Morgunblaðið - 08.05.1975, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAl 1975
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
TT 21190 21188
LOFTLEIÐIR
Hópferðabílar
8—21 farþega í lengri og
skemmri ferðir.
Kjartan Ingimarsson
Sími 86155-32716-37400.
Afgreiðsla B.S í.
FERÐABÍLAR h.f.
Bílaleiga, sími 81260.
Fólksbílar — stationbílar
— sendibilar — hópferðabílar.
Innilegar þakkir til allra, sem
glöddu mig á sjötugs afmæli
minu.
Sérstakar þakkir til hjónanna Al-
disar og Aðalsteins.
Sólveig Andrésdóttir
frá He/lissandi.
Mínar hjartans þakkir flyt ég öllu
samstarfsfólki minu i Sjólastöð-
inni í Hafnarfirði fyrir dásamlega
gjöf á 60 ára afmæli minu 1.
mai. Svo og öllum vinum fyrir
veittar gjafir minni elskulegu
fjölskyldu fyrir veitta aðstoð og
gjöf.
Guð blessi ykkur öll.
LHja Sigurðardóttir,
Skerseyrarveg 4,
Hafnarfirði.
Fasteignasalan
Símil 3040.
Til sölu
.... Stór byggingarlóð í
Arnarnesi. (1281 ferm.).
.... 110 ferm. 4ra herb. íbúð i
Ljósheimum, i skiptum fyrir ein-
býlishús.
.... Stór ibúð við Egilsgötu,
ibúðarkjallari, 2 hæðir og
geymsluris og bilskúr, í skiptum
fyrir 3ja—4ra herb. ibúð, helst i
vesturbænum.
.... 2 prjónastofur, seljast sam-
an, eða sitt i hvoru lagi.
.... 5 herb. ibúð við Miklu-
braut, 1 52 ferm.
.... Fasteígnatryggð veðskulda-
bréf til 2ja ára.
.... Raðhús i byggingu i Kópa-
vogi. Stutt komið.
.... 5 herb. ibúð, 109 ferm.,
við Leirubakka, 1 herb. i kjallara.
.... Nokkur stangaveíðileyfi i
Langá á Mýrum i ágúst.
.... Höfum kaupanda að hent-
ugu húsnæði fyrir verslunarfyrir-
tæki.
.... Höfum kaupendur að fast-
eignum í Vesturbænum.
.... Höfum kaupanda að stórri
4ra—5 herb. ibúð i Breiðholti.
Heimasími solumanns:
40087.
Útibú Akureyri að Hafn-
arstræti 86, simi 23909.
Sölumenn: Ólafur Ás-
geirsson, Baldvin Valde-
marsson.
JÓN ODDSSON,
hæstaréttarlögmaður,
Garðastræti 2,
Simi 13040.
STAKSTEINAR
Barnalegur áróður
Alfreð Þorsteinsson segir svo
f Tfmanum f gær:
„Þess er nú vfða minnzt, að
30 ár eru liðin frá ósigri Þjóð-
verja f sfðari heimsstyrjöld-
inni. 1 athyglisverðri grein f
blaðinu sl. sunnudag er sagt að
Bándaríkjamenn og Evrópubú-
ar gæti sérstaks hófs, þegar
þessa atburðar er minnzt, þar
eð sársauki sorgar og þjáningar
frá þessum tfma hafi mildazt.
Hins vegar sé þessu öðru vfsi
farið með Sovétmenn, sem reki
eins konar strfðsminningar-
iðnað með þjóðrembings- og
endurminningargreinum, sem
falli ekki alls kostar að sögu-
iegum staðreyndum.“
„Við lslendingar förum ekki
varhluta af þessum strfðsminn-
ingariðnaði Sovétmanna, sem
satt að segja hefur heldur óvið-
felldinn blæ. Vitaskuld færðu
Sovétmenn þungar fórnir f
hinum hrikalega ófriði, en það
færðu fleiri fórnir og lögðu
sinn skerf að sameiginlegum
sigri bandamanna. En þess er
vandlega gætt í strfðsminn-
ingarrekstri Sovétmanna að
geta þess f sem fæstum orðum.
— Áróður af þessu tagi er
barnalegur. Sjálfsagt hentar
hann vel f Sovétrfkjunum
sjálfum, en hljómar ankanna-
lega f eyrum f V-Evrópu og
Bandarfkjunum. Vilja þeir þó
sfzt draga úr mikilvægum
skerfi þjóðarinnar og þungra
fórna hennar á þessum örlaga-
rfku tfrnurn."
Skipalestir
um Islandsála
1 þessum áróðursiðnaði, sem
Alfreð Þorstcinsson gerir að
umræðuefni f Tfmanum, er
jafnan gengið fram hjá þeirri
afdrifarfku staðreynd, að
Bandarfkjamenn birgðu Sovét-
rfkin að drjúgum hluta upp,
bæði að vopnum og vistum, á
úrslitastundum á austurvfg-
stöðvunum. Baráttuþrek og
hernaðarmáttur Sovétmanna
þá, sem vissulega vakti al-
heimsathygli, byggðist m.a. á
þessum birgðaflutningum. An
þeirra vopna og vista, sem
skipalestir Bandamanna fluttu
yfir Atlantsála, frá Bandarfkj-
unum til Sovétrfkjanna, með
öllum þeim mannfórnum og
verðmætatapi sem þeim flutn-
ingum var samfara, hefði
gangur styrjaldarinnar f Rúss-
landi getað orðið annar en raun
bar vitni um. fslendingar
kunna góð skil á sögu og stað-
reyndum þessara birgðaflutn-
inga. Sannleikurinn um gang
sfðari heimsstyrjaldarinnar á
rússneskri grund verður ekki
allur sagður, ef þessi þáttur
liggur f þagnargildi.
Fyrir hverju
var barizt?
Það er e.t.v. barnalegt að
spyrja um tilgang og markmið
Bandamanna f heimsstyrjöld-
inni síðari. Fullveldi þjóða, al-
menn þegn- og lýðréttindi og
virðing fyrir frumréttindum
einstaklingsins voru helztu
leiðarljósin. Og varanlegur
friður var lokamarkmiðið.
Þessi meginmarkmið vekja
sfðan áleitnar spurningar, sem
hljóta að ieita á hug hvers
heiðarlegs manns. Eru almenn
þegnréttindi virt á valdasvæði
Sovétrfkjanna f dag? Er frelsi
einstaklings til skoðana og
tjáningar f heiðri haldið? Eru
t.d. Gyðingaofsóknir liðin tfð?
Hvert er fullvcldi þeirra rfkja,
sem umlykja vfðfeðm landa-
mæri Sovétrfkjanna? Er e.t.v.
hægt að benda á Eystrasalts-
rfkin þrjú sem táknræn dæmi
fullvalda rfkja? Hve margir
samvizkufangar sitja bak við
lás og slá vegna skoðana sinna
einna? Þannig mætti lengi
spyrja.
Lýðræðisþjóðirnar hafa samt
margt og mikið lært af dýr-
keyptri reynslu sfðari heims-
styrjaldarinnar. Atlantshafs-
bandalagið, sem er virkjun á
samtakamætti þeirra, er bein
afleiðing þeirrar reynslu. Hlut-
leysi reyndist bræðraþjóðum
okkar, Dönum og Norð-
mönnum, haldlaust er á reyndi.
Og með þessum samtökum
hefur tekist að varðveita frið-
inn f V-Evrópu f þrjá áratugi og
hefta framrás kommúnismans,
sem sló hrammi sfnum á flest
rfki A-Evrópu f lok styrjald-
arinnar. Þennan samtakamátt
þarf að styrkja til efiingar friði
og mannréttindum f okkar
heimshluta.
Kaffisala Kvenfélags
Laugarnessóknar er í
dag, uppstigningardag
IIIN árlega kaffisala Kven-
félags Laugarnessóknar er i
clag Uppstigningardag og
verður að þessu sinni í Sigtúni
við Suðurlandsbraut, er mun
vera stærsti veitingasalur, sem
til er i landinu. Og eiga þau
hjón, Sigmar veitingamaður og
Þórdis kona hans, miklar þakk-
ir skilið fyrir þetta vinarbragð
við Kvenfélagið og söfnuðinn.
Stærð þessa salar hefur það
hagræði í för með sér, að nú
þarf enginn að standa upp og
rýma fyrir nýjum gesturn, held-
ur getur hver selið svo lengi
sem hann viil og notið þeirra
skemmtiatriða, sem kvenfélags-
konurnar hyggjast bjóða upp á
að þessu sinni, og er þar um að
ræða algera nýjung og til-
breytni frá fyrri árum.
Skemmtiatriðin verða meðal
annars þessi: Frú Elin Sigur-
vinsdóttir, hin góðkunna
sópransöngkona, mun syngja
við undirleik frú Maríu Mark-
an, er fyrrum bar hróður ís-
lands um svo langa vegu. Þá
mun verða fjölbreytt tizkusýn-
ing frá Verðlistanum undir
stjórn frú Fálínu Jónmunds-
dóttur, er svo víða hefur farið
um heim, en ólst upp sem telpa
svo að segja undir kirkjuvegg
Laugarneskirkjunnar.
Mun ávallt eitthað vera að
gerast þarna allan timann til
ánægju og gleði fyrir kaffigest-
ina. Meðai annars mun frú
Maria Markan og nokkrar kven-
félagskonur syngja þarna
nokkrum sinnum. Þá verður og
þarna skyndihappdrætti fyrir
börnin, sem alltaf hafa komið
svo mörg með foreldrum
sínum.
Kaffisalan mun að venjú
heíjast klukkan 3 að lokinni
guðsþjónustu í Laugarnes-
kirkju, sem byrjar kl. 2. Þar
mun hinn góðkunni prestur
Arbæjarsóknar. séra Guðmund-
ur Þorsteinsson, predika. Kven-
félagskonurnar munu að lok-
inni messu hafa bifreiðir til
taks fyrir utan kirkjuna, til að
flytja þá kirkjugesti inn i Sig-
lún, sem óska þess.
Eins og að venju rennur allur
ágóði kaffisölunnar til væntan-
legs safnaðarheimilis — sem er
öllum þéttbýlis-söfnuðum alger
nauðsyn nú, en var óþekkt
fyrirbrigði hérlendis, þegar
Laugarneskirkja var byggð.
Þarna verður til sýnis líkan
með tveim tillögum um stað-
setningu og útlit væntanlegs
safnaðarheimilis, en um það
hefur þvi miður orðið nokkur
óeining i söfnuðinum, sem við
vonum, að senn sé á enda.
Hlaðborðinu og veitingum
öllum af hendi kvennanna, þarf
ég ekki aó lýsa, andrúmsloft-
inu, gleðinni, og alúðinni, sem
þarna hefur ávallt rikt. Fjöl-
skyidurnar hafa fjölmennt —
og unga fólkið i sókninni. Og
gamlir sóknarbúar jafnvel
komið úr nágrannabæjunum.
Já, þarna hafa komið ungir og
gamlir úr öllum þjóðfélagshóp-
um, konur og menn, og allir
virðast hafa farið jafn ánægðir
frá borðum Kvenfélags Laugar-
nessóknar.
Verið velkomin i hið stóra
Sigtún, núna á Uppstigningar-
daginn.
Garðar Svavarsson.
Frá Bridgefélagi
Siglufjarðar
Lokið er tveggja kvölda
hraðsveitakeppni, með þátt-
töku 11 fyrirtækja eða
starfshópa. Urslit urðu þessi:
Trillukarlar 804 stig
Utvegsbanki Islands 788 stig
Þormóður rammi hf. 776 stig
S.R. 767 stig
Isafold hf. 761 stig
Tréverk hf. 695 stig
Barnaskólakennarar 678 stig
Bæjarstarfsmenn 676stig
PósturogSimio.fl. 668 stig
Versl. K.E.A , Sigluf. 667 stig
Bridgefélag Siglufj. 640 stig
Hægt var að fá allt upp í 36
stig íyrir hvert spil, en 20 spil
voru spiluð hvert kvöld og
keppni því geysiskemmtileg.
1 sveit Trillukarla voru þeir
Valtýr Jónasson, Páll Pálsson,
Björn Þórðarson og Magnús
Víðarsson.
Mánudaginn 28. april fór
fram verðlaunaafhending og
var þá keppt um hinn sögu-
fræga Eggertsbikar, sem er
eins kvölds einmennings-
keppni.
Siglufirði, 16. apríl 1975.
XXX
Úrslit í
Oxfordkeppni BSÍ
Þann 27. febrúar sfðastliðinn
voru spilaðir f Reykjavfk 2
riðlar í alþjóðlegri tví-
menningskeppni ungs fólks,
sem skipulögð var af Bridge-
félagi Oxford-háskóla, cn hald-
in hér fyrir tilstuðlan Bridge-
sambands tslands.
Alls tóku þátt i keppninni 448
pör í 7 löndum og voru úrslit
keppninnar reiknuð sem einn
riðill í tölvu.
Sigurvegarar i keppninni
urðu R.J.R. Benstead og T.
Cope frá Cambridge með
72.53% skor. 1 öðru og þriðja
sæti urðu pör frá Grikklandi og
Canada. Beztum árangri
íslenzku keppendanna náðu
Snjólfur Ölafsson og Jón Gisla-
son. Þeir voru í 11 sæti með
64.54%. Alls tóku 24 pör þátt í
keppninni hér og fylgir hér
árangur 12 hæstu:
Snjólfur Ölafsson
— Jón Gislason 64.54%
Gestur Jónsson
— Sigurður Einarss. 59.85%
Þórir Sveinsson
— Jón Kristinn Jónss.59.25%
Vilhjálmur Vilhjálmsson
— Jónatan Lindal 58.38%
Björgvin Þorsteinsson
— Bjarki Tryggvason 57.76%
Sigurður Sverrisson
— Valur Sigurðsson 57.67%
Einar Guðjohnsen
— Jón Baldursson 54.67%
Una Arnadóttir
— Margrét Rader 54.05%
Jón flilmarsson
— Jón Páll Sigurjónss51.65%
Jón Sólnes
— Kristinn Björnsson 51.18%
Jóhann Sveinsson
— Tryggvi Bjarnason 51.03%
Ásgeir Gunnarsson
— Ragnar Halldórss. 50.55%
Aðrir þátttakendur hér fengu
undir 50%.
Bridgesamband Islands mun
veita þeim Snjólfi og Jóni
bókarverðlaun fyrir frammi-
stöðuna.
A.G.R.