Morgunblaðið - 17.09.1975, Side 1
24 SÍÐUR
301. 62. árg.
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMÉER 1975
PrentsmiSja Morgunblaðsins.
Sameinuðu þjóðirnar:
Samkomulag í
lok aukaþings
Gaston Thorn kjörinn forseti
Sameinuðu þjóðunum 16. september
AP—Reuter.
AUKAÞING Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í dögun í morgun
einróma ályktun upp á 16 bls. um
alisherjaráætlun um aðstoð við
þróunarlöndin. Aukaþingið hafði
staðið I rúmar 2 vikur og sfðustu
þrjá sólarhringana var setið að
samningaborði bókstaflega án
hvfldar. Lauk þinginu aðeins
nokkrum klukkustundum áður en
30. allsherjarþingið var sett með
viðhöfn sfðdegis. Þar var Gaston
Thorn, forsætisráðherra Luxem-
burgar, kjörinn þingforseti með
135 atkvæðum.
í ályktun aukaþingsins er að
Norðmenn og
Kanadamenn
hef ja viðræður
Ósló 16. september NTB.
RIKISSTJÓRNIR Noregs og
Kanada hafa orðið sammála
um að hefja formlegar samn-
ingaviðræður um tvihliða sam-
komulag um áframhaldandi
veiðar Norðmanna á miðum
undan Kanadaströndum, er
Kanadamenn hafa fært fisk-
veiðilögsögu sfna í 200 mílur.
Embættismenn landanna sátu
á fundum I Ósló í gær og dag
til að fjalla um grundvallar-
atriði slíks samkomulags að
því er segir í sameiginlegri
yfirlýsingu þeirra. Leggja
báðir aðilar áherzlu á að fiski-
stofnarnir verði skynsamlega
nýttir og að lífskiiyrði íbúa á
ströndunum séu tryggð.
finna nokkur atriði, sem Henry
Kissinger lagði til í ræðu við setn-
ingu þess, m.a. um að komið verði
á stofn alþjóðlegri miðstöð til að
miðla tækniþekkingu til þróunar-
landanna og alþjóðlegum fjár-
festingarsjóði til að beina einka-
fjármagni til þeirra. Þá er í álykt-
uninni hvatt til að tollar á vörum
frá þróunarlöndunum verði
Iækkaðir, aukin viðskipti milli A-
Evrópulandanna og þróunarland-
anna og afnámi hindrana í al-
þjóðaviðskiptum. Þá er hvatt til
þess að iðnaðarþjóðirnar, sem
getu hafi til, auki aðstoð sfna við
þróunarlöndin á sviði aukinnar
matvælaframleiðslu.
Fulltrúar á aukaþinginu hafa
látið í ljós mjög mikla ánægju
Framhald á bls. 12.
Henry Kissinger:
ÞOTIÐ TIL SJÁVAR — Ljósmyndari Morgunblaðsins, Friðþjófur Helgason,
smellti þessari mynd af út um gluggann á flugvél á Mýrunum skammt frá Hítará.
Þar var mikið af sel í fjörunni og við dyn vélarinnar kom styggð á selina eins og sjá
ma.
Olíuverðshækkun yfirvofandi
Ráðherrafundur OPEC fjallar um málið í næstu viku
harðast niður á þróunarlöndun-
Washington og Vin 16. september
AP—Reuter—NTB.
HENRY Kissinger utanríkisráð-
herra Bandarfkjanna sagði á
blaðamannafundi I Flórfda f dag,
að hækkun á olíuverði væri yfir-
vofandi og sagði að einhliða
hækkun OPEC-rfkjanna gæti haft
alvarlegar afleiðingar fyrir
alþjóðasamvinnu á sviði orku-
mála og rennt stoðum undir ótta
manna við varanlegt verðbólgu-
vandamál f heiminum. Sagði ráð-
herrann að slfk hækkun kæmi
um.
Þessi ummæli Kissingers eru
greinileg viðvörun til OPEC-
landanna, en olíumálaráðherrar
þeirra koma saman til fundar í
Vín 24. þessa mánaðar til að taka
ákvörðun um nýtt olíuverð, sem
tæki gildi 1. október. Þá rennur
út 9 mánaða timabil, sem sam-
komulag varð um að frysta olíu-
verðið á. Um 40 sérfræðingar frá
OPEC-ríkjunum komu saman til
fundar í Vín í dag til að undirbúa
Portúgal:
Snurða
hlaupin
r
a
Kommúnistar heimta jafna ráðherraskiptingu
þráðinn
Lissabon 16. september AP—Reuter.
SAMNINGAVIÐRÆÐUR um 6.
bráðabirgðastjórn Portúgals á 18
mánuðum fóru út um þúfur f dag,
er fulltrúar alþýðudemókrata
neituðu að taka þátt f stjórnar-
samstarfinu ef kommúnistar fá
jafnmarga ráðherra og þeir. Er
þetta talið nokkurt áfall fyrir
Azevedo aðmírál og forsætisráð-
herraefni, þvf að hann hafði
ætlað að tilkynna ráðherralista
sinn í dag, og mun seinka
stjórnarmynduninni um ófyrir^
sjáanlegan tfma. Vmsir þekktir
stjórnmálamenn í Portúgal munu
nú að sögn fréttastofnana vera
farnir að efast um að Azevedo
geti myndað stjórn og segja að
það eina, sem hann hefur getað
gert á sl. hálfum mánuði, hafi
verið að skipa Antunes í embætti
utanrfkisráðhcrra, en hann var
leiðtogi hægfara herforingjanna
9, sem börðust gegn Goncalves
fyrrum forsætisráðherra.
Tilkynnt hafði verið i upphafi
stjórnarmyndunartilraunanna, að
hér yrði ekki um eiginlega sam-
steypustjórn að ræða heldur um
þjóðareiningarstjórn, þar sem
ráðherraembættum yrði skipt
eftir fylgishlutföllum flokkanna í
siðustu þingkosningum. I þeim
kosningum fengu jafnaðarmenn
um 36% atkvæða, alþýðu-
demókratar um 26% og kommún-
istar rúm 12%. Kommúnistar
hafa nú hins vegar gert þá kröfu,
að þeir fái tvö ráðherraembætti í
stjórninni eins og alþýðu-
demókratar, en því vísa hinir
síðarnefndu algerlega á bug.
Herma fregnir að samskipti
þessara tveggja deiluaðila séu
orðin svo stird, að Soares, leiðtogi
jafnaðarmanna hafi orðið að bera
orðsendingar á milli þeirra, þar
sem þeir neiti að sitja við sama
borð. Heimildir herma að svo hafi
virzt í fyrradag, að búið væri að
leysa ágreininginn og að jafnaðar-
menn fengju þrjá ráðherra,
alþýðudemókratar 2 og kommún-
istar 1, sem hefði verið eðlileg
skipting miðað við kosningafylgi
flokkanna. Þá fór Soares í tveggja
daga heimsókn til V-Þýzkalands
og meðan hann var í burtu munu
aðrir flokksleiðtogar jafnaðar-
manna hafa samþykkt kröfu
kommúnista um að þeir fengju
jafnmarga ráðherra og alþýðu-
Framhald á bls. 12.
ráðherrafundinn og áreiðanlegar
heimildir þar hermdu, að verð-
hækkun á olíu yrði ekki frestað
lengur. Ekkert er vitað um hve
mikla hækkun sérfræðingarnir
koma til með að leggja til, en
heyrzt hefur talað um hækkun
allt frá 5%—35%.
Kissinger fór ekki dult með það
á blaðamannfundinum, að það
væri stefna Bandaríkjanna að
reyna að koma í veg fyrir að
OPEC-rikin hækkuðu olíuverð
einhliða og hann benti á, að
alþjóðaorkumálastofnunin hefði
sett 1. desember sem lokafrest til
að koma á samvinnuáætlunum
um orkusparnað, áætlunum um
aðra orkustofna og ákveðnu lág-
marksverði á orku á heims-
markaði. Valery Giscard
d’Estaing Frakklandsforseti
hefur sem kunnugt er boðað oliu-
framleiðsluþjóðir og oliu-
kaupendur til ráðstefnu i París til
að fjalla um þessi mál, sem
hefjast á um miðjan október nk.
Heimildir innan OPEC herma,
að þar skiptist menn mjög í tvo
hópa um hvaða stefnu skuli taka.
Munu fulltrúar Saudi-Arabiu
verða harðastir gegn verðhækkun
og segja að það sé öllum í hag ef
hækkuninni verði frestað. Saudi-
Arabía er stærsti framleiðandinn
innan OPEC. Meðaverð á oliu nú
er 10 dollarar og 43 cent á hvert
fat. Tillit er tekið til þess, að frá
siðustu oliuverðhækkun hefur
sala OPEC-rikjanna minnkað um
13%.
Gíslunum
sleppt í Alsír
Alsír 16. september
AP—Reuter.
FLUGVÉLIN, sem flutti
Palestínuskæruliðana og gísla
þeirra úr egypzka sendiráðinu í
Madrid, lenti i Alsír í morgun og
slepptu skæruliðarnir gíslunum
þegar lausum og gáfu sig fram við
lögregluna. Skæruliðarnir réðust
inn í sendiráð Egypta i Madrid í
gær og tóku sendiherrann og tvo
sendiráðsmenn i gislingu. Hótuðu
þeir að sprengja sendiráðið I loft
upp og myrða gíslana ef Sadat
Framhald á bls. 12.
Stjórn Brattelis hefði misst
meirihlutann í þingkosningum
Ósló 16. september AP—NTB.
VERKAMANNAFLOKKUR
Trygve Brattelis og Ihalds-
flokkurinn unnu nokkurn sigur f
bæjar- og sveitarstjórnarkosn-
ingum I Noregi, sem fram fóru á
sunnudag og mánudag. Einkum
bættu fhaldsmenn við sig og
fengu þeir I fyrsta skipti á 40
árum yfir 20% atkvæða. Verka-
mannaflokkurinn tapaði engu að
sfður meirihluta í 40 sveitar-
stjórnum, en bætti við sig um 3%
fylgi miðað við þingkosningarnar
1973. Hins vegar tapaði flokkur-
inn nokkru fylgi frá þvf f sfðustu
sveitarst jórnarkosningum 1971.
Mestu fylgi tapaði Vinstri
sósíalistaflokkurinn, sem er
bandalag kommúnista, alþýðu-
sósíalista og óháðra sósíalista, en
flokkurinn tapaði nær helmingi
fylgisins sem hann fékk i kosn-
ingunum 1973. Helztu mál
kosninganna voru landsmál
varðandi atvinnu, skatta og
verðbólgu og því er litið á
úrslit kosninganna, sem próf-
stein á stöðu flokkanna. Segja
stjórnmálafréttaritarar að úrslit
kosninganna nú bendi til þess að
sárin vegna baráttunar fyrir og
gegn EBE-aðild séu loksins gróin
vegna hins mikla ósigurs Vinstri
sósialista i N-Noregi, þar sem
Framhald á bls. 12.