Morgunblaðið - 06.08.1975, Page 28

Morgunblaðið - 06.08.1975, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. AGÚST 1975 Piltur og stúlka Eftir Jón Thoroddsen Hvar er hann, heillin mín? sagði Sig- ríöur. Þá jörð, man ég ekki til, að ég hafi heyrt nefnda. Þú skalt fá að sjá hana einhvern tíma bráðum; við ríðum þangað einhvern tíma eftir sumarmálin. Meira vildi Indriði ekki segja henni að því skipti; en einu sinni um vorið, þá er snjór var úr hlíðum leystur, en geirar grænir, lætur Indriði söðla tvo hesta og biður konu sina að búast til ferðar. Skul- um við nú fara að sjá Fagrahvamminn, segir hann. Sigríður bjó sig sem hún ætlaði í kirkju, og brosti bóndi hennar að því, en segir henni þó ekki meira um áfangastaðinn, þar sem gatan beygist of- an með túngarðinum og liggur ofan í héraóið, snýr Indriði hestinum á fjárgöt- ur og fram í dal. Kátlegt þótti Sigríði þetta, en hugsaði, að þetta væri leikur einn af Indriða og til þess gjörður að fá hana meó sér á skemmtireið, er veður var fagurt. Þau ríöa nú fram dalinn, og var hann þá orðinn algrænn og næsta fagur um að líta. Loksins komu þau í hvamm einn fagran; það var fremst í landareign Indriðahóls; ekki hafði Sig- x—COSPER ... Ke.vpli mér kjólfötin, nei það cíatt mér aldrei í hug... — Ef þú treystir þér til að þegja yfir leyndannáli, þá get ég sagt þér það að ég leigöi þessi kjölföt. .. ríður þar fyrr komið, en þó kannaðist hún glöggt við sig, er henni varð litið yfir ána; blasti þar við Álfhóll og hlíðin, sem hún hafði setið hjá í forðum. I miðjum hvamminum sté Indriði af baki og tók konu sína úr söðlinum. Landslaginu er svo varið, að hvammur þessi myndast af tveimur lágum grasbörðum, er girða hann á þrjár hliðar, og skýla fyrir öllum vindum nema landsuðri. Fyrir neðan hvamminn liggja sléttar grundir, er í við hallar ofan að ánni. Áin rennur þar um sléttan farveg og er lygn, en nokkuð breið. Á þessa hliðina blasti við iðgræn hlíö, en tvö gil steypast þar hvítfossandi ofan af brúninni og falla saman lítið eitt fyrir neðan miðja hlíðina og mynda dá- litla tungu. Eftir miðjum hvamminum rennur lækur, er sprettur upp undan stórum steini þar í hlíðinni fyrir ofan, en upp með læknum og upp úr sjálfum hvammsbotninum ganga smádældir, sem eru vaxnar aðalbláberjalyngi, eini og víðirunnum. Hvammurinn millum barð- anna er rennisléttur, nema ofurlítill ával- ur bali eður hóll í honum miðjum, fremra megin við lækinn. Hvammurinn er svo víður, að vel mætti búa þar til tíu kúa tún eða meira. Grasið í hvamminum var eins Pétur prangari Þegar Pétur prngari heyrði, hvernig allt var komið og fékk að sjá bréfið varð hann svo reiður, að það munaði minnstu að hann springi, og hann stökk af stað að finna ungu hjónin. „Það er nú svo, drengur minn“, sagði hann við piltinn, „að það er nú ekki alveg vandalaust, að eiga dóttur mína fyrir konu, enda verður þú, ef þú vilt eiga hana lengur, að fara til drekans í Dimmu- fjöllum og ná fyrir mig í þrjár fjaðrir úr stélinu á honum, þvi hver sá, sem þær hefir, getur fengið að vita hvað sem hann vill“. „Hvernig á ég nú að finna þennan dreka“, sagði tengdasonurinn. „Það verður þú sjálfur að annast, ekki veit ég neitt um það“, sagði Pétur. Piltur lagði nú af stað og var hinn hughraustasti. — Þegar hann hafði geng ið lengi, kom hann að konungshöll einni. Það er best ég fari hér inn og spyrji ráða, því konungar og slíkt fólk veit meira en M0RödN-|p3Á_ kafnnu \\ r® — 1 guðanna bænum segðu að — Það er klukkutfmi sfðan eig- ég sé ekki heima. andinn náði I bflinn. Kvikmyndahandrit að morði Eftir Lillian O'Donnelt Þýðandi Jóhanna Kristjónsdóttir. 13 — Ég er leikkona, en mér tekst ekki að fá hlutverk. Ég hef verið í fjóra mánuði í borginni. Ég hef Ifka umhoðsmann — það er að segja, ég er á skrá hjá honum. en ef hann hitti mig á götu myndi hann ekki þekkja mig. Ég get ekki fengið að vera statisti af þvf að það fólk sem þér teljið til vina yðar, taki eftir mér. Hún þangaði aftur og sagði svo blfðlega og hvetjandi: — Haidið þér ekki að við gætum gert hvort öðru greiða á þennan hátt? Það var vissulega margt til f þvf sem hún sagði, mig skorti ekki nema eitt tækifæri til að sanna hæfileika mfna. En að nota alger- lega óþekkt módei til þess væri hreinasta brjálæði. Ég hafði þörf fyrir að einhver viðurkenndur leíkari óskaði eftir aó ég málaði mynd af honum og þar með myndu augu allra uppljúkast fyr- ir þeim stórbrotnu hæfileikum sem ég trúði að ég hefði til að bera. — Áhrifamikla fólkið er alltof upptekið, Brahm, og einnig dálft- ið á verði gagnvart meðbræðrum sfnum. Hver annar en ég myndi bjóða sig fram af fúsum vilja til þess eins að þér stórgrædduð? Hún hefur sjálfsagt Iesið hugv anir mfnar. Samt reyndi ég að malda í móinn. — Þvf skyldi nokkur hafa á- huga á m.vnd af yður? — Vegna þess að þér og ég f sameiningu myndum vekja áhuga þeirra. Hún horfði fast á mig og lagði svo hanska og tösku frá sér og byrjaði ósköp róieg að hneppa frá ér kjólnum sfnum. Hún var búin að hneppa niður að mittí þegar ég loksins gat stamað: — Hvað f ósköpunum eruð þér að gera? — Viljið þér ekki Ifta á það sem þér ætlið að mála? — Jú, en .. .Ég var satt hezt að segja svo ringlaður, ekkí vegna blygðunar, heldur vegna þeírrar yfirvegunar sem lá að baki þessa. — Hættið þessu! Þé-r þurfið þess ekki, sagði ég hraðmæltur. — Það sem ég er að leita að er fallegt andlit ... portrett sem er hægt aó hengja upp hvar sem er, svo að fjölskylda og vinir geti glaðzt yfir þvf. Ekki það sem fyrir yður vakir. — Vitleysa, Brahm! Þér eruð á hi'ttunum eftir nákvæmlega þvf sama og ég: mynd sem vekur um- tal ... umtal um okkur svo að réttir aðilar taki eftir okkur. Það telst ekki með portretti eins og þér eruð að tala um. Éf okkur tekst ekki að búa til mynd, sem hrærir vel og rösklega upp f um- hverfinu hefur allt verið tfma- sóun. Og ég tók af skarið. Óhvikult augnaráð hennar sem hvfldi á mér hleypti roðanum fram f kinnar mér og ég flýtti mér að segja við hana: — Ég skal sýna yður hvar þér getið farið úr fötunum, ungfrú Shaw. Óstyrkur gekk ég fram og aftur um gólfið. Hún ætlaði aðeins að sýna mér það sem ég átti að mála. eftir þvf sem hún hafði sagt, | en ég vissi að málið var útkljáð. Ég hafði fyrr haft naktar fyrirsætur og hún hafði allan t-fmann verið óper- sónuleg f framgöngu, en engu að sfður bogaði af mér svit- inn. Ég hugsaði með mér að það væri vegna vfnsins sem ég hefði drukkið í strandferðinni fyrr um daginn og óöryggis síðustu mán- aða ...En innst inni vissi ég að stúikan hafði vakið upp þessar kenndir. Ég var tilfinningalega snortinn af henni þótt ég reyndi eftir fremsta megni að hafa hcmii á mér. Ég beinlfnis óskaði þess að ég yrði vonsvikinn þegar ég sæi hana og gæti þar af leiðandi með góðri samvizku sagt að hún stæð ist ekki vonir mfnar — það yrði mín eina björgun. Hún kom að vörmu spori. Ég skynjaði meira en heyrði fótatak hennar að baki mér en ég stóð kyrr og sneri mér ekki við. Ilún átti að hafa frumkvæðið. En auð- vitað gat ég ekki barist á móti. Og hægt sneri ég mér við og starði á hana. Sagt er að það séu augun sem sjái, en kannski sá ég aðeins það sem hún næstum dáíeiddi mig til að sjá. En hvernig sem þvf var nú farið, fór hún langt fram úr öllum vonum mfnum um þá fullkomnun, sem ég hafði leitaö eftir f Iffi mfnu og list. — Ég byrja með nokkrum skyssum, sagði ég og reyndi að vera hranalegur í röddinni. Þegar hún sté upp á stallinn þar sem hún átti að sitja var eins og hún missti örlitla stund eitt hvað af sjálfsöryggi sfnu. Það hrærði mig á sérstakan hátt. Og á þvf andartaki sá ég myndina full- gerða fyrir mér: ung kona lyftir höfði f áttina að sólargeislanum, sem fellur inn um gluggann og að baki hennar er rúmið, enn volgt eftir Ifkama hennar! rósrauður sólargeisli eins og atlot elskhuga. Mótfvið er að sjálfsögðu ekki frumlegt, en áhrifin geta verið stórkostleg ef vel tekst til. Og þá fannst mér Ifka að ófrumleiki hugm.vndarinnar myndi verða léttvægur ef mér tækist að útfæra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.