Morgunblaðið - 30.08.1975, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGUST 1975
— Báturinn
Framhald af bls. 28
tveimur piltum og einnig Gísli
á Meðalfelli, en hann hafði séð
þegar bátnum hvolfdi og gerði
Kristjáni viðvart.
Þegar Kristján og menn
hans komu að okkur þar sem
við héngum á kili bátsins
bentum við honum að fara
strax á eftir Hermanni sem
hafði synt I áttina tií hólm
ans enda sáum við að hann var
farinn að tapa sundtökunum.
Kristján gerði það og stefndi
bát sínum á hólmann á fullri
ferð. Skyndilega sáu þeir hvar
Hermanni skaut upp rétt við
borðstokkinn en ferðin var of
mikil til þess að þeir næðu til
hans. Þeir sneru strax við en bá
sást ekki meira til Hermanns.
Þarna hefur því ekki munað
nema mfnútu að hann næð^st.
Þegar þeir fundu hann
ekki komu þeir til baka og
sóttu okkur. Við höfðum þá
verið í vatninu í einar 20
mínútur og vorum orðnir
mjðg kaidir. Við hresst-
umst þó fljótt eftir að við
komum heim að Grjóteyri. Vil
ég að lokum færa heimafólki
þar og á Meðalfelli svo og slysa-
varnamönnum þakkir fyrir
þeirra störf við björgunina og
leitina að Hermanni. Við Sig-
urður eigum þessu fólki líf að
launa.“ '
Því er við frásögn Þorvalds
að bæta, að sveitir Slysavarna-
félags Islands frá Reykjavík og
Seltjarnarnesi hófu leit fljót-
lega eftir slysið og var leitað
fram í myrkur á fimmtudaginn
og byrjað að leita í birtingu í
gærmorgun, og hafði þá sveit
SVFl á Kjalarnesi bætzt í hóp-
inn. Fundu froskmenn lík Her-
manns um klukkan 11 í gær-
morgun, en þá hafði SVFl gert
ráðstafanir til að fá aukinn liðs-
afla. Þorvaldur Ólafsson tók
einnig þátt í leitinni, en hann
hefur stundað froskköfun. Þeir
Þorvaldur, Sigurður og Her-
mann heitinn voru ekki í björg-
unarvestum og Hermann auk
þess f vöðlum sem hafa þyngt
hann mjög á snndinu, en þegar
hann örmagnaðist átti hann að-
eins ófarna örfáa metra að
grynningunum við hólmann.
Svipleg slys hafa margsinnis
orðið á Meðalfellsvatni. Vatnið
er með grynningum vfða en hyl-
djúpt inn á milli. Þar er afar
misvindasamt og vilja verða
þar háar öldur vegna grynning-
anna.
— Fóður
Framhald af bls. 28
3% fóðursalt. Þetta væri
nákvæmlega sama blanda og hin
þekkta B-blanda og svo til allir
bændur Iandsins notuðu, en í
hverjum 100 kflóum af henni
væru 77 fóðureiningar og í hverri
fóðureiningu eru 120 grömm af
meltanlegu proteini og önnur
efni, sem hæfa kúm til helmings
fóðurnytja.
— Það er hægt að búa til svona
fóður viða á landinu t.d. í Flatey í
Austur-Skaftafellssýslu, en þar
hafa fengizt 5 tonn af grasmjöli af
hverjum hektara. Samkvæmt
rannsóknum ætti að vera hægt að
framleiða 25 þús. tonn af gras-
mjöli á þessum stað og skammt
frá er síldarbræðslan á Höfn i
Hornafirði, sem gæti látið í té lýsi
og mjöl.
Mistök okkar við byggingu gras-
mjölsverksmiðjunnar í Flatey er
hvað hún er lítil. Dani, sem vinn-
ur þar við uppsetningu verk-
smiðjunnar, segir að verksmiðjan
sé miklu minni en framleiddar
eru í Evrópu. Til þess að verk-
smiðjan verði hagkvæm í rekstri
þá þarf hún að vera 10 sinnum
stærri, en verksmiðjan í Flatey á
að geta framleitt 1 þús. tonn í
sumar en 2 þús. tonn á næsta ári,
þá fullnýtt. Auðvelt væri að reka
þarna verksmiðju á hagkvæman
hátt með því að nota afgangsraf-
magn frá Smyrlabjargarárvirkj-
un yfir nóttina og nota sfðan olíu
sem hjálparorkugjafa yfir dag-
inn. Næstu stöð ættum við að
byggja við Deildartunguhver og
þá gætum við framleitt allan okk-
ar fóðurbæti sjálfir. Þessum at-
hugunum hefur ekki verið tekið í
alvöru fyrr en nú að Gunnar
Thoroddsen iðnaðarráðherra
hefur sýnt mikinn áhuga á mál-
inu, sem hans er von og vísa, sagði
Gunnar.
Þá sagði hann að lokum, að
heildarnotkun landsmanna á fóð-
urbæti væri um 50 þús. lestir á ári
og fyrir skömmö hefðu þær
fréttir borizt erlendis frá, að
fóðurbætir mundi hækka um 30%
í desember n.k.
— Drukknaði
Framhald af bls. 28
var markvörður félagsins á
mestu velgengnistlmum þess.
Var hann Islandsmeistari með
félaginu alls 10 sinnum. Þá var
hann fyrsti landsliðsmarkvörð-
ur Islands og lék 6 fyrstu
knattspyrnulandsleikina sem
Island háði. Hann starfaði hjá
Reykjavíkurborg um áratuga
skeið og síðustu árin sem for-
stjóri Sundhallar Reykjavíkur.
Eftirlifandi kona Hermanns
er Unnur Jónsdóttir og eiga
þau eina dóttur.
— Staða banka
Framhald af bls. 28
gagnvart Seðlabankanum var í
júlflok neikvæð um 2.892 milljón-
ir króna og hafði frá áramótum
batnað um 73 milljónir króna.
Staðan á sama tfma í fyrra versn-
aði um hvorki meira né minna en
3.673 milljónir króna. Af þessu
sést að staða sparisjóðanna er all-
miklu betri en bankanna, þar sem
lausafjárstaða þeirra gagnvart
Seðlabankanum er jákvæð um
535 milljónir króna. Hafði hún þó
versnað frá áramótum um 12
milljónir króna, en batnað á
sama tfma f fyrra um 114 milljón-
ir króna.
Heildarstaða banka og spari-
sjóða við Seðlabankann, þ.e.a.s.
allar eignir þeirra að frádregnum
skuldum, var í júlílok neikvæð
um 4.537 milljónir króna og hafði
frá áramótum breytzt til batnaðar
um 573 milljónir króna. Á fyrstu
7 mánuðum ársins 1974 versnaði
heildarstaða banka og sparisjóða
við Seðlabankann um 4.982
milljónir króna.
— Bann
Framhald af bls. 28
breiðslu starfsemi fyrir dag-
blað með þessu nafni.
Eins og fyrr segir þurfti
Reykjaprent að leggja fram 5
millj. kr. tryggingu til þess að
lögbannið næði fram að ganga
og var það gert þegar í stað.
Lögbannsúrskurðinn kvað upp
Þórsteinn Thorarensen,
borgardómari.
— Samkomulag
Framhald af bls. 1
Arabaþjóðirnar um að Egyptar
hefðu alls ekki verið búnir að
gera samkomulag . fyrirfram
heldur sýnt hörku alveg fram að
undirritun þess.
Kissinger ætlaói að halda heim
til Bandarfkjanna nú um helgina
og ávarpa aukaþing Allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna, sem
hefst á mánudag, og fara siðan
aftur til Miðausturlanda til að
reka endahnútinn á samkomu-
lagsundirritunina. Hann hefur nú
hins vegar frestað ræðunni fram
til 3. september og segja nánustu
ráðgjafar hans það vera vegna
þess, að hann sé þess fullviss að
þann dag geti hann staðið frammi
fyrir þingheimi S.Þ. og tilkynnt
þeim samkomulagsundirritunina.
Stjórnmálafréttaritarar í för
með Kissinger segja að leiðin til
undirritunar verði að öllum
líkindum sem hér segir.
Israelar og Egyptar undirrita
samkomulagið til bráðabirgða á
mánudag 'eða þriðjudag. Síðan
myndu fulltrúar Israela og
Egypta hittast í Genf til að ræða
tæknilega framkvæmd samkomu-
lagsins og Bandaríkjaþing jafn-
framt fjalla um óskina um að
óbreyttir bandarískir tæknimenn
fylgdust með vopnahléinu. Þegar
þingið hefur samþykkt að verða
við óskinni, eins og vfst er talið,
myndu Israelar, Egyptar og
Bandaríkjamenn undirrita sam-
komulagið og þá fyrst myndu
Israelar byrja brottflutning herja
sinna úr Sinai og láta olíulindirn-
ar af hendi. Kissinger var
væntanlegur til Egyptalands nú
seint f kvöld og ætti því ef að
líkum lætur að Iiggja fyrir um
hádegisbilið á morgun hvort sam-
komulag hefur náðst.
— Metfram-
leiðsla
Framhald af b)s. 2
að ræða þ.e. búum á Þórshöfn 1
Vopnafirði, Egilsstöðum, Nes-
kaupstað og ísafirði.
Aukningin varð mest hjá
Mjólkurbúi Flóamanna. Það sem
af er þessu ári hefur aftur á móti
orðið nokkur samdráttur f mjólk-
urframleiðslunni og á fyrstu sex
mánuðum er hann 1,7% miðað við
sama tímabil í fyrra.
Sala á nýmjólk óx um tæp 3% á
síðasta ári og það sem af er þessu
ári hefur salan vaxið um 8%.
Smjörsalan óx mun meira á
sfðasta ári eða um 27% en það
sem af er þessu ári hefur sala á
smjöri dregizt saman hlutfalls-
lega miðað við sama tíma í fyrra,
ef litið er á bæði árin f heild er
samt um mjög eðlilega sölu á
smjöri að ræða. Ostasala jókst
jafnt og þétt á síðasta-ári og varð
heildaraukningin 7% en á þessu
ári er söluaukningin á ostum um
8%. Nokkur samdráttur hefur
orðið í skyrsölu, en þar kemur á
móti aukin sala f nýjum afurðum
sem notaðar eru í stað skyrs s.s.
eins og júgurð.
Vinnslu- og dreifingarkostn-
aður mjólkur hækkaði mjög á
síðastliðnu ári. Við haust-
verðlagningu í fyrra varð hann
13,70 kr. á hvern lítra en sam-
kvæmt verðlagsgrundvellinum
sem tekur gildi á mánudag er
hann 17,80 kr. á hvern Iftra og er
hækkunin 29,6%. Ekki er f þess-
ari hækkun meðtalin umbúða-
gjöld en þau hafa einnig hækkað
mikið milli áranna. I skýrslu sinni
tók Gunnar dæmi um tveggja lítra
fernu. Verð umbúðanna á lítra 1.
september 1974 var kr. 3,10 kr. en
er núna 7,45 kr. og er hækkunin
því rúmlega 140%. Verð plast-
poka undir mjólk var í fyrra 2,28
kr. en er núna 4,90 kr. og er
hækkunin tæplega 115%.
— Danmörk
Framhald af bls. 1
Að vfsu yki þessi skattalækkun
kaupgetu um 5 milljarða, en gert
er ráð fyrir að niðurskurður á
opinberum útgjöldum muni taka
2 milljarða af þeirri upphæð.
Stjórnmálafréttaritarar telja að
erfitt verði fyrir stjórnina að fá
Vinstri til að styðja frumvarpið,
en telja þó að ekki sé útilokað, að
þjóðþingið muni hugsanlega sam-
þykkja ráðstafnir f svipuðum til-
gangi en til skemmri tíma, er það
kemur saman til aukafundar 9.
september til að fjalla um þessi
mál.
— Sala
Framhald af bls. 2
standa f stanzlausri afgreiðslu
allan daginn. Við t.d. vorum alls
ekki undir þetta búnir, höfðum
aðeins eðlilegar birgðir af smjöri i
verzluninni. Sfðan er allt smjörið
uppselt um hádegi og við urðum
að senda sérstakan bíl eftir meira
smjöri og láta starfsmann standa í
biðröð eftir afgreiðslu á þvi. Á
meðan fæst ekkert smjör í
verzluninni og viðskiptavinurinn
verður tortrygginn og segir: „Já,
vissi ég ekki — þeir geyma allt
smjörið á bak við og bíða eftir að
það hækki." Þannig geta fréttir
sem þessar skapað alls konar mis-
skilning, sem valdið getur
vandræðum.“
I annarri stórverzlun seldist allt
smjör upp um klukkan 16 og gat
verzlunin ekki boðið viðskiptavin-
um sínum smjör eftir það, en opið
var til klukkan 19. Afgreiðslu-
stúlka sagði að einnig hefðu svið
selzt upp og „allt hefði verið vit-
laust í kjötinu frá þvi klukkan 09
f morgun og enginn hafi haft
undan.“ Verzlunarstjórar sögðu
að augsýnilega væri mikil
hræðsla meðal fólks við hækkun
landbúnaðarvara.
— Mjólk
Framhald af bls. 2
en í heilum og hálfum stykkjum
kostar hvert kíló af 45% osti 522
kr.
Þetta verð sem að ofan hefur
verið getið er miðað við að sölu-
skattur sé ekki tekinn af öðrum
mjólkurvörum en niðursoðinni
mjólk, og að niðurgreiðslur verði
sem hér segir: með hverjum lítra
af mjólk 39,10 kr. og 61,50 kr. á
hvern lítra af rjóma. Niður-
greiðsla á hvert kíló af smjöri
verði fjögur hundruð og níutíu
krónur og hvert kíló af 45% osti
85 kr. Þá verði pappaumbúðir um
mjólk greiddar niður sem nemur
2,50 kr. á hvert kíló og hvert kíló
af plastumbúðum um mjólk verði
greitt niður um eina krónu.
— Perú
Framhald af bls. 1
í október 1968, er þáverandi
forseta, Ferando Lelaude Terry,
var steypt af stóli.
Byltingin nú kom einmitt er
leiðtogar 82 hlutlausra þjóða voru
að ljúka vikulangri ráðstefnu f
Lima. Alvarado forseti hefur
verið fremur heilsutæpur. Taka
varð annan fótinn af honum fyrir
tveimur árum og fyrr á þessu ári
mun hann hafa orðið fyrir hjarta-
áfalli. Bermudez hefur löngum
verið álitinn væntanlegur arftaki
Alvarados. Alvarado var mikill
þjóðernissinni. Hann lýsti þvf
margsinnis yfir að stjórn sfn væri
hvorki kapitalfstfsk né kommún-
istísk. Hann þjóðnýtti eigur allra
erlendra fyrirtækja f landinu,
beitti sér fyrir byltingu í land-
búnaðarmálum og afnam veldi
hinna 100 fjölskyldna, sem áður
réðu landinu og veitti verkafólki
hlutdeild f hagnaði fyrirtækja.
Perú var fyrsta þjóðin í S-
Ameríku, sem ekki var undir
kommúnistastjórn, sem tók upp
stjórnmálasamband vió Kína.
— Það fólk
Framhald af bls. 10
— Já, en ég hef engin völd.
Ég hef áhrif. Annars óttast ég
ekki vald sem hugtak, — þvf
beiting valds er ekki sama og
misbeiting valds. Beiting valds
er hugtak yfir pólitíska nauð-
syn. Fólk, sem óttast valdið,
getur engu komið til leiðar. Og
ég vil koma mörgu til leiðar.
— Hvað muntu gera ef þú
verður fréttastjóri?
— Ég byrjaði á sínum tíma að
koma með fréttaskýringar til að
kanna hvort grundvöllur er fyr-
ir nútíma fréttamiðlun f Dan-
mörku. Hann er til! Þá fór ég á
fréttastofuna til að kanna hvort
unnt væri að láta velgengni
fréttaskýringanna smita svolít-
ið af sér á heildina. Það var
hægt. Og það er þetta starf sem
mun verða fylgt eftir til hlítar
ef mér verður gefinn kostur á
þvf!
— Og ef svo verður ekki?
— Þá verð ég atvinnulaus!
— Minning
Fjóla
Framhald af bls. 27
öllu slúðri að pað snerti hana ekki
enda svo orðvör um aðra að
fágætt má telja.
Fjóla var góðum og fjölhæfum
gáfum gæ:1 og svo vel sjálf-
menntuð að hún hefði vel þolað
samanburð við margan þann sem
ber stúdentshúfu með hreykni og
máski nokkru yfirlæti, hún var
aldrei hávær, hló aldrei hátt og
talaði ekki hátt jafnvel þó að
henni yrði þungt í skapi.
Þessi hljóðláta heillandi kona
hafði þá persónutöfra að manni
leið vel í návist hennar, hún hafði
ósvikna kfmnígáfu og sagði svo
látlaust og skemmtilega frá en
fáum er gefin sú list að koma
auga á skoplegu hliðarnar án þess
það sé á kostnað þéirra sem frá er
sagt.
öll hennar framkoma var
fáguð, það var henni eðlilegt en
ekki lært, og allt sem hún vann
hafði á sér listrænan blæ.
Ég finn til mikils tómleika við
fráfall Fjólu frænku minnar.
Þegar hún missti mann sinn ár-
ið 1961 frá þremur litlum börnum
átti hún í erfiðleikum sem allir
geta skilið. Hún volaði ekki við
einn eða neinn, en ég og þeir
nánustu vissu hvað henni leið.
Mig langar að segja frá einu
atviki sem máski fáum þykir
merkilegt, en mér er minnisstætt.
Það var aðfangadagur jóla nokkr-
um árum eftir að hún missti
mann sinn. Dyrabjöllunni minni
var hringt, ég opnaði sjálf að
þessu sinni, fyrir utan stóðu börn-
in þrjú, þeirra Fjólu og Karls,
með ófalsað jólabros á fallegu
andlitunum. Mér þótti þetta mikil
hugulsemi og gladdist af því að
Fjóla skyldi senda börnin sín með
jólaóskir til okkar hjónanna og
sona okkar en þau höfðu Iíka jóla-
böggul meðferðis. Ég átti ekki
von á því, vissi vel að fjárhagur
frænku minnar stóð ekki í mikl-
um blóma um þessar mundir.
Þegar ég sá innihaldið viknaði ég,
þetta w var forkunnarfagurt
kristalsglas sem ég þekkti að var
úr glasasamstæðu sem þau hjónin
höfðu átt, náttúrulega fullt af
lifandi blómum sem komið var
fyrir af mikilli smekkvísi, og ég sá
einnig að þau voru skorin af
hennar eigin stofublómum.
Þetta var máski sú jólagjöfin
sem best sýndi hugann sem á bak
við bjó og hugkvæmni gefandans.
Síðar sagði ég við Fjólu frænku,
að mér þætti það ofrausn að hún
skyldi mín vegna skerða þetta
kristalssafn.
Hún sagði: „Sigga frænka,
þetta var ekki fórn, glasið hefði
getað brotnað og þá engum til
gleði."
Ég veit að Fjólu fræ iku minni
mun ávallt vegna vel hvar sem
hana ber að landi í hinni ökunnu
og óendanlegu tilve :i,
öllum ættingjum og vinum
hennar votta ég samúð mína,
eiginmanns míns og ona okkar.
Alveg sérstaklega b.ð ég börn-
um og barnabörnum hennar
blessunar og á ekki betri ósk þeim
til handa en þá, að þau beri gæfu
til að þroska með sér þá bestu
eiginleika sem þau hafa hlotið f
arf frá báðum foreldrum sfnum.
Sigrfður Guðmundsdóttir.
— Minning
Sigmundur
Framhald af bls. 27
sjálfsbjargarviðleitni, er honum
var runnin í merg og blóð.
Um skeið var Sigmundur
aðstoðarmaður við raflagnir og
viðgerðir hjá Þórði P. Sighvats
rafvirkjameistara, og um árabil i
símavinnuflokki hans. Síðustu
árin var hann starfsmaður Fisk-
iðju Sauðárkróks. Jafnframt aðal-
störfum sínum stundaði Sigmund-
ur ýmsa aukavinnu, e’nkum
tengda sjónum, eins og áður er
drepið á. En hann kom víðar við: I
nokkur ár var hann lei' sviðs-
maður hjá Leikfélagi Sauðár-
króks í Bifröst, og f þvf amla,
góða húsi vann hann vi .itinga-
sölu um langt árabil, oftast á
vegum Ólínu Björnsdóttur og
Guðjóns Sigurðssonar bakara-
meistara, en þeim hjónum og fjöl-
skyldu þeirra var hann tengdur
traustum vináttuböndum.
Sigmundur Þorkelsson var
eftirsóttur verkmaður sökum
dugnaðar og stakrar trúmennsku.
Hann var manna trygglyndastur,
og greiðasemi var honum í blóð
borin. Vinum sínum reyndist
hann tryggðatröll og vildi mikið á
sig leggja til að leysa vanda
þeirra. ef svo bar undir. I dagfari
var hann hlédrægur og prúður —
allajafna glaðlegur og hýr f við-
móti. Skapmaður var hann
nokkur, en þó jafnlyndur og stillt-
ur vel. Óvildarmenn átti hann
enga, en vini víðs vegar, sem
jnátu mannkosti hans og dreng-
lund.
Sigmundur kvæntist ekki og
eignaðist ekki afkomendur, en á
heimili hans ólst upp frændi hans
og nafni, Sigmundur Haukur
Jakobsson, búsettur á Akureyri.
Og nú er Sigmundur Þorkelsson
allur. Okkur vinum hans finnst
skarð fyrir skildi. En um það tjáir
ekki að sakast. Að skilnaði er
honum þökkuð samfylgdin,
tryggð hans og hjálpfýsi. Hann
var drengur góður. Ættingjum
hans sendi ég hugheilar samúðar-
kveðjur.
Kári Jónsson.