Morgunblaðið - 17.09.1975, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1975
5
Dagný sel-
ur í Englandi
NU eru liðnir margir mánuðir
siðan íslenzkt fiskiskip seldi
síðast afla í Bretlandi, en nú er
Morgunblaðinu kunnugt um, að
einn íslenzkur togari mun selja
þar á næstunni. Er það Dagný frá
Siglufirði, sem mun selja I Grims-
by eða Hull n.k. mánudag 22.
september.
Dagný er með sérstök frysti-
tæki um borð, þannig að nokkuð
stór hluti aflans er heilfrystur um
borð, en einnig mun skipið selja
ísaðan fisk í kössum.
Hljódfœrahús Reyhja
~ Lougouegi 96 simi: I 36 56
Þýzkur skæruliði
fangelsaður eftir
tilræði í Hamborg
Vestur-Berlfn, 15. september.
Reuter.
LÖGREGLAN I Vestur-Berlín
hefur handtekið einn hættu-
legasta stjórnleysingja Vestur-
Þýzkalands, Fritz Teufel, f kjöl-
far sprengjuárásar hryðjuverka-
manna á járnbrautarstöð f
Hamborg. Ellefu særðust f árás-
inni.
Handtaka Teufels virðist ekki
standa í beinu sambandi við
sprenginguna í Hamborg. Hins
vegar var þetta svar lögreglunnar
við árás hryðjuverkamanna sem
vilja sýna að hreyfing þeirra hafi
ekki verið brotin á bak aftur.
Teufel var einn átta manna sem
talið var að hefðu verið foringjar
„2. júní-hreyfingarinnar“ sem
rændi stjórnmálamanninum
Peter Lorenz í Vestur-Berlfn fyrr
á þessu. ári. Þrír þeirra leika enn
lausum hala.
Ralf Reinders, sem talið er að
hafi verið aðalforingi hreyfingar-
innar, var handtekinn f Vestur-
Berlín í síðustu viku,' þegar lög-
reglan herti á aðgerðum gegn
vinstrisinnuðum öfgamönnum.
Tveimur mínútum fyrir
sprenginguna í Hamborg var
hringt í slökkviliðið í Hamborg og
sagt að sprengju hefði verið
r
komið fyrir til að hefna fyrir
handtöku Ralf Reinders.
Sá sem hringdi kvaðs vera
félagi í „Rauða hernum" en það
er hið gamla nafn hópsins sem er
kenndur við Baader og Meinhof.
Þau hafa verið fyrir rétti í Stutt-
gart sfðan f maí, ákærð fyrir
hryðjuverkastarfsemi og hafa
verið þrjú ár f haldi.
Tilgangur sprengjutilræðisins í
Hamborg var talinn sá að sýna að
hreyfing hryðjuverkamanna \»æri
í fullu fjöri þótt margir foringjar
þeirra séu á bak við Iás og slá.
Hinar heimsþekktu
ADLER blokkfiautur
fyrir skólanemendur
Myndlistaskólinn í Reykjavík
Mímisvegi 15, Asmundarsal
Sími 11990.
Kennsla hefst 1. okt. innritun í síma 11990 frá kl.
10 — 16.
BARNA OG UNGLINGADEILDIR
Þrið./föst. kl. 3—4.30.
Byrjendur. Leir, teikn, málun og leikræn
tjáning.
Kennari: Borghildur Óskarsdóttir og Þór-
unn Sigurðardóttir.
Mán.ÁN/fimmt. kl. 5—6.30.
Byrjendur. Leir, teikn. og málun.
Kennari: Valgerður Bergsdóttir.
Mið. kl. 5—6.30 laug. kl. 1—2.30
Framhald. Leir, teikn, og málun.
Kennari: Borghildur Óskarsdóttir.
Þrið/föst kl. 5—6.30
Framhald (unglingar) Leir, teikn, og málun.
Kennari: Katrín Briem.
Þrið./föst.
kl. 7—8.45 og laug. kl. 10—11.30.
Framhald (unglingar 13 —16 ára). Leir,
teikn, málun, vefnaður og fl.
Kennari: Borghildur Óskarsdóttir, Katrín
Briem, Valgerður Bergsdóttir.
Ofantalin námskeið standa frá 1. okt til 20. jan
1976 5—7 ÁRA.
Mán./fimmt. kl. 1—2.30
Börn 5 — 7 ára. Teiknun og málun frá 1 .
okt. til 6. des.
Kennari: Valgerður Bergsdóttir.
Næsta námskeið fyrir þennan aldur hefst 8. des
og stendur til 18. feb. 76 og það síðasta frá
20. feb. 76 — 1. maí 76.
Skólastjóri.
V hurðir Fulningahurðirl
HURÐIR
Skeifan 13
Plastklæddar
ÞILJUR og PLÖTUR
palesander,— eik — teak
Ótrúlega lágt verð
Okkar
landsþekktu
BYLGJU- •
HURÐIR
framleiðum
við eftir
máli