Morgunblaðið - 08.05.1975, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAl 1975
Jafntefli
VESTUR-þýzka liðið Borussia
Mönchenglabach og hollenzka
liðið FC Twente gerðu jafntefli
0—0 I fyrri úrslitaleik sínum um
UEFA-bikarinn f knattspyrnu I
gærkvöldi, en leikur þessi fór
fram á heimavelli Borussia.
Seinni leikur Iiðanna verður I
Hollandi 21. maí.
— Hef góða von
Framhald af bls. 2
langvarandi óánægja með fram-
kvæmd reglugerðar um Kennara-
háskólann. Þar segir, að nemend-
um sé skylt að sækja minnst 80%
kennslustunda að meðaltali og í
engri grein minna en 50% á
hverju misseri að öðrum kosti fái
þeir ekki að taka próf. Þessu hafi
ekki verið beitt í reynd og því
hafi skólastjórnin óbeint stuðlað
að virðingarleysi við ákvæði þess-
arar greinar enda séu mjög marg-
ir nemendur fyrir neðan bæði
mörkin, enda sé 80% mætinga-
skyldan óraunhæf að mati nem-
enda og samrýmist ekki kröfum
sem gera verður til náms á há-
skólastigi. Síðan segir orðrétt í
tilkynningu nemenda:
„í desember 1974 kvisaðist út
meðal nemenda, að nú ætti i
fyrsta sinn að beita 22. gr. reglu-
gerðar og ef til vill að visa nokkr-
um nemendum frá janúarprófi.
Nemendur fóru þess á leit við
skólastjórn, að ekki yrði tekið
strangt á tölulegum upplýsingum
um mætingu nemenda, þar sem
nemendum hafi ekki verið gert
ljóst i upphafi skólaársins að nú
skyidi reglugerðarákvæðinu
beitt. Jafnframt kröfðust nem-
endur þess, að skólastjórn íhug-
aði vandlega orsakir lélegra mæt-
inga.
Viðbrögð skólastjórnar voru
þau, að menntamálaráðuneytinu
voru send tilmæli um að veita
undanþágu frá 22. gr. reglugerðar
um K.H.Í. og nemendur sem ekki
höfðu náð tilskilinni tímasókn
fengju að ganga undir janúarpróf
1975. Jafnframt var tekið fram að
skólastjórn mundi ekki mæla með
slíkri almennri undanþágu í ann-
að sinn.
Svar Menntamálaráðuneytisins
var á þá leið, að undanþágan væri
veitt, en jafnframt lögð áhersla á,
að framvegis yrði fylgst með mæt-
ingum nemenda og tryggð eðlileg
framkvæmd reglugerðar.
Við teljum, að skólastjórn, sé
ekki stætt á þvi nú að beita ákv.
22. gr. reglugerðar og visa nem-
endum frá prófi, vegna þess að:
1. Skólastjórn virðir aö vettugi
ákvæði um 50% lágmarksmæt-
ingu i hverri grein og beitir auk
þess ákvæði 22. gr. aðeins gegn
hluta nemenda, sem i raun hafa
gerst brotlegir við 80% heildar-
mörkin.
2. Skólastjórn hefur með ofan-
greindu brotið i bága við tilmæli
Menntamálaráðuneytis um að
„fylgst verði með mætingum nem-
enda og tryggð eðlileg fram-
kvæmd reglugerðar".
3. Ekki verður séð, að 16. gr.
reglugerðarinnar heimili að víkja
50% reglunni til hliðar i heild
sinni og 80% mörkunum að hluta,
heldur er hér um tiltölulega
þrönga heimild rektors og við-
komandi kennara að ræða.
Það er skoðun okkar, að sveigj-
anleiki í beitingu reglugerða um
skóla sé óumflýjanlegur með til-
liti til sérþarfa nemenda, en
sveigjanleikinn má ekki verða á
þann veg, að slegið sé af kröfum
til nemenda og skólinn risi ekki
undir hlutverki sínu.“
— Útgerðarmenn
Framhald af bls. 40
hásetar, matsveinar og netamenn,
hafa hærra hlutfall af sínum
launum í föstu kaupi heldur en
yfirmennirnir. Er þessi mynd því
talsvert skekkt miðað við það sem
til var stofnað og er á bátaflot-
anum, þannig að yfirmenn á stóru
togurunum hafa hlutfallslega
hærri laun heldur en á bátaflot-
anum. Er þar talsvert ósamræmi á
milli og er launamismunur mun
meiri á stóru togurunum.
Á togaraflotanum eru t.d. lif-
eyrissjóðsgreiðslur miðað við
brúttólaun, en á bátaflotanum er
lífeyrissjóðsgreiðslum háttað
þannig að samið er um fasta
ákveðna upphæð, sem er mjög
nærri þvi að vera kauptryggingin.
Borga því bæði sjómennirnir og
útgerðarmennirnir á minni togur-
unum minna í lífeyrissjóði en
þeir sem standa að stóru togur-
unum. Munar þar talsverðum
fjárhæðum og t.d. frá útgerðar-
innar hálfu getur þar munað á
aðra milljón króna á einu skipi.
Allir áhafnarmenn stóru
togaranna hafa frítt fæði, en á
minni togurunum fá þeir ákveðna
fæðispeninga, sem greiddir eru
úr áhafnardeild Aflatrygginga-
sjóðs og innheimtir með út-
flutningsgjaldi. Bera skipverjar
síðan ábyrgð á fæðiskostnaði sín-
um og fá fæðispeningana hvort
sem þeir eru hærri eða lægri en
fæðiskostnaðurinn. Skapar þetta
aðhald við fæðiskostnað.
Þá er þess að geta að á stærri
togurunum eru greiðslur fyrir frí-
daga verulega miklar. Þetta er
ekki til á bátaflotanum, þar sem
skipshöfnin á hlut úr öllum afla.
Vinnutiminn á minni togurun-
um er umsaminn 6 klukkustunda
vinna og 6 klukkustunda hvíld —
12 klukkustunda vinna og 12
klukkustunda frí í sólarhring. Er
þetta þannig einnig á stóru
togurunum, en vegna þess hve
hlutur af afia er miklu meiri á
minni skipunum, þá er, þegar
aflasæld er, mikill vilji meðal
mannanna til þess að vinna frí-
vakt, þar sem þeir bera þá hlut-
fallslega meira úr býtum af þeim
afla sem gefst. Er þvi kerfi báta-
kjarasamninganna alit meira
hvetjandi en hitt og gefur al-
mennt meiri laun i dag.
Aflaverðmæti stóru og minni
togaranna er álika, en vegna þess
aó á stóru togurunum eru 24 i
skipshöfn, en ekki nema 15 til 16
á hinum minni, bera þeir meira
úr býtum, sem eru á minni
togurunum. Þrátt fyrir þetta er
hlutfall útgerðarinnar í greiðslu
launakostnaðar mun hærra á
stóru togurunum. Mun það vera
ástæðan fyrir því að útgerðar-
menn hafa nú boðið sams konar
samninga á stóru togurunum og
gilda á þeim minni.
Jón Sigurðsson, formaður
Sjómannasambands Islands sagði
í gærkveldi, að m.a. væru það
vökulögin og ótti við að þau verði
ekki virt, sem gerði það að verk-
um að sjómenn höfnuðu tilboð-
inu. Sagði Jón, að það væri
reynslan að menn væru yfirleitt
ragari við að brjóta lög en
samningsákvæði.
— Rækja
Framhald af bls. 40
var að mestu fenginn i tveimur
hölum. Það skal skýrt tekið fram,
að aðeins tveir þorskar voru í
aflanum, hitt var allt saman
rækja. Verður þetta að teljast ein-
dæma afli. Rækjan er mjög stór
og falleg og hef ég ekki séð hana
stærri.
— Matthfas.
— Grundvallar-
texti
Framhald af bls. 40
grundvallartextanum og geta slík
ákvæði orðið okkur þung í skauti.
Um það Verður þó ekki sagt fyrr
en textinn liggur fyrir.
Aðalatriðið fyrir okkur Islend-
inga er að gert verði ráð fyrir 200
mílna efnahagslögsögu í grund-
vallartextanum, því að þá munum
við færa út lögsögu okkar á þessu
ári í samræmi við yfirlýsta heild-
arstefnu.
Hin ýmsu sjónarmið í nefndun-
um lýsa sér m.a. i þvi, að franski
fulltrúinn skrifaði Pohl, for-
manni annarrar nefndar, bréf,
þegar Evensensálitið um 200
mílna efnahagslögsöguna lá fyrir,
og sagðist óska eftir því, að und-
anþágurnar innan 200 milnanna,
sem þar er gert ráð fyrir, verði
meiri en segir í áliti nefndarinn-
ar, og fulltrúar landluktra og af-
skiptra ríkja í Evensensnefnd-
inni, þ.e. fulltrúar Vestur-
Þýzkalands, Singapore, Nepal og
Sambíu, sendu Pohl einnig orð-
sendingu þess efnis, að þessi lönd,
sem segjast tala fyrir munn 50
afskiptra og landluktra rikja, geti
ekki fallizt á 200 mílna efnahags-
lögsögu nema meira tillit sé tekið
til afskiptra og landluktra ríkja
en gert er í tillögum Evensens-
nefndarinnar. Eins og textinn sé
nú, geti þessi riki ekki fallizt á
hann.
Þetta hefur ekki komið neinum
á óvart, þvi að vitað hefur verið
um samstöðu þessara ríkja, eins
og frá hefur verið skýrt hér í
blaðinu.
Aftur á móti má geta þess, að i
nefndaráliti þróunarríkjanna,
hóp 77, er aðeins gert ráð fyrir
undanþágum innan 200 mílnanna
fyrir þróunarríki, svo aó ekki er
texti þeirrar nefndar almennt
hagstæðari landluktum og af-
skiptum ríkjum en texti Even-
sensnefndarinnar um 200 mílurn-
ar. Samkvæmt texta hóps 77 ættu
afskipt og landlukt ríki í Evrópu
ekki að fá undanþágú innan 200
mílna efnahagslögsögu strandrik-
is, en þar er aftur á móti gert ráð
fyrir meiri réttindum landluktra
og afskiptra þróunarríkja en i
texta Evensen-nefndarinnar, sem
gerir einkum ráð fyrir samningi
við þessi ríki eftir aðstæðum.
— Yfirlýsing
Framhald af bls. 2
frá okkur var 29. janúar og
sagði ég þvi Vilmundi, að ef að
líkum lætur hafi þeir verið
greiddir 1—2 dögum áður.
Siðan spyr hann, hvort bíll
fjármálaráðherra sé einn af
þeim. Svarið, sem hann fær er,
aö hann fór i toll 24. janúar og
hafi því væntanlega verið
greiddur 22. eða 23. janúar í
banka.
Þar sem hann minntist á bíl
ráðherra, þá bað ég hann að
koma því að í þættinum, vegna
ummæla i Alþýðublaðinu, að
bíll fjármálaráðherra hafi verið
pantaður s.l. haust, en af-
greiðsla tafist. Hins vegar hafi
hann verið leystur út strax og
pappírar komu og þvi væntan-
lega verið greiddur i banka
22.—23. janúar eins og fyrr seg-
ir og þá engar afgreiðslutafir í
gjaldeyrisyfirfærslum.
Að mér dytti i hug, að mann-
inum væri ekki treystandi fyrir
að koma leiðréttingu á fram-
færi er mér fjarri, hins vegar
segir hann i þessum þætti, að
Veltir hafi haft sérfriðindi í
bankanum, þar sem hvorki
Hekla h.f. eða P. Stefánsson h.f.
hafi fengið að greiða sendingu
bíla 4 dögum fyrir lokun.
Að Veltir h.f. hafi haft ein-
hver sérfríðindi vegna af-
greiðslu gjaldeyris í banka á ég
bágt með að trúa, enda e.t.v.
meining Vilmundar að gera tor-
tryggilega greiðslu vegna fjár-
málaráðherra.
Að sjálfsögðu á maður að
vara sig á fréttamönnum en ég
hefi verið það heppinn um dag-
ana í flestum tilfellum að hafa
átt viðtal við heiðarlega frétta-
menn sem viljað hafa það sem
sannast reynist.
Reykjavík, 7. mai 1975.
Gunnar Ásgeirsson.
— Laos
Framhald af bls. 1
ótta vió að hin ýmsu samtök í
landinu myndu notfæra sér það
til að efna til óeirða.
Þá hefur verið mjög ókyrrt í
borginni Pakse í Mekongóshólm-
um og kom til átaka þar er tvö
þúsund stúdentar og verkamenn
þustu um götur bæjarins og tóku
á sitt vald borgarstjórann og tvo
aðstoðarmenn hans. Voru þessi
mótmæli m.a. vakin af miklum
hækkunum á verðlagi. Munu
tveir menn hafa beðið bana og
nokkrir særst. Talið var að ró
væri nú að færast yfir þar á ný.
Fyrrverandi ráðherra í Laos,
Chao Bounom Na Champasak, var
drepinn í nótt, þegar hand-
sprengju var varpað að bifreið
ráðherrans, er hann var á leið til
flugvallarins við Víentíane. Tveir
aðrir sem voru í bilnum létust
einnig og tveir aðrir slösuðust.
Lögregia segir að maður á mót-
orhjóli hafi varpað handsprengj-
unni og hafi hún lent í framsæti
bifreiðarinnar. Ekki er ljóst að
sögn lögreglu, hvort pólitískar
ástæður liggja til morðsins,
Champasak var hægrisinnaður og
sat í ráðuneyti Souvannah
Phouma árið 1961.
Opinberar heimildir innan
Laoshers hafa staðfest að stjórn-
arherinn hafi beðið ósigur við
borgina Kasy sem er 130 km frá
höfuðborginni, fyrir hermönnum
Pathet Lao, en á þessu svæði hafa
bardagar verið harðskeyttir síð-
ustu daga.
— 100 ára
Framhald af bls. 3
heyrði það til undantekninga að þeir,
sem framleiddu húsgögn, vaeru fag-
lærðir Húsasmlðameistarar smlðuðu
húsgögnin sem framleidd voru innan-
lands, og það var látið gott heita. Það
var óræktarakur sem við tókum I arf,
en það var gaman að sá I hann
í lok samtalsins við Matthías
Johannessen lét Jón Ólafsson þess
getið, að faðir hans hefði náð 96 ára
aldri. „Kannski liggur þessi hái aldur I
ættinni," sagði hann I samtalinu og
virðast það orð að sönnu nú þegar Jón
hefur fyllt tíunda tuginn.
— Portúgal
Framhald af bls. 1
JESUINO UNDRAST KVlDA
ATLANTSHAFSBANDALAGS-
INS
Upplýsingamálaráðherrann
Jesuino, sem vitnað er til í upp-
hafi fréttar, sem er á ferð i Wash-
ington, sagði þá einnig að hann
teldi það „einkennilegt“ að At-
Iantshafsbandalagið virtist gruna
stjórn sína um græsku, vegna að-
ildar kommúnista að henni. Hann
kvaðst vilja benda á að kommún-
istaflokkar í ýmsum löndum At-
lantshafsbandalagsins, svo sem
Frakklandi og Italiu væru miklu
sterkari en kommúnistaflokkur
Portúgals, en að þeim beindust
engar grunsemdir. Þegar athygli
hans var vakin á að i nefndum
löndum sætu kommúnistar ekki í
rikisstjórn, sagði hann að þegar
vestrænar varnir væru annars
vegar væri það ekki rikisstjórnin,
sem tæki ákvarðanirnar heldur
byltingarráóið. Þvi væri það úr
lausu lofti gripið að álita að leyni-
málum Atlantshafsbandalagsins
yrði komið til Moskvu af hálfu
portúgalskra kommúnista.
Jesuino sagði að gengið hefði
verið framhjá Portúgal af hálfu
Atlantshafsbandalagsins í ýmsum
ráðagerðum, en Portúgalir hefðu
ákveðið að láta slíkt ekki á sig fá.
Jesuino staðfesti andstöðu
Portúgala við því að Bandarikja-
menn notuðu bækistöðina á Azor-
eyjum til millilendinga vegna
hergagnaflutninga til Israels, en
að öðru leyti væri Bandaríkja-
mönnum frjálst að hafa herstöð-
ina áfram. Aðspurður um þann
orðróm aó Sovétríkin væru að
þreifa fyrir sér um aðstöðu í
Portúgal sagði hann að ekki hefði
komið til greina herbækistöð af
neinu tagi heldur í mesta lagi
viðræður um einhvers konar
birgóaaðstöðu.
— Flóttamanna-
aðstoð
Framhaid af bls. 1
verjalandi og Kúbu. Hann sagði
að Bandarikin hefðu alltaf verið
mannúðarþjóð og hann vildi
vekja athygli á að 60% flótta-
fólksins væru börn sem Banda-
ríkjamönnum bæri skylda til að
gefa tækifæri til mannsæmandi
lífs.
Skömmu áður hafði Ford látið í
ljós mikla reiði yfir því hversu
mikil andstaða væri við að að-
stoða flóttamennina og minnti á
að þessar raddir hefðu látið litt á
sér kræla þegar 120 þús. Ung-
hverjar hefðu komið til Banda-
ríkjanna eftir 1956 og gifurlegur
fjöldi Kúbumanna nokkrum ár-
um síðar. Ford sagði I ræðu sinni
að hann hefði fengið boð um það
frá ýmsum rikisstjórnum i land-
inu, aó þeir myndu taka flótta-
fólkinu tveim höndum og slikt
væri jákvætt og örvandi.
i dag komu um þrátíu þúsund
manns saman fyrir framan for-
setahöllina í Saigon til að fagna
sigri kommúnista í landinu og
minnast þess að 21 ár er liðið frá
orrustunni við Dien Bien Puh.
Segja fréttamenn að fundur þessi
hafi verið mjög vel skipulagóur
og börn og unglingar og verka-
menn fluttir á staðinn mörgum
klukkustundum áður en fundur-
inn hófst. Þar flutti aðalræðuna
yfirmaður hers Þjóðfrelsisfylk-
ingarinnar, Tran Van Tra hers-
höfðingi, og sagði hann að stjórn-
in nýja myndi verða mild og þýð i
stjórn sinni og fyrirgefa þeim sem
hefðu verið á bandi fyrrverandi
stjórnar, ef þeir sneru við blað-
inu. Hinu væri ekki að leyna að
enn um hríó myndu nokkrir þeir
verða sem áfram gengju erinda
erlendra aðila. Fundarmenn veif-
uðu myndum af Ho Chi Minh og
höfðu uppi fagnaðarlæti. Fulltrú-
ar byltingarstjórnarinnar nýju
eru ekki enn komnir til Saigon.
Fréttamenn segja að ástand þar
sé að verða nokkuð eðlilegt og
ekkert sé til dæmis gert til að
hindra störf fréttamanna.
Varnarmálaráðuneyti Banda-
rikjanna staðfesti i dag að það
hefði fengið í hendur flestar
þeirra flugvéla sem flogið hefði
verið með til Thailands undir
stjórn s-víetnamskra flugmanna.
Hefði verið farið með flestar vél-
anna til Filippseyja í fyrsta
áfanga en sumar þeirra væru
laskaðar og nokkrar að likindum
ónýtar.
Brezka stjórnin tilkynnti í dag
að hún hefði í hyggju að viður-
kenna nýju stjórnina í Saigon, en
sagði ekki ákveðið hvenær það
yrði gert formlega, Þá hefur jap-
anska stjórnin í dag viðurkennt
byltingarstjórn Suður-Vietnams,
að því er talsmaður japanska ut-
anríkisráðuneytisins greindi frá i
dag.
óskar eftir starfsfólki
VESTURBÆR AUSTURBÆR
Tjarnargata Ingólfsstræti,
KÓPAVOGUR
Hlíðarvegur I. Upplýsingar í síma 35408.
GARÐAHREPPUR
Vantar útburðarfólk í Arnarnesi.
Uppl. í síma 52252.
SEYÐISFJÖRÐUR
Umboðsmaður óskast til að sjá um dreifingu og
innheimtu. Mbl. uppl. hjá umboðsmanni og á
afgr. í síma 1 0100.
GRINDAVÍK
Umboðsmaður óskast til að sjá um dreifingu og
innheimtu Mbl.
HVERAGERÐI
Umboðsmaður óskast til að sjá um dreifingu og
innheimtu Mbl.
Uppl. hjá umboðsmanni eða afgreiðslunni í
síma 1 01 00.