Morgunblaðið - 17.09.1975, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1975 7
I-
djoðviuinn
Ituri nieð Mevrhalze
frn l*la n iln* i riin iln in.'
bjinhiljlHn ilrrnur IrMiilurnliJol
—.................Q
l lln/lnljinii} II nlihl
I mlur-jivnliii mniiluiiiilnrikiA
Urri.Mr nlliii. hrrk,m1„„A fiY.kn,
liifinni i inlmnkri hi„ilhrlfti.'
Setjum afgreiðslubann á
‘vestur-þýsk „gæsluskip”
Brigzl í garð
hafnarstjóra og
hafnarverka-
manna
Á árinu 1972 settu þá-
verandi stjórnvöld hafn-
bann (afgreiðslubann) á
fiskveiSiskip þeirra þjóða,
sem ekki virtu 50 milna
fiskveiðilandhelgi okkar,
sem og fylgiskip þeirra.
Um sama leyti setti mið-
stjórn ASf hliðstæðar
reglur, sem tryggja áttu,
að landhelgisbrjótar og
leiðbeinandi gæzluskip
fengju ekki afgreiðslu i is-
lenzkum höfnum. Hvor
tveggja ákvörðunin stend-
ur enn og hefur i einu og
öllu verið framfylgt. pngu
að siður birtir Þjóðviljinn
dag eftir dag æsifréttir á
forsiðu, sem halda hinu
gagnstæða fram. Það er
jafnvel talað um „úrvals-
Forsiðufrétt í Þjóðviljanum 5. september sl.
DJÚDVIUINN
SEST VERDl R 4i> S iM\l\U M
Njósnaskipin fá úrvals-
• þjónustu
|,S§;|á ineðan!
■Mæ * | f^~Æi
17.12 kr.
ítinaöar-
"?• 2ST. sj.*ssí Ifclj
>* •— -r -
zwmd&z
’»»n náeins 3
Forsíðufrétt í sama blaði 6. september sl
þjónustu", sem eru fá-
heyrð brigzl, bæði I garð
hafnarverkamanna og
þeirra opinberra emb-
ættismanna sveitarfélaga,
sem annast stjórnun og
starfsemi einstakra hafna.
Er ekki ástæða til þess
fyrir þetta blað að biðjast
opinberlega afsökunar á
ásökunum stnum i garð
þessara starfshópa?
Hvað varð um
eignir Alþýðu-
flokksins?
Þjóðviljinn fjallar i gær
um eignir Alþýðuflokksins
og segir svo orðrétt:
„Það er ekkert laun-
ungarmál að Alþýðu-
bandalagið og Þjóðviljinn
telja sinum fjárhag betur
borgið með þvi að vera í
eigin húsnæði en með því
að leigja húsnæði af hús-
næðisbröskurum. Þetta
vissi forusta Alþýðuflokks
ins fyrir nokkrum áratug-
um, þegar hún beitti sér
fyrir þvi að hirða húseign,
Alþýðuhúsit^af verkalýðs-
hreyfingunni á sinum
tima. En það mætti spyrja
Alþýðublaðið i dag hvað
orðið hefur af þessum
eignum, hver á Alþýðu-
húsið, Iðnó, Alþýðubrauð-
gerðina o.s.frv? Ætli stað-
reyndin sé ekki sú að þeir
trúnaðarmenn Alþýðu-
flokksins sem áttu að
ávaxta þessar eignir hafi
gert það I eigin þágu en
ekki blaðsins? Og varla er
hægt að áfellast Þjóðvilj-
ann og aðstandendur
hans fyrir það þó að trún-
aðarmenn hreyfingarinnar
við húsbyggingar eins og
Skólavörðustig 19 hafi
fyrst og fremst lagt
áherzlu á hagsmuni hreyf-
ingarinnar I heild, fremur
en að maka krókinn sjálf-
spurt &
Hringið i síma 10100
milli kl. 10.30 og 11.30
frá mánudegi til föstu-
dags og spyrjið um
Lesendaþjónustu
Morgunblaðsins.
HVAR FÆ ÉG
AFRITIÐ?
Helena Líndal, Garðarsbraut
15, Húsavík, spyr:
„17. maí árið 1968 var kveð-
inn upp dómur á Húsavík af
þáverandi sýslumanni, Jóhanni
Skaftasyni. Þar segir meðal
annars: „Stefnandi fékk útgef-
inn lóðaleigusamning á árinu
1953.“ Dómur þessi var stað-
festur af Hæstarétti 7. nóvem-
ber 1969. Ég hef gert ítrekaðar
tilraunir til að fá afrit af þess-
um lóðaleigusamningi og skrif-
aði fjórum sinnum Jóhanni
Skaftasyni, en fékk ekkert
svar. Þá sneri ég mér til dóms-
málaráðuneytisins og fékk
heldur ekkert svar. Nokkur
símtöl átti ég við Baldur Möller
ráðuneytisstjóra í dómsmála-
ráðuneytinu, sem ekkert vildi
gera í málinu. Spurning mín er
því þessi, hvert á ég að snúa
mér til að fá afrit af lóðaleigu-
samningi mínum frá árinu
1953, sem getið er um í dómi
Jóhanns Skaftasonar og Hæsta-
réttar? Þá vil ég einnig spyrja,
hvort opinberum stofnunum
beri ekki skylda að svara bréf-
um, sem þeim berast?
Björn Helgason hæstaréttar-
ritari svarar fyrri spurning-
unni:
„Ef endanlegur dómur í mál-
inu hefur gengið f Hæstarétti,
eru öll málskjöl í vörzlu Hæsta-
réttar. Ekkert er því til fyrir-
stöðu að málsaðili geti fengið
staðfest endurrit af málsskjali
á skrifstofu Hæstaréttar."
Baldur Möller ráðuneytis-
stjóri ( dómsmálaráðuneytinu
svarar seinni spurningunni:
„Ekki er í lögum skýrt tekið
fram um að opinberum
stofnunum beri skylda til að
svara bréfum, sem þeim berast.
Hins vegar er litið á það sem
eðlilega skyldu opinberra stofn-
ana að svara erindum borgar-
anna, séu þau sett fram með
eðlilegum hætti. Stundum ber-
ast erindi, sem ekki eru svar-
hæf. Þá tel ég eðlilegt að opin-
ber stofnun staðfesti áður gefið
munnlegt svar með bréfi sé
þess óskað.“
HJtJKRUNARKONA
EÐA
HJUKRUNAR-
FRÆÐINGUR?
Sigrfður Gfsladóttir, Hvassa-
leiti 26, Reykjavfk spyr:
„Fyrir stuttu sá ég í blaði
tvær auglýsingar frá sjúkra-
stofnunum um lausar stöður. í
annarri auglýsingunni var aug-
lýst eftir hjúkrunarfræðingi,
en í hinni eftir hjúkrunarkonu.
Ég vil því spyrja, er einhver
menntunarlegur munur á þess-
um tveimur starfsheitum, og er
launalegur munur á þeim?
Pétur Jónsson starfsmanna-
stjóri Rfkisspftalanna svarar:
„Á þessum tveimur starfs-
heitum er enginn munur og er í
báðum tilvikum átt við það
starf, sem hjúkrunarkonur
hafa hingað til sinnt. Það skal
tekið fram að ekki hefur endan-
lega verið ákveðið hvaða starfs-
heiti sá, sem útskrifast frá
námsbraut i hjúkrunarfræðum
við Háskóla Islands, ber þar
sem námsbrautin hefur ekki út-
skrifað neinn enn. Hins vegar
er ljóst að um verður að ræða
verulegan launamun á þeim
sem útskrifast frá hefðbundn-
um hjúkrunarskólum og frá
námsbrautinni við H.í.“
{ \ ^ ^
Læriö
aö f
& ^ dansa
Dansinn
yngir
Dansinn
kætir
0 Dansinn
alla
daga
bætir
Innritun í ballett og
samkvæmisdansskólanum
hefst á næstunni
DANSKENNARASAMBAND ISLANDS
0Ó0
TRYGGING fyrir réttri tilsögn ídansi
NÚ ER m
UTSÖLU
ARKAÐURINN
nft
í NÝJU HÚSNÆÐI
AÐ
LAUGAVEGI 66
l sama huslvlð
hllðlna á verzlun
okkar
Látið ekki|
happ
úr hendi
sleppa
- 'líö'
Otrúlegt
vöruúrval
á frábærlega góðu
verðil!!!
□ Tereiyne & ullarbuxur i miklu úrvali
| | Föt meS vesti Pils og kjólar
[ | Bolir ] Stakir kvenjakkar
Q UFO flauelisbuxur.
Þ O c
Nú er hægt að
gera reyfarakaup
Laugavegi 66, sími 28155