Morgunblaðið - 25.02.1975, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRUAR 1975
Afnám z úr ritmáli:
w
100 Islendingar senda
ráðherra áskorunarskjal
MORGUNBLAÐINU barst I
gær áskorun til menntamála-
ráðherra, sem honum var af-
hent 20. febrúar sl. Er skorað á
ráðherrann að nema úr gildi
breytinguna á fslenzkri staf-
setningu, sem gerð var haustið
1974, og m.a. afnam z úr opin-
beru ritmáli. Undir áskorunina
rita 100 Islendingar. Hún er
birt hér á eftir:
„Við undirrituð skorum hér
með á yður, herra menntamála-
ráðherra, að nema úr gildi þá
breytingu á íslenzkri stafsetn-
ingu, sem birt var í Stjórnartlð-
indum með „Auglýsingu nr.
132/1974 um íslenska stafsetn-
ingu“.
Höfuðástæður okkar fyrir
þessari áskorun eru sem hér
segir:
í fyrsta lagi teljum við z-
stafsetningu þá, sem gilti á
tfmabilinu 1929—1974, hafa
ýmsa ótvíræða og mikilvæga
kosti umfram hina nýju staf-
setningu, þar sem er meiri
skýrleiki og gleggri vfsbcnding
um uppruna, sem í mörgum til-
vikum léttir skilning og eykur
málþekkingu. Sérstaklega vilj-
um við benda á ókosti þess, að
samkvæmt hinum nýju reglum
falla einatt saman í ritmáli ger-
mynd og miðmynd sömu
sagnar, svo og germynd einnar
sagnar og miðmynd annarrar,
svo að rita skal t.d. hefur leyst,
hvort sem er af leysa eða
leysast, hefur ræst, hvort sem
er af ræsa eða rætast, hefur
þeyst, hvort sem er af þeysa eða
þeytast. Getur þessi ritháttur
valdið misskilningi, ekki sfzt í
stiittu máli, sem þarf að vera
hnitmiðað, svo sem í fyrirsögn-
um blaða, auglýsingum og sjón-
varpstextum. Enn fremur þykir
okkur eftirsjá að því að hætta
að rita z í stofni í orðum eins og
gæzla, tfzka, verzlun vegna
þekkingar á orðsifjum, sem
þeirri stafsetningu fylgir.
I öðru lagi teljum við hinar
nýju reglur um stóran staf og
lítinn stórum óhentugri og
flóknari en fyrri reglur, t.d. að
rita skal oddaverjar með litlum
staf, en Sturlungar með
stórum, hólsf jallamaður með
litlum staf, en Hólsfjallahangi-
kjöt með stórum, bandarfkja-
maður með litlum staf, en
Bandarfkjaforseti með stórum.
í þriðja lagi teljum við, að
valfrelsi um ritun margra orða,
sem hafa löngum verið rituð á
einn veg, sé til þess eins fallið
að valda ruglingi, sem m.a. get-
ur orðið mjög bagalegur í
stafrófsröðun, t.d. að rita skuli
hvort heldur er (ár)niður eða
(ár)nyður, tékki eða tjekki
o.s.frv.
1 fjórða lagi teljum við, að sú
festa í islenzkri stafsetningu,
sem tókst að koma á undan-
farna tæpa hálfa öld, sé til
ómetanlegs hagræðis á mörgum
sviðum, svo sem f bókagerð,
stjórnsýslu, safnstörfum og
kennslu, en breyting að sama
skapi til þess fallin að valda
glundroða og tjóni. Má og ekki
gleyma því, að tveimur kynslóð-
„Staða einstæðra for-
eldra í þjóðfélaginu”
— rædd á fundi á Esju fimmtudagskvöld
framsögumennirnir þrír svara
spurningum gesta. Tekið skal
fram, að nýir félagar eru
velkomnir á fundinn, svo og
styrktarfélagar.
Félag einstæðra foreldra held-
ur félagsfund á Hótel Esju
fimmtudaginn 27. febrúar kl. 21.
Fjallað verður um efnið „staða
einstæðra foreldra I þjóðfélag-
inu“. Framsögu um málið hafa
Guðrún Helgadóttir, deildarstjóri
hjá Tryggingastofnun ríkisins,
Sævar Berg Guðþergsson, yfir-
maður fjölskyldudeildar Félags-
málastofnunar Reykjavfkur, og
Erla Jónsdóttir, fulltrúi hjá Saka-
dómara. Að loknum framsögu-
ræðum verða umræður og munu
í undirbúningi hjá FEF eru síð-
an tvær barnaskemmtanir, sem
verða í Austurbæjarbíói sunnud.
9. marz kl. 13.30 og laugardag 15.
marz kl. 14. Haldnar voru tvær
slíkar skemmtanir um svipað
leyti í fyrra og tókust þær prýði-
lega.
óþéttir gluggar og HurSir verSa asr 100% þéttarmeS
SL0TTSLISTEN
Vorcmleg þétting — þéttum í eitt sldpti fyrir SIL
Ólaíur Kr. Sigurðsson & Co. — Simi
83484, 83499.
r"~ 1—»’ —fl r
| I ( I !!■■■ I FATASKAPAR
1 i WÆmBmm § með fellihurðum.
Hæfa vel hvar sem er.
1 ;í § x'Jmi Smíðum eftir máli.
1 * § q f iltf f | TRÉSMIÐJAN
f » |HE|1 KVISTUR
Kænuvogi 42
1 JHM sími 33177 og 71491
um Islendinga er töm sú staf-
setning, sem kennd hefur verið
undanfarna áratugi, og eiga
margir bágt með að sætta sig
við stafsetningu, sem þeir telja
óskilmerkilegri og óhentugri."
Andrés Björnsson útvarpsstjóri
Ármann Kr. Einarsson rit-
höfundur
Arnbjörn Kristinsson bókaút-
gefandi
Arngrímur ísberg kennari
Árni Þórðarson fv. skólastjóri
Asgeir Magnússon fram-
kvæmdastjóri
Axel Kristjónsson kennari
Baldvin Þ. Kristjánsson félags-
málafulltrúi
Baldvin Tryggvason fram-
kvæmdastjóri
Bjarni Sigbjörnsson mennta-
skólakennari
Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjala-
vörður
Björn Jónsson, forseti Alþýðu-
sambands Islands
Björn Teitsson sagnfræðingur
Egill J. Stardal verzlunarskóla-
kennari
Eiður Guðnason fréttamaður
Einar Sigurðsson háskólabóka-
vörður
Eiríkur Hreinn Finnbogason
borgarbókavörður
Elin Pálmadóttir blaðamaður
Finnbogi Guðmundsson lands-
bókavörður
Finnur Guðmundsson fugla-
fræðingur
Gaukur Jörundsson prófessor
Georg Sigurðsson cand. mag.
Gestur Guðfinnsson blaðamað-
ur
Gestur Magnússon cand. mag.
Gísli Blöndal hagsýslustjóri
Guðlaug Guðsteinsdóttir kenn-
ari
Guðmundur G. Hagalin rit-
höfundur
Guðmundur E. Sigvaldason
jarðfræðingur
Guðni Guðmundsson rektor
Guðrún P. Helgadóttir
skólastjóri
Gunnar Guðröðarson skóla-
stjóri
Gunnar Gunnarsson rit-
höfundur
Gunnar Stefánsson dagskrár-
stjóri
Halldór Kristjánsson frá
Kirkjubóli
Halldór Pálsson búnaðarmála-
stjóri
Hannes Pétursson skáld
Haraldur Ólafsson lektor
Haraldur Sigurðsson bókavörð-
ur
Heimir Þorleifsson mennta-
skólakennari
Helga S. Einarsdóttir kennari
Helgi Hálfdanarson rit-
höfundur
Helgi Skúli Kjartansson stud.
mag.
Helgi Þorláksson skólastjóri
Hjalti Jónasson skólastjóri
Indriði G. Þorsteinsson rit-
höfundur
ívar Björnsson verzlunarskóla-
kennari
Jóhannes Halldórsson cand.
mag.
Jóhannes Nordal seðlabanka-
stjóri
Jón Dan rithöfundur
Jón Gíslason skólastjóri
Jón Rafn Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri
Jón S. Guðmundsson mennta-
skólakennari
Jón Guðnason lektor
Jón B. Hannibalsson skóla-
meistari
Jón Helgason ritstjóri
Jón Aðalsteinn Jónsson orða-
bókarritstjóri
Jón Sigurðsson B.A.
Jón Sigurðsson, forstöðumaður
Þjóðhagsstofnunar
Jón Þórarinsson dagskrárstjóri
Jónas Kristjánsson, forstöðu-
maður Árnastofnunar
Jónas Kristjánsson ritstjóri
Kjartan Jóhannsson verk-
fræðingur
Lúðvík Kristjánsson rit-
höfundur
Lýður Björnsson verzlunar-
skólakennari
Magnús Bjarnfreðsson fulltrúi
Magnús Finnbogason mag. art.
Magnús Guðmundsson mennta-
skólakennari
Magnús Thorlacius hæsta-
réttarlögmaður
Matthías Johannessen ritstjóri
Ólafur Haukur Arnason
áfengisvarnaráðunautur
Ólafur Björnsson prófessor
Ólafur Hansson prófessor
Ólafur Oddsson menntaskóla-
kennari
Olafur M. Ólafsson mennta-
skólakennari
Ólafur Pálmason bókavörður
Ólafur Jóhann Sigurðsson rit-
höfundur
Oliver Steinn Jóhannesson
bókaútgefandi
Páll Líndal borgarlögmaður
Pétur Sæmundsson bankastjóri
Sigfús Daðason ritstjóri
Sigurbjörn Einarsson biskup
Sigurður Líndal prófessor
Sigurður Skúlason mag. art.
Sigurður Þórarinsson jarð-
fræðingur
Símori Jóh. Ágústsson
prófessor
Stefán Sörensson háskólaritari
Steinar Þorfinnsson kennari
Sturla Friðriksson erfða-
fræðingur
Styrmir Gunnarsson ritstjóri
Tömas Guðmundsson skáld
Vigdís Finnbogadóttir leikhús-
stjóri
ÞÍrður Jörundsson yfirkennari
Þórhallur Tryggvason skrif-
stofustjóri
Þórhallur Vilmundarson, for-
stöðumaður örnefnastofnunar
Þórir Stephensen dómkirkju-
prestur
Þorleifur Einarsson jarð-
fræðingur
Þorsteinn frá Hamri skáld
Þorsteinn Gylfason lektor
Þorsteinn Valdimarsson skáld
Þráinn Guðmundsson yfir-
kennari.
Vilja Akraborgina
undir árshátíðir
REKSTUR Akraborgarinnar
hefur gengið erfiðlega undan-
farið og hefur af þeim sökum
orðið að fækka ferðum hennar
milli Akraness og Reykjavíkur.
Aður fyrr fór Akraborgin frá
Akranesi þrisvar sinnum — þ.e.
kl. 8.30, kl. 1.15 og kl. 5. Nú hefur
ein ferðin verið felld niður
þannig að skipið fer tvisvar frá
Akranesi — kl. 8.30 og kl. 3.
Að því er Þórður Hjálmsson
framkvæmdastjóri tjáði Morgun-
blaðinu í gær stafa erfiðleikarnir
fyrst og fremst af hinum geysi-
miklu olíuhækkunum og
hækkunum á öllum tilkostnaði,
t.d. sagði Þórður að eftirvinna
væri orðin það dýr að ekki svaraði
kostnaði að fara síðdegis ferðir Þá
kvað Þórður aðstöðuleysið í
Akraneshöfn heldur ekki hjálpa
upp á sakirnar, það hefði í för
meó sér að bílaþilfarið sem getur
tekið milli 40 og 50 bíla, væri
alltaf tómt. Hins vegar er verið að
ráða bót á því vandamáli að sögn
Þórðar, og er nú þegar búið að
smíða um '4 af bryggjunni sem
verið er að útbúa fyrir skipið og
er vonast til að hún verði fullbúin
með vorinu.
Raunar kvaðst Þórður ekki
kvíða rekstri Akraborgarinnar
strax og kæmi fram á vorið, þvf að
Framhald á bls. 31
BETRA YERÐUR
1 EKKI BOÐIÐ
I DYRTÝÐINNI
Ennþá er hægt að gera ótrúlega
góð fatakaup þessa dagana
á útsölumarkaðinum okkar
Mlkið vöruvall
50—70% afsláttur.
KARNABÆR
” Utsölumarkaður Laugaveg 66