Morgunblaðið - 17.09.1975, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1975
FERÐABÍLAR h.f.
Bílaleiga, sími 81260.
Fólksbilar — stationbilar —
sendibílar — hópferðabílar.
AUGLYSINGASIMINN ER:
22480
Læknar og
hjúkrunar-
lóik
Amerískar
leöurtöskur
hannaðar fyrir
ykkar starf
5 stærðir
og gerðir
Austurbakkl h.f.
Stigahlíð 45
Sími 38944
Stálu 14 lúðum
HELDUR óvenjuleg þjófnaðar-
kæra barst til rannsóknarlög-
reglunnar I Hafnarfirði um
slðustu helgi, en þá var kærður
þjófnaður á alls 14 lúðum I
togaranum Maf, sem hann lá f
Hafnafjarðarhöfn.
Rannsóknarlögreglan hafði
fljótlega upp á tveimur skip-
verjum sem viðurkenndu þjófn-
aðinn, en lúðurnar höfðu þeir selt
á matsölustaði í Reykjavík. Seldu
þeir kílóið á 150 krónur, eða langt
undir venjulegu verði, en alls
vógu lúðurnar 14 um 120 kg. Eins
og vænta mátti misstu skip-
verjarnir plássið á togaranum
fyrir bragðið og andvirði lúðanna
var dregið frá kaupi þeirra, en
aðeins 3 lúður komu I leitirnar,
hinar var búið að eta.
Leiðrétting
í grein Örlygs Sigurðssonar I
blaðinu í gær um Bymbeyglu
Björns Bomm læknis átti vita-
skuld að standa, að króinn
hefði komið alskapaður, óbeygl-
aður spriklgosi úr þrykkiríi
Lögbergs og Heimskringlu í
stað beyglaðs.
Útvarp Revkjavík /miðmikudkgur
MORGUNNINN
17. september
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Ingibjörg Jónsdóttir
byrjar lestur sögu sinnar „1
Bjöllubæ"
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög á milli atriða.
Kirkjutónlist kl. 10.25:
Helmut Walcha leikur orgel-
verk eftir Bach.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Gary Graffman leikur á
píanó Scherzo nr. 2 I b-moll,
Prelúdíu nr. 15 f Des-dúr
Prelúdfu nr. 24 f d-moll og
Ballötu nr. 1 f g-moll eftir
Chopin.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Dag-
bók Þeódórakis“
Málfrfður Einarsdóttir
þýddi. Nanna Ólafsdóttir les
(11).
15.00 Miðdegistónleikar
Búdapest-kvartettinn leikur
Strengjakvartett op. 18 nr. 5
eftir Beethoven.
Janet Baker syngur lög eftir
Debussy. Gerald Moore leik-
ur á pfanó.
Mstislav Rostropovich og
Benjamin Britten leika á
selló og pfanó fimm lög f
þjóðlaga stfg eftir Schu-
mann.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn
17.00 Lagið mitt
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Alls konar hljómlist
Þáttur með blönduðu tón-
listaefni.
Meðal þátttakenda eru söng-
konurnar Monika Zetter-
Iund og Sylvfa Linden-
strand, sellóleikarinn Frans
Helmersen og hörpuleíkar-
inn Sergio Queras.
Þýðandi Jóhann Jóhanns-
dóttir.
(Nordvision-Sænska sjón-
varpið)
21.15 Saman við stöndum
Bresk framhaldsmynd
6. þáttur. Sögulok
Þýðandi Dóra Hafsteinsdótt-
ir.
Efni 5. þáttar:
Sylvía fær þvf framgengt, að
kvenréttindasamtökin opna
Berglind Bjarnadóttir sér
um óskalagaþátt fyrir börn
yngri en 12 ára.
17.30 Smásaga: „Morð f
bígerð" eftir Evelyn Waugh
Ingólfur Pálmason þýddi.
Guðmundur Pálsson leikari
les.
18.00 Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
skrifstofu f East End og veit-
ir hún henni sjálf forstöðu.
Lanxbtiry, þingmaður
Verkamannaflokksins, segir
sig úr flokki sfnum og berst
harðlega gegn þvf að Frjáls-
lyndum sé veittur nokkur
stuðningur, fyrr en sátta-
frumvarpið hafi verið sam-1
þykkt. Hann býður sig fram
utanflokka f East End, en
feliur. Konurnar halda
áfram baráttu sinni, og loks
er í þinginu samþykkt frum-
varp um, að þeim konum sé
sleppt úr fangelsi um tfma,
sem fara f hungurverkfall,
og þannig iátnar afplána
dóma sína f áföngum.
1 mótmælaskyni ákveður ein
úr hópi kvennanna að fórna
lffi sfnu fyrir málstaðinn.
Hún fleygir sér fyrir hest á
veðhlaupabraut og slasast til
ólífs.
22.30 Dagskrárlok.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDICF____________________
19.35 t sjónmáli
Skafti Harðarson og Stein-
grfmur Ari Arason sjá um
þáttinn.
20.00 „Misa Criolla“ eftir
Ariel Ramirez
Los Fronterizos og Dómkór-
inn f Del Socorro flytja
ásamt hljómsveit undir
stjórn höfundar.
20.20 Sumarvaka
a. Þættir úr hringferð
Hallgrfmur Jónasson flytur
annan ferðaþátt sinn.
b. Vfsnaflokkar eftir Stein-
grím Thorsteinsson og Þor-
stein Erlingsson/ Indriði Þ.
Þórðarson kveður.
c. Miðsel
Haligrfmur Jónsson frá Ljár-
skógum segir frá.
d. Kórsöngur
Eddukórinn syngur fslenzk
þjóðlög.
21.30 Utvarpssagan:
„Ódámurinn“ eftir John
Gardner
Þorsteinn Antonsson þýddi.
Þorsteinn frá Hamri Ies (3).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Kvöldsagan: „Rúbrúk" eftir
Poul Vad
Ulfur Hjörvar les þýðingu
sína (16).
22.35 Djassþáttur
Jón Múli Árnason kynnir.
23.20 Fréttir f stuttu máli.
Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
17. september 1975
í útvarpinu í dag kl. 17.30
les Guðmundur Pálsson
eina af smásögum enska
rithöfundarins Evelyns
Waugh, sem dó fyrir tæp-
um 10 árum, 65 ára að
aldri. Hann var jafnaldri
Grahams Greens og vin-
ur og oft nefndur í sama
orði, enda urðu þeir báð-
ir eldheitir kaþólikkar og
það hafði áhrif á skrif
beggja. Þó voru þeir ólík-
ir í viðhorfum sínum,
Waugh beitti oft háði og
gerði gys að heimi höfð-
ingjanna, sem hann skrif-
aði gjarnan um, en hafði
jafnframt aðdáun á.
Hann kunni að meta
erfðavenjur og góðan
vínkjallara. Hann gerði
gys að nútíma yfirborðs-
mennsku og sniðugheit-
um að klifra upp eftir
metorðastiganum. Sagan,
sem lesin verður í dag,
heitir Morð í bígerð.
Rithöfundurinn Evelyn Waugh, eins og málarinn Henry Lamb sá
hann 1929.
MONIKA Zetterlund heitir
söngkona, sem er meðal
þátttakenda í þættinum „Alls
konar hljómlist" í sjónvarpinu
í kvöld. Það er ekki víst að
allir þekki hana aftur. Þó var
hún I íslenzka sjónvarpinu í
janúar í vetur — í Vesturför-
unum, lék þá Ulriku, gleði-
konuna sem flutti vestur og
giftist babtistapresti. Monika
býr í Stokkhólmi með tvítugri
dóttur sinni, Evu-Lenu, sem
einnig lék í Vesturförunum.
Hún er þekkt jazz-söngkona,
kemur fram í sjónvarpi og
hefur sungið inn á hljómplöt-
ur. Hún segir að sér hafi þótt
skemmtilegt að leika í Vest-
urförunum. Raunar hefði
hún ekki skilið persónuna Ul-
riku fyrr en hún hafði lesið
bók Mobergs. Þar giftist Ul-
rika, en ekki presti eins og í
kvikmyndinni. Hún hataði
Svíþjóð, sagði Monika, en
arfleiddi þó fátæka í heima-
héraði sínu í Svíþjóð að hárri
peningaupphæð. Hafði sem
sagt ekki gleymt gamla land-
inu. Nú fáum við að sjá Mon-
iku Zetterlund í öðru hlut-
verki í kvöld.
Monika Zetterlund syngur jazz
á sviði I Stokkhólmi.
Monika ( hlutverki Ulriku f Vesturförunum.