Morgunblaðið - 17.09.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1975
Norglobal:
Heímilt að taka
á móti loðnunni
ISLENZKU Ioðnuskipin, sem
stunda veiðar f Barentshafi, eru
nú stödd á 78° n.br. og 30° a. Igd.
og munu engin fslenzk skip hafa
farið svo norðar- og austarlega
áður. Jan Brandt Fossbakk fram-
kvæmdastjóri Norglobal sagði f
samtali við Morgunblaðið f gær,
að sfðustu daga hefðu veiðarnar
gengið ágætlega, en ekki vissi
hann nákvæmlega hve mikið
hvert skip væri komið með.
Morgunblaðið spurði Fossbakk
hvernig málaferlin gegn útgerð
Norglobals hefðu gengið fyrir sig,
en sem kunnugt er vilja nokkur
samtök í Noregi að skipið hætti að
taka á móti frá erlendum veiði-
skipum í nánd við Noreg og hafa
skotið málinu til dómstólanna.
Fossbakk sagði, að í fyrsta dóm-
Tónleikar
í Kópavogi
I KVÖLD verða í húsnæði Tón-
listarskólans I Kópavogi, Álfhóls-
vegi 11, tónleikar á vegum fyrir-
bæris, sem nefnist „Nýtt“. A
tónleikunum mun koma fram
„Evenings for New Music“ frá
Bandaríkjunum, sem hafa viðdvöl
hérlendis á leið sinni til Varsjár.
stiginu, Landsréttinum, hefði úr-
skurðurinn fallið á þá leið, að
skipinu skyldi heimilt að halda
möttökunni áfram, en ekki hætta
eins og kom fram í Fiskaren í sl.
viku. Sækjendur málsins hefðu
siðan áfrýjað málinu og yrði það
að líkindum tekið fyrir í lög-
mannsréttinum á næstunni, og
sfðan gæti það jafnvel farið fyrir
hæstarétt.
Fossbakk sagði, að það hefðu
verið nokkur sölu- og hagsmuna-
samtök í Noregi, sem höfðað
hefðu málið gegn Norglobal en þá
væru Norsilmel, samtök slldar-
bræðslueigenda, og fleiri. Á-
stæðan fyrir málshöfðuninni
væri, að Norglobal hefði sagt sig
úr samtökum þessum 1973 og
meðal annars fengi Norsilmel nú
ekki sín umboðslaun af sölu
afurða verksmiðjuskipsins.
Þá sagði hann, að á næstunni
yrðu teknar upp viðræður við
stjórnvöld I Mauritaníu varðandi
makrílsveiðar við landið og myndi
svar koma þann 22. september og
mætti búast við að það yrði já-
kvætt. Þannig að ekkert væri til
fyrirstöðu að íslenzk skip
stunduðu þessar veiðar. Hægt
yrði að greiða hærra verð fyrir
hvert kg af makríl en loðnu, þar
sem makrfll væri miklu feitari en
loðna.
Verzlunarfulltrúi Portúgals,
Luis W. de Sousa, sem hefur
verið hér sfðustu daga.
Viðleitni
til að auka
viðskipti
Islands við
Portúgal
STADDUR hefur verið hér-
lendis undanfarna daga
portúgalskur verzlunarfulltrúi,
Luis Guilherme W. Soares de
Sousa, sém hefur aðsetur í Ósló.
Tilgangur með för verzlunar-
fulltrúans hingað er að freista
þess að stofna til frekari við-
skipta milli Portúgala og Is-
lendinga. Portúgalir hafa
einkum keypt mikið af saltfiski
af okkur á mörgum undanförn-
um árum og fyrstu sjö mánuði
þessa árs var útflutningur Is-
lands til Portúgals að verðmæti
um 5300 milljónir króna. Á
sama tíma keyptu Islendingar
varning frá Portúgal fyrir um
það bil 190 milljónir.
Sousa sagði við Mbl. að hann
hefði starfað í hálft þriðja ár á
viðskiptaskrifstofu Portúgala i
Öslö. Hafa viðskipti Portúgala
og Norðmanna aukizt verulega
og flytja þeir. fyrrnefndu út
mikið af skófatnaði, vefnaðar-
vörum, iðnaðarvarningi og
fleiru til Noregs, svo og hafa
þeir sinnt töluvert skipavið-
gerðum fyrir Norðmenn. Hafa
Portúgalar áhuga á að auka við-
skiptin við íslendinga m.a. á
ofangreindum vörum og sagði
verzlunarfulltrúinn að á
síðustu árum hefðu Portúgalar
lagt aukna áherzlu á vöruvönd-
un, enda hefði þróun viðskipta-
mála í heiminum verið sú að
eftirspurn væri eftir því sem
vandað væri. Þá hefur verið
minnzt á innflutning portú-
galskra vina hingað, einkum
léttra vína, en gæði þeirra eru
víðþekkt. Taldi Sousa að mögu-
leikar á auknum viðskiptum
landanna hefðu ekki verið nýtt-
ir, hans verk væri nú að kanna
þá og siðan væri að semja lang-
tímaáætlun sem yrði lögð fyrir
fund þeirra sem með þessi mál
fara i Lissabon. Þá er nokkur
áhugi á að Portúgalir opni hér
verzlunarskrifstofu, ef árangur
næst i þessum athugunum á
næstu mánuðum. Ástæða væri
til að vera nokkuð bjartsýnn
vegna þeirra undirtekta og
væri það nú næsta verkefni
hans að skipuleggja starfið Itar-
legar og koma með ákveðin til-
boð til íslenzkra innflytjenda.
Sousa lét I ljós ánægju sina
með þau kynni sem hann hefði
haft af mönnum hér. Hann
sagði að enda þótt landar sinir
vissu ef til vill ekki mikið um
Island, væri saltfiskur héðan og
frá Norðmönnum á hvers
manns borði að minnsta kosti
tvisvar I viku og mikil fjöl-
breytni væri í matreiðslu hans.
Á jólum snæddu fjöl-
skyldur jafnan saltfisk
áður en farið væri til jóla-
guðsþjónustu og það hefði iðu-
lega orðið hið mesta stórmál ef
hörgull hefði verið á saltfiski
og jólagleðin væri engan
veginn fullkomnuð ef saltfisk-
ur væri ekki á borðum á réttri
stundu á hátíðinni.
(mynd ásg. halld.)
Þeir Reynir Aðalsteinsson og Dagur frá Núpum f ölfusi voru stjörnurnar fyrir Island á mótinu f
Semriach
2000
manns
á Evrópumóti eig-
enda íslenzkra hesta
NÚ hafa Mbl. borist fyrstu
myndirnar frá Evrópumóti
fslenzkra hestaeigenda sem
haldið var f Semriach f
Austurrfki 12.—14. september,
og birtast þær hér á sfðunni.
Knaparnir sem kepptu fyrir
lslands hönd stóðu sig með
hinni mestu prýði, enda lá
óhemju vinna við tamningu og
þjálfun hestanna að baki þeim
árangri sem Islendingarnir
náðu að þessu sinni. Auk þeirra
hesta sem á myndinni sjást
höfðu verið valdir Léttir frá
Álfsnesi, sem Eyjólfur Isólfs-
Framhald á bls. 23
(mynd ásg. halld.)
Fulltrúar tslands rfða inn á keppnisvöllinn í Semriach 1 broddi
fylkingar. Frá hægri í fyrstu röð: Reynir Aðalsteinsson á Degi frá
Núpum, Ragnheiður Sigurgrfmsdóttir á Gammi frá Hofsstöðum,
Albert Jónsson á Ljóska frá Hofstöðum, f seinni röð Sigurður
Sæmundsson á Hvin frá Haugi, Sigurfinnur Þorsteinsson á Baldri
frá Stokkhólma, Trausti Guðmundsson á Stefni frá Hreðavatni og
Aðalsteinn Aðalsteinsson á stóðhestinum Hrafni frá Kröggólfsstöð-
um.
Electrolux
eldavélin NOVA160
Hún hefur 4 hellur með stigalausri
stillingu (2 hraðhellur, 1 steikarhellu, 1
hellu með sjálfvirkum hitastilli). Tveir
ofnar. Sá efri rúmar 54 lítra. Hraðræsir
hitar ofninn í 200 gráður C á 6V2 mín.
Gluggi á ofni með tvöföldu gleri. Grill
með teini og rafmótor. Sjálfvirkt stjórn-
borð með rafmagnsklukku, viðvörunar-
bjöllu og steikarmæli. HxBxD =
850x695x600 mm.
ss
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-11 2
Matvorudeild S-86-111, Vefnaðarv d S-86-11 3