Morgunblaðið - 25.02.1975, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.02.1975, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRUAR 1975 Flestar Oscarsverðlaunaútnefning- ar til Chinatown og Godfather II Los Angeles, 24. febrúar Reuter — AP. BANDARÍSKA kvik- myndaakademían í Holly- wood birti í dag útnefn- ingar til Oscarsverðlauna Albert Finney I Murder on the Orient Express. og eru það myndirnar Chinatown og Godfather II, sem hlutu flestar út- nefningarnar, eða 11 hvor mynd. Næstar á eftir komu myndirnar Towering Inferno, Lenny, mynd um líf hins grófa bandaríska háðfugls Lenny Bruce, og mynd eftir sögu Agötu Christie, Murder on the Orient Express. Leikarar, sem hlutu útnefningu fyrir beztan leik í aðalhlutverki, voru Art Carney, fyrir leik sinn í „Harry and Tonto“, Carney varð frægur fyrir leik sinn með Jakie Gleason í þáttum hins síðar- nefnda; Albert Finney fyrir leik sinn í „Murder on the Orient Express; Jack Nicholson fyrir leik sinn í Chinatown og A1 New York, 24. febrúar. Reuter. HAFEZ al Assad Sýrlandsforseti segir I viðtali við bandaríska tímaritið Newsweek, sem kom út í gær, að hann gæti fallist á lang- tfma friðarsamning við Israel, ef Israelar létu af hendi Golanhæð- irnar og féllust á stofnun Palestlnurfkis á vesturbakka ár- innar Jórdan og Gazasvæðinu. Orðrétt sagði Assad: „Ef lsraelar snúa aftur til iandamæranna eins og þau voru 1967 mun sfðasta hindrun fyrir varanlegu friðar- samkomulagi úr vegi; þetta er ekki áróður, við meinum þetta I alvöru hreint út.“ Assad sagði ennfremur að Sýr- Pacino fyrir leik sinn i Godfather II. Leikkonur, sem útnefningu hlutu fyrir aðalhlutverk voru Ellen Burstyn fyrir „Alice doesn’t live here anymore"; Diahnn Caroll fyrir „Claudine”; Faye Dunaway fyrir Chinatown; Valerie Perrine fyrir „Lenny“ og Gena Rowlands fyrir „A Woman under the influence". Útnefningu fyrirbeztan leik í aðalhlutverki hlutu Fred Astaire fyrir „The Towering Inferno"; Jeff Bridges fyrir „Thunderbolt and Lightfoot" og Robert de Niro, lendingar hefðu engan áhuga á að ísraelar drægju heri sína 8—10 km til baka sunnan við Golanhæð- ir, en sagt er að ísraelar og Kissinger, utanrikisráðherra Bandaríkjanna, hafi rætt þetta mál. Á öðrum stað í blaðinu segir Moshe Dayan, fyrrum varnar- máiaráðherra israels, að hann styðji ekki aðferð Kissingers, að koma á samkomulagi milli Araba og israela í áföngum, skref fyrir skref. Skv. skoðanakönnun, sem birt var í New York í gær, eru 41% Bandaríkjamanna fylgjandi því Michael V. Gazzo og Lee Stras- berg fyrir „Godfather II“. Fimm leikkonur hlutu einnig útnefn- ingu, Ingrid Bergman fyrir „Murder on the Orient Express”; Valentian Cortese fyrir „Day for night“; Madelain Kahn fyrir „Blazing Saddles"; Diane Ladd fyrir „Alice doesn’t live here any- more“ og Talia Shire fyrir „God- father II“. Utnefningu fyrir bezta leik- stjórn fengu Chinatown, Roman Polanski; Day for night, Francois Truffaut, og Francis Coppola fyr- ir Godfather II. að hernaðaraðstoð við Ísrael verði minnkuð, 37% vilja að hún haldist óbreytt, en 8% vilja að hún verði aukin. Þá voru 52% andvigir þvi að Bandaríkin gerðu samkomulag, þar sem öryggi lsraels yrði tryggt. 35% voru fylgjandi siíku samkomulagi en 13% óákveðnir. Joseph Sisco, aðstoðarutanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, var spurður um það i sjónvarpsþætti á sunnudag, hvort Bandarikin ihuguðu slíkan samning og tryggingu, en hann svaraði þvi neitandi. Sisco er helzti sér- fræðingur Bandarikjastjórnar í málum Miðausturlanda og hefur farið með Kissinger í flestar hans ferðir á þær slóðir. „COLAJNHÆÐIR OG PALESTÍMJRÍKI FYRIR LAINGTÍMAFRIDARSAMNIING” — segir Assad Sýrlandsforseti Bréf Sakharovs til KGB Forsfða Observer, þar sem bréf Sakharovs er birt. Þjóðviljinn sá ekki ástæðu til að geta um það, en megrunarkexið vakti aftur á móti forvitni Þjóðviljamanna. FYRIR nokkru birtist stórum stöfum á forsíðu Þjóðviljans fréttagrein um gildi hinna ýmsu tegunda af megrunarkexi og karamellum sem sumar eru á markaði hér á landi og byggði Þjóðviljinn fréttina á frétt úr brezka blaðinu OBSERVER. Er vissulega góðra gjalda vert að gera slíka úttekt enda eru þess- ar vörur seldar hér á landi, en fyrir hina árvökulu fréttamenn Þjóðviljans hefði ef til vill ver- ið ástæða til að gefa gaum að öðru efni, sem birtist á hinni sömu blaðsíðu og fréttin um megrunarkex. Þar var birt bréf Andrei Sakharovs, hins fræga sovézka vísindamanns og bar- áttumanns fyrir mannréttind- um I Sovétríkjunum til yfir- manns KGB, Y.V. Andropov, sem hann sendi í byrjun janúar en hefur borizt til Vesturlanda fyrir skömmu. Bréf Sakharov fer hér á eftir í lauslegri þýðingu; „Þann 20. desember barst mér bréf frá Rússneska kristi- lega flokknum, og hafði það inni að halda hótanir, sem beindust að tengdasyni minum Efrem Yankelevich og ársgöml- um dóttursyni minum. Bréfarit- arar hóta að „tortíma” þeim, ef ég héldi áfram mannréttinda- baráttu minni. Innihald bréfs- ins og allur tónn þess bar með sér að það var samið af starfs- mönnum yðar með það fyrir augum að skelfa mig og neyða mig til þagnar. Daginn áður hafði mér verið birt niðurstaða frá vegabréfsáritunarskrifstof- unni þess efnis að Yankelevich og konu hans hefði verið synjað um leyfi til að fara í ferðalag til Bandaríkjanna í boði forseta Tæknistofunnar Massa- chusetts. Áður en það svar barst hafði umsókn þeirra legið án þess að henni væri svarað í eitt ár og átta mánuði. Þarna er ekki um neina tilviljun að ræða. Ég lýsi þvl yfir að fjölskyldumeðlimir mínir eru gíslar og hafa verið notaðir sem tæki til að beita mig þrýstingi. Þetta hefur feng- izt staðfest í dag enn á ný. Tveir starfsmanna yðar, sem eltu tengdason minn á götu, endur- tóku orðrétt sömu hótanir og fyrr (og krydduðu þær óþverra- legu orðbragði) og- kröfðust þess að ég léti af baráttu minni. Þeir sögðu: „Hversu oft verð- um við að vara ykkur við?“ Og síðan enn skilmerkilegri hótun: „Við skulum sjá fyrir þér og syni þinum, skepnan þín. Þú skalt enda sem lík á rusla- haugi." Fyrir ári heyrði ég svipaðar hótanir settar fram við fjöl- skyldu mína. Þær settu og fram starfsmenn yðar sem voru að störfum I gervi Palestínu- manna. Sama máli gegnir um eiginkonu mina, sem Syshchik- ov rannsóknarmaður hafði í hótunum við, og var hann þá einkennisklæddur og í deild yðar. Palestínu-Arabar, KGB- rannsóknarmaður, tilbúin sam- tök larfaláka sem kenna sig við kristni — og sannarlega er hjólið komið á stað með leiftur- hraða. Ég krefst þess að áreitni verði hætt við mig. Ég krefst þess að glæpastarfsseminni linni, og öryggi fjölskyldu minnar verði tryggt. Gerið ekki svívirðu stofnunar yðar meiri en hún er með því að ógna börnum eins og gert var á Stalínstímanum. Við núverandi aðstæður, sem deild yðar ber ábyrgð á, krefst ég leyfis þegar í stað til handa Efrem Yankel- evich, eiginkonu hans Tanya Semyonova og syni þeirra til að fara til Bandarikjanna um óákveðinn tíma, en á sovézkum vegabréfum, svo að þau hafi rétt til að snúa heim, þegar öryggi þeirra verður hægt að tryggja. Það er augljóst að þau eru gíslar. Eina leiðin til að hætta þessari þvingunaraðferð, sem beitt er gegn mér, er að gefa þeim vegabréfsáritanir tafarlaust. Ég krefst einnig tafarlauss leyfis handa mér og eiginkonu minni til að fara til Italiu til lækninga (vegna augnsjúk- dóms hennar). Ég krefst þess, að endi verði bundinn á ofsóknir gegn vinum mínum og þar á meðal er Sergei Kovalvov, sem var handtekinn þann 27. desember. Jafnhliða því að ég sendi yður þetta bréf mun ég koma því á framfæri að öðru leyti og gefa almenningsálitinu í heim- inum völ á að styðja það. Jack Nicholson og Faye Dunaway I Chinatown. Knattspyrnu- særingar Borgosesia, 24. febrúar — Reuter. ÞEGAR knattspyrnuliðið í Borgosesia á italíu tapaði fimmta heimaleiknum í röð, lýstu áhangendur liðsins þvi yfir að engin önnur skýring væri á þessum hrakförum en draugagangur á leikvelli bæj- arins. Var sóknarpresturinn fenginn til að framkvæma sær- ingu á staðnum í þeim tilgangi að fæla afturgöngurnar á brott, og var þess nú vænzt að Borgosesialiðið hæfi nýja sig- urgöngu. En f gær, tveimur dögum eftir særinguna, lék lið- ið vió Borgomanero og tapaði 0—1, og enn virðist þvi fjand- samlegur knattspyrnudraugur leika lausum hala á leikvelli Borgosesia. Óeirðir í Tyrklandi Ankara, 24. febrúar — Reuter EINN maður beið bana og 50 særðust í vopnuðum átökum hægri og vinstri manna i gær, er pólitiskar óeirðir brutust út á Austur-Tyrklandi, aðra helgi í röð. Ekki er vitað hvernig maðurinn beið bana. Átökin urðu i bænum Erzincan er mótmæli hófust gegn aðgerð- um um s.l. helgi þar sem tveir menn létust eftir útifund. 16 fórust Teheran, 24. febrúar — Reuter. SEXTÁN manns fórust og 15 særðust í gær, er áætlunarbif- reið ók á flutningabíl á vegin- um nálægt Kerman í Suðaust- ur-Iran, að því er áreiðanlegar heimildir hermdu. DC-10 rannsókn St. Louis, 24. febrúar — Reuter. MCDONNELL Douglas Cor- poration hefur sent út áríðandi boð til allra flugfélaga sem nota DC-10 vélar fyrirtækisins um að þau láti rannsaka væng- festingar vélanna. Talsmaður fyrirtækisins segir að ástæðan fyrir þessu sé sú, að tyrknesk flugvél hafi Ient í vandræðum s.l. miðvikudag vegna bilunar í vængfestingu. Egyptar og Svíar semja Kairó, 24. feb. — Reuter. EGYPTAR og Sviar undirrit- uðu i gær samkomulag í efna- hagsmálum, þar sem gert er ráð fyrir viðskiptalegu og tæknilegu samstarfi milli land- anna tveggja. Utanríkisráð- herrar landanna, Ismail Fahmi og Sven Andersson, undirrit- uóu samkomulagið. Einnig gerir það ráð fyrir upplýsinga- og visindalegum samskiptum. Andersson sagói, að samkomu- lag þetta væri þýðingarmikið fyrir Svía og benti á að Svíþjóð hefði gert fáa slíka samninga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.