Morgunblaðið - 06.08.1975, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGUST 1975
BÍLALEIGAN
MIÐBORG hf.
simi 19492
Nýir Datsun bilar
Bíleigendur ath:
Höfum á boðstólum mikið úrval
af bílútvörpum, segulböndum,
sambyggðum tækjum, loftnets-
stöngum og hátölurum.
fsetningar og öll þjónusta á
staðnum TÍÐNI H.F
Einholti 2
s: 23220
GEYMSLU
HÓLF
J A GEYMSLUHOLF I
/ / ' ÞREMUR STÆRDUM.
/>> / L NY ÞJONUSTA VID
/s / J? VIDSKIPTAVINI í
% / U NÝBYGGINGUNNI
L/ ClJ BANKASTÆTI7
Siimt innuhankinn
Orð í eyra
Líf og list
Loksins gerðist þá eitthvað
markvert hjá okkur i mynd-
verkinu. Var það raunar ekki
seinna vænna því heldur hefur
farið lítið fyrir frumlegheitun-
um undanfarið þó Kristján og
Tánus og fleiri slíkir hafi verið
að myndast við að sýna
públíkumi hvernig þeir pró-
dúséra málverk með mússík
eða annan hávaða í eyrum. Það
gerðum við nú i barna-
skólanum sem þá var ekki
einusinni orðinn grunnskóli og
teiknun var ennþá teiknun en
ekki myndið sem er fínt orð.
Og auðvitað var það Sumar-
liði Tagl sem reið á vaðið
einsog fyrridaginn og sýndi
frammá bæði I svarthvitu og
öðrum litum að hann fer jafn-
an fyrstur þegar ruddar eru
nýjar leiðir i lystinni. Jafnvel
Súmerar og Steinar skáld af
Skaganum og hann Svenni á
barnum blikna eins og úrsér-
sprottnar hrafnaklukkur við
hliðina á Tagli þegar hann er í
essinu sínu og á fyrir máln-
íngu og öðrum nauðsynjum.
A öndverðum hundadögum
bauð hann nokkrum menn-
íngarvitum, sem fremstir
standa, ásamt með einum for-
leggjara og tveimur verkstjór-
um hjá hreinsunardeildinni,
heim að Hofi en svo nefnir
hann vinnustofu sína og svefn-
hús því þar fara fram blót eins
og i Uppsölum forðum tíð.
Enda er Tagl kominn í sænska
ásatrúarsöfnuðinn og hefur að
kjörorði: Uppsala er best.
Þegar að Hofi kom flutti
listamaðurinn ágæta ræðu í
tilefni kvennaársins og skýrði
í leiðinni frá nokkrum þeirra
myndverka sem i deiglunni
eru. Síðan klappaði hann fyrir
sjálfum sér og hrópaði ferfalt
húrra. Birtist þá fylgikona
hans skyndilega, fáklædd
mjög. Annar verkstjórinn féll í
aungvit, en forleggjarinn
hneigði sig djúpt og bauð gott-
kvöld á frönsku.
Sumarliði Tagl hóf nú að
mála kvensniftina hátt og lágt
og raulaði fyrir munní sér á
meðan, bæði gamla húsgánga
og ný popplög. Síðan færði
hann konukindina í föt
nokkur, gamlar óþveignar
kakíbuxur, sem hann hafði
notað i lýsinu forðum, og
peysu forljóta sem einnegin
var upprunnin á Raufarhöfn.
Er þessu var lokið hóf hann
að útskýra verk sitt, benti
tilaðmynda á að neglur væru
bláar, varir grænar og augn-
skuggar ljósrauðir. Það væru
Framhald á bls. 31
Útvarp Reykjavík
/HIÐMIKUDAGUR
6. AGCST
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Kristján Jónsson les
söguna „Glerbrotið" eftir
Ólaf Jóhann Sigurðsson (3).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Kirkjutónlist kl. 10.25: E.
Power Biggs leikur með
Columbia-sinfónfu-
hljómsveitinni Orgel-
konsert nr. 3 í C-dúr
eftir Haydn /Ursula Buckel,
Yonako Nagano, John van
Kestern, Jens Flottau, Franz
Lerndorfer, Drengja-, og
Dómkórinn f Regensburg
ásamt Sinfóníuhljómsveit út-
varpsins í Múnchen flytja
„Missa Brevis“ f B-dúr eftir
Haydn.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Fílharmóníusveit Lundúna
leikur enska dansa eftir Mal-
colm Arnold / Konunglega
fflharmonfusveitin í Lund-
únum leikur „Svo mælti
Zarathustra", sinfónfskt Ijóð
eftir Richard Strauss.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ___________________
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „1 Rauð-
árdalnum" eftir Jóhann
Magnús Bjarnason.Örn Eiðs-
son les (6)
15.00 Miðdegistónleikar
Vladimar Ashkenazy leikur
„Myndrænar etýður“ op. 39
nr. 3—7 eftir Rachmaninoff.
Oda Slobodskaya syngur
„Sex spænska söngva“ eftir
Shostakovits; Ivor Newton
leikur á pfanó.
Sinfónfuhljómsveit Lundúna
leikur „Sinfónfu f þrem
þáttum" eftir Stravinsky;
Colin Davis stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 veðurfregnir).
16.25 Popphorn
17.00 Lagið mitt
Berglind Bjarnadóttir sér
um óskalagaþátt fyrir börn
yngri en 12 ára.
17.30 Smásaga: „Sættir“ eftir
Þórarin Helgason
Guðrún Asmundsdóttir leik-
kona les
18.00 Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 1 sjónmáli
Skafti Harðarson og Stein-
grfmur Ari Arason sjá um
þáttinn.
KVÖLDIÐ
20.00 Pfanósónata op. 20 eftir
Samuel Barber.
Vladimir Horowitsj leikur.
20.20 Sumarvaka
a. Af skáldakyni
Guðrún Guðlaugsdóttir ræðir
við Jóhönnu Guðlaugsdóttur
um bróður hennar, Jónas
skáld.
b. Hofið í Ljárskógum.
Hallgrfmur Jónsson frá Ljár-
skógum segir frá.
c. Fyrsta kirkjuferðin mfn
Guðrún Eirfksdóttir flytur.
d. Kórsöngur.
Söngfélagið „Gígjan“ á
Akureyri syngur undir
stjórn Jakobs Tryggvasonar.
Þorgerður Eiríksdóttir
leikur með á pfanó.
21.30 Ctvarpssagan: „Hjóna-
band“ eftir Þorgils gjallanda
Sveinn Skorri Höskuldsson
les (6).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Knut Hamsun
lýsir sjálfum áer“.
Martin Beheim-Schwarzbach
tók saman. Jökull Jakobsson
les þýðingu sfna(14)
22.40 Djassþáttur
Jón Múli Árnason kynnir
23.35 Fréttir f stuttu máli.
Dagskrárlok.
MIÐVIKCDAGCR
6. ágúst 1975
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Gunniaugs saga orms-
tungu
Myndasaga í sex þáttum.
1. þáttur.
Teikningar gerði Haraldur
Einarsson, en söguna les
Öskar Ilalldórsson.
20.50 Ljúft er að iáta blekkj-
ast
Norski sjónhverfingamaður-
inn Toreno sýnir spilahrell-
ur, og ýmiss konar töfra-
brögð og útskýrir, hvernig
hægt er að blekkja áhorf-
endur.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið)
21.40 Engispretturnar
(Locusts)
Ný, bandarfsk sjónvarps-
mynd.
Leikstjóri Richard T. Hef-
fron.
Aðalhlutverk Ron Howard,
Ben Johnson, Lisa Gerritsen
og Belinda Balaski.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir.
Myndin gerist á búgarði í
Montana f Bandarfkjunum
um 1940.
Sonur bóndans er nýkominn
heim eftir brottrekstur úr
flughernum. Hann þykir hin
mesta ættarskömm, en fær
þó að sýna, hvað í honum
býr, þegar engisprettuplága
ógnar afkomu sveitabænda á
þessum slóðum.
22.55 Dagskrárlok
1-4^-e ER RQ HEVRR rP
Stjórnendur þáttarins I sjónmáli ásamt tæknimanni. Frá vinstri Skafti
Harðarson, Hreinn Valdimarsson tæknimaður og Steingrfmur Ari Arason.
i SJÓNMÁLI
í sjónmáli verður á dagskránni í
kvöld klukkan 1 9.35 Þetta er annar
þáttur þeirra Skafta Harðarsonar og
Steingríms Ara Arasonar. Að þessu
sinni taka þeir félagarnir fyrir pen-
inga og koma þrír hagfræðingar
fram í þættinum. Björn Matthíasson
ræðir almerint um islenzk peninga-
mál og vandamál, sem þeim fylgja
eins og verðbólguna, og Þráinn
Eggertsson og Ásgeir Daníelsson
eru á öndverðum meiði um hið
fullkomna hagkerfi, markaðskerfið
annars vegar og sósíalismann hins
vegar. Þá flétta þeirSkaftiog Stein-
grimur inn í tónlist og grini. Jón
Múli Árnason les upp tilkynningar
og fólk á förnum vegi er spurt hvað
það myndi gera ef það fengi 10
milljónir skattfrjálsar. Eru svörin ef-
laust hin forvitnilegustu, en að sögn
Skafta eru þau þó æði mikið á einn
veg.
I GLUGG
LÆKNISHÖNDAÐ HANDAN?
Að þessu sinni tók Jökull
Jakobsson fyrir huglækningar i
þætti sínum „Sjötta skilningarvit-
ið", sem sýndur var á sunnudag-
inn. Leiddi Jökull þá saman Einar
Jónsson á Einarsstöðum, miðil, en
I gegnum hann hafa huglæknar
starfað, og Hrafnkel Helgason
yfirlækni á Vifilstöðum, ásamt
sjúklingi beggja, Baldri Sigurðs-
syni, sem fengið hafði góðan bata.
Og spurningin var hver hafði
læknað Baldur?
Ætla má að Hrafnkell hafi verið
I mjög erfiðri aðstöðu. Annars veg-
ar varð hann að verja gildi lækna-
stéttarinnar en hins vegar að gæta
sín á því að móðga ekki meirihluta
íslendinga með hörðum dómum
um andalækna Verður vart annað
sagt en að Hrafnkeli hafi tekizt
þetta mjög vel. Með skýrri fram-
setningu sinni sýndi hann fram á
að bati Baldurs væri á fyllsta máta
í samræmi við læknisfræðileg lög-
mál. Hann lét samt ekki plata sig
ofan I þá gryfju að kveða upp dóm
yfir andatrú eins og vtsindamönn-
um er gjarnt, heldur lét áhorfend-
um eftir að mynda eigin skoðanir.
Á sama hátt má segja að Einar
hafi ekki ofboðið neinum efnis-
hyggju eða efasemdamanninum.
Hann er mjög hógvær maður, en í
hógværð hans og sterkri trú fólst
geysilegur sannfæringamáttur.
Verður engan veginn hægt að
segja að málflutningur hans hafi
kastað rýrð á málstað andatrúar-
fólks.
Jökull virtist ágætur spyrjandi
GUNNLAUGS SAGA — „Þorsteinn var þaðan út leiddur með góðum
gjöfum og reið Helga heim með honum og fæddist þar upp með mikilli
virðing og ást af föður og móður og öllum frændum." Niðurlag 3. kafla.
ER RQ SÍflHp
GUNNLAUGSSAGA
ORMSTUNGU
Þá eru íslendingasögur komnar á
dagskrá hjá sjónvarpinu, með sýn-
ingu á Gunnlaugssögu Ormstungu.
Þetta er myndasaga I 6 þáttum, og
verður fyrsti þátturinn sýndur í
kvöld klukkan 20.35. Óskar Hall-
dórsson les söguna við teikningar
Haraldar Einarssonar. Eru þetta kyrr-
myndir, en skipt ört um myndirnar.
ENGISPRETTURNAR
Aðalhlutverkið 1 kvikmyndinni
„Engispretturnar" er leikið af Ben
Johnson, sem hlaut Óskarsverð-
launin fyrir leik sinn í myndinni „The
Last Picture Show", sem sýnd var í
Stjörnubíói fyrr á þessu ári. Leikur
hann bónda, sem stendur frammi
fyrir innrás engispretta á hveitiakra
sína. En það er ekki hans eina
vandamál, hitt er heimkoma sonar
hans, sem var flugmaður í sjóhern-
um. Hann hafði verið rekinn þar
sem hann var ekki talinn hæfur til að
gegna lengur þeim starfa og að auki
er hann andlega niðurbrotinn vegna
dauða bezta vinar síns. Gagnvart
föður sínum og nágrönnum er hann
heigull.
Hið erfiða hlutverk sonarins er
leikið af Ron Howard. Þessi kvik-
mynd er alveg ný og var gerð fyrir
ABC sjónvarpið í Bandaríkjunum.
og á auðvelt með að greina aðal-
atriði frá aukaatriðum. En það var
ekki slður óvenjuskýrum málflutn-
ingi gesta hans að þakka að áhorf-
endur áttu góða stund fyrir
framan sjónvarpstækin.
SVÍKUR JÚDAS ENGAN?
„Júdas svíkur engan", nefndist
þáttur, sem sjónvarpið sýndi á
mánudagskvöld. Fjallaði þátturinn
um dag I Iffi hljómsveitarinnar
Júdasar frá Keflavík. Var fylgzt
með hljómsveitarmönnunum frá
þvf að þeir risu úr rekkju, þar til
þeir lognuðust út af eftir ball f
Grindavfk. Þar sem sjónvarpið
hefur fengizt mjög Iftið við að gera
„dókumenter" þætti um borgarlíf
og borgarmenningu á íslandi.
vakti þessi þáttur strax forvitni
Þegar til kom reyndist þátturinn
heldur yfirborðskenndur, og var
lítið gert til að kafa undir yfirborð-
ið, t.d. með viðtölum við strákana
eða fólk, sem I kringum þá er.
Áhorfandinn var þvf litlu nær um
poppheiminn og það andrúmsloft
og baráttu, sem þar fer fram. Þá
var lýsingu mjög ábótavant. hvort
sem það verður skrifað á reikning
peningaleysis eða stjórnanda. Það
er þó kannski heldur mikið að
segja að þátturinn hafi valdið von-
brigðum. Hugmyndin á bak við
hann er góð og þátturinn var
skemmtilegur, þó að efniviðurinn
hafi ekki verið nýttur til fullnustu.
Er vonandi að Egill Eðvarðsson,
sem stjórnaði gerð þáttarins, haldi
áfram á þessari braut og fínni sér
fleiri viðfangsefni í íslenzku
borga rlífi.
-pje.