Morgunblaðið - 08.05.1975, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAl 1975
Vestur-íslenzk mœðgin:
Sigríður og Kristján
Kristjánsson - Kveðja
ÁSTÆÐAN fyrir þessum siðbunu
línum er sú, að mér er afar ljúft
að minnast góðra vina og ekki sizt
frændfólks við leiðarlok. 1 hóp
hins vestur-islenzka frændgarðs
af Deildartunguætt í Borgarfirði
varð skarð fyrir skildi á síðast
liðnu hausti er mæðginin Sigríður
Kristjánsson og Kristján
Kristjánsson létust með fárra
daga millibili, móðirin á sjúkra-
húsi í Whíte Rock, en sonurinn á
sjúkrahúsi í Geralton, Ont.
Varla má minna vera en þeirra
sé minnzt í blaði hér heima, svo
fjölmennur er garður frænda hér-
lendis, er þekkti þau. Ég sem
þessar línur skrifa, var svo hepp-
inn að kynnast hluta frændfólks-
ins er ég dvaldi Vestanhafs árið
1963. Viðkynningin var hugljúf
og vináttan er traust, enda koma
Vestur-Islendingar til dyranna
eins og þeir eru klæddir. Áber-
andi í viðkynningu er góðmennsk-
an og hreinskilnin.
Margvíslegar torfærur voru á
vegi islenzku landnemanna, er
þeir voru að nema jarðir í nýrri
heimsálfu. Þrátt fyrir erfiðleika
frumbýlisáranna, er ást Vestur-
Islendinga til íslands sérstaklega
hjartfólgin, í gegnum marga ætt-
liði.
Mörg stórskáld Vestur-
Islendinga hafa sent íslandi hina
fegurstu ættjarðaróðí. Á fjöl-
mörgum sviðum sýna Vestur-
Islendingar okkur hér heima ætt-
jarðarelskuna í hinni fegurstu
mynd.
Þessa mættum við Islendingar
vera minnugir jafnt stjórnvöld
sem einstaklingar, að á þessu ári
er þeir minnast aldarafmælis
samfelldrar byggðar í Manitoba-
fylki, að enginn falli úr lestinni,
er hyggur á vesturför á sumri
komanda, heldur fjölgi þátt-
takendum.
Sigríður Kristjánsson var fædd
27. febrúar 1896 í Árdalsbyggð.
Eiginkona min,
LAUFEY GUNNLAUGSDÓTTIR.
Sóleyjargötu 12, Akranesi,
sem lézt 2 mai, verður jarðsett frá Akraneskirkju, föstudaginn 9. mai
kl. 14.
Fyrir hönd aðstandenda.
Gunnar Sigurðsson.
t
Hjartkær eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir og amma
GUÐRÚN KRISTBJÖRG JÓNASDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Útskálakirkju laugardagínn 10 þ m. kl. 2 e.h.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeir, sem vildu minnast hinnar látnu
er vinsamlegast bent á minningarsjóð Jórunnar Guðmundsdóttur.
Ijósmóður Kortin fást að Útskálum.
Guðmundur Jónsson, Rafnkelsstöðum,
börn, tengdabörn, og barnabörn.
t Móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir og amma,
MARGRÉTS. FRIÐRIKSDÓTTIR
frá Reyðarfirði.
til heimilis að Ásabyggð 2 Akureyri,
andaðist að Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri 4. mai s.l. Kveðjuathöfn
fer fram i Akureyrarkirkju föstudaginn 9. mai kl. 1 3.30
Jarðsungið verður frá Búðareyrarkirkju laugardaginn 10. maí kl 14
Blóm og kransar afbeðin, en þeir sem vildu minnast hennar eru
beðnir að láta líknarstofnanir njóta þess.
Sólveig Gunnarsdóttir, Örn Indriðason
Ragnhildur Gunnarsdóttir, Ólafur H. Oddsson
Fjóla Gunnarsdóttir, Pétur Valdimarsson
Bóas Gunnarsson, Kristín Sigfúsdóttir
Reynir Gunnarsson, Guðný Pálsdóttir
Aðalheiður Gunnarsdóttir, Hallur Sigurbjörnsson
Sigrún Gunnarsdóttir, GuðmundurT. Arason
Una Sigriður Gunnarsdóttir Árnmar Andrésson
Ingvar Gunnarsson, Dagmar Sigurðardóttir
Páll Gunnarsson, Ingilaug Sigurðardóttir
Hjalti Gunnarsson, Aðalheiður Vilbergsdóttir
Ásgeir Gunnarsson Guðrún Hafliðadóttir
Sólborg Gunnarsdóttir, Þorkell Jónsson
Lára Gunnarsdóttir, Eðvald Eiriksson
Jörgen Hólm og barnabörn.
Foreldrar hennar voru hjónin:
Jón f. 1866 d. 1953 (tók sér ættar-
nafnið Borgfjörð) Magnússon
hreppstjóra að Hofsstöðum í
Álftaneshreppi, Mýrarsýslu, Jóns-
sonar. Móðir Jóns Borgfjörð en
kona Magnúsar hreppstj. var
Helga Þorsteinsdóttir frá
Skildinganesi Ingjaldssonar.
Sigríður hét móðir Magnúsar
dóttir séra Jóns á Bergsstöðum í
Svartárdal, A.-Hún. Auðunssonar.
Alsystir séra Jóns var Guðrún
amma Gísla sagnaþuls Konráðs-
sonar. Móðurbróðir Magnúsar
hreppstj. var séra Auðunn, faðir
Björns sýslumanns Húnvetninga
Blöndals að Hvammi í Vatnsdal.
Kona Jóns Borgfjörð og móðir
Sigríðar var: Guðrún Eggerts-
dóttir f. 1868 d. 1959. Foreldrar
hennar voru hjónin Sigriður f.
1837, d. 1906, Jónsdóttir óðals-
bónda i Deildartungu Jónssonar
dbrm. og óðalsbónda Þorvalds-
sonar, sjá nánar Mbl. 23.2. 1969,
og Eggert bóndi i Fróðhúsum,
siðar í Tandraseli og í Hrafna-
björgum fremri i Hörðudal, sonur
Jóns stúd. bónda og sýslumanns
að Leirá Arnasonar. Móðir
Eggerts og fyrri kona Jóns var
Halla dóttir séra Jóns á Gilsbakka
Jónssonar. Eggert í Fróðhúsum
átti fjölda systkina, en til
Ameríku fóru hann og Henrik
bróðir hans. Systkini Eggerts
voru þessi: Arni að Hliðarfæti,
Ragnheiður húsfrú að Fossi í
Vesturhópi, Halldóra húsfrú að
Fiskilæk, Guðný húsfrú, Helga
húsfrú í Deildartungu fyrri kona
Jóns afa Guðrúnar, Jón umboðs-
maður i Vik í Mýrdal, Olafur
hreppstj. að Geldingaá, Jónas
Eggert bóndi i Sólheimatungu og
Ragnhildur húsfrú að Vilmundar-
stöðum.
JÓn Magnússon Borgfjörð flutt-
ist frá Islandi árið 1888, og nam
land vestast í Geysisbyggð.
Hinn 16. desember 1889 voru
gefin saman í hjónaband Guðrún
og Jón Borgfjörð. Heimili sitt
nefndu þau Hvanneyri. Þar hafði
húsbóndinn hreinsað til, reist
ibúðarhús (bjálkahús) og bjálka-
fjós. Þeim hjónum varð 9 barna
auðið. Magnúsína Helga, f. 11.
desember 1890, ekkja Tómasar
Jónassonar í Riverton, Páll
Valdimar, f. 5. október 1892,
bóndi að Hvanneyri ókv. bl.,
Eggert Júlíus, smiður í Calgary, f.
1. júlí 1894, kv. Jónínu Brands-
son, Sigríður Martha, Dýrfinna, f.
7. marz 1898, látin; var búsett I
Spokane, Wash. U.S.A. gift
George Olson, .látinn. Árni
Wilfred, f. 15. marz 1900, bóndi í
Árborg, átti Björgu Friðfinns-
dóttur, hún er látin, Lára
Halldóra, f. 31. desember 1902,
ekkjufrú i Winnipeg, átti Wilbur
Thompson, Magnús, f. 9. júní,
1904, kennari í Árborg, ókv. bl. og
Guðni Edward, f. 1907, búsettur í
Winnipeg, kv. Jean Tackaberry.
Jón Borgfjörð var alveg sérstak-
ur þjóðhagasmiður, og ekki er
ósennilegt að sú reynsla er hann
fékk í hinu nýja heimalandi,
óyrktu landi, umkringdur af
náttúrunni, ósnertri af manna
höndum, hafi kennt honum dýr-
mætar lexíur, sem að góðum not-
um komu; t.d. smiðaði Jón án
nokkurrar fyrirmyndar þreskivél
að fullu. Jón var maður vel gef-
inn, frekar hár vexti, tigulegur á
velli, sterkur og glímumaður góð-
ur. Skemmtilegur í viðræðum og
glaðvær í hópi vina, vinsæll.
Guðrún Eggertsdóttir Borg-
fjörð, bar á sér höfðinglegt yfir-
bragð, framkoma og atorka
minnti á kvenhetjur fornaldar,
tilfinningarík, ástrík eiginkona og
framúrskarandi móðir. Guðrún
var stórgáfuð kona, félagslynd,
meðal stofnenda Kvenfélagsins
Freyja í Geysisbyggð, um árabil
gjaldkeri. Stofnandi Kvenfélags-
ins i Árdalssöfnuði. Hreinskilin
og blátt áfram i framkomu. Tak-
mörkuð var skólaganga hennar,
en hún aflaði sér í skóla lifsins
mikillar þekkingar á ýmsum
sviðum. Yfirhöfuð lét Guðrún
Borgfjörð sér ekkert óviðkom-
andi, er stefndi til framfara og
heilla.
Framanskráð sýnir þann jarð-
veg er Sigríður Martha var upp-
alin i. Ættgöfgi gerir að vísu eng-
an betri eða verri, en vissulega er
allt sem gott er og göfugt, þess
virði að því sé haldið á loft.
Barnung vann Sigga fyrir sér
með því að hjálpa til á heimilum í
nágrenni Hvanneyrar. Þegar hún
hafði aldur til leitaði hún að at-
vinnu í Winnipeg.
Þar kynntist hún eftirlifandi
eiginmanni sínum er kom frá Is-
iandi árið 1913. Þau giftust 1916.
Kristján Ottó Kristjánsson frá
Stapadal f. 27. október 1892. Sér-
staklega vel byggður maður að
þreki og kröftum, fljótvirkur en
allt fer vel i höndum hans, með
hreinan og fallegan svip. Systkini
Ottós eru þessi: Sigríður, kona
Bjarna bónda og skipstj.
Asgeirssonar í Stapadal, Kristín
Pálina, Guðbjörg Oktavía, f. 1885
d. 1974. Maður hennar Asgeir Kr.
Matthiasson útvegsbóndi að Gimli
á Bíldudal, Páll, f. 1889, bygginga-
meistari á Isafirði, nú í Reykja-
vík, Hjörtur, smiður á Isafirði,
siðar í Rvík, látinn, Kristinn, f.
1895, d. 1921, Guðbjörg, látin,
Björg, látin, Matthías Knútur, f.
1900, búsettur í Reykjavik og
Gisli Guðmundur, f. 1901, d. 1920.
Sigríður og Ottó settu fyrst bú i
Winnipeg, en fluttust fljótlega til
Winnipegosis, þar sem húsbónd-
inn stundaði jöfnum höndum
fiskveiðar og trésmíðar. Arið 1938
flytjast þau til Geralton í Ontario.
Sjö barna varð þeim auðið og eru
þau þessi: Kristján, f. 6. apríl
1917, meistari í húsateikningu, d.
24. sept. 1974, Simonía Lára, f. 9.
ágúst 1918. Maður hennar er dr.
Randolph G. Hoilen námufræð-
ingur, þau eiga 3 börn, Jón
Edwin, f. 13. nóvember 1919, tré-
smiður í Geralton. Kona hans
Emily Birningham. Eiga 3 börn,
Gísli Harold, f. 4. janúar 1921,
námufræðingur, býr i Guetamala.
Giftur konu frá Honduras Sulina
að nafni. Bl., Oddný Guðrún
Selma, f. 13. júli 1922. Maður
hennar er Herbert Brown námu-
fræðingur í Eliot Lake. Ont. Eiga
3 börn, Grettir Valdimar, f. 13.
september 1923, læknir í Atihok-
an, Ont. Kvæntur konu af enskum
ættum Elísabeth Heath
hjúkrunarkonu. Eiga 3 börn og
Skúli Ottó f. 15. september 1927,
sérfræðingur á sviði sjónvarps frá
Háskóla Torontoborgar. Kvæntur
Florence Harbron lækni í
Brampton, Ont. Bl.
Heimili þeirra stóð í Geralton
þar til fyrir nokkrum árum að
þau settust að i White Rock, B. C.
Hvar sem heimili þeirra var, róm-
uðu allir framkvæmdarsemi, gest-
risni og félagslyndi, menningar-
brag allan. Sigriður var hin mesta
afkastakona við hannyrðir, tónlist
hafði hún ennfremur i hávegum.
Af lífi og sál vann hún kvenfélagi
kirkju sinnar. Vinföst og trygg.
Kristján Kristjánsson andaðist
eftir langvarandi veikindi á
sjúkrahúsinu í Geralton 24. sept.
s.l. Afkastamikill atvinnurekandi
i heimaborg sinni, eftirsóttur,
enda fórst honum allt snilldarvel
úr hendi. TCona hans eftirlifandi
er Helen Bains frá Winnipeg, en
af enskum ættum. Þau áttu 4
börn.
Mæðginanna Sigríðar og
Kristjáns verður lengi minnzt,
vegna drengskapar. Ottó
Kristjánsson ber sinn þunga ást-
vinamissi með sönnu íslenzku
þreki, en fullviss um endurfundi
ástvina handan jarðneskrar til-
veru.
Frændur og vinir senda Ottó og
fjölskyldu hans allri dýpstu
samúðarkveðjur.
Helgi Vigfússon.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á f
miðvikudagsblaði, að berast í
sfðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hiiðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera f sendibréfs-
formi eða bundnu máii. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
meðgóðu iínubili.
t
Móðir okkar,
GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR,
Öldugötu 29, Hafnarfirði.
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju laugardaginn 10. maí kl 1 1
f.h. Fyrir hönd aðstandenda,
Börnin.
Eiginmaður minn,
ÞORBJÖRN LEVÍ TEITSSON,
Sporði,
verður jarðsunginn frá Víðidalstungukirkju, laugardaginn 10. maíkl. 2
e.h.
Þeir sem vildu minnast hins látna, láti dvalarheimilissjóð Kvennabands-
ins njóta þess
Friða Sigurbjörnsdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð við andlát og útför
systur okkar,
SOFFlU STEFÁNSDÓTTUR HJALTALlN,
Systkinin frá Grjótagötu 4, Reykjavfk.
t
Hugheilar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför sonar
okkar,
BORGARS GUNNARS GUÐMUNDSSONAR
frá Þingeyri.
Ásta Sigurðardóttir,
Guðmundur Jóhannes Borgarsson.
útfaraskreytlngar
blómouol
Groöurhusið v/Si'gtun simi 36770