Morgunblaðið - 08.05.1975, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAl 1975
2. DEILD
NORWICH tapaði fyrir Aston Villa 1—4 I sfðasta ieiknum I
ensku 2. deildar keppninni I knattspyrnu sem fram fór nýlega, I
Norwich. Orslit þessa leiks breyta þó engu um það að Norwich
fylgir Manchester United og Aston Villa upp I 1. deild. Hefur
Norwich því aðeins haft ðrsdvöl I 2. deildinni eins og Manchest-
er United, en Sunderland, sem lengi vel var I einu af forystu-
sætunum I 2. deildinni situr eftir með sárt ennið. Sunderland
var nálægt þvf að komast 11. deildina einnig I fyrra, en skorti þá
herzlumuninn, rétt eins og nú. Markhæsti leikmaðurinn I 2.
deildar keppninni I ár varð Graydon, Aston Villa, sem skoraði
28 mörk. Little, Aston Villa, skoraði 25 mörk, Channon frá
Southampton skoraði 23 mörk og MacDougalI, Norwich, skoraði
22 mörk.
Lokaúrslitin f 2. deildar keppninni urðu sem hér segir:
Manchester Utd. 42 17 3 1 45—12 9 6 16 21—18 61
Aston Villa 42 16 4 1 47—6 9 4 8 32—26 58
Norwich City 42 14 3 4 34—17 6 10 5 24—20 53
Sunderland 42 14 6 1 41—8 8 5 7 24—27 51
Bristol City 42 14 5 2 31—10 7 3 11 16- -23 50
W.B.A. 42 13 4 4 33—15 5 5 11 21- -27 45
Blackpool 42 12 6 3 31—17 2 11 8 7—16 45
Hull City 42 12 8 1 25—10 3 6 12 15—43 44
Fulham 42 9 8 4 29—17 4 8 9 15- -22 42
Bolton Wand. 42 9 7 5 27—16 6 5 10 18—25 42
Oxford Utd. 42 14 3 4 30—19 1 9 11 11—32 42
Orient 42 8 9 4 17—16 3 11 7 11—23 42
Southampton 42 10 6 5 29—20 5 5 11 24—34 41
Notts County 42 7 11 3 34—26 5 5 11 15—33 40
York City Notthingham 42 9 7 5 28—18 5 3 13 23—37 38
Forest 42 7 7 7 24—23 5 7 9 19—32 38
Portsmouth 42 9 7 5 28—20 3 6 12 16—34 37
Oldham Atletic 42 10 7 4 28—16 0 8 13 12—32 35
Bristol Rovers 42 10 4 7 25—23 2 7 12 17—41 35
Millwall 42 8 9 4 31—19 2 3 16 13—37 32
Cardiff City 42 7 8 6 24—21 2 6 13 12-41 32
Sheffield Wed. 42 3 7 11 17—29 2 4 15 12—35 21
FERILL Aston Villa var glæsilegur í vetur. Lioio tryggoi sér sæti I 1.
deild, og vann auk þess enska deildarbikarinn, en mynd þessi var
tekin af þeim leik loknum og sýnir tvo af leikmönnum Villa, Chris og
lan Ross með verðlaunagripinn.
15 FÉLÖG OG1093 FÉLAGAR í UMSE
Mikill badminton-
áhugi íSiglufirði
SIGLUFJARÐARMOT í badmin-
ton fór nýlega fram og var þar
keppt f meistaraflokki, 1. flokki,
drengjaflokki, sveinaflokki,
kvennaflokki, telpnaflokki og
meyjaflokki. Var mikil þátttaka í
mótinu enda mikill áhugi á bad-
mintoníþróttinni f Siglufirði.
Helztu úrslit í mótinu urðu sem
hér segir:
í meistaraflokki karla sigraði
Þórður Björnsson Sigurð Stein-
grímsson í úrslitaleik i einliðaleik
og þeir Sigurður Blöndal og Þórð-
ur Björnsson sigruðu Sigurgeir
Erlendsson og Sigurð Steingríms-
son í úrslitaleik í tvíliðaleik.
I 1. flokki sigraði Sigurður
Blöndal í einliðaleik og Öli J.
Blöndal og Sverrir Sveinsson i
tvíliðaleik.
Sigurvegari í einliðaleik í
drengjaflokki varð Friðrik Arn-
grímsson en í tvíliðaleik þeir
Gunnar Aðalbjörnsson og Friðrik
Arngrímsson.
í sveinaflokki sigraði Haraldur
Marteinsson í einliðaleik og Daði
Arngrímsson og Haraldur Mar-
teinsson i tvíliðaleik.
Sigurvegari i einliðaleik
kvenna varð Stella Matthíasdóttir
og í tvíliðaleik þær Auður Er-
iendsdóttir og Jóhanna Ingimars-
dóttir.
Sóley Erlendsdóttir sigraði í
einliðaleik i telpnaflokki og í tví-
liðaleik í þeim flokki sigruðu
Lovísa Hákonardóttir og Sóley Er-
lendsdóttir.
Sigurvegari i einliðaleik í
meyjaflokki varð Særún Jóhanns-
dóttir og í tvíliðaleik þær Sigrún
Jóhannsdóttir og Særún Jóhanns-
dóttir.
Brunkeppni í
Hlíðarfjalli
NÝLEGA var haldið í Hlíðarfjaili
við Akureyri fyrsta brunkeppnin
sem fram hefur farið hérlendis
um langan aldur. A sínum tíma
var sett bann við því að keppa f
bruni hérlendis, — talið að að-
stæður væru þannig að mikil
slysahætta væri samfara slíkri
keppni, en sem kunnugt er bygg-
ist brunkeppni upp á þvf að kepp-
endurnir fara langa braut og
bratta með tiltölulega fáum hlið-
um.
Nú hafa hins vegar aðstæður
breytzt mikið frá því að bannið
liprónirl
var sett á, og þá sérstaklega í
skíðalandi Akureyrar. Er ætlunin
að brunkeppni verði að árvissum
viðburði nyrðra, og hafa Akureyr-
ingar í hyggju að hafa brun sem
aukagrein á næsta skíðalandsmóti
sem haldið verður á Akureyri.
Brunkeppnin á dögunum
heppnaðist mjög vel. í karlaflokki
var brautin 2300 metrar, með um
600 metra hæðarmismun. Alls
voru keppendur 24 og sigraði
Haukur Jóhannsson á 99,64 sek.,
þanníg að hann náði gifurlegum
hraða i brautinni. Annar varð
Theodór Sigurðsson á 103,15 sek.
og þriðji varð Tómas Leifsson á
104,42 sek.
Aðeins tvær konur kepptu.
Margrét Vilhelmsdóttir sigraði á
125,40 sek. og Guðrún Frímanns-
dóttir varð önnur á 133,83 sek.
á ársþingi UMSE. Fremst á myndinni eru gestir
ígsins, Gísli Halldórsson, forseti ISt, Hermann Guð-
mdsson, framkvæmdastjóri ISl og Hafsteinn Þor-
valdsson, formaður UMFl.
hreppur á sambandsvæðinu
styrkti sambandið ekki fjárhags-
lega.
Á þinginu fluttu þeir Sigurður
Jósefsson, Vilhjálmur Björnsson,
Birgir Þórðarson, Haukur
Halldórsson og Sveinn Jónsson
framsöguræður um þá mála-
flokka sem efst eru á baugi hjá
sambandinu, og lögð var fram og
samþykkt yfirgripsmikil starfs-
áætlun fyrir yfirstandandi ár. Er
þar lögð áherzla á að undirbúa
sem bezt þátttöku UMSE í lands-
móti UMFÍ á Akranesi.
Þá var á þinginu nokkuð rætt
um landsmót UMFÍ 1978, sem
UMSE hefur verið falið að sjá um,
en ekki er endanlega búið að
ákveða mótsstaðinn.
Þingið harmaði, að ekki skyldi
vera veitt framkvæmdafé til
byggingu iþróttahúsa við Hrafna-
gils- og Þelamerkurskóla á fjár-
lögum rikisins á þessu ári og
skoraði þingið á fjárveitingavald
rikisins, að sjá til þess, að á næsta
ári yrði veitt fé til áðurnefndra
iþróttahúsa.
Á þinginu voru tveir verðlauna-
gripir afhentir. Sjóvábikarinn
hlaut UMF Svarfdæla i annað
sinn, en félagið fékk flest stig úr
öllum mótum UMSE á s.l. ári, og
félagsmálabikar UMSE var veitt-
ur í fyrsta sinn. Bikar þessi er
gjöf frá Ungmennasambandi
Skagafjarðar i tilefni 50 ára af-
mælis UMSE 1972. Bikarinn skal
veittur árlega sem viðurkenning,
þvi félagi innan UMSE er starfað
hefur bezt að félagsmálum á sam-
bandssvæðinu næsta ár á undan.
UMP' Skriðuhrepps hlaut bikar-
inn að þessu sinni, en félagið
innti af hendi gott starf á s.l. ári,
m.a. á sviði leiklistar.
I UMSE eru nú 15 félög og
innan þeirra 1093 félagsmenn. Á
þessu ári gekk Skiðafélag Dalvík-
ur í UMSE, en það félag var stofn-
að fyrir þremur árum. i marz s.l.
sameinuðust svo UMF Ársól og
UMF Arroði í eitt félag og starfa
nú undir nafni þess síðarnefnda.
Stjórn UMSE var öll endurkjör-
in, en hana skipa: Haukur Stein-
dórsson formaður, Haukur
Halldórsson varaformaður, Birgir
Þórðarson gjaldkeri, Magnús
Kristinsson ritari og Vilhjálmur
Björnsson meðstjórnandi. 1 vara-
stjórn eru Halldór Sigurðsson,
Oddný Snorradóttir og Gylfi Páls-
son.
Við ramman reip að draga
54. ársþing Ungmennasam-
bands Eyjafjarðar var haldið á
Freyvangi 19. og 20. apríl s.l. Kom
fram f skýrslu sem Þóroddur
Jóhannsson, framkvæmdastjóri
sambandsins, flutti á þinginu, að
starfsemi þess var með bióma á
stðasta ári, og mörg verkefni voru
tekin fyrir. iþróttamálin bar þó
hæst, bæði var komið á iþrótta-
kennslu á sambandsvæðinu, efnt
til móta innan þess og íþróttafólk
frá UMSE var sent til móta utan
héraðs. Þá voru sumarbúðir starf-
ræktar, komið á tveimur félags-
málanámskeiðum og staðið að
samkomuhaldi I samvinnu við
önnur félagasamtök, t.d.
bindindismót að Hrafnagili.
Birgir Þórðarson, gjaldkeri
UMSE, skýrði reikninga sam-
bandsins, en niðurstöðutölur
þeirra voru 1,4 milljónir króna.
Kom fram, að sveitarstjórnir
höfðu styrkt UMSE mjög myndar-
lega á s.l. ári, og aðeins einn
Grikkland, Albanía og Luxem-
burg. Verður fyrsti leikur Islend-
inganna við Pólverja, sem að
margra áliti eiga nú eitt bezta
körfuknattleikslandslið í Evrópu.
Hið sama er að segja um lið Sví-
þjóðar og Grikkland, þau standa
mjög framarlega. Lítið er vitað
um lið Albaníu, og ef að líkum
lætur ætti leikurinn við Luxem-
burgara að verða jafn og þar ugg-
laust nokkrir sigurmöguleikar.
Leikið verður i Wolfenbuttel,
skammt frá Hannover, og fara
allir leikir íslenzka liðsins fram
fyrir hádegi, nema sá fyrsti sem
hefst kl. 17.30 að staðartima. Er
þetta einnig okkar mönnum i
óhag — í landi áhugamennskunn-
ar er það harla fátitt að kappleik-
ir geti farið fram á öðrum tima en
á kvöldin og um heigar.
Kristinn Jörundsson verður
fyrirliði landsliðsins í körfuknatt-
leik sem leikur á EM í V-
Þýzkalandi. Við spurðum hann
hvernig honum Iitist á þá keppni
og liðið okkar í dag.
— Ég er nokkuð bjartsýnn, að
vísu er þetta ekki alveg okkar
sterkasta lið, en þó það sterkasta
sem hægt var að velja úr hópi
þeirra sem valið var úr. Liðið hef-
ur einbeitt sér að þeim leikaðferð-
um sem það hefur leikið í fyrri
leikjum í vetur, og liðið er að ná
góðu valdi á þeim ,,kerfum“.
Við vitum að mótherjarnir
verða mjög sterkir, og þótt við
höfum orðið fyrir áföllum hvað
mannskap snertir örvæntum við
ekki. Við munum berjast eins og
við getum i hverjum leik, meira
er ekki hægt að fara fram á.
JÓN JÖRUNDSSON
Tveir nýliðar verða i ísl. liðinu,
og annar þeirra er Jón Jörunds-
son úr ÍR, en hann er einmitt
bróðir Kristins. Við spurðum
hann um hvernig honum litist á
verkefnið.
— Undirbúningur liðsins fyrir
þessa ferð hefur verió mjög góð-
ur, æfingarnar góðar og skemmti-
legar og góður andi í hópnum.
Fjarvera Kolbeins Jónssons og
Þorsteins veikir liðið að sjálf-
sögðu eitthvað, en þeir sem koma
í þeirra stað gera sitt besta. Ég er
að sjálfsögðu mjög ánægður með
að hafa verið valinn i landsliðið,
og við förum i hvern leik með því
hugarfari að sigra.
JÓN BJÖRGVINSSON
Hinn nýliðinn er Jón Björgvins-
son úr Ármanni, leikmaður sem
hefur sýnt miklar framfarir í vet-
ur.
— Það er auðvitað ekki hægt að
vera með neína bjartsýni þegar
við göngum til leiks gegn þjóðum
eins og Póllandi og Grikklandi, en
það þýðir heldur ekki neitt að
vera að barma sér fyrirfram. Við
tökum bara hvern leik fyrir sig,
gerum okkar besta í hverjum
þeirra, og ef liðið smellur saman
þá er ég ekkert hræddur. Það er
mjög ánægjulegt fyrir mig að
vera valinn í þessa ferð, og ég
vona að ég standi undir því sem af
mér er ætlast.
Islenzka körfuknattleikslands-
Iiðið heldurtil Vestur-Þýzkalands
á mánudaginn, en þar mun það
taka þátt i Evrópubikarkeppni
landsliða í körfuknattleik, sem
fram fer dagana 12.—17. maí n.k.
Verður þar ugglaust við ramman
reip að draga, þar sem mótherjar
okkar verða Pólland, Svíþjóð,
Haukur Jóhannssun — nárti um 90 km. hrada
f brunbrautinni.