Morgunblaðið - 30.08.1975, Side 2

Morgunblaðið - 30.08.1975, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1975 36 ára konu er saknað RANNSÓKNARLÖGREGLAN í Reykjavík hefur lýst eftir 36 ára gamalli konu, Hrefnu Birnu Kristinsdóttur, til heimilis að Skólavörðustfg 29. Hefur ekkert til hennar spurzt síðan um mið- nætti aðfararnótt s.l. þriðjudags. Hrefna Birna Kristinsdóttir er 167 sentimetrar á hæð, frekar feitlagin og ljóshærð. Þegar síðast sást til hennar, innarlega á Hverfisgötu, var hún klædd drapplitri kápu og bláum síðbux- um. Þeir sem geta gefið einhverj- ar upplýsingar um ferðir Hrefnu Birnu frá miðnætti s.I. þriðjudags eru beðnir að hafa samband við rannsóknarlögregluna í Reykja- vík. Mikil sala í land- búnaðarvörum 1 verzlunum í gær MORGUNBLAÐIÐ hringdi I gær í nokkrar verzlanir og spurðist fyrir um það hvort sala á land- búnaðarvörum hefði verið meiri en venja er og fékk alls staðar þau svör að svo hefði verið. Þó var talsvert misjafnt, hve mikið hafði selzt af smjöri eftir þvf við hvern kaupmann varrætt við.sums stað ar seldust upp allar smjörbirgðir verzlunarinnar um hádegi og annars staðar entust þær eitthvað fram eftir degi. Öllum bar saman um að óvenjumikil eftirspurn hefði verið eftir kjöti og kjötvör- um og talsvert var spurt um nautakjöt. Yfirleitt eru þó ekki afgreiddir heilir skrokkar af kjöti f verzlunum á föstudögum, þótt vfða sé það gert aðra daga. Verzlunarstjóri, sem blaðið ræddi við, skammaði Mbl. fyrir að hafa birt fréttina um land- búnaðarvöruhækkunina f gær. Hann sagði: „Þið mynduð ekki blaðamenn, birta slikar fréttir, ef þið þyrftuð síðan daginn eftir að Framhald á bls. 16 Stéttarsam- bandið kann- aði möguleika á málshöfðun SKRIF dagblaðsins Vísis um landbúnaðarmál f vetur og vor voru töluvert til umræðu á að- alfundi Stéttarsambands bænda, sem hófst að Laugar- vatni f gær. í skýrslu formanns sambandsins til fundarins kom fram, að stjórn þess ræddi þessi skrif oft á fundum sfnum, og reyndi hún f fyrstu að mæta þessum áróðri, eins og skrif fyrrverandi ritstjóra Vfsis eru nefnd f skýrslu for- mannsins, með þvf að koma á framfæri leiðréttingum og svörum, bæði f blöðum og öðr- um fjölmiðlum, en það bar ekki „þann árangur, sem vænta hefði mátt“. Þá sagði í skýrslu formannsins, að stjórnin hefði athugað ýmsa möguleika, meðal annars að stefna blaðinu fyrir atvinnu- róg. Formaður stéttarsam- bandsins, Gunnar Guðbjarts- son, lauk máli sfnu um þennan lið með þeim orðum, að „nú hefði verið ákveðið að sá mað- ur, sem stóð fyrir þessum áróðri, hætti störfum við blað- ið, og er þess að vænta, að einhver breyting verði á þessu efni f næstu framtíð". I um- ræðum að lokinni skýrslu for- manns ræddu nokkrir fulltrú- ar á fundinum þessi skrif Vfs- is. Voru þeir, sem til máls tóku, á einu máli um, að hér hefði verið um að ræða aðför að fslenzkum landbúnaði og þeim, sem við hann vinna. Verð mjólkurlítra verður 41 króna Ljósm. Mbl. Friðþjófur. EINS og skýrt var frá f blaðinu í gær tekur gildi á mánudag nýtt verð á landbúnaðarvörum og hækka þær allverulega. Hækkun- in verður mest á nýmjólk og smjöri eða um tuttugu prósent en skyr sem ekki er niðurgreitt hækkar minnst eða um 7%. Eftir þessa hækkun verður smásölu- verð mjólkur f einslftra pökkum 41 kr. pr. pakki en kostar f dag 34 kr. Samkvæmt því verði sem taka á gildi á mánudag kostar þá hver lftri af mjólk í lausu máli 36 kr., mjólk í lftra plastpokum 40 kr. og mjólk í tveggjalítra fernu 82 kr. Verð á rjóma hækkar einnig og kostar rjómi í kvarthyrnum eftir hækkunina 110 kr. og rjómi f eins lítra fernu 436 kr. Eins og áður sagði hækkar skyr minnst en eftir hækkunina kostar hvert kiló af skyri pakkað eða ópakkað 118 kr. í smásölu. Fyrsti flokkur af smjöri kostar eftir hækkunina 612 kr. en annar flokkur 557 kr. hvert kíló. Ostar hækka um 8—9% og kostar hvert kfló af 45% osti 601 kr. eftir hækkunina Framhald á bls. 16 Smygluðu inn fíkni- efnum fyrir 3,3 millj. 30 þúsund gestir á sýninguna FlKNIEFNADÓMSTÓLLINN er langt kominn með rannsókn á tveimur umfangsmiklum ffkni- efnamálum, en þar er um að ræða smygl á samtals 3'A kflói af hassi og marihuana. Lætur nærri, að söluverðmæti þess sé um 3,3 milljónir króna á því verði sem verið hefur á svartamarkaðnum undanfarið. 8 ungmenni eru aðal- lega viðriðin þessi ffkniefnamál, sem eru einhver þau stærstu sem komizt hefur upp um hér á landi. Að sögn Ásgeirs Friðjónssonar fíkniefnadómara er hér um að ræða tvö aðskilin mál. í fyrsta lagi smygl á 1H kílói af hassi frá Kaupmannahöfn sem fleiri en einn kom með flugleiðis hingað til lands og f öðru lagi 2 kg af marihuana sem einn aðili kom með flugleiðis frá Bandaríkjun- um. Ffkniefnunum var smyglað inn í júlí og ágúst. Lögreglan hefur aðeins náð í sína vörzlu 500 grömmum af hassinu og 100 grömmum af marihuana. Sam- kvæmt þessum tölum hafa um 1000 grömm af hassi og 1900 grömm af marihuana komizt f um- feró. Sagði Asgeir Friðjónsson f samtali við Mbl. í gær, að næsta verkefni Fíkniefnadómstólsins væri að kanna hvert fíkniefnin hefðu farið og hverjir hefðu stuðl- að að dreifingu þeirra. Eins og fyrr segir lætur nærri að söluverðmæti fíkniefnanna sé 3,3 milljónir króna, en grammið af hassi hefur undanfarið verið selt á um 12oo krónur og grammið af marihuana á 700—800 krónur. Rannsókn þessara umfangsmiklu mála hefur staðið yfir nú um nokkurra vikna skeið enda mjög tfmafrek. Mjög margir hafa verið kallaðir fyrir og 4 úrskurðaðir f gæzluvarðhald á meðan rannsókn stóð sem hæst. Nú situr aðeins einn maður í gæzluvarðhaldi. „ÉG BÝST við þvf að tala sýn- ingargesta sé nú farin að nálgast 30 þúsund,“ sagði Bjarni Ólafsson framkvæmdastjóri Vörusýningar- innar er Mbl. ræddi við hann f gærkvöldi, Sýningin virðist ætla að slá öll fyrri met og hefur reyndar hver einasti sýningardagur verið met- dagur ef miðað er við fyrri vöru- sýningar. Fékk 30 punda lax í Varmá STÆRSTI laxinn, sem vitað er til að veiðzt hafi á þessu sumri, kom á land úr Varmá f Hveragerði í gærmorgun, og vó hann rúmlega 30 pund. Það var Guðjón Jónas- son frá Keflavik sem fékk þennan fallega lax og átti hann sfzt von á að fá svo stóran lax úr ánni, þar sem áin er lítil. Guðjón var á veiðum í Varmá í gærmorgun og fékk hann tvo laxa, sá minni var aðeins 4 pund. Um 70 laxar hafa fengist í Varmá í sumar. Guðjón með laxana tvo. Það fer ekki milli mála hvor Jaxinn er 30 punda. Ljósm.Mbl.: Georg Michelsen. Frá aðalfundi Stéttarsambandsins: Metframleiðsla mjólkur 1 SKYRSLU formanns Stéttar- sambands bænda, Gunnars Guð- bjartssonar, á aðalfundi þess sem hófst f gær á Laugarvatni kom fram að á sfðasta ári jókst mjólk- urmagn um 3% og heildar inn- vigtun f mjólkurbúin f landinu var tæplega 116 millj. kfló og er það mesta mjólkurmagn sem komið hefur til sölumeðferðar nokkru sinni áður á einu ári. Aukningin var nokkuð misjöfn og hjá fimm búum var um samdrátt Framhald á bls. 16 Blaðamaður Þjóðviljans: Eg hafði rétt eftir Sveini — nema um gamlingjann MORGUNBLAÐIÐ sneri sér f gær til Gunnars Gunnarssonar. blaðamanns á Þjóðviljanum vegna ummæla Sveins R. Eyj ólfssonar, fyrrum fram kvæmdastjóra Vísis, f viðtali við Morgunblaðið f gær, þess efnis, að Þjóðviljinn hefði haft rangt eftir honum um sam- skipti Kristins Finnbogasonar, framkvæmdastjóra Tfmans, og blaðamanns á Vfsi, og innti blaðamanninn álits á þessum ummælum Sveins. Gunnar Gunnarsson kvaðst hafa haft ummæli Sveins R. Eyjólfssonar í samtali þeirra rétt eftir, „nema þetta síðasta, sem hann sagði, að hann hefði ekki kallað Vísi gamlingjann. Það er frá mér komið“, sagði blaiðamaðurinn. I Þjóðviljanum í gær birtist viðtal við Þóri Jónsson, sem sæti á i stjórn Reykjaprents, hf„ útgáfufélags Vísis, og er hann þar spurður álits á um- mælum Sveins R. Eyjólfssonar f fyrrgreindu viðtali þess efnis, að útgefendur Vfsis beiti öllum ráðum til að koma í veg fyrir útgáfu nýs dagblaðs. Þórir Jónsson segir: „Við viljum fyrst og fremst og fyrir alla muni halda rétti okkar. A hon- um látum við ekki troða, að öðru leyti teljum við það ekki okkar mál hvernig aðstandend- ur nýja blaðsins bjarga sér. Hafi þeir einhvern rétt sín megin nýta þeir hann að sjálf- sögðu. Og á það verður að reyna hver réttur þeirra er. Annars erum við ekki verri en það, að Jónas og Sveinn eru á Iaunum hjá Vfsí við að gefa út nýja blaðið." Þá er Þórir Jónsson spurður um samkeppni af hálfu hins nýja dagblaðs og hann segir: „Við óttumst hana ekki. Það hefur gengið vel að ráða fólk í stað þeirra, sem fylgdu Jónasi, og við erum að sjálfsögðu glaðir yfir þvf, að Sveinn skuli viður- kenna, að hann ætli að gefa út nýtt hægrisinnað blað. Við höf- um og ætlum okkur framvegis að gefa út frjálslynt og vfðsýnt blað. Annars finnst mér, að allt tal Jónasar og Sveins um frjálst fréttablað sé svona álfka og ef ég færi að segja fólki, að enginn gæti framleitt bíla nema Ford. Ég þekki Svein og Jónas ifla, ef tilgangur þeirra með blaðaút- gáfunni er annar en að þjóna eigin hagsmunum og jafnvel duttlungum. Annars er ágætt að sem allra flestir ráðist í að gefa út blöð til þess að fleiri skoðanir komi fyrir augu les- enda. Og alltaf er nóg af óánægðu fólki í stjórnmála- flokkunum til þess að fylkja sér um nýjan vettvang."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.