Morgunblaðið - 08.05.1975, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAI 1975 31
Fræðslu
starf
börn í bif
reiðinni
I MAl og júní gengst Umferðar-
ráð, i samvinnu við Umferðar-
nefnd Reykjavíkur, lögregluna,
Leikvallanefnd Reykjavikur og
bifreiðatryggingafélögin fyrir
fræðslu- og upplýsingastarfi um
börn i umferð. Slysaskýrslur
sýna, að fjórði hver vegfarandi,
sem slasast í umferðinni, er barn.
Árið 1974 slösuðust 296 börn i
umferðarslysum. Langflest, eða
165 börn, voru gangandi vegfar-
endur, 84 voru farþegar i bifreið-
um og á reiðhjólum slösuðust 47
börn. Flest börn slösuðust á
mánudögum og föstudögum og
meira en þriðjungur barnanna
slasaðist milli kl. 14 og 17
Tilgangur þessa fræðslustarfs
er að kynna líkamleg og sálræn
vandamál, sem börn eiga við að
stríða sent vegfarendur. Það er
sannað mál, að börn hai'a ekki,
fyrr en 8—12 ára göntul, þroskað
með sér þau skynfæri, sjón og
heyrn, sem vegfarendur þurfa að
reiða sig svo mjög á í umferðinni.
Það er ekki hægt aö reikna nteð
fullkominni nýtni þessara skyn-
færa fyrr en við 12—14 ára aldur.
Þá verður einnig gerð grein fyr-
ir, hversu mikil áhrif skipulag
íbúðarhverfa hefur á tiðni slysa á
börnum í umferðinni, og hvatl til
þess, að lóðir og leiksvæði verði
gerð þannig úr garði, að þau laði
börn til leikja, og að leiktæki séu
sett upp á sem flestum stöðuni,
sérstaklega þó við fjölbýlishús.
Einnig verður fjallað um börn og
reiðhjól og foreldrar hvattir til
þess að kaupa ekki of fljótt reið-
hjól handa börnum sinum, eða að
þeir sendi þau ekki út i untferö-
ina ein síns liðs á reiðhjólum
fyrr en þau hafa þroska og getu
til.
Á hverju árislasastfjöldibar'na,
sem eru farþegar í bifreiðum.
Fólk les um slíka atburði í blöð-
um, hristir höfuðið og segir ef
til vill: >vJá, mikið er þetta
hörmulegt, skelfing er að heyra
um öll þessi slys,“ eða eitthvað
þess háttar. Siðan er atvikinu
gleymt.
Frétt í einu dagblaðanna seg-
ir eitthvað á þessa leið: „Harð-
ur árekstur varð á mótum
Hafnargötu og Strandgötu. Bif-
reiðarnar skemmdust mikið,
tvennt slasaðist, barn og full-
orðinn. Bæði voru farþegar 1
framsæti. Barnið sat í fangi
móður sinnar.“ Fólk hrekkur
við og segir: „Þvílikt ábyrgðar-
leysi að sitja með smábarn i
fanginu í framsæti. Hvað hugsa
svona manneskjur? Eða hugsa
þær ekki neitt." Og ætli það
siðara sé ekki mergurinn máls-
ins. Mjög margir gera sér ekki
grein fyrir þvi, hversu hættu-
legt það er að sitja með börn í
framsæti, eða leyfa börnum að
sitja einum í framsæti. Skýrsl-
ur Umferðarráðs sýna, að 84
börn slösuðust á s.l. ári, er þau
voru farþegar i bifreiðum —
mörg hver í framsæti.
FRAMSÆTIÐ
HÆTTULEGAST.
Framsætið er hættulegasti
staðurinn í bifreiðinni. Barn,
sem situr í fangi einhvers í
framsætinu getur þvi orðið fyr-
ir mjög alvarlegum áverkum af
mælaborði og framrúðu bif-
reiðarinnar, jafnvel þótt árekst-
urinn sé ekki mjög harður. Sá
sem situr með barn 1 fanginu,
notar það sem vörn fyrir
sjálfan sig. Barnið tekur við
mesta högginu, ef bifreiðin
lendir i árekstri. Sem betur fer
er orðið sjaldgæft að sjá eldri
börn sitja i framsæti. Margir
foreldrar setja börnum sínum
þá reglu að sitja í aftursætinu,
og er það vel. En þetta á þvi
miður aðeins við um stóru börn-
in. Litlu börnin sem ekki geta
setið ein, sitja alltof oft í fangi
fullorðinna i framsætinu. Fólk
situr sjaldan undir börnum
sinum í aftursætinu, sem er að
sjálfsögðu rétti staðurinn. Ef til
vill finnst fólki „skemmtilegra"
að sitja í framsæti.
Hvað er hægt að gera til þess
að opna augu fólks? Þarf aó
verða slys til þess að fólk læri
að skilja hversu hættulegur
staður framsætið er?
Öryggisstóll af viðurkenndri gerd, sem nota
má jöfnum höndum f fram- og aftursæti.
BlLBELTI —
STÓLAR.
Algjört öryggi i bifreið er
ekki til. En bílbelti veita mönn-
um þó mesta mögulega vernd
og geta í mörgum tilfellum
forðað fólki algjörlega frá
meiðslum, ef til áreksturs
kemur. Þetta geta allir, sem
kynnt hafa sér þessi mál, verið
sammála um. En að tryggja
öryggi barnsins i bifreiðinni er
mun flóknara.
Börn geta ekki notað bílbelti
fyrr en við 7—8 ára aldur og
þau verða að vera orðin a.m.k.
30—35 kg að þyngd. Ástæðan
fyrir því að börn geta ekki
notað belti eins og fullorðnir
nota (belti, sem eru yfir aðra
öxlina og mittið) er sú, að
líkamsbygging barns er öðru
visi en fullorðins manns. Höfuð
barnsins er hlutfallslega miklu
stærra. Þegar beltin halda
líkamanum föstum slengist höf-
uðið til, og vegna þyngdar þess
geta háls- og hnakkavöðvar
barnsins orðið fyrir áfalli.
Beltin geta lika skaddað innyfli
barnsins, þar sem þau eru verr
varin en hjá fullorðnum. i til-
raunum, sem gerðar voru í
Svíþjóð (með brúðu), kom í
ljós, að við framaná-árekstur
varð brúðan fyrir hættulegum
lifrarskemmdum, þegar beltin
þrýstust að líkama hennar.
Það hafa verið gerðar til-
raunir með margs konar belti
fyrir börn, en menn hafa ekki
enn fundið neitt belti sem
þjónar sama tilgangi og þau
belti, sem fullorðnir nota.
Menn hafa þó orðið sammála
um að beltin verði að vera mjög
breið, þannig að átakið dreifist
sem jafnast á allan likamann.
En börn geta ekki notað slik
belti fyrr en þau hafa náð 3—5
ára aldri.
Börn undir 9 mánaða aldri
ættu alltaf að vera í burðar-
rúmi í aftursæti bifreiðarinnar,
vel skorðuðu á milli sætanna
eða fest með þar til gerðum
beltum. Eftir þann aldur geta
börn setið í barnabilstólum. En
gera verður þá kröfu til góðra
barnastóla, að þeir séu a.m.k.
eins vel festir og bílbelti full-
orðinna. Einnig er ástæða til
þess að vara fólk við þeim sem
eru með málmgrindum, sem
leggjast í boga fyrir framan
barnið. Dæmi eru til, að slikar
grindur hafi bognað við mikiö
átak og þryst að maga barnsins
og stórskaðað það.
Laugavegi37
r~\ / r\ i r\ n
r T niri o
Gallabuxur — flauelist
BOLIR — einlitir, mynstraðir,
rútlukragabolír,
úrval af allskonar frottebolum.
HERRASKYRTUR — Nýsending
Laugavegi 89
NY SENDING -
HERRALEÐURJAKKAR
Faco jakkaföt, Ijósir titir,
sléttflauelisjakkar.
1_1 _________ „■> ,
Herra- og dömubuxur urte
Herraskör