Morgunblaðið - 25.02.1975, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.02.1975, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRUAR 1975 31 Mjög snarpar umræður á aðalfundi Ferðafélagsins UM kl. 23.00 í gærkvöldi var umræðum ekki lokió á fjöl- mennasta aðalfundi Ferða- félags islands í sögu þess. Um- ræður höfðu verið mjög snarpar Sýningu Jakobs Hafstein list- málara I Kjarvalsstöðum lauk s.l. sunnudag. Að sögn Alfreðs Guðmundssonar forstöðu- manns Kjarvalsstaða sóttu um 6800 manns sýningu Jakobs, en s.l. sunnudag komu 1800 gestir. Alls seldi Jakob 62 myndir af þeim 96 sem voru til sölu, en alls var hann með 144 myndir ásýningunni. Sama verð á steinbít VERÐ á steinbít sem veiðist við Vestfirði verður það sama áfram og verið hefur þar sem sá afli sem veiðist nú af steinbít er hæfur til vinnslu, cn slíkt er metið af fisk- mati á hverjum stað hverju sinni. Verðið verður því áfram kr. 16.85 á kg, en fellur ekki niður í rúmar 11 kr. eins og verðlagsráð hafði reiknað með fram til 1. marz. Með áverka á andliti eft- ir barsmíðar 17 ARA piltur var handtekinn um helgina, eftir að hafa veitt jafn- aldra sínum töluverða áverka á andliti með því að lemja hann með hnúum og hnefum. Gerðist þetta fyrir utan Silfurtunglið, en báðum piltunum hafði verið vikið þar af dansleik. Voru þeir nýkomnir út úr hús- inu þegar annar piltanna réðst á hinn og barði hann í andlitið. Er pilturinn allur blár og marinn, augu sokkin, nef brákað og spor saumuð i augabrún. Hinn hefur viðurkennt að hafa framið verkn- aðinn. Hann hefur áður verið tek- inn fyrir líkamsárás er hann stakk félaga sinn með hnífi þegar þeir voru að horfa á kvikmyndina Sting i Laugarásbíói ekki alls fyr- ir löngu og skýrt var frá í Mbl. á sínum tima. Hljómsveit- in Settlers í heimsókn Hljómsveitin The Scttlers er komin hingað til lands. Hún er Islendingum að góðu kunn fyrir sjónvarpsþætti sína. Það er Ámundi Amundason sem hefur fengið hljómsveitina hingað til lands og mun hún koma fram á dansleikjum á næstunni, bæði hér á Stór- Reykjavíkursvæðinu svo og út um land. Hlutverk forstjórans, í Háskóla íslands DR. M.B. Athreya, kennari við London Graduate School of Busi- ness Studies, mun i dag, þriðju- daginn 25. febrúar, halda fyrir- lestur, sem hefst kl. 17.30 i hátíða- sal Háskóla Islands, um efnið: Hlutverk forstjórans. Dr. Athreya er hér staddur i boði viðskiptadeildar háskólans, sem nýtur til þess styrks frá Landsbanka Islands. Fyrirlestur- inn, sem fer fram á ensku, á er- indi til forráðamanna fyrirtækja og annarra, sem hafa áhuga á heildarstjórnun fyrirtækja. Öll- um er heimill aðgangur. frá þvi að fundurinn hófst kl. tæplega 21.00. Þá var sal- urinn þéttsetinn og tugir manna stóðu, þvi ekki voru til sæti handa öllum fundarmönn- um. Augljóst var af umræðunum að sögn tíðindamanns Mbl. að fundarmenn skiptust í tvær fylk- ingar, annars vegar kringum Ein- ar Guðjohnsen framkvæmda- stjóra og minnihluta stjórnar og hins vegar meirihluta stjórnar undir forystu þeirra Sigurðar Jó- hannssonar vegamálastjóra og Sigurðar Þórarinssonar prófess- ors. I umræðunum flugu hnútur um borð, en kl. 23.00 er umræðum loks lauk var gefið kaffihlé, en rétt áður en hléið var gefið kom til kasta lögfræðinga, sem á fundinum voru staddir, spurning- in um það hvort umboð utan af landi, sem fram hafði verið lagt væri löglegt eða ekki, en það var frá 20 mönnum austur á Fljóts- dalshéraði, sem fólu umboðs- manni sinum að fara með atkvæði sitt að vild við stjórnarkjör. Strax eftir kaffihléið átti að ganga til atkvæða um þrjár laga- breytingar og síðan átti stjórnar- kjör að hefjast. Sæmdir orðu FORSETI íslands hefir i dag sæmt eftirtalda islendinga heiðursmerki hinnar islensku fálkaorðu: Geir Hallgrímsson forsætisráð- herra stórkrossi, Halldór E. Sigurðsson, landbún- aðar- og samgönguráðherra, stór- riddarakrossi, Ásgeir Bjarnaspn, forseta sam- einaðs Alþingis, stórriddara- krossi. Reykjavík, 24. febrúar 1975. Fréttatilkynning frá orðuritara. — Tónlistarhátíð Framhald af bls. 11 mundsson fagottleikari, Inga Rós Ingólfsdóttir cellóleikari, Júlíana Elín Kjartansdóttir fiðluleikari, Kolbrún Hjaltadóttir fiðluleikari, Lovisa Fjeldsted cellóleikari, Sig- urður Ingvi Snorrason klarinettu- leikari og Þorsteinn Hauksson, en hann hefur samið eina íslenzka verkið, sem flutt verður að þessu sinni. Það heitir ,,Taijah“ og er fyrir altrödd, barnakór og tréblás- ara. Fjögur verk til flutnings á Ung Nordisk Musikfest 1975 bárust islensku UNM-nefndinni, en „Taijah!" varð eitt fyrir vali dóm- nefndar. 1 henni sátu Jón Ásgeirs- son, Páll P. Pálsson og Þorkell Sigurbjörnsson. Utanför islenska tónlistarfólks- ins kostar Menningarmálasjóður Norðurlandanna og Menntamála- ráðuneyti islands. islenska UNM-nefndin vill að lokum vekja athygli áþví að frest ur til að skila tónverkum (radd- skrám og/eða segulböndum) til flutnings á Ung Nordisk Musik- fest 1976, er haldin verður í Árós- um, rennur út 1. maí n.k. Verkum á að skila undir dulnefni, en nafn höfundar fylgi með i lokuðu um- slagi. Sendi höfundur fleiri en eitt verk, skal hann nota sama dulnefni. Tónskáldið á að vera yngra en 30 ára. (Fréttatilkynning) — Búnaðarþing Framhald af bls. 3. nefndarinnar. Ég treysti því, að gott samstarf takist á milli Búnaðarþings og ■ ríkisstjórnar- innar i þessu máli til heppilegrar lausnar á því, þar sem báðir aðilar verða að taka á sig að leysa þenn- an vanda. Ég Iýsi þeirri skoðun minni, að það er ekki heppileg leið að velta þessari verðhækkun óheftri út i verðlagið. Og það kemur heldur ekki til greina, að ríkið greiði verðhækkunina að öllu leyti. Slik afgreiðsla bíður aðeins hættunni heim.“ 11 mál lögd fyrir þingið Sem fyrr segir hafa 11 mál þegar verið lögð fyrir það Búnaðarþing sem er nú nýhafið og málunum mun væntanlega fjölga eftir þvi sem liður á þing- timann. Meðal þeirra mála sem lögð hafa verið fyrir er endur- skoðun laga um sauðfjárbaðanir, málmblendiverksmiðjan á Grundartanga við Hvalfjörð, nám- skeið i búskaparfræðum á skyldu- námsstigi, landgræðslustörf skólafólks, breytingar á lögum um dýralækna og tryggingamál landbúnaðarins. — Selja skotfæri Framhald af bls. 1 við Bandaríkjastjórn að hún seldi skotfæri til Eþfópíu fyrir 25 milljónir dollara. Verða skotfær- in afhent á næstu 2—3 vikum. Ekkert hefur verið sagt um þetta mál af opinberri hálfu f Washing- ton. Þá hermdu heimildir í Addis Ababa að tveir háttsettir meðlim- ir herforingjastjórnarinnar, Daganchew Yirgu landbúnaðar- ráðherra og Gebre Negus hers- höfóingi og meðlimur ráðsins, hefðu flúið land i mótmælaskyni við stefnu herforingjastjórnar- innar. Gekk sá siðarnefndi í lið með Eritreumönnum en ekki er vitað hvert landbúnaðarráðherr- an fór. Um 20 þúsund stjórnarher- menn berjast nú við 6000 upp- reisnarmenn í Eritreu og eru stjórnarhermenn komnir i þrot með skotfærabirgðir. — Duflin Framhald af bls. 32 Sagði Baldur að með einhverjum hætti hefði tilkynning um dufl- fundinn farið beint suður á Kefla- víkurflugvöll, en hlvers vegna sagðist hann ekki geta fundið út. Kvað hann Landhelgisgæzluna aðeins hafa verió flutningsaðila í málinu að beiðni varnarliðsins. Kvað Baldur það líklegustu skýr- inguna á að ekkert umtal varð um duflfundinn. Baldur sagði að þessir dufl- fundir myndu óbeint vekja upp Kleifarvatnsmálið að nýju, en hann kvað það formlega vera i utanrikisráðuneytinu. Samkvæmt upplýsingum Landssimans lauk fullnaðarrannsókn á Kleifar- vatnstækjunum hálfum öðrum mánuði eftir fund þeirra. Er nú hálft annað ár frá þvi er tækin fundust. Baldur Möller sagði að i raun væri engin spurning opin um eðli tækjanna, heldur um það hvort nokkuð væri unnt að gera í málinu sjálfu og væri það spurn- ing sem saksóknari ætti að svara. „Þar stendur hnifurinn blýfastur i kúnni," sagði Baldur. Er Baldur var síðan spurður að þvi, hvort ef til vill væri ekkert meira i þvi máli unnt að gera, svaraði hann: „Það er líklegast einfaldasta svar- ið i mátulega mörgum oróum." Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar sagði i við- tali við Mbl. i gær að Landhelgis- gæzlan vissi ekkert um duflið frá 1972 annað en það að hún var beðin um að flytja duflið frá Vest- mannaeyjum til Keflavíkur. Gerði Gæzlan það 28. október 1972. Aðspurður um það hvers vegna duflfundurinn hefði ekki komizt i hámæli sagði Pétur að landhelgisdeilan hefði staðið sem hæst við Breta. Því hafi það farizt fyrir. Þegar Landhelgisgæzlan tók duflið hafði það verið opnað. Hannes Guðmundsson, fulltrúi í utanrikisráðuneytinu, fór með sérfræðingunum til Keflavíkur- flugvallar í gær. Hannes sagðist ekki geta skýrt frá niðurstöðum sérfræðinganna, fyrr en skýrsla þeirra hefði borizt og hún hefði verið birt ráðherra. Hann sagðist búast við þvi að skýrslurnar bær- ust í dag. — Klofningur Framhald af bls. 2 fjölda málmiðnaðarmanna á fé- lagssvæóinu um áramót. Málm- og skipasmiðasambandið hefði hins vegar fengið lög deildarinnar meó aðildarumsókninni. Þá sagði Sigurður Öskarsson, að meðan unnið hefði verið að gerð nafnalistans nú eftir áramótin, hefði það gerst, að forystumenn Málm- og skipasmióasambandsins hefðu haft forgöngu um stofnun sérstaks Sveinafélags málmiðnað- armanna i Rangárvallasýslu. Stór hluti stofnfélaga i þessu nýja fé- lagi hefði hins vegar verið félagar í iðnaðarmannadeild Verkalýðsfé- lagsins og þvi aðilar að Alþýðu- sambandi islands með þeim hætti. Siguróur Öskarsson sagði, að Alþýðusambandinu hefði verið sent bréf um þetta efni fyrir skömmu, þar sem stofnun nýja félagsins hefði verið mótmælt og farið hefði verið fram á aðgerðir af hálfu Alþýðusambandsins. Svar Alþýðusambandsins væri ókomið. Sigurður sagði, að Málm- og skipasmiðasambandið hefði allt frá þvi að samningar voru fyrst gerðir við júgóslavneska verktakafyrirtækió viljað eiga að- ild að þeim samningum. „Við telj- um-það fráleit vinnubrögð hjá háttsettum mönnum innan Alþýðusambandsins að standa að slíkum klofningi innan verkalýðs- hreyfingarinnar, og við getum með engu móti sætt okkur við slík vinnubrögð," sagði Sigurður Ösk- arsson. — Vopnasölu- bann Framhald af bls. 1 erson, lagði áherzlu á að hér eftir yrði aðeins um að ræða vopnasölu gegn staógreiðslu og að Bandarik- in myndu ekki veita löndunum umfangsmikla hernaðaraðstoð. Hver umsókn yrði tekin sérstak- lega fyrir og kannað hvort af- greiðsla á henni gæti á nokkurn hátt raskað jafnvæginu milli landanna. — Bótagreiðslur Framhald af bls. 32 tilfelli vildi ekki una þessu bóta- fyrirkomulagi á verzlunarhús- næði sinu og höfðaði mál til heimtu bótanna i peningum, alls kr. 422.309,00 auk vaxta og kostn- aðar. í dómnum fékk húseigand- inn þá kröfu sina tekna til greina og voru dómsorðin þau, að Við- lagasjóður skyldi greiða upphæð- ina með 9% ársvöxtum frá 1/7 ’74 til 15/7 1974 og 13% ársvöxtum frá þeim degi til greiðsludag og kr. 83 þúsund i málskostnað inn- an 15 daga frá lögbirtingu dóms- ins. i forsendum dómsins er einnig vikið að reglum Viðlagasjóðs um áðurnefnda greiðslutilhögun bót- anna og segir þar m.a. að með þessum hætti væri mönnum mis- munað i bótagreiðslum og þeir verr settir sem einhverra ástæðna vegna ættu þess ekki kost að byggja aftur upp atvinnurekstur sinn í Vestmannaeyjum. Segir síð- an aó eigi verði séð að ákvæði laga nr. 4/1973 veitti heimild til slíkr- ^af mismunar og að lagaheimild sltorti fyrir stjórn Viðlagasjóðs og ráðherra til að haga bótagreiðsl- um með þessum hætti. Dómur þessi var kveðinn upp af Guðmundi Jónssyni borgardóm- ara, en málið fluttu Jón Hjaltason hrl. fyrir húseigandann en Bene- dikt Blöndal hrl. fyrir Viðlaga- sjóð. — Akraborgin Framhald af bls. 5 þá ykist ferðamannastraumurinn mjög. Einnig taldi Þórður ekki ólíklegt að bygging málmblendi- verksmiðjunnar í Hvalfirði myndi hafa áhrif á flutninga Akra- borgarinnar og eins væri ætlunin að halda landsmót ungmenna- félaganna á Akranesi, sem einnig ætti að auka á annir hjá Akra- borginni. Nú kvað Þórður aftur á móti töluvert um það að beðið væri um Karaborgina undir árs- hátíðir og væri þannig ákveðið að halda eina laugardaginn 15. marz. Yrði þá siglt út á Sundin og lagst þar við festar meðan leigutakar gerðu sér glaðan dag. Þá hefðu 25 ára stúdentar einnig ákveðið að halda fagnað sinn um borð í Akra- borginni. — Minning Jóhanna Framhald af bls. 23 þritug að aldri frá 3 ungum börn- um þeirra Kristjóns, 9, 8 og 5 ára. Og nú þegar þannig syrtir að, sýnir Jóhanna styrk sinn og mátt. Þau Anton hjálpa nú Kristjóni tengdasyni sinum við að ala upp þessi móðurlausu börn. 1961 deyr svo Kristjón snögglega, þungur harmur Jóhönnu og Antons bugar þau ekki, heldur kallar fram mannkosti þeirra og hetjulund og fórnfýsi. Þessi 3 barnabörn þeirra, ala þau upp og þrátt fyrir aldur sinn, rækja þau uppeldi þeirra af svo stakri nærgætni og hlýju aó undravert er. 1 sorg sinni gáfu þau Jóhanna og Anton mest en uppskera siðan laun fórna sinnar í þeirri gleði að sjá þessi börn vaxa úr grasi. Finna siðan þegar þau eru þess umkomin að launa umhyggju, ástúð og uppeldi. Þannig liðu sið- ustu árin. Jóhanna og Anton undu hag sinum vel, og allt fram á sióustu stund þurfti hún að vita hvernig hverjum um sig leið inn- an fjölskyldunnar. Jóhanna var ern til hins siðasta, kunni frá ótal rnörgu að segja og óhemju fróðleikur um menn og málefni er með henni horfinn. Enginn sem kynntist Jóhönnu mun gleyma henni. Minning hennar lifir meó okkur ljúf og hrein. Saniúð okkar er einlæg með Antoni Eyvindssyni og fjölskyldu hans. Jóhann Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.