Morgunblaðið - 08.05.1975, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAl 1975
5
Miðnœturskemmtun í Háskólabíói:
ANNAÐ kvöld verður miðnætur-
skemmtun í Háskólabíói og renn-
ur allur ágóði af henni í slysasjóð,
en tilgangur sjóðsins er að
styrkja þá landsmenn, sem orðið
hafa fyrir slysum eða eiga í erfið-
leikum vegna slysa, aðstandendur
þeirra eða fyrirvinnu.
Leikarar og félagar í Sinfóníu-
hljómsveit Islands stofnuðu þenn-
an sjóð árið 1973, en það ár var
óvenju mikið slysaár hér á landi.
Sjóðurinn er i vörzlu Slysavarna-
félags Islands og fór úthlutun úr
honum fram í fyrra í fyrsta skipti.
Fjár i sjóðinn hefur verið aflað
Bessi „debúterar" með Sinfóniunni annað kvöld.
Bessi leikur einleik með Sinfóníunni
með skemmtun, sem haldin er
sem næst lokadeginum, en einnig
hafa sjóðnum borizt gjafir og
áheit.
Skemmtidagskrá Ieikara og sin-
fóníumanna er fjölbreytt mjög
enda tekur fjöldi manns þátt i
flutningnum. Meðal atriða má
Orgeltónleikar
í Dómkirkjunni
BANDARlSKUR organleikari,
próf. Delbert D. Disselhorst frá
Iowaháskóla, heldur orgeltón-
leika I Dómkirkjunni í dag, upp-
stigningardag klukkan 20.30.
Disselhorst hefur farið víða um
heiminn og haldið tónleika.
Á tónleikunum í kvöld leikur
próf. Disselhorst meðal annars
Preludiu og fúgu í A-dúr og Tocc-
ötu og fúgu í F-dúr eftir Bach,
„Mein junges Leben hat ein End“
eftir Sweelinck ásamt verkum eft-
ir bandaríska höfunda svo sem
Samuel Barber.
Próf. Disselhorst kemur hér við
á leið sinni i tónleikaferð til Ev-
rópu.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis, en tekið verður á móti
framlögum upp í kostnað við út-
göngudyr.
nefna einsöng Sigriðar E.
Magnúsdóttur, fjórar nýuppgötv-
aðar ballerinur leika listir sinar,
Gisli Halldórsson, Árni Tryggva-
son og Róbert Arnfinnsson
skemmta, sýndir verða tveir leik-
þættir, kvartett Leikfélags
Reykjavíkur syngur, einnig 14
Fóstbræður, Islenzki dansflokk-
urinn, en það atriði, sem teljast
má einna forvitnilegast er sá
mikli listaviðburður, að Bessi
Bjarnason leikur einleik með
Sinfóníuhljómsveit Islands. Þetta
er frumraun Bessa, en hvert ein-
leikshljóðfærið er verður ekki af-
hjúpað fyrr en á skemmtuninni.
Skemmtuninni lýkur með þvi,
að Karlakórinn Fóstbræður og
sinfóniuhljómsveitin flytja tvo
kóra úr Þrymskviðu Jóns Asgeirs-
sonar, og stjórnar höfundurinn
flutningnum.
Kynnir á skemmtuninni verður
Arni Tryggvason, en allir þeir,
sem koma fram á skemmtuninni
gera það án endurgjalds, þannig
að ágóðinn rennur óskiptur í
slysasjóðinn.
FIMMTUDAGINN 8. maí (upp-
stigningardag) sýnir leiklistar-
skóli S.Á.L. (samtök áhugamanna
um leiklistarnám) skemmtunar-
leik í Breiðholtsskóla sem heitir
HVAÐ ER I KOKINU A HVALN-
UM. Skemmtun þessi er fyrir
börn og fullorðna og verða sýn-
ingar klukkan 2 og 4. Þau sýndu
þennan leik tvisvar á sumar-
daginn fyrsta í Austurbæjarblói
við góðar undirtektir áhorfenda.
Sýningu þessa hafa nemendur
2. bekkjar SÁL unnið i hópvinnu
á skólatíma undanfarinn mánuð
uppúr ævintýri eftir Kipling,
Aðgöngumiðar fást i Háskóla-
biói og bókabúðum Lárusar
Blöndals, en hver miði kostar kr.
750.—.
Tónleikar í
Hamrahlíð
TÓNLEIKAR Tónlistarskólans í
Reykjavik verða á uppstigningar-
dag 8. maí kl. 4 i Menntaskólanum
við Hamrahlíð. Flutt verða lög
fyrir söngvara og ásláttarhljóð-
færi eftir Carl Orff úr verkinu
„Tónlist fyrir börn“. Nemendur
úr Tónmenntarkennaradeild
stjórna kór Tónlistarskólans, sem
syngur þýsk þjóðlög i útsetningu
Ernst Pepping. Ljóðin þýddi Þor-
steinn Valdimarsson skáld.
Einnig koma fram hljóðfæra-
leikararnir Júliana Kjartansdótt-
ir, Vilhelmína Olafsdóttir og Kol-
brún Oskarsdóttir. Velunnarar
skólans eru velkomnir á tón-
leikana.
síberisku ævintýri, spuna og lát-
bragðsæfingum o.s.frv. Ólafur
Haukur Símonarson samdi lög og
texta, sem sungnir eru og
nemendur úr Tónlistarskólanum
Ieika undir á hljóðfæri. Gylfi
Gíslason myndlistarmaður leið-
beindi við gerð leiktjalda, sem
eru hin nýstárlegustu. Umsjón
með ritun og uppsetningu hafði
Sigurður Pálsson, kennari við
skólann, ásamt Hilde Helgason og
Kuregei Alexandra Jónsson, sem
einnig kenna við skólann.
Nemendur bekkjarins eru 10 og
leika sumir fleiri en eina persónu.
r
SAL sýnir „Hvað er
í kokinu á hvalnum”
Hjálpræðisherinn á íslandi 80 ára
HINN 12. maí 1895 hóf Hjálpræð-
isherinn starfsferil sinn hér á
landi. Hann var stofnaður af Will-
iam og Catherine Booth í fátækra-
hverfum í East-London 1865.
Þegar Herinn byrjaði hér, átti
hann við ýmsan vanda að etja.
Enda þött hannmættistrax rikum
skilningi og samúð margra ágæt-
ustu manna þjóðarinnar, sem enn
er tilfellið, þá voru þeir jafnframt
margir, sem heldur reyndu að
gera honum erfitt fyrir en að
greiða fyrir honum eða starfi
hans á nokkurn hátt.
Áðurnefndra tímamóta minnist
Herinn nú með fjögurra daga
hátíðahöldum. Aðalstöóvarnar í
Noregi hafa sent hingað sem
fulltrúa sinn og stjórnanda
hátíðarhaldanna, majór Guðfinnu
Jóhannesdóttur, sem gegnir
þýðingarmiklu starfi við foringja-
skólann í Osló. Majórinn er fædd
og uppalin í Hafnarfirði. Hún var
barnung þegar hún hóf að starfa
með Hernum, og hefur nú um
langt skeið gegnt margvíslegum
ábyrgðarstörfum innan vébanda
hans, þar á meóal deildarstjóra-
starfinu á Islandi og Færeyjum.
Sérstökum fögnuði veldur þaó
öllum hér á landi, sem hlut eiga
að máli, að frá frændþjóðinni í
Færeyjum koma hvorki meira né
minna en 24 gestir, hermenn og
heimilasambandssystur. Þennan
alúðar-vináttuvott meta foringjar
og hermenn hér mikils. Einnig
koma gestir frá Akureyri og Isa-
firði. Hátíðin hefst á uppstign-
ingardag meðfagnaðarsamkomu/
sal Hersins. Á föstudaginn er svo
samkvæmi fyrir hermenn og
heimilasarnbandssystur. A
laugardaginn þ. 10. maí ná hátiða-
höldin hámarki í aðal-
hátiðarsamkomunni sem fram fer
í Dómkirkjunni kl. 20.30. Þar
verða forsetahjónin viðstödd
ásamt biskupi Islands, sem flytur
ávarp. Borgarstjórinn mun einnig
flytja ávarp og dómprófasturinn.
Mikið verður um söng og hljóð-
færaleik. Öllum er heimill
inngangur. Á/sunnudaginn eru
samkomur kl. 10.30 og 20.30. A
mánudeginum er svo heimilasam-
bandsmót, sem lýkur með
almennri samkomu um kvöldið.
(Frá Hjálpræðishernum).
KÁPUR MIKIÐ ÚRVAL
FÖT M/VEST!
Stórglæsilegt efnisúrval. Nýtt snið.
KJÓLAR — PILS
STAKIR FLAUELSJAKKAR
HERRAPEYSUR
DÖMUPEYSUR
BOLIR OG BLÚSSUR
MJÖG FJÖLBREYTT ÚRVAL
RÚLLUKRAGA-KREPBOLIR
RÚLLUKRAGAPEYSUR
LEÐURBELTI MIKIÐ ÚRVAL
| LÉTTIR HERRASPORTJAKKAR
DÖMU-SPORTJAKKAR
HERRAFLAUELSFÖT
O
FÍNFLAUELSBUXUR
Margir fattegir litir
UFO GALLABUXUR
NÝ STÓR PLÖTUSENDING
O.M.FL.
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a