Morgunblaðið - 06.08.1975, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1975
Þórður Eyjólfsson
hœstaréttardómari
Sunnudaginn 27. júlí lézt hér I
borg Þórður Eyjólfsson fyrrver-
andi hæstaréttardómari, og er
með honum genginn einn fremsti
lögfræðingur þjóðarinnar á þess-
ari öld.
Þórður Eyjólfsson var Borgfirð-
ingur, fæddur 4. maí 1897 að
Kirkjubóli í Hvítársíðu, og voru
foreldrar hans Eyjólfur Andrés-
son bóndi þar og kona hans,
Guðrún Brynjólfsdóttir, Annars
voru ættir Þórðar af Suðurlandi.
Eyjólfur, faðir hans, var bróðir
séra Magnúsar Andréssonar
prests að Gilsbakka, en þeir voru
Árnesingar að uppruna; er
ævisaga Magnúsar Andréssonar
eftir séra Magnús Helgason skóla-
stjóra prentuð í Andvara 1924, og
má þar lesa ýtarlega greinargerð
um föðurætt Þórðar.
Móðir hans, Guðrún, var aftur
ættuð úr Rangárvallasýslu, dóttir
Brynjólfs Stefánssonar bónda og
hreppstjóra að Selalæk á Rangár-
völlum og konu hans, Vigdisar
Árnadóttur.
Þórður varð gagnfræðingur frá
Menntaskólanum í Reykjavik
1917 og hafði lesið undir prófið
utanskóla, en stúdentsprófi lauk
hann frá sama skóla 1920. Haustið
sama ár hóf hann nám við laga-
deild Háskólans og lauk embætt-
isprófi í lögfræði 19. júní 1924.
— Mjólkurár-
virkjun
Framhald af bls. 13
ist ekki til fulls fyrr en þessi lína
hefur verið byggð.“
„Eftir þeim upplýsingum, sem
fyrir liggja, um lagningu byggða-
línu og virkjanir á fimm ára áætl-
un hjá Rafmagnsveitum rikisins f
orkumálum á Vestfjörðum, telur
stjórnin, að öryggi suðursvæðis-
ins sé ekki tryggt".
Svohljóðandi ályktun varð gerð
varðandi 200 mílna fiskveiðilög-
sögu:
„Stjórn Fjórðungssambands
Vestfirðinga fagnar ákvörðun
stjórnvalda um 200 mílna efna-
hagslögsögu.
Stjórnin treystir því, að ekki
verði samið um áframhaldandi
veiðar útlendinga innan 50 miln-
anna.“
Að loknu lagaprófi gerðist hann
fulltrúi bæjarfógetans i Reykja-
vik og starfaði þar til ársloka
1927. Árin 1928—1929 var hann
við framhaldsnám í lögfræði í
Berlín og Kaupmannahöfn, en
eftir heimkomu eða nánar tiltekið
frá ársbyrjun 1930 tii ársloka
1933 stundaði hann ýmis lög-
fræðistörf í Reykjavík. Einkum
fékkst hann við dómstörf, enda
skipaður setudómari og skiptaráð-
andi I ýmsum málum. En jafn-
framt þessu fékkst hann við rit-
störf, vann að samningu ritsins
Um lögveð, sem út kom 1934 og
hann hlaut fyrir doktorsnafnbót í
lögfræði. Hafði hann safnað efni
til þess á námsárum sínum er-
lendis.
I ársbyrjun 1934 fékk Magnús
Jónsson prófessor við lagadeild
Háskólans leyfi frá störfum og
var Þórður þá settur prófessor í
hans stað og skipaður 12. nóvemb-
er 1934 eftir fráfall Magnúsar.
Ekki naut þó Háskólinn lengi
starfskrafta Þórðar, því að hann
var skipaður hæstaréttardómari
24. september 1935, en prófessors-
embætti gegndi hann þó til 1.
september 1936. I Hæstarétti sat
hann síðan til 1. desember 1965,
er hann fékk lausn frá embætti að
eigin ósk.
Auk þessara aðalstarfa hlóð-
ust á Þórð margvísleg önnur
störf. Hann var kennari við Verzl-
unarskóla Islands 1924—1927;
var formaður yfirskattanefndar
Reykjavfkur 1932—1935; í stjórn
arnefnd sjúkrahúsa og heiibrigð-
isstofnana 1934—1936; var vara-
maður i Iandskjörstjórn
1934—1936; prófdómari við laga-
deild Háskólans 1937—1943 og
við prófraunir héraðsdómslög-
manna 1937—1967; hann sat í
verðlaunanefnd Gjafar Jóns
SigurðssQnar 1938—1970; 1
fslenzk-ameriskri skaðabóta-
nefnd 1943—1944; var skip-
aður í nefnd til ráðuneytis
milliþinganefnd i stjórnarskrár-
málinu 1945; formaður Sakfræð-
ingafélags Islands var hann
1949—1958; varaformaður stjórn-
ar hugvísindadeildar Visinda-
sjóðs 1958—1974.
Hann sat i ritstjórn De nordiska
Kriminalistföreningarnas Arsbok
frá 1948 og i ristjórn Nordisk
Tidsskrift for Kriminalvidenskab
frá 1949.
Þótt hann ætti þannig fjöl-
breytilegan starfsferil er augljóst,
að starfskrafta sfna hefur hann
einkum helgað dómsýslu og
fræðimennsku; er þó ógetið starfa
hans við lagasmíð, en að þeim
verður vikið nokkru nánar siðar.
xxx
Þórður Eyjólfsson var dómari I
Hæstarétti í rúm 30 ár, en áður
hafði hann gegnt dómarastörfum
við Bæjarfógetaembættið I
Reykjavík og sem sérstaklega
skipaður dómari.
Þegar hann var skipaður hæsta-
réttardómari, voru aðeins Iiðin 15
ár frá því að Hæstarétti var komið
á fót. Dómstóllinn var því ung
stofnun, þótt hann stæði á göml-
um merg, sakir beinna tengsla við
Landsyfirréttinn, sem rekja mátti
óslitið til Alþingis hins forna. En
Hæstiréttur hafði á skömmum
starfstíma sinum ekki notið
neinnar hylli þeirra stjórnmála-
manna, sem þá fóru með völd,
dómendum hafði verið fækkað í
þrjá með vafasamri heimild, em-
bætti hæstaréttarritara formlega
afnumið um skeið, þótt aldrei
kæmist það til framkvæmda, og
auk þess var öll ytri aðstaða næsta
bágborin. Skylt er að hafa i huga,
að hér réð miklu viðleitni til
sparnaðar i ríkisútgjöldum, sem
þó óneitanlega veikti stöðu
dómsins. Þá höfðu að auki staðið
miklar deilur um Hæstarétt og
hann sætt hörðum árásum, eink-
um Tfmans og Alþýðublaðsins. Að
vísu fæ ég ekki séð, að þær hafi
stjórnast af neinni réttlætis-
kennd, heldur miklu fremur ó-
stýrilæti, en þær voru þó til þess
fallnar að veikja traust á dóm-
stólnum. Ádeila á dómstóla var
raunar engan veginn fordæma-
laus, því að oft hafði verið deilt
hart á Landsyfirréttinn, meðan
hann starfaði.
Þeir voru. skipaðir í dómara-
embætti sama dag, Þórður Eyj-
ólfsson og Gizur Bergsteinsson.
Var sú ráðstöfun harðlega gagn-
rýnd I Morgunblaðinu, en gagn-
rýnin hijóðnaði von bráðar, enda
tókst áður en varði góður friður
um Hæstarétt, sem síðan hefur
haldizt. Er það til marks um
almennt traust. Virðist mér að í
þeim efnum hafi Hæstiréttur
nokkra sérstöðu meðal æðstu
stofnana þjóðfélagsins og þarf
ekki að hafa mörg orð um, hversu
mikilvægt það er. Verður hér að
hafa í huga, að hlutverk dómsins
er, eins og annarra dómstóla, að
skera úr réttarþrætum borgar-
anna, sem oft eru tengdar mikil-
vægum hagsmunaárekstrum, sem
haft geta viðtæk áhrif, þannig að
tilefni til ýfinga og ádeilu eru
ærin.
Með starfi sínu í Hæstarétti hef-
ur Þórður Eyjólfsson verið meðal
þeirra, sem drýgstan þátt hafa átt
í því að styrkja þessa stöðu
Hæstaréttar i islenzku þjóðfélagi.
Hefur hann þar lagt fram ómetan-
legan skerf til íslenzkrar réttar-
menningar og um leið til þróunar
Islenzks þjóðfélags, sem ég trúi að
metinn verði að verðleikum, þeg-
ar tímar liða.
XXX
Dómstörf eru ábyrgðarmikil,
erfið og lýjandi, ekki sizt í hinum
æðstu dómstólum, þar sem dómar
eru endanlegir. Með hverjum ára-
tug hafa verkefni Hæstaréttar
orðið viðameiri, sem raunar
stafar ekki aðallega af þvi að
málum hafi fjölgað, heldur miklu
fremur hinu að þau hafa orðið
flóknari og fyrirferðarmeiri eftir
þvi sem umsvif hafa aukist í land-
inu. Þrátt fyrir þetta skilaði
Þórður miklu verki sem fræði-
maður I lögum og liggja þar eftir
hann f jölbreytileg ritstörf.
Sérnám hans var einkum á sviði
fjármunaréttar eða nánar tiltekið
eignarréttar eins og doktorsrit-
gerð hans, Um lögveð ber vitni
um. Ekki er unnt að gera grein
fyrir efni hennar hér, en það eitt
^kal sagt, að hún verður um lang-
an aldur grundvallarrit á þessu
sviði.
Við lagadeild Háskólans voru
kennslugreinar Þórðar almenn
lögfræði, persónu-, sifja- og erfða-
réttur, ög svo refsiréttur. Af
þessum greinum ritaði hann mest
um persónurétt og er þar einkum
að nefna Agrip af persónurétti,
sem kom út fjölritað 1936, en það
var stofninn að riti hans Persónu-
réttur, sem út kom 1949 og hefur
siðan verið aðalkennsluritið I
þessari grein við lagadeild Há-
skólans. Er raunar líklegt, að svo
verði um langan aldur enn, ef
löggjöf verður ekki gerbreytt, en
á þvi eru engar horfur eins og
sakir standa. Er ritið framúrskar-
andi ljóst og skilmerkilega samið
og sómir sér hið bezta meðal hlið-
stæðra rita á Norðurlöndum. I
þessu viðfangi má og nefna rit-
gerð hans um vernd á persónu-
legum hagsmunum, sem tengdir
eru látnum manni, en hana lagði
Þórður fram sem umræðugrun-
völl á 19. þingi norrænna lögfræð-
inga 1951. Á fslenzku birtist rit-
gerð um sama efni I Ulfljóti 1961.
A sviði refsiréttarins er einkum
að nefna ritgerðirnar Upptaka
ólöglegs ávinnings f Timariti lög-
fræðinga 1952 og Fésektir í sama
riti 1963.
Þá var Þórður Eyjólfsson einn
fremsti réttarsögufræðingur
meðal islenzkra lagamanna. Af
verkum hans í þeirri grein tel ég
einna mestan feng að ritgerðinni
Refsiréttur Jónsbókar, sem birt-
ist I Afmælisriti Einars Arnórs-
sonar 1940, þar sem flóknu efni
eru gerð ákaflega glögg skil. I
Sögu Alþingis samdi hann ritið
Alþingi og héraðsstjórn, sem
hefur að geyma yfirlit yfir
sveitarstjórnarlöggjöf frá upp-
hafi til ársins 1945, og í Afmælis-
riti Ólafs Lárussonar birtist rit-
gerðin Þrfr dómar eignaðir Ara
iögmanni Jónssyni. Þar sýnir
hann fram á með skarplegri heim-
ildarýni, að tilteknir dómar eign-
aðir Ara lögmanni Jónssyni (Ara-
sonar) geti ekki verið frá hans
hendi, og er ritgerðin ekki ein-
ungis framlag til réttarsögu,
heldur og til aðferðafræði al-
mennrar sagnfræði.
Auk þessara rita hefur Þórðuf
samið ritgerðir á sviði höfunda-
réttar, sjóréttar og félagsréttar,
og í erlendum timaritum hafa
birzt eftir hann yfirlitsritgerðir
um Islenzkan sifjarétt og þróun
skaðabótaréttar á Islandi.
Má af þessu sjá, hversu fjöl-
breytt ritstörf liggja eftir Þórð, og
er hér þó engan veginn allt talið.
Árið 1967 gaf Lögfræðingafélag
Islands út bókina Lagastafi, sem
hefur að geyma safn helztu rit-
gerða hans. — I viðurkenningar-
skyni fyrir fræðistörf sín, sæmdi
Háskólinn í Helsinki hann heið-
ursdoktorsnafnbót í lögfræði árið
1963.
Hér má og geta þess, að Þórður
hefur samið margar álitsgerðir
um ýmis lögfræðileg efni, m.a.
fyrir stjórnvöld, og mega margar
þeirra teljast fræðilegar rit-
gerðir.
XXX
Fyrr var þess getið að Þórður
Eyjólfsson hefði fengizt mikið
við lagasmíð og eru þar á meðal
margir viðamiklir lagabálkar,
sem hann átti hlut að. Má hér
nefna lögræðislögin nr. 95/1947
erfðalögin nr. 8/1962, útvarps-
lögin nr. 19/1971 og höfundalögin
nr. 72/1973. Ennfremur vann
hann mikið starf við endurskoðun
einstakra þátta almennra hegn-
ingarlaga, siglingalaga, og við
samningu nýrra laga um hluta-
félög, en frumvarp þar að lútandi
hefur ekki verið lögfest. öllum
þessum lögum og lagafrum-
vörpum hafa fylgt ýtarlegar skýr-
ingar og athugasemdir, sem hann
átti mikinn þátt I að semja.
xxx
Árið 1930 kvæntist Þórður
Eyjólfsson Halldóru Magnús-
dóttur. Voru foreldrar henna.
Magnús Magnússon skipstjóri,
stýrimannaskólakennari og siðar
framkvæmdastjóri I Reykjavik og
kona hans Ragnheiður Guð-
mundsdóttir. Með þeim var jafn-
ræði og samheldni eins og bezt
mátti verða. Börn þeirra eru:
Magnús framkvæmdastjóri, Ragn-
heiður húsmóðir og Guðrún kenn-
ari.
XXX
Hvorki var Þórður Eyjólfsson
mikill að vexti né vallarsýn, en
kvikur var hann á fæti og léttur á
sér. Hann lét ekki mikið fara fyrir
sér, enda hógværð og hlédrægni
honum I blóð borin. I öllu lffi sínu
var hann vammlaus og í fram-
komu alúðlegur, blátt áfram og
fordildarlaus. En hvorki skorti
hann þó röggsemi né myndug-
leika, ef slikt átti við. Stundum
gat hann virzt dálftið viðutan.
Allra mann fljótastur var hann
að átta sig á kjarna hvers máls og
I meðförum hans urðu flóknir
hlutir einfaldir Qg ljósir. Um
þetta bera rit hans glöggt vitni
eins og áður er rakið. Kennsla lét
honum þvf mjög vel og get ég
borið um það af eigin reynd, því
að hann var um skeið kennari
minn við lagadeildina, — er hann
kenndi þar um skamma hríð.
Þórður var víðlesinn i bók-
menntum bæði fornum og nýjum,
ekki sizt kveðskap, og kunni
kynstur af vísum og kvæðum.
Sjálfur mun hann hafa verið
prýðilega hagmæltur, en flíkaði
því aldrei svo að ég vissi til. Hann
hafði næmt auga fyrir hinu skop-
lega og skemmtilega og kunni frá
mörgu slíku að segja — og sagði
vel frá. Fyrr á árum mun hann
hafa verið höfundur ýmissa
gamanmála, en því hélt hann ekki
á loft fremur en hagmælsku sinni.
XXX
Þórður Eyjólfsson var af þeirri
kynslóð sem hóf starfsævi sina
mjög jafnsnemma og Island varð
fullvaida ríki, og þvf verður ekki
neitað, að hún mótaði f mörgum
greinum nýtt þjóðfélag. Nú er
hún smám saman að hverfa og ný
komin I hennar stað. Enginn veit
ennþá, hvernig verk hennar
verða metin um ókomna tíð, og
hollast að sá dómur bíði enn um
sinn. A hinu leikur ekki vafi, að
til hennar töldust margir eftir-
minnilegir einstaklingar, einn
þeirra var Þórður Eyjólfsson
hæstaréttardómari, sem til
moldar verður borinn í dag.
Sigurður Lfndal.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að bcrast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á i
miðvikudagsblaði, að berast i
sfðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera I sendibréfs-
formi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu Hnubili.
JltargflitifrI
Blað-
buröar-
fólk
óskast:
AUSTURBÆR
Laufásvegur hærri tölur, Sóleyjargata.
Laugavegur hærri tölur
ÚTHVERFI
Laugarásvegur lægri tölur
VESTURBÆR
Lynghagi
Uppl. i simum 35408.
óskar eftir starfsfólki
SEYÐISFJÖRÐUR
HVERAGERÐI
INNRI NJARÐVIK
ÓLAFSVÍK
GRINDAVÍK
TEIGAHVERFI,
Mosfellssveit
Umboðsmenn óskast til að sjá um dreifingu og
innheimtu Mbl. uppl. hjá umboðsmönnum og á afgr. í
sima 1010Ö.