Morgunblaðið - 30.08.1975, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. AGÚST 1975
19
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Verzlið ódýrt
50% afsláttur af öllum eldri
vörum.
Verðlistinn, Laugarnesvegi
82. s. 31330.
Höfum til sölu
stálgrind i 1 2x20 metra hús.
Norðurverk h.f. Simi 96-
21777.
Hestar til sölu
Hryssa 5 vetra og hestur 6
vetra. Fallega reistir. Uppl. i
sima 51 348.
Haglabyssa óskast
Upplýsingar i sima 53182.
Til sölu
kerruvagn og svalavagn.
Upplýsingar í s. 52882.
Sjónvarp til sölu
Uppl. i sima 3681 6.
Ullarteppi
til sölu lítt notað. Brúnleitt.
45 fm. Verð 1000 kr fm.
Uppl. i sima 33630.
Sumarbústaður
eða sumarbústaðaland
óskast. Tilboð sendist Mbl.
„3636".
Greni
Úrvals greniplöntur til sölu.
Sjáum um heimflutning ef
óskað er. Notið réttan tima til.
gróðursetningar.
Upplýsingar aðeins frá kl.
T 8—20 i sima 10967.
Miðstöðvarketill
Óskum eftir að kaupa 4 fm
miðstöðvarketil með inn-
byggðum spital. Tilboð
merkt: „miðstöðvarketill —
1975 — 4501", sendist
afgr. blaðsins fyrir 2.9.
Ódýr hjónarúm
Til sölu ódýr hjóna og ein-
staklingsrúm. Tilbúin undir
bæs og málningu. Opið i dag
laugardag til kl. 18.
Trésmiðjan Kvistur,
simi 331 77,
Súðavogi42.
Til sölu ódýrt
sófasett 4ra sæta sófi og 2
stólar, sófaborð og 90 cm
breiður svefnbekkur með
rúmfataskúffu undir. Uppl. i
sima 40438 eftir kl. 1
íbúð óskast
Óska að taka á leigu 2ja —
3ja herb. íbúð. Reglusemi og
góðri umgengni heitið. Uppl.
i simum 15581 og 21853.
Iðnaðarhúsnæði
Óska að taka á leigu ca 1 50
ferm. húsnæði fyrir léttan fré-
smiðaiðnað. Uppl. í sima
15581 og72085.
Húsnæði óskast
Ungt par með eitt barn óskar
eftir að taka á leigu 2ja herb.
íbúð strax. Upplýsingar í
sima 71978.
Húsnæði
100 — 150 fm húsnæði
óskast fyrir bilaverkstæði.
Upplýsingar i sima 71 107.
Sandgerði
Til sölu einbýlishúsgrunnur
við Holtsgötu. Hagstætt verð.
Fasteignas. Vilhjálms og
Guðfinns, Vatnsnesvegi 20,
Keflavik, simar 1263 og
2890.
aWinna
Til Noregs í vetur?
Norsk fjölskylda, sem á 8
islenzka hesta og er búsett á
bóndabæ i Valdresfjalli ósk-
ar eftir islenzkri stúlku, ekki
yngri en 17 ára til húshjálpar
og hirðingu hesta. Ráðning
ca. 1.9. Laun eftir hæfi-
leikum. Ókeypis ferðir. Skrif-
ið: Sölvsmed Inge Höivik,
Ekergárd, 2950, Skamme-
stein i Valdres, Norge.
Afgreiðslustúlka
Stúlka ekki yngri en 21 árs
óskast til afgreiðslustarfa
hálfan daginn eftir hádegi 1
tóbaks og sælgætisverzlun.
Tilboð er greini aldur og fyrri
störf leggist inn á afgr. Mbl.
f.h. nk. þriðjudag merkt:
„vön — 2285".
Röskur maður óskast
1 byggingavinnu. Gæti orðið
um langtíma ráðningu að
ræða. Upplýsingar í síma
84555 milli kl. 6—8 e.h.
3 kettlingar
óska eftir heimili. Uppl. í
sima 50551.
bi'3r
Saab 96 árg.'73—'74
óskaát keyptur. Sími 86049.
Til sölu
Range Rover árg. 1972, blár
ekinn 66 þús. km. Nánari
uppl i sima 40584 i dag og á
morgun.
Bilgeymsla óskast
Bilskúr óskast á leigu helst
sæmilega rúmgóður hafið
samband við sima 83200 á
mánudag.
bátaf
Hraðbátur 1 5 fet
Til sölu FLETCHER enskur
hraðbátur, 60 hestafla vél,
Chrysler vagn, allt nýtt. Upp-
lýsingar að Digranesvegi 85.
barnag
Kona óskast
til að gæta 2ja barna 1 árs og
7 ára frá kl. 8 til 16.30 alla
virka daga nema laugardaga
að Sólheimum 25. Uppl. i
sima 83594 ef. kl. 16.30.
Óskum að ráða
konu til að gæta 2ja drengja i
vesturbænum i Kópavogi.
Upplýsingar i síma 441 75.
Föndurskóli — Foss-
vogi
Föndurskóli fyrir 4—7 ára
börn byrjar 15 sept. frá kl. 1
— 3.30. Upplýsingar i síma
85930.
ísskápaviðgerðir
Geri við isskápa og frystikist-
ur. Margra ára reynsla. Simi
41949.
Garðýtuleiga s.
41516
Útvega mold og þökur.
einkamál
Einkamál
maður á miðjum aldri sem
rekur sjálfstætt fyrirtæki úti á
landi óskar eftir að kynnast
góðri konu á aldrinum
30—42 ára. Góðir fram-
tíðarmöguleikar. Þær, sem
kynnu að hafa áhuga, leggi
nöfn sin og heimilisfang inn
á augl.d. Mbl. merkt:
Trúnaðarmál — 2868 fyrir
8. sept.
Bænastaðurinn
Fálkagötu 10
Samkoma sunnudag kl. 4.
Bænastund virka daga kl. 7
eftirmiðdag.
KFUM Reykjavík
Samkoma annað kvöld kl.
20.30 að Amtmannstig 2B.
Sævar B. Guðbergsson,
félagsráðgjafi talar.
Allir velkomnir.
ÚTIVISTARFERÐIR
Laugardaginn 30.8.
kl. 13.
Bláfjallahellar.
Fararstjóri Einar Ólafsson
Verð 600 kr. Hafið góð Ijós
með.
Sunnudaginn 31.8.
kl. 13.
Hellaskoðun við Fjallsenda.
Fararstjóri Einar Ólafsson.
Verð 800 kr. Hafið góð Ijós
með.
Brottför i báðar ferðir frá
Umferðarmiðstöð (Að vestan-
verðu.)
Útivist.
Sunnudagur 31.
ágúst kl. 13.00
Gönguferð frá Fossá að
Vindáshlið i Kjós.
Verð 700 krónuf.
Brottfararstaður B.S.Í.
Ferðafélag íslands.
Hilmar Jónsson:
Opið bréf til Jóns úr Vör
Kæri Jón.
Mikið hefur þú verið duglegur
að skrifa í sumar, Jón, og mikill
munur er að lesa greinar þfnar
eða greinar eftir einhverja bögu-
bósa, sem ekki kunna íslenzku. Af
því að þetta sumar hefur að ýmsu
leyti verið örlagarikt í íslands- og
mannkynssögunni þá er eðlilegt
að mtnni liggi margt á hjarta. Er
þá fyrst til að taka úr minni per-
sónulegu reynslu, að Þjóðviljinn
hefur tvisvar birt greinar þar sem
þess er krafist að mín lftilmótlega
persóna verði flutt úr landi. Mér
finnst hugvekjur þeirra svo
merkilegar að ég er staðráðinn í
að birta þær óstyttar f næsta
greinasafni mínu.
I siðustu Mbl.-grein þinni segist
þú vera að fara af landi brott.
Kannski vegna sólarleysis. En
ferðaskrifstofumenn segja að
sólarleysi þjái mjög íslendinga.
Og af því að ég er, eins og þú
veizt, mjög áhrifagjarn þá ánetj-
aðist ég þessum áróðri og fór f
hálfan mánuð til Mæjorka. Þar
var 35—40 stiga hiti flesta daga
og maður var önnum kafinn allan
daginn að baða sig. Á Mæjorka er
litið annað að sjá en sól, eina
kirkju frá miðöldum og dropa-
steinshella. Búið. I rauninni er
Palma einhver mesta sveita-
mannaborg, sem ég hefi augum
litið. Maður þurfti að fara langa
leið úr Palma Nova til að komast í
bfó og borgin er eiginlega ekkert
annað en strandlengja. Ég hefi
farið fótgangandi um mörg hverfi
Parísar og Lundúna en Palma ...
Hún er ekki á færi manna nema
Vilhjálms Einarssonar. Raunar
uppgötvaði ég þarna hvað afrek
hans á Olympfuleikunum í Róm
hefur verið mikið, þegar hann
náði 4. sæti i þrístökki í 40 stiga
hita. Að athuguðu máli leyfi ég
mér að fullyrða að það sé óþarfi
að leggjast í bölsýni, ef við höfum
ekki sól og strendur Mæjorka,
sem sumir segja að séu laugaðar
úrgangsefnum úr skólpræsum
borgarinnar. Á Mæjorka reyndi
ég f annað sinn að lesa Gulag-
eyjaklasann. Solzhenitsyn er
óskaplega tyrfinn á köflum. Ég
lánaði ágætum íslenzkum mála-
manni og rithöfundi Ágúst 1914 í
vetur. Hann gafst upp, fannst
bókin leiðinleg. En nú tókst mér
að brjótast áfram í Gulag. En ég
vil benda þér á annan rithöfund,
sem ekki síður hefur lýst þræla-
búðum í Austur-Evrópu á áhrifa-
ríkan hátt og það er rúmenski
presturinn Wurmbrand. Bók
hans In God’s underground er
stórkostleg. Sonur hans Mikael
hefur líka skrifað bók um reynslu
sína. Báðar þessar bækur eiga
mikið erindi til islenzkra lesenda.
Wurmbrand kom hingað í vor og
hélt nokkur erindi í Reykjavík og
Akureyri. Ég hlustaði á hann í
Fríkirkjunni. Uppistaðan í boð-
skap hans er kærleikurinn. Hann
biður fyrir kommúnistum, sem
markað hafa líkama hans djúpum
sárum. Þetta er myndarlegur
maður og góðlegur og norrænn í
útliti. Kona hans, Sabína, ber
aftur á móti austur-evrópskan
svip og furðulitil merki fanga-
búða og þrælkunarvinnu. Ég álft
að íslenzkir prestar hefðu mjög
gott af þvi að lesa bækur Wurm-
brands — þessa sérkennilega
mikilmennis, einkum og sérílagi
Heimir Steinsson, Skálholts-
rektor, sem segist helzt ekki ræða
opinberlega um trúmál við aðra
en presta. Hvar stendur það í
Biblfunni að fagnaðarerindið sé
einungis ætlað fáum útvöldum?
Wurmbrand talar við alla. Rúss-
neskir hermenn voru gestir á
heimili hans og hann sneri mörg-
um þeirra til kristinnar trúar, ein-
mitt í þessu liggur styrkur hans.
Svo ég víki aftur að prestum
landsins þá stendur maður agn-
dofa hvað hafi komið yfir menn-
ina í Skálholti í sumar. Þar sem
dultrú eða dulhyggja var for-
dæmd. Hvar flórerar dultrú betur
en f Biblíunni: allt frá fyrstu
köflum Gamla testamentisins til
Opinberunarbókarinnar? A
hverju byggja spámenn eins og
Daniel sína lífssýn? Á vitrunum,
draumum og dultrú. Skálholts-
rektor, Heimir Steinsson, sá sem
nú ákveður hvað sé kristni i land-
inu og hvað ekki, segir: „Hrein
trú sé undanbragðalaus uppreisn
gegn allri mannlegri viðleitni til
að finna „vit“ og tilgang i vit-
lausum og tilgangslausum heimi.“
Hvar stendur þessi boðskapur í
Biblíunni? Á mínum sokkabands-
árum las ég mikið bækur eftir
Jean-Paul Sartre, heimspekirit
hans, skáldsögur og leikrit, og
fleiri höfunda, er prédikuðu að
tilveran væri tilgangslaus fjar-
stæða. Einhvern veginn finnst
mér ég finna megna lykt af Sartre
og hans liði, þegar maður les ofan-
skráða samsuðu Skálholtsrektors.
En það er um Sartre að segja að
hann hefur alla tíð verið guð-
leysingi og nú á seinni árum mjög
hallur undir kommúnista.
Nú haustar að og blöðin fara að
falla af trjánum. Það voru
ógleymanlegar stundir, þegar
Hallormsstaðaskógur hélt sínar
haustsýningar. Og um þetta leyti
fara yngstu borgararnir í skóla. í
sexára bekkjum læra þau lítið
annað en þekkja stafina og
teikna. Hér f Keflavík fer þessi
kennsla fram í húsnæði að-
ventista. Á meðan þeir önnuðust
einir leiðsögn byrjaði sérhver
kennslustund á Faðir vor. Eftir að
ríkið tók við eru það ekki allir
kennararnir, sem treysta sér til að
halda þessurn góða sið. Það
skemmir sjálfsagt fegurðarsmekk
þeirra.
Eins og ég sagði í upphafi las ég
greinar þínar Jón með athygli og
hef verið mörgum þeirra sam-
mála. Það er einkum í sambandi
við varnarmálin og vl-mennina,
sem okkur greinir á. Þar er ég
sannfærður um að vl-menn eiga
mikla þökk skylda fyrir vakn-
ingarherferð þeirra og undir-
skriftasöfnun. Kommúnistar
skilja aldrei annað en krepptan
hnefa. Þeir væru búnir að
hremma alla Vestur-Evrópu fyrir
löngu, ef ekki væri þar her
Atlantshafsríkjanna. Sjáðu hvað
er að gerast í Portúgal. Þar ætlar
lítill minni hluti, ca. 10% kjós-
enda, að sölsa undir sig öll völd og
koma á grimulausu einræði
kommúnista og þetta skeður þrátt
fyrir að Portúgal er í Atlantshafs-
bandalaginu. Hins vegar var ég
þér hjartanlega sammála um
eftirleikinn. Meiðyrðamálin með
hinum ofsafengnu fjárkröfum
náðu ekki nokkurri átt og ég tel
að ég hafi lagt mitt lóð á vogar-
skálina til varnar málfrelsi með
setu í rithöfundadómstólnum
fræga. Nöfn Gunnars Gunnars-
sonar, Stefáns Júliussonar og
fleiri tryggðu að ekki var hægt að
telja hann pólitiskan. Dómur i
fyrsta málinu bendir til að mála-
tilbúnaður þessi renni út í
sandinn og er það vel. Aftur á
móti hljóta allir að taka eftir hin-
um skefjalausu árásum Þjóðvilj-
ans á vl-menn. Ber það vott um
manngildi Þorsteins Sæmunds-
sonar og þeirra félaga.
Þú skrifaðir töluvert, Jón, um
lögbannsmálin, einkum Indriða
G. og Þjóf í Paradfs og hygg ég að
margir hafa hrokkið í kút, þegar
þeir lásu grein Helga Hálf-
dánarsonar í ofan á lag. Augljóst
er af því hvernig Indriði tal-
aði um aðstandendur þessa
máls, að hann hefur ekki skrifað
bók sfna til að gera hlut þeirra
betri en f raunveruleik-
anum. Hvert er hlutverk rit-
höfundar? Er það hlutverk rit-
höfundar að ráðast á garðinn
þar sem hann er lægstur og afla
sér fjár á kostnað ógæfusams
almúgafólks? Arnór Hannibals-
son svaraði þessari spurningu í
velskrifaðri grein í Mbl. í vetur,
að rithöfundar ættu alltaf að vera
andvígir valdinu, gagnrýna
valdið. Hefur Indriði G. rækt þá
skyldu í Þjóf í Paradís? Eg held
að hann hafi sjálfur svarað þeirri
spurningu á neikvæðan hátt.
Ofan á bætist að þessi sami maður
hefur hvað eftir annað heimtað
ritskoðun á óháða rithöfunda og á
ég þá við þá alltof fáu rithöfunda,
sem þorað hafa að kryfja sam-
tímann í verkum sfnum. I því
sambandi er mér enn í fersku
minni framkoma Indriða á fundi í
Hagalíns-félaginu í vetur, þar sem
hann lét að því liggja að greinar
okkar Jóhannesar Helga, Sveins
Sæmundssonar og fleiri, um við-
bótarritlaunin í vetur í Mbl. yrðu
til þess að Alþingi samþykkti ekki
launasjóðs-frumvarpið. Það kann
vel að vera að Indriði G.
Þorsteinsson áliti sjálfan sig það
lélegan rithöfund að hann eigi
ekki völ á fé úr opr.bcrum sjððum
nema hann njóti þar manna á
borð við Berg Guðnason.
Undir þá skoðun vel ég ekki
taka. Hins vegar verð ég að
lýsa undran og harmi, þeg-
ar menntamálaráðherra út-
nefnir þennan rithöfund, Ind-
riða G. Þorsteinsson, í nefnd,
sem á að ganga úr skugga um
hvort sumir listamenn og rit-
höfundar séu skágengnir og
ofsóttir af opinberum aðilum. En
það var á allra vitorði að um ára-
bil hafa nokkrir rithöfundar verið
inn á gafli hjá því opinbera á
meðan aðrir sem skrifað höfðu
ekkert færri né verri bækur voru
úti í kuldanum. Þetta misrétti
lofaði menntamálaráðherra að
láta rannsaka en velur tíl þess
einn mesta hlöðukálfinn úr hópi
rithöfunda!
En úr þvi að ég er kominn út í
þessa sálma, þá get ég ekki látið
farast fyrir aö þakka Halldóri
Laxness drengilegan stuðning i
sambandi við viðbótarritlauna-
málið. Oft hefur Halldóri verið
legið á hálsi fyrir ummæli
erlendis um íslenzka kollega sfna
og afskiptaleysi um kjör þeirra.
Því drengilegri var stuðningur
hans í vetur, þar sem hann átti
sannarlega engra hagsmuna að
gæta. Og mikið þykir mér, ef að
háskólaklíkan eða norrænudeild-
in alræmda á ekki eftir að gjalda
honum rauðan belg fyrir gráan
fyrir að hafa rétt ofsóttum
kollegum hjálparhönd gegn
Framhald á bls. 17.