Morgunblaðið - 08.05.1975, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAl 1975
11
Karlakórinn Fóstbræður
Kvennakór Suðurnesja
Samkór Vestmannaeyja
Stúdentakórinn
Walton Grönroos
SÖNGUR er án efa einn greini-
legasti mælikvarði á menningu
almennt. Söngur og mál er
sprottið af sömu rót og meðferð
og efnisval er sýnishorn menn-
ingarlegra viðhorfa þess er syng-
ur, en speglar í andsvari hlust-
andans tilfinningalegan og
menntunarlegan þroska hans.
Þær kröfur, sem gera þarf til
söngvara, ef syngja á Messías eða
Botniu, eru svo ólíkar, að saman
verður ekki jafnað og sem við-
fangsefni eru þetta menningar-
legar andstæður. Notagildið, sem
markmið, leiðir oft til þess að
sölumöguleiki ræður of miklu um
gerð verksins. Andstætt viðhorf
leiðir aftur á móti til sköpunar
verks, sem er rúið öllum tengslum
við mannleg umsvif, byggt á
þeirri hugmynd, að listgildið eigi
að vera fólgið i verkinu sjálfu og
skynjun þess einstæð. Eitt af
einkennum nýtilistar er skamm-
lifi og sifelld endurnýjunarþörf,
sem stafar oft af lítilfjörleik í
gerð. Á sama tíma vinna vel gerð
nýtiverk á og öðlast í fyllingu
tímans viðurkenningu sem lista-
verk. Þá er nýtilist mjög háð efna-
hag, menntun og siðgæði og er
með sama ofstæki, og oft samtim-
is, hafin til skýjanna eða for-
dæmd. Fyrir nokkrum árum voru
karlakórar mest virtu flytjendur
söngtónlistar hér á landi. Með
vaxandi þekkingu á raddbeitingu,
hefur söngsmekkur almennings
breytzt á siðari árum og vegur
blandaðra kóra vaxið mjög. Margt
fleira kemur til en söngtækni, t.d.
vaxandi almenn menntun á sviði
tónlistar og vaknandi vitneskja
um úrval listaverka frá öllum tím-
um fyrir blandaða kóra. Á móti
þessu kemur svo minnkandi
nýsköpun verkefna fyrir karla-
kóra. Þetta þýðir ekki að tími
karlakóra sé liðinn, heldur að
aðstæður séu aðrar í dag, val-
kostir fjölbreytilegri en áður fyrr
og nýsköpun verkefna fyrir karla-
kóra sé að verða brýn nauðsyn. Á
siðustu tónleikum Karlakórsins
Fóstbræðra kvaddi sér hljóðs,
sem stjórnandi, ungur og vaxandi
tónlistarmaður Jónas Ingi-
mundarson píanóleikari. Af þess-
um tónleikum verður aðeins ráðið
að hann veldur þessu verki vel og
óhætt er að spá honum framtið
sem kórstjóra. Herbert H. Ágústs-
son tónskáld, stjórnandi Kvenna-
kórs Suðurnesja, er góður tón-
listarmaður og á betra skilió en að
þjóna undir slíkan smekk sem
kom fram á tónleikum kórsins.
Lög eins og More, Yesterday, úr
söngleiknum Cabaret og þau er
Elísabet Erlingsdóttir söng, eru
svo þvæld að aðeins afburða
flutningur afsakar slíkt efnisval,
Iðnskólinn verði
áfram á ísafirði
SEXTIU og fjórir nemendur og
kennarar við Iðnskóla Isafjarðar
hafa birt áskorun til bæjaryfir-
valda Isafjarðarkaupstaðar vegna
húsnæðisvandamála skólans, sem
undirskrifendur áskorunarinnar
segja ógna tilveru hans. Stóðu
fyrrgreindir aðilar að kröfugöngu
fyrir viku síðan, þar sem krafizt
var að lausn yrði fundin á hús-
næðisvandamálinu. Orsök þess
vanda var talin aógerðarleysi
bæjaryfirvalda, þar sem fyrir
lægi umsögn húsráðenda i þá
veru að ekkert væri því til fyrir-
stöðu af þeirra hálfu aó leigja
nægilegt húsrými undir skóla-
starfsemina. Meginkrafa undir-
skrifendanna er að skólinn verði
áfram á Isafirði og fái tækifæri til
að eflast og vaxa svo sem slíkri
stofnun ber, svo og að kennarar
skólans sitji við sama borð varð-
andi húsnæói og aðrir kennarar
við aðra skóla staðarins.
„Látum ekki flytja skólann frá
ísafirði“— er kjörorð undirskrif-
endanna.
og þó varla. Samkór Vestmanna-
eyja hefur sungið vitt og breitt
um Suðurland og gefið út yfirlit
um hagvöxt i hljómleikahaldi
kórsins, en undirrituðum til sárra
leiðinda, treysti kórinn póstþjón-
ustunni fyrir útburði aðgöngu-
miða, sem komu til skila tveim
dögum eftir að konsertinn var
haldinn. Með kærri þökk.
Háskólakórinn er að verða til og
ungt fólk, undir góðri hand-
leiðslu, velur sér viðfangsefni,
sem ekki eru skráð á vinsælda-
listunum, telur sig eiga erindi við
góða tónlist og vandar söng sinn.
Rut Magnússon hefur unnið frá-
bært starf með þjálfun Háskóla-
kórsins, sem söng hreint og víða
mjög fallega. Kórónan á þessari
söngönn, voru svo tónleikar
Walton Grönroos, frá Álandseyj-
um. Hann er frábær söngvari og
væri skemmtilegt að fá hann til
að syngja í Carmen, sem stendur
til að færa upp i Þjóðleikhúsinu
bráðlega. Á þeim hluta söngskrár-
innar sem undirritaður hlýddi á,
söng Walton Grönroos lög eftir
Schubert, Schumann og Hugo
Wolf, vandasöm verkefni sem
gera miklar kröfur til flytjenda.
Undirleik annaðist Agnes Löve
pianóleikari, og er leitt til þess að
vita hve ungum píanistum bjóðast
fá tækifæri til að „músisera".
Sjötíu sinnum
iviku
Sjötíu sinnum í viku hefja þotur okkar sig til flugs í
áætlunarferö, samkvæmt sumaráætlun til 12 staöa
í Evrópu og Bandaríkjunum.
Þessi mikli ferðafjöldi þýðir þaö, að þú getur ákveðið
ferð til útlanda og farið nær fyrirvaralaust.
En það þarf talsvert til að þetta sé mögulegt. Það
þarf traust starfsfólk og góðan flugvélakost.
Við höfum hvort tveggja. Við höfum 2 Boeing og
3 DC8 þotur, og 1600 starfsmenn, marga með
langa og gifturíka reynslu að baki, í þjónustu okkar,
Starfsfólk okkar hefur ekki aðeins aðsetur á (slandi.
500 þeirra starfa á flugstöðvum og skrifstofum
okkar í 30 stórborgum erlendis.
Hlutverk þess er að greiða götu þína erlendis.
Ætlir þú lengra en leiðanet okkar nær, þá er ekki
þar með sagt að við sleppum alveg af þér hendinni,
þá tekur ferðaþjónusta okkar við, og skipuleggur
framhaldið í samvinnu við flest flugfélög heims, sem
stunda reglubundið flug, og fjölda hótela.
Þegar þú flýgur með vélum okkar, þar sem reyndir
og þjálfaðir flugmenn halda um stjórnvölinn, og þér
finnst að þú sért að ferðast á áhyggjulausan, þægi-
legan og öruggan hátt, þá veistu að það er árangur
af samstarfi alls starfsfólks okkar, sem á einn eða
annan hátt hefur lagt hönd á plóginn til þess að svo
mætti verða.
FLUGFÉLAG LOFTLEIBIR
/SLAXDS
Sendiferðabíll
Chevrolet '74 með gluggum og sætum til sölu.
Til greina kemur að taka einkabíl upp í. Uppl. í
síma 36806 í dag og eftir kl. 7 á kvöldin.
Stangaveiðimenn
Lax- og silungsveiðileyfi til sölu í dag og næstu
daga kl. 5 — 7. Sími 1 5528.
Söngvika
Tónlist
eftir JON
ÁSGEIRSSON
Félög með þjálfaö starfslið í þjónustu við þig