Morgunblaðið - 31.07.1975, Page 29

Morgunblaðið - 31.07.1975, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JULl 1975 29 Velvakandi svarar í sjma 10-100 kl. 14—1 5,‘frá mánudegi til föstu- dags. 0 „Heimamanna- hjal“ Eftirfarandi bréf barst frá manni sem kallar sig „blaða- lesanda norðanlands" og birtir Velvakandi það hér án þess að tekið sé undir allt sem þar kemur fram: „SL ár hefur nýtt fyrirbrigði skotið upp kollinum í þjóðlífinu og náð að skipuleggja sig, að því er bezt verður séð. Hér er um það fyrirbæri að ræða, sem f stytztu máli kallar sig „heimamenn“, og af og til heyrist frá í sambandi við ýmis þjóðþrifamál á landsbyggð- inni. Vanalegast eru þessir svo- kölluðu heimamenn einhverjir afturhaldsseggir sem eru á móti framförum í byggðarlaginu eða stundum einhverjir þeir, sem fundizt hefur fram hjá sér gengið i einu eða öðru I viðkomandi máli. Kvarta þessir aðilar jafnan undan því að ekki hafi verið haft við þá nægilegt samráð, að viðhorf þeirra til mála hafi verið hunds- uð, að þeir hafi ekki verið virtir svars, eða að ekki skuli hafa verið farið eftir leiðbeiningum þeirra og tilsögn. Virðist sem þetta heimamannahjal sé að verða algjör plága þar sem einhverjar framkvæmdir eiga sér stað og tef jast nauðsynlegar framkvæmd- ir um langan tíma af þeim sökum að embættismenn telja sig þurfa að „sansa“ lið þetta áður en til athafna er gengið. Enginn mót- mælir nauðsyn þess að við þá sé rætt, sem raunverulega kemur við fyrirhugaðar framkvæmdir hins opinbera eða einkaaðila. En höfum við ekki gengið of langt I þessum efnum? Blaðalesandi norðanlands." 0 Framtakssemi FlB Velvakandi var svo hepp- inn nýlega, þegar hann ók út fyrir borgina, að bíll hans var stöðv- aður af starfsmönnum FÍB og honum afhentir plastpokar undir rusl. Þessi framtakssemi FlB er mjög virðingarverð og virðist sem gott samstarf hafi tekizt milli félagsins og Landverndar um að hvetja landsmenn til góðrar um- gengni. I pakka þeim sem Velvak- anda var afhentur voru ýmsar nytsamar upplýsingar auk plast- pokanna og var ánægjulegt að fá einu sinni eitthvað nytsamlegt upp í hendurnar án þess að þurfa að greiða stórfé fyrir. Hafi þeir sem hlut eiga að máli þökk fyrir. 0 Óþörf götulokun „Ökumaður" sendir eftir- farandi skrif: „Nýlega létu umferðaryfirvöld í Reykjavik loka eyjunni á Miklu- braut við Rauðarárstíg þannig að nú er ekki unnt að beygja til vinstri af Miklubraut inn Rauðar- árstíg, né af Rauðarárstig, til vinstri upp Miklubraut. Um leið var eyjunni við Eskihlíð lokað og opnuð nú aksturleið upp á Hafnarfjarðarveg. Um síðari breytinguna er allt gott að segja og hefur hún létt talsverðum þunga af Miklubrautinni á þess- um stað. Lokunin við Rauðarár- stíg er hins vegar óskiljanleg og verður til þess að menn verða að taka á sig langa króka í kringum Miklatún eða um Engihlíð, Eski- hlið og Hafnarfjarðarveg ef þeir vilja komast í vesturátt og bifreið þeirra hefur verið lagt við sunnanverða Miklubraut á bila- stæðum sem þar eru milli Eski- hlíðar og Rauðarárstigs. Verður ekki séð að lokun þessi leysi neinn vanda, enda þótt vafalaust sé hún einungis bráðabirgðaráð- stöfun, þar til endalega verður' gengið frá Miklatorgssvæðinu við færslu Hringbrautar til suðurs. Væri gott að fá skýringar um- ferðaryfirvalda á þessari lokun, sem veldur íbúum á svæðinu og öðrum sem eiga erindi í hús á umræddum stað óþörfum snún- ingum. Ökumaður" 0 Aö gefnu tilefni Af marggefnu tilefni vill Vel- vakandi brýna fyrir bréfariturum að senda aðeins stutt bréf til dálksins. Langlokur er ekki hægt að birta vegna rúmleysis og stytt- ingar bréfa eru hvimleiðar, og óþarfar ef bréfritarar segja aðeins það sem máli skiptir í stuttu máli. I framhaldi af þessum ábend- ingum er rétt að það sé tekið fram að dálkurinn er ekki vettvangur fyrir einstaklinga til að koma á framfæri óhróðri um einstaka náunga sína, eða myndum af mönnum við mismunandi heppi- legar aðstæður. Allt slikt fóður fer umsvifalaust í körfuna. hafði svo fréttin um morðið á Mary Hudgin fengið mikið rúm í blaðinu? David fletti áfram og fann örlitla klausu, mjög stutt- orða og byggða á lögregluskýrslu. En þegar menn áttuðu sig á tengslunum milli þessara tveggja nafna... David sneri sér aftur að forsfð- unni og las: „Marictta Shaw, sem sérfræð- ingar f kvikmyndaiðnaðinum hafa fyrir löngu afskrifað, kemur nú i annað sfypti I sviðsljósið eftir langt hlé. STÚLKAN A MÁLVERKINU höfðu ýmsir kallað hana á sinni tíð ... og áttu þar við málverkið sem hinn þekkti listmálari Eugene Brahm hafði málað af henni og hafði fært hana inn í sviðsljósið — Maríetta varð fyrir fimm árum fyrir alvarlegu bílsiysi, þegar hún stóð á hátindi frægðar sinnar. Eftir að hafa dvalið næstum ár á sjúkrahúsi reyndi hún að snúa aftur til kvikmynd- anna, en viðleitni hennar bar ekki árangur. Hún komst fljót- lega f hóp hinnar „verst seldu leikkvenna." Crown Picturesfél- agið sá sig tilneytt að segja upp samningi sfnum við hana. HÖGNI HREKKVÍSI BALDWIN Eigum nokkur píanó af þessu heimsfræga, ameríska merki. 5 ára ábyrgð. 5% staðgreiðslu- afsláttur. Hljóðfæraverzlun Pálmars Árna hf. Borgartúni 29 sími 32845. ALLIR UT Á LAND í SUMAR OG SÓL TJÖLD, TJALDHIMNAR, SVEFNPOKAR, VINDSÆNGUR, TJALDDÝNUR, TEPPI, FERÐABORÐBÚNAÐUR, VEIÐISTENGUR, VEIÐIHJÓL, VÖÐLUR Opið til 6 í kvöld og 10 annað kvöld

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.