Morgunblaðið - 08.05.1975, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 08.05.1975, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1975 39 KSI fundur MOTANEFND KSl heldur fund í Hótel Esju, sunnudaginn 11. mai n.k. kl. 13.30 með fulltrúum þeirra félaga sem eiga sæti i 1. og 2. deild Islandsmótsins i knatt- spyrnu. Rætt verður um ýmis atriði varðandi framkvæmd landsmót- anna og fl. og einnig mæta á fund- inum fulltrúar frá landsliðsnefnd og tækninefnd KSI. (Frétt frá mótanefnd KSl). Þróttur AÐALFUNDUR knattspyrnu- deildar Þróttar verður haldinn fimmtudaginn 15. maí n.k. að Freyjugötu 27 og hefst kl. 20.00. Skólaboðhlaup I DAG fer fram I Vatnsmýrinni boðhlaup milli barnaskólanna í Reykjavik. Keppa 5 I hverri sveit. Hlaupið hefst kl. 10.30. Iþróttabandalag Keflavikur sigraði I 2. flokki kvenna i Isiandsmótinu í handknattleik. Keppti IBK til úrslita við Þrótt og sigraði 2:1 Meðfylgjandi mynd er af tslandsmeisturunum. Fremri röð frá vinstri: Anna Þóra Böðvarsdóttir, Þuriður Magnúsdóttir, Ernilia Einarsdóttir, Linda Gunnarsdóttir og Guðbjörg Ragnarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Elfas Jónasson þjálfari, Auður Harðardóttir, Hildur Kristjánsdóttir, Ingibjörg Óskarsdóttir, Sigurveig Sigurðardóttir, Sigurlina Högnadóttir og Guðmunda Helgadóttir. r Miklatúnshlaup MIKLATÚNSHLAUP Ármanns, hið næst siðasta á þessu timabili fer fram n.k. laugardag og hefst kl. 14.00. Lyftingamót KRAFTLYFTINGAMEISTARA- MÓT Islands verður haldið sunnudaginn 8. júni n.k. Keppnis- staður verður tilkynntur siðar. Svipmyndir frá starfí Iþróttaskóla Sigurðar Guðmundssonar. Karl með Víkinga GOLFKLÚBBURINN Keilir hef- ur nú ráðið til sin enskan golf- kennara, og mun hann starfa við kennslu á Hvaleyrarvelli frá 16.—24. maf n.k. Gefst þar ein- stakt tækifæri til þess að fá leið- sögn atvinnumanns, og er golf- áhugafólk hvatt til þess að not- færa sér hana og getur það til- kynnt þátttöku i sfma 53360 eftir kl. 16.00 á næstunni. Þorvaldur Ásgeirsson golf- kennari verður einnig að störfum við golfkennslu á Hvaleyrar- vellinum tvo daga í viku, og geta þeir sem áhuga hafa á kennslu látið skrá sig bæði i skálanum á Hvaleyrarvelli og i síma 53360. Golfklúbburinn Keilir áformar að byggja upp unglingaflokka, 14 ára og yngri og 15—17 ára með sérstakri kennslu golfþrauta, sem síðan verður keppt i, og verða hverjum flokki. Þessa kennslu mun Þorvaldur annast á vegum klúbbsins og gefst þarna kjörið tækifæri fyrir unglinga að kynna sér íþróttina og læra reglur hennar. Sérstök golfkynningarvika verður haldin í byrjun júní, og munu þá félagar úr golfklúbbn- um, ásamt Þorvaldi Asgeirssyni leiðbeina þeim sem vilja kynnast iþróttinni og starfsemi GK. ISLANDSMEISTARAR Vfkings í handknattleik hafa nú gengið frá endurráðningu Karls Benedikts- sonar, þjálfara síns, og verður næsta keppnistfmabil það þriðja f röð sem Karl þjálfar Vfkingana, en áður hafði Karl þjálfað Fram um árabil með mjög góðum árangri, og auk þess hefur Karl svo gegnt landsliðsþjálfarastörf- um um tfma. Vfkingar munu taka þátt f Evrópubikarkeppni meistaraliða næsta vetur, og verður það fyrsta stórverkefni félagsins þá. Verður fróðlegt að sjá hvernig liðinu vegnar án Einars Magnússonar sem verið hefur helzti markaskor- ari liðsins undanfarin ár, en Einar mun, sem kunnugt er, leika með vestur-þýzka liðinu Hamburg SV næsta vetur. Karl Benediktsson — þjálfar Vfkingana næsta keppnistfmabil. Margþátta starf Iþróttaskóla Sigurðar Guðmundssonar í Leirárskóla í sumar lÞRÖTTASKÓLI Sigurðar Guð- mundssonar f Leirárskóla verður starfræktur f sumar, með svipuðu sniði og undanfarin sumur. Iþróttaskóli þessi hóf starfsemi sfna árið 1968, og hefur það að markmiði að veita fræðslu f íþróttum og félagsstarfi. Fræðsl- an er byggð upp með námskeið- um, sem haldin eru fyrir hina ýmsu aldursflokka barna og ungl- inga og fyrir leiðbeinendur og kennara, sem vilja afla sér menntunar eða sérhæfingar f fþróttum og félagsstarfi. Eitt af meginverkefnum skól- ans í sumar eru svonefnd A- námskeið, þar sem um er að ræða námskeið fyrir þjálfara í iþrótt- um. Er á námskeiðum þessum kenndur grunnskóli ISI, og gefur hann undirstöðumenntun fyrir hinar ýmsu greinar iþrótta. Til þess að komast á A-námskeiðin þurfa nemendur að verða 18 ára á árinu, og gefur A-námskeiðið þeim síðan rétt til þess að taka siðar B-námskeið i hinum ýmsu iþróttagreinum, sem haldin verða væntaniega í samráði við sérsam- bönd ISI. Verða tvö A-námskeið i Leirárskóla í sumar. Annað stend- ur frá 8. júní til 29. júni, en hitt frá 20. júni til 9. júlí. Önnur námskeið sem haldin verða í Iþróttaskóla Sigurðar í sumar eru námskeið I jassleikfimi sem stendur frá 24.—30. maí og mun Monica Becman verða aðal- kennari á því. Tvö námskeið verða i frjálsri hreyfingu (Basic movements) 23.—27. júlí og 27.—31. júlí og annast Jakob Naadland, norskur kennari, fræðsluna. Námskeið í MlME — leikrænni tjáningu fyrir byrjend- ur verður frá 15,—19. ágúst og siðan framhaldsnámskeið 20.—24. ágúst. Kennari á nám- skeiðum þessum verður Grete Nissen. Vió Iþróttaskóla Sigurðar Guð- mundssonar er svo starfandi ung- mennadeild, þar sem börnum og unglingum eru kenndar ýmsar iþróttir. Alls verða 8 slík ung- mennanámskeið i sumar og hefst það fyrsta 8. júni. Yngst eru börn tekin 9 ára inn í námskeið þessi og hámarksaldur er 16 ár. Tekið verður á móti umsóknum i iþróttaskólann og veittar upp- lýsingar hjá Sigurði R. Guð- mundssyni eða Katrinu Arnadótt- ur, Leirárskóla, síma 93211 kl. 17—19 og hjá Guðbjörgu Sigurð- ardóttur, Skipasundi 66, sími 35316, virka daga kl. 20—21. Júlíus Hjörleifssonl JÚLÍUS Hjörleifsson, hlaupari úr I ÍR, sem dvelur nú I Svíþjóð tók I þátt I vlSavangshlaupi þar um slðustu helgi. Nefnist hlaup þetta Smedby-hlaupið og tóku þátt i I þvl margir góðir hlauparar. Júllus I sigraði I unglingaf lokki hlaupsins. og hafði þó við tvo sænska ungl- ingalandsliðsmenn frá I fyrra að etja. Er Júlfus nú I mjög góðri æfingu, og llklegur til afreka á | hlaupabrautinni I sumar. Agúst Asgeirsson ÁGÚST Ásgeirsson, hlaupari úr ÍR, sigraði I 1500 metra hlaupi á háskólamóti sem haldið var I Dur- ham um siðustu helgi. Hljóp hann 3:59,4 mln., en aðstæður til keppni voru fremur slæmar, brautirnar orðnar lausar, eftir fimm klukkustunda stanzlausa keppni I stuttum hlaupum, er að | 1500 metra hlaupinu kom. Hlaupið var fremur rólegt I byrj- ] un, og lét Ágúst aðra um að ráða hraðanum, en þegar að enda- sprettinum kom, stakk hann keppinauta slna af. Annar I hlaupinu varð Mike Goddard frá Durhamháskólanum á 4.00,0 mln., en næstu menn hlupu svo á 4:05,0 mln. Ágúst sagði I viðtali við Morg- unblaðið f gær, að hann hefði I ekki getað beitt sér sem skyldi I hlaupinu. þar sem hann væri enn engan veginn búinn að jafna sig I af þeim meiðslum sem hann varð fyrir á æfingu fyrr I vetur. — Ég [ held samt að ég hefði hlaupið á I 3:54—3:55, hefðu aðstæðurnar | verið betri, sagði Ágúst. Sigfús Jónsson keppti ekki á I móti þessu, en hann hefur lltið getað æft slðan hann keppti 11 Vlðavangshlaupi ÍR á dögunum, vegna eymsia I vöðvafestingum á fæti. Munu eymsli þessi stafa af snöggri skiptingu frá eintómum I löngum hlaupum á æfingum yfir 11 hraðar æfingar á hlaupabraut. Á umræddu háskólamóti unn-1 ust 400 metrarnir á 50,0 sek.; 400 metra grindahlaup á 56.51 sek., 800 metra hlaup á 1:56,5 I mln., 3000 metra hindrunarhlaup I á 9:41,2 mln. og 5000 metra I hlaup á 14:24,2 mln. Það hlaup I vann J. Myatt Gateshead, sem! Ágúst hefur oftsinnis sigrað i I vfðavangshlaupum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.