurinn málsins og
þessa málsmeðferð leyfi ég mér
að gagnrýna og sú gagnrýni nýtur
öflugs stuðnings Landssambands
íslenzkra rafverktaka.
Sem svar við þeirri gagnrýni
þýðir ekki fyrir Ólaf Gunnarsson
að lýsa yfir, að nóg vinna sé fyrir
rafvirkja á Neskaupstað, um það
er alls ekki deilt, enda varla um
svo stórt verkefni að ræða fyrst
um sinn, að ekki þrengi að heima-
mönnum ef áfram verður haldið
að flytja inn fyrirtæki frá höfuð-
staðnum.
Deilt er um hvort rafverktaka-
fyrirtækin í Neskaupstað séu fær
um að annast þá vinnu sem hér
ræðir um og við erum þeirrar
skoðunar að svo sé, en ráðamenn
á staðnum virðast ekki vera sömu
skoðunar.
Rvík 20. jan. '75.
Árni Brynjólfsson.
Sjómenn vantar
Vana sjómenn vantar á netabáta frá Vest-
mannaeyjum. Upplýsingar í síma 1874
Vestmannaeyjum.
Skrifstofustörf
Hafnarfjörður
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða stúlkur til
skrifstofustarfa á bæjarskrifstofunum.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og
fyrri störf sendist undirrituðum fyrir 28.
janúar n.k.
Bæjarritari.
Ungur
viðskiptamaður
með góð sambönd og mikla reynslu vill
taka að sér sjálfstæða sölu- og kynningar-
starfsemi úti á landi fyrir þjónustufyrir-
tæki Samskonar starfsemi einnig hugsan-
leg fyrir iðnfyrirtæki og innflytjendur, ef
um góða vöru er að ræða.
Um fjármagnsfyrirgreiðslu getur verið að
ræða. Lysthafendur vinsamlega sendi
svör sín til afgr. Mbl. merkt: „Viðskipti —
7124”. Um öll svör verður fjallað sem
trúnaðarmál.
Þjálfari
Ungmennafélagið Austri, Eskifirði óskar
eftir að ráða þjálfara í knattspyrnu- og
handknattleik næsta sumar.
Góð aðstaða til iðkunnar íþrótta á staðn-
um.
Umsóknir skulu sendast Ungmennafélag-
inu Austri, Eskifirði.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur
Gíslason í síma 97-61 71.
Afgreiðslustarf
Afgreiðslufólk óskast í tízkuverzlun strax. Vant fólk gengur
fyrir. Aldur 20—30 ára. Tilboð með uppl. um aldur og
fyrri störf sendist Mbl. merkt: Strax 7347.
Afgreiðslustarf
Viljum ráða nú þegar stúlku til afgreiðslu-
starfa í kjörbúð okkar, að Austurvegi 65,
Selfossi.
Kaupfélag Árnesinga.
Stúlka óskar
eftir vinnu
Vön afgreiðslu í skartgripaverzlun. Getur
byrjað i apríl. Tilboð sendist afgr. Mbl.
sem fyrst merkt: Afgreiðsla — 7343".
Skrifstofumaður
Iðnfyrirtæki óskar eftir skrifstofumanni
strax til gjaldkera- og bókhaldsstarfa.
Tilboðum með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf og hvenær
umsækjandi gæti byrjað sendist Mbl.
merkt: „STRAX — 7445".
Framkvæmdastjóra
vantar við stórt flutningafyrirtæki í
Reykjavík sem flytur vörur út á land.
'Jpplýsingar gefnar í síma 16035 eða á
herbergi nr. 617, Hótel Esju eftir kl. 18.
Atvinna
Ung húsmóðir, sem hefir starfsreynslu í
skrifstofustörfum, auk almennrar vinnu,
óskar eftir starfi frá kl. 9 — 1 2 sem fyrst.
Uppl. í síma 21 71 8 e.h.
19 ára gömul
stúlka
með gott stúdentspróf óskar eftir atvinnu
sem fyrst. Margt kemur til greina.
Upplýsingar í síma 36866 milli 4 og 7 á
daginn.