Morgunblaðið - 06.08.1975, Síða 14

Morgunblaðið - 06.08.1975, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1975 Þórður Eyjólfsson hœstaréttardómari Sunnudaginn 27. júlí lézt hér I borg Þórður Eyjólfsson fyrrver- andi hæstaréttardómari, og er með honum genginn einn fremsti lögfræðingur þjóðarinnar á þess- ari öld. Þórður Eyjólfsson var Borgfirð- ingur, fæddur 4. maí 1897 að Kirkjubóli í Hvítársíðu, og voru foreldrar hans Eyjólfur Andrés- son bóndi þar og kona hans, Guðrún Brynjólfsdóttir, Annars voru ættir Þórðar af Suðurlandi. Eyjólfur, faðir hans, var bróðir séra Magnúsar Andréssonar prests að Gilsbakka, en þeir voru Árnesingar að uppruna; er ævisaga Magnúsar Andréssonar eftir séra Magnús Helgason skóla- stjóra prentuð í Andvara 1924, og má þar lesa ýtarlega greinargerð um föðurætt Þórðar. Móðir hans, Guðrún, var aftur ættuð úr Rangárvallasýslu, dóttir Brynjólfs Stefánssonar bónda og hreppstjóra að Selalæk á Rangár- völlum og konu hans, Vigdisar Árnadóttur. Þórður varð gagnfræðingur frá Menntaskólanum í Reykjavik 1917 og hafði lesið undir prófið utanskóla, en stúdentsprófi lauk hann frá sama skóla 1920. Haustið sama ár hóf hann nám við laga- deild Háskólans og lauk embætt- isprófi í lögfræði 19. júní 1924. — Mjólkurár- virkjun Framhald af bls. 13 ist ekki til fulls fyrr en þessi lína hefur verið byggð.“ „Eftir þeim upplýsingum, sem fyrir liggja, um lagningu byggða- línu og virkjanir á fimm ára áætl- un hjá Rafmagnsveitum rikisins f orkumálum á Vestfjörðum, telur stjórnin, að öryggi suðursvæðis- ins sé ekki tryggt". Svohljóðandi ályktun varð gerð varðandi 200 mílna fiskveiðilög- sögu: „Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga fagnar ákvörðun stjórnvalda um 200 mílna efna- hagslögsögu. Stjórnin treystir því, að ekki verði samið um áframhaldandi veiðar útlendinga innan 50 miln- anna.“ Að loknu lagaprófi gerðist hann fulltrúi bæjarfógetans i Reykja- vik og starfaði þar til ársloka 1927. Árin 1928—1929 var hann við framhaldsnám í lögfræði í Berlín og Kaupmannahöfn, en eftir heimkomu eða nánar tiltekið frá ársbyrjun 1930 tii ársloka 1933 stundaði hann ýmis lög- fræðistörf í Reykjavík. Einkum fékkst hann við dómstörf, enda skipaður setudómari og skiptaráð- andi I ýmsum málum. En jafn- framt þessu fékkst hann við rit- störf, vann að samningu ritsins Um lögveð, sem út kom 1934 og hann hlaut fyrir doktorsnafnbót í lögfræði. Hafði hann safnað efni til þess á námsárum sínum er- lendis. I ársbyrjun 1934 fékk Magnús Jónsson prófessor við lagadeild Háskólans leyfi frá störfum og var Þórður þá settur prófessor í hans stað og skipaður 12. nóvemb- er 1934 eftir fráfall Magnúsar. Ekki naut þó Háskólinn lengi starfskrafta Þórðar, því að hann var skipaður hæstaréttardómari 24. september 1935, en prófessors- embætti gegndi hann þó til 1. september 1936. I Hæstarétti sat hann síðan til 1. desember 1965, er hann fékk lausn frá embætti að eigin ósk. Auk þessara aðalstarfa hlóð- ust á Þórð margvísleg önnur störf. Hann var kennari við Verzl- unarskóla Islands 1924—1927; var formaður yfirskattanefndar Reykjavfkur 1932—1935; í stjórn arnefnd sjúkrahúsa og heiibrigð- isstofnana 1934—1936; var vara- maður i Iandskjörstjórn 1934—1936; prófdómari við laga- deild Háskólans 1937—1943 og við prófraunir héraðsdómslög- manna 1937—1967; hann sat í verðlaunanefnd Gjafar Jóns SigurðssQnar 1938—1970; 1 fslenzk-ameriskri skaðabóta- nefnd 1943—1944; var skip- aður í nefnd til ráðuneytis milliþinganefnd i stjórnarskrár- málinu 1945; formaður Sakfræð- ingafélags Islands var hann 1949—1958; varaformaður stjórn- ar hugvísindadeildar Visinda- sjóðs 1958—1974. Hann sat i ritstjórn De nordiska Kriminalistföreningarnas Arsbok frá 1948 og i ristjórn Nordisk Tidsskrift for Kriminalvidenskab frá 1949. Þótt hann ætti þannig fjöl- breytilegan starfsferil er augljóst, að starfskrafta sfna hefur hann einkum helgað dómsýslu og fræðimennsku; er þó ógetið starfa hans við lagasmíð, en að þeim verður vikið nokkru nánar siðar. xxx Þórður Eyjólfsson var dómari I Hæstarétti í rúm 30 ár, en áður hafði hann gegnt dómarastörfum við Bæjarfógetaembættið I Reykjavík og sem sérstaklega skipaður dómari. Þegar hann var skipaður hæsta- réttardómari, voru aðeins Iiðin 15 ár frá því að Hæstarétti var komið á fót. Dómstóllinn var því ung stofnun, þótt hann stæði á göml- um merg, sakir beinna tengsla við Landsyfirréttinn, sem rekja mátti óslitið til Alþingis hins forna. En Hæstiréttur hafði á skömmum starfstíma sinum ekki notið neinnar hylli þeirra stjórnmála- manna, sem þá fóru með völd, dómendum hafði verið fækkað í þrjá með vafasamri heimild, em- bætti hæstaréttarritara formlega afnumið um skeið, þótt aldrei kæmist það til framkvæmda, og auk þess var öll ytri aðstaða næsta bágborin. Skylt er að hafa i huga, að hér réð miklu viðleitni til sparnaðar i ríkisútgjöldum, sem þó óneitanlega veikti stöðu dómsins. Þá höfðu að auki staðið miklar deilur um Hæstarétt og hann sætt hörðum árásum, eink- um Tfmans og Alþýðublaðsins. Að vísu fæ ég ekki séð, að þær hafi stjórnast af neinni réttlætis- kennd, heldur miklu fremur ó- stýrilæti, en þær voru þó til þess fallnar að veikja traust á dóm- stólnum. Ádeila á dómstóla var raunar engan veginn fordæma- laus, því að oft hafði verið deilt hart á Landsyfirréttinn, meðan hann starfaði. Þeir voru. skipaðir í dómara- embætti sama dag, Þórður Eyj- ólfsson og Gizur Bergsteinsson. Var sú ráðstöfun harðlega gagn- rýnd I Morgunblaðinu, en gagn- rýnin hijóðnaði von bráðar, enda tókst áður en varði góður friður um Hæstarétt, sem síðan hefur haldizt. Er það til marks um almennt traust. Virðist mér að í þeim efnum hafi Hæstiréttur nokkra sérstöðu meðal æðstu stofnana þjóðfélagsins og þarf ekki að hafa mörg orð um, hversu mikilvægt það er. Verður hér að hafa í huga, að hlutverk dómsins er, eins og annarra dómstóla, að skera úr réttarþrætum borgar- anna, sem oft eru tengdar mikil- vægum hagsmunaárekstrum, sem haft geta viðtæk áhrif, þannig að tilefni til ýfinga og ádeilu eru ærin. Með starfi sínu í Hæstarétti hef- ur Þórður Eyjólfsson verið meðal þeirra, sem drýgstan þátt hafa átt í því að styrkja þessa stöðu Hæstaréttar i islenzku þjóðfélagi. Hefur hann þar lagt fram ómetan- legan skerf til íslenzkrar réttar- menningar og um leið til þróunar Islenzks þjóðfélags, sem ég trúi að metinn verði að verðleikum, þeg- ar tímar liða. XXX Dómstörf eru ábyrgðarmikil, erfið og lýjandi, ekki sizt í hinum æðstu dómstólum, þar sem dómar eru endanlegir. Með hverjum ára- tug hafa verkefni Hæstaréttar orðið viðameiri, sem raunar stafar ekki aðallega af þvi að málum hafi fjölgað, heldur miklu fremur hinu að þau hafa orðið flóknari og fyrirferðarmeiri eftir þvi sem umsvif hafa aukist í land- inu. Þrátt fyrir þetta skilaði Þórður miklu verki sem fræði- maður I lögum og liggja þar eftir hann f jölbreytileg ritstörf. Sérnám hans var einkum á sviði fjármunaréttar eða nánar tiltekið eignarréttar eins og doktorsrit- gerð hans, Um lögveð ber vitni um. Ekki er unnt að gera grein fyrir efni hennar hér, en það eitt ^kal sagt, að hún verður um lang- an aldur grundvallarrit á þessu sviði. Við lagadeild Háskólans voru kennslugreinar Þórðar almenn lögfræði, persónu-, sifja- og erfða- réttur, ög svo refsiréttur. Af þessum greinum ritaði hann mest um persónurétt og er þar einkum að nefna Agrip af persónurétti, sem kom út fjölritað 1936, en það var stofninn að riti hans Persónu- réttur, sem út kom 1949 og hefur siðan verið aðalkennsluritið I þessari grein við lagadeild Há- skólans. Er raunar líklegt, að svo verði um langan aldur enn, ef löggjöf verður ekki gerbreytt, en á þvi eru engar horfur eins og sakir standa. Er ritið framúrskar- andi ljóst og skilmerkilega samið og sómir sér hið bezta meðal hlið- stæðra rita á Norðurlöndum. I þessu viðfangi má og nefna rit- gerð hans um vernd á persónu- legum hagsmunum, sem tengdir eru látnum manni, en hana lagði Þórður fram sem umræðugrun- völl á 19. þingi norrænna lögfræð- inga 1951. Á fslenzku birtist rit- gerð um sama efni I Ulfljóti 1961. A sviði refsiréttarins er einkum að nefna ritgerðirnar Upptaka ólöglegs ávinnings f Timariti lög- fræðinga 1952 og Fésektir í sama riti 1963. Þá var Þórður Eyjólfsson einn fremsti réttarsögufræðingur meðal islenzkra lagamanna. Af verkum hans í þeirri grein tel ég einna mestan feng að ritgerðinni Refsiréttur Jónsbókar, sem birt- ist I Afmælisriti Einars Arnórs- sonar 1940, þar sem flóknu efni eru gerð ákaflega glögg skil. I Sögu Alþingis samdi hann ritið Alþingi og héraðsstjórn, sem hefur að geyma yfirlit yfir sveitarstjórnarlöggjöf frá upp- hafi til ársins 1945, og í Afmælis- riti Ólafs Lárussonar birtist rit- gerðin Þrfr dómar eignaðir Ara iögmanni Jónssyni. Þar sýnir hann fram á með skarplegri heim- ildarýni, að tilteknir dómar eign- aðir Ara lögmanni Jónssyni (Ara- sonar) geti ekki verið frá hans hendi, og er ritgerðin ekki ein- ungis framlag til réttarsögu, heldur og til aðferðafræði al- mennrar sagnfræði. Auk þessara rita hefur Þórðuf samið ritgerðir á sviði höfunda- réttar, sjóréttar og félagsréttar, og í erlendum timaritum hafa birzt eftir hann yfirlitsritgerðir um Islenzkan sifjarétt og þróun skaðabótaréttar á Islandi. Má af þessu sjá, hversu fjöl- breytt ritstörf liggja eftir Þórð, og er hér þó engan veginn allt talið. Árið 1967 gaf Lögfræðingafélag Islands út bókina Lagastafi, sem hefur að geyma safn helztu rit- gerða hans. — I viðurkenningar- skyni fyrir fræðistörf sín, sæmdi Háskólinn í Helsinki hann heið- ursdoktorsnafnbót í lögfræði árið 1963. Hér má og geta þess, að Þórður hefur samið margar álitsgerðir um ýmis lögfræðileg efni, m.a. fyrir stjórnvöld, og mega margar þeirra teljast fræðilegar rit- gerðir. XXX Fyrr var þess getið að Þórður Eyjólfsson hefði fengizt mikið við lagasmíð og eru þar á meðal margir viðamiklir lagabálkar, sem hann átti hlut að. Má hér nefna lögræðislögin nr. 95/1947 erfðalögin nr. 8/1962, útvarps- lögin nr. 19/1971 og höfundalögin nr. 72/1973. Ennfremur vann hann mikið starf við endurskoðun einstakra þátta almennra hegn- ingarlaga, siglingalaga, og við samningu nýrra laga um hluta- félög, en frumvarp þar að lútandi hefur ekki verið lögfest. öllum þessum lögum og lagafrum- vörpum hafa fylgt ýtarlegar skýr- ingar og athugasemdir, sem hann átti mikinn þátt I að semja. xxx Árið 1930 kvæntist Þórður Eyjólfsson Halldóru Magnús- dóttur. Voru foreldrar henna. Magnús Magnússon skipstjóri, stýrimannaskólakennari og siðar framkvæmdastjóri I Reykjavik og kona hans Ragnheiður Guð- mundsdóttir. Með þeim var jafn- ræði og samheldni eins og bezt mátti verða. Börn þeirra eru: Magnús framkvæmdastjóri, Ragn- heiður húsmóðir og Guðrún kenn- ari. XXX Hvorki var Þórður Eyjólfsson mikill að vexti né vallarsýn, en kvikur var hann á fæti og léttur á sér. Hann lét ekki mikið fara fyrir sér, enda hógværð og hlédrægni honum I blóð borin. I öllu lffi sínu var hann vammlaus og í fram- komu alúðlegur, blátt áfram og fordildarlaus. En hvorki skorti hann þó röggsemi né myndug- leika, ef slikt átti við. Stundum gat hann virzt dálftið viðutan. Allra mann fljótastur var hann að átta sig á kjarna hvers máls og I meðförum hans urðu flóknir hlutir einfaldir Qg ljósir. Um þetta bera rit hans glöggt vitni eins og áður er rakið. Kennsla lét honum þvf mjög vel og get ég borið um það af eigin reynd, því að hann var um skeið kennari minn við lagadeildina, — er hann kenndi þar um skamma hríð. Þórður var víðlesinn i bók- menntum bæði fornum og nýjum, ekki sizt kveðskap, og kunni kynstur af vísum og kvæðum. Sjálfur mun hann hafa verið prýðilega hagmæltur, en flíkaði því aldrei svo að ég vissi til. Hann hafði næmt auga fyrir hinu skop- lega og skemmtilega og kunni frá mörgu slíku að segja — og sagði vel frá. Fyrr á árum mun hann hafa verið höfundur ýmissa gamanmála, en því hélt hann ekki á loft fremur en hagmælsku sinni. XXX Þórður Eyjólfsson var af þeirri kynslóð sem hóf starfsævi sina mjög jafnsnemma og Island varð fullvaida ríki, og þvf verður ekki neitað, að hún mótaði f mörgum greinum nýtt þjóðfélag. Nú er hún smám saman að hverfa og ný komin I hennar stað. Enginn veit ennþá, hvernig verk hennar verða metin um ókomna tíð, og hollast að sá dómur bíði enn um sinn. A hinu leikur ekki vafi, að til hennar töldust margir eftir- minnilegir einstaklingar, einn þeirra var Þórður Eyjólfsson hæstaréttardómari, sem til moldar verður borinn í dag. Sigurður Lfndal. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að bcrast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á i miðvikudagsblaði, að berast i sfðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera I sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu Hnubili. JltargflitifrI Blað- buröar- fólk óskast: AUSTURBÆR Laufásvegur hærri tölur, Sóleyjargata. Laugavegur hærri tölur ÚTHVERFI Laugarásvegur lægri tölur VESTURBÆR Lynghagi Uppl. i simum 35408. óskar eftir starfsfólki SEYÐISFJÖRÐUR HVERAGERÐI INNRI NJARÐVIK ÓLAFSVÍK GRINDAVÍK TEIGAHVERFI, Mosfellssveit Umboðsmenn óskast til að sjá um dreifingu og innheimtu Mbl. uppl. hjá umboðsmönnum og á afgr. í sima 1010Ö.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.